Alþýðublaðið - 08.01.1969, Blaðsíða 5
Frakkar hætta vopna-
sölu til ísrael
PARÍS 7.1. (ntb-reuter): Frakkar tóku I dag upp skilorSs-
laust bann við hvers konar vopnaafhendingum til Israels-
manna á Beirút-flugrvöll, sem de Gaulle kallaði „fáheyrð
hermdarverk". Bannið kemur mjög liarkalegra niður á
frönskum flugvéla- og eldflaugaiðnaði, sem átt hefur góð-
an markað í Israel.
8- janúar 1969 ALÞYÐUBLAÐIO. 5
Skákþing hefst
á sunnudaginn
Skákþing Reykjavíkur
'hefst kl. 2 e.h. á sunnudaginn
kemur í skákheimili félagsins
að Grensásvegi 46. Keppt
verður í fjórum styrkleika-
flokkum, meistaraflokki, 1.
flokki, 2. flokki og ung-
lingaflokki. Öllum er frjáls
þátttaka. Sigurvegari í
meistaraflokki hlýtur titilinn
skákmeistari Reykjavíkur
1969 og sem verðlaun fjár-
styrk til keppni á skákmóti
erlendis. Við setningu skák-
þingsins fer fram verðlauna-
afhending.
Bikarkeppni Taflfélags
Reykjavíkur 1968, (5 tapa)
■— útsláttarkeppni, hófst um
miðjan nóvember og .lauk nú
rétt fyrir áramótin. Keppt
var í tveim flokkum og voru
keppendur alls 39 (28-þ]lý.
Sigurvegari í 1. flokki var
Jón Pálsson (3V2 tap), en í
2. sæti var Jóhann Sigurións
son og í 3. sæti Magnús Gunn-
arsson. f 2. flokki bar Páil
Ammendrup sigur úr býtum.
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur fór fram dagana
29. og 30. des. 1968. Þátttak-
endur í undanúrslitum voru
45 talsins og var keppt í þrem
riðlum. í úrslit komust 18
manns. Bragi Kr'stjánsson
og Björn Theódórsson urðu
Nætur golí
Golfklúbbur Reykjavíkur hef-
ur í hyggju að bjóða svonefnd-
um „Stop — over” farþegum
Þoftleiða afnot af gólfvelli fé-
lagsins við Grafarholt. Farþeg-
arnir gætu, þegar nótt er björt,
hafið leik undir miðnætti og
leikið til morguns. Er ekkj að
efa að slíkt tilboð myndi falla
í góðan jarðveg. Af þessari fram
kvæmd verður þó ekki fyrr en
völlurinn telst í fyrsta flokks
ástandi — eftir -eitt til tvö ár.
efstir og jafnir með 14 vinn-
■ inga hvor af 18 mögulegum,
en í 3. sæti varð I’ngvar Ás-
mundsson með 12Vá vinning.
Skákmeistari TaflféJags
Reykjavíkur, Björn Sigurjóns
son, (19 ára að aldri), keppir
þessa dagana á hinu árlega
alþjóðlega skákmóti í Hast-
ings. Björn teflír í næst efsta
flokki (challengers), en í
þeim flokki keppir margt
sterkra skákmanna, þar á
meðal alþjóðleg'r skákmeist-
arar. Engar fréttir hafa enn
borizt af árangri Björns.
Akranesbátar
Reykjavík. — S.J.
Róið er frá flestum verstöðvr
um við Faxaflóa og í gærkvöldi
komu 11 bátar úr róðri til Kefla-
víkur. Afli bátanna var 2,5—7,5
lestir og er það svipað aflamagn
og hefur verið að undanförnu.
Bátarnir sækja vestur í Jökul-
tungur.
í nótt fengu tveir Akranesbát-
ar síld, 40—50 tonn hver, en svo
til engin síldveiði hefur verið að
undanförnu. í Keflavík var land-
að um 70 tonnum af síld í des-
embermánuði.
