Alþýðublaðið - 12.01.1969, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 12.01.1969, Qupperneq 7
12- janúar 1969 ALÞYÐUBLASIÐ 7 TOKYO - stærsta borg í heimi Fréttamaður norsku fréttastoíunnar AP ilvaldist í Japan um áramótin. Hann sentli frá sér nokkrar greinar um dvölina osr birtum við þá fyrstu nú, en hinar verða birtar næstu daga. Síðustu klukkustundirnar höfum við flogið í niöa- myrkri, en skynd.lega er flugvélinni beint niður á við og eftir að hafa smogið lipur lega gegnum ský, blasir Tokyo við fyrir neðan olck- ur, böðuð marglitum ljósum, Eins og venjulega er ,ekki hægt að fá lendingarleyfi strax á Hanedaflugvellinum og verðum við að sveima yf- ir borginni í hálfa klukku- stund þar til röðin kemur að okkur, lendingarleyfi fæst og við getum haft fast undir fótum á ný. Fast já. Reynd- ar eru svo til daglegir jarð skjálftar í Japan, en hvað um það. við fáum ókeypis hálfrar klukkustundar skoð- unarferð yfir Tokyob., eins konar „Tokyo að nóttu til“, séð að ofan. V.ssulega er þetta ánægjulegt, en kemst að sjálfsögðu ekki í hálf- kvisti við það sem hægt er að upplifa þarna niðri. Þar sem ég sit þarna í loftinu mdli himins og jarð- ar, sækja að mér ýmsar hugsanir og mér verður hugs að til þess að þarna niðri x Ijósadýrðinni lifir mann- fjöld;, sem er þrisvar sinn- um stærri en allir íbúar Noregs. Já, 11 milljónir lifa þama niðri og vissulega hefur vesaell Norðmaðu.r ástæðu til að fá m.nnimátt- arkennd. Nú er vélinni beint inn til lendingar og þar með er óhjákvæmilegt að mér verði hugsað t.l fyrri heimsókna hingað til Japan og þá fyrst og fremst þeirrar fyrstu. — Mér verður hugsað til blaða- mannsins sem rauk á mig, rúmri mínútu eftir að ég hafði st:gið út úr flugvél- inni, og spurði: „Hvaða á- hrif hefur Japan á yður?“ Ég hafði aldrei komið til Japan áður og elnu kynni mín af landinu voru návist nokkurra forkunnarfagurra flugfreyja um borð í vélinni, sem ég ferðaðist með í'rá Hong Kong. Það mátti lralla þessi fyrstu kynni mín af landinu mjög jákvæð, svo ég gat gefið blaðamanninum harla jákvætt svar, þótt svo ég frétti seinna að hann skyldi ekki orð í ensku. Það sem vekur ávallt mesta athygli mína er ég kem til Japan er, hvað allt gengur fljótt fyrir sig í flug höfninni. Ég er handviss, að í engri i annarri stórri flug- höfn í heiminum fær maður farangur slnn eins fljótt og í Tokyo. Tollskoðunin er sársaukalaus, þ.e.a.s. ef þú ert ekki Japani. Ef þú ert Japani, þá geturðu beðið fyr ir þér Ferðatöskur Japana eru opnaðar og öllu hvolft úr þeim og aumingja Japan- inn verður að hafa á lofti allar mögulegar afsakanir til að sannfæra hina Japan- ana um tilgang þess að kaupa eitthvað erlendis. En ástæður til þess eru engar, það fæst allt í Japan. Já, jafnvel norskir minjagripir. Eitt sinn áður en ég fór til Japan, keypti ég í norskri minjagripaverzlun norska minjagripi, til að gefa virn- um og kunningjum er ég kæmi til Japan, en slíkt er afar mikilvægt í augum. Jap an*a. Ég bað um nokkrar litlar brúður í norskum þ.jóð búr.ingum og lét pakka þeim inn á staðnum og opnaði ekki pakkann fyrr en ég kom til Japan. Ég hefði gjarnan vilja eiga svipinn á mér á mynd þegar ég opn- aði pakkann og sá að á brúð unum stóð: „Framleit.t í Japan“. Hugvitsamur japanskur verzlunarmaður lét fyrir skömmu hefja fjöldafram- leiðslu á ósköp venjulegum skandjnavískum minjagrip, flutti hann út til Skandina- víu og seldi hann þar á langtum lægra verði en skandinavískir keppinautar gátu boðið. Af þessu leiðir að í þetta sjnn ákvað ég að kaupa ekki norska minjagripi fyrr en ég kæmi til Japan. Ein af innakstursleiðunum inn í miðborg Tokyo. TILBOÐ ÓSKAST t í nokkrar fólksbifrciðar er verða sýndar að Grensás- vegi 9 miðvjkudaginn 15. janxiar 1969 kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri Austurstræti 7 kl. 5 sama dag. ! j.. Sölunefnd varnarliðseigna. Lítið i gluggana um helgina Okkar nýja áklæði, hinn gamii íslenzki Salúnvefnaður, þjóST- legt fallegt, slitsterkt. . [ ..K.' ■ Á L A F O S S ■ ■ *. Þingholtsstræti 2. Aðstoð við unglinga Mímir aðstoðar unglinga fyriir próf. Kennt er í ENSKU, DÖNSKUj STÆRÐFRÆÐI, EÐL- ISFRÆÐI, RÉTTRITUN og „íslenzkri mál- fræði ”. Nemendur velja sjálfir námsgreinar sínar. Innritun snemma. Það kann að verða of seint rétt fyrir prófið. Málaskólinn MÍMIR Brautarholti 4 - sírni 1 0004 og 111 09 (kl. 1-7). Frá Raznoexport, U.S.S.R. a oa B aæðafiokkar MarsTr afflni Companyhf MOy D gæOaTIOKKar Laugaveg 103 sími 1 73 73 Iintrðmmun ÞOBBJÖRNS BENEDIKTSSONAR IngóUsstræti 7 Auglýsingasíminn er 14906

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.