MfíA'.Vi' ■
ÍMuíÆii&jmW; *l r > -
Nú urðu Rússar sannanlega fyrstir:
LUG TU-144
ÁGÆTUM
Rússar urðu fyrstir í kapp-
hlaupinu um hljóðhverfar far-
þegaþotur, reynsluflugið áttj sér
stað á nýársdag og stóð í 33
mínútur. Vélin, sem heitir TU-
144 vegur 130 tonn og er búin
fjórum þrýstiloftshreyflum. Hún
getur flogið með 2.500 km. hraða
á - klukkustund og 6.500 km.
langa leið. Farþegarým; er fyrfr
120-430 farþega.
Flugstjóri í reynsluförinni
var hinn 42 ára gamli Eduard
E1 Jan, frægur flugkappi, og
flaug hann vélinni í tvo hringi
í kringum Moskvuborg.
TU-144 er nefnd eftir hinum
áttræða flugvélasmið Andrei
Tupolév og er teiknuð af syni
hans, Alexei. Það tækl þotuna
eina og hálfa klukkustund að
fljúga frá Moskvu til London
eða Parísar.
Hin brezk—franska Conlorde
á að fara í reynsluflug í þessum
eða næsta mánuði. Hún er af
svipaðri stærð og TU-144, flýg-
ur með 2.320 km. hraða á klst.
og mun fiytja 136 farþega. Aft-
ur á móti mun bandaríska þot-
an hljóðhverfa, B-2707, flytja
280 farþega og fljúga með 2.960
km. hraða á' klst.
ingu SlS-ver
janna verður
Reykjavík Þ.G.
Erlendur Einarsson, forstjór
félasa, os' Harry Fredriksen,
SÍS, boðuðu blaðamenn á sinn
um uppbyggingu verksmiðjanna
nótt sl. laugardags.
Eins og kunnugt er, kom upp
mikill eldur í Sambandsverlc-
MEIRAPRÓFSNÁMSKEIÐ
verður haldjð í Reykjavík nú í janúar. Umsóknir um
þátttöku sendist tll Biíreiðaeftirlits rkisins, Borgartúni 7
fyrir 11. þ.m,
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
i Sambands íslenzkra samvinnu-
framkvæmdastjóri iðnaðardeildar
fund til að skýra frá áætlunum
á Akurcyri, sem brunnu aðfara-
smiðjunum á Akureyri og
skemmdist ullarverksmiðjan
Gefjun og fataverksmiðjan
Hekla mikið af völdum eldsins
og urðu þær óstaríháefar um hríð,
en hafa þær þó getað hafið starf-
semi sína að nýju. Skóverksmiðj
an er óstarfhæf ennþá og sama
er að segja um sútunarverk-
smiðjuna, þó getur loðsútun haf
izt innan skamms.
Lagt verður mikið kapp á að
koma skóverksmiðjunni í gan|
sem fyrst til bráðabirgða, — en
skópantanjr eru bókaðar langt
fram á sumar. Fyrst í stað verð-
ur að ílytja inn leður í skóna,
þar sem sútunarverksmiðjan er
óstarfhæf og allar leðurbirgðir
eyðilögðust, en hingað til hafa
skórnir verið framleiddir úr inn-
lendum húðum.
Þá er í ráði að fá hingað er-
lenda sérfræðinga til tæknilegr-
ar aðstoðar við að rejsa nýja og
fulikomnari sútunarverksmiðju.
Sambandsverksmiðjurnar á
Akureyri hafa verið atvinnulífi
þar mikil lyftistöng, en starfsfólk
við þær er 5—600 talsins, svo
að mikið liggur við að geta hafið
starfsemina að íullu aftur sem
fyrst. í því skyni hyggst Sani-
bandið ieita til banka og fjár-
festingasjóðs um lánveitingar til
framkvæmdanna, því að vátrygg-
ingaféð hrekkur skammt lil
þeirrar uppbyggingar, sem þarna
þarf að eiga sér stað. — Ekki
hefur verið lokið við að meta
skemmdir á fasteignum, en talið
er, að tjónið í þessutn mikla
bruna nemi að minnsta kosti 5®
milljónum.
Sambandið óskar að þakka.
brunaliðsmönnum á Akureyri,:
svo og öðrum, sem að slökkvi-j
starfinu unnu, þann mikla þátt,j
sem þeir áttu í því, að tjóniSj
varð þó ekki meira en raun beri
vitni.