Alþýðublaðið - 23.02.1969, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 23.02.1969, Blaðsíða 8
8 ALÞYBUBLABIÐ 23. febrúar 1969 Knud Lurídberg í Aktuelt: MK skemmtilegasta liðið í dönskum handknattleik DANSKA liandkftattleiksliðið MK 31 var væntanlegt til Reykja- víkur í gær á vegum Vals og leik- ur fyrsta leik sinn hér á landi kl. ' 4 í dag. Liðið leikur við úrvalslið, sem íþróttafréttamenn hafa valið. Segja má því, að Iiðið sé einskonar landslið, sem íþróttafréttamenn bera ábyrgð á. Eins og búizt var við er liðið að mestu skipað sömu mönnum, og léku við Svía og Dani ytra fyrir skömmu. Tveir nýir menn eru í liðinu þeir 'Ingólfur Oskarsson, Fram og Einar Sigurðsson, FH. í Þcgar POLAR CUP mótið var haldið hér um páskana, þá var sam- þykkt á fundi formanna körfúknatt leikssambanda Norðurlanda að nú í vór skyldi haldið Norðurlandamót unglinga í körfuknattleik. Þess vegna voru valdir piltar til æfinga, en æfingarnar eru að byrja : ' nú um þessar mundir, ástæðan fyr- ir því að æfingarnar byrja svona ; seint er að Svíar buðust til að halda hið fyrsta mót, en nú er alveg j óvíst hvort þeir haldi það, því þeir hafa ekkert látið heyra í sér hvort 1 af mótinu verði. ! Ef ekki verður af Norðurlanda- • mótinu þá verður reynt að taka ] þátt í Evrópumeistaramóti unglinga j sem fram fer í haust, því nauðsyn- legt er að skapa verkefni fyrir ung- lingalandslið. Unglingalandsliðsnefnd KKÍ hef- ur valið fyrsta hópinn til æfinga, i en í nefndinni eiga sæti þeir Þor- j steinn Hallgrímsson formaður Birg- ' ir Birgis og Gunnar Gunnarsson. ; Þjálfari hefur vcrið ráðinn, Helgi j Jóhannsson, en einmitt hann þjálf- : -----------------------------------< \ Sveitaglíma KR Sveitaglíma KR fcr fram að Há- j logalandi í kvöld kl. 20.00. ■ Má búast við afarspennandi keppni eins og áður þegar KR og Víkverji mætast i sveitaglímu. Síðast sigraði Víkverji með 13 vinningum gegn 12 eftir tvísýna keppni og má búast við því að KR- ■ ingar leggi hart að sér til þess að vinna nú, því mótið er tileinkað 70 ára afmæli félagsins. Helztu máttarstólpar KR-liðsins eru: Sigtryggur Sigurðsson, Ómar • ■ Ulfarsson og Jón Unndórsson, en. .' Víkverja Agúst Bjarnarson, Gunn- ■ ar Ingvarsson og Ingvi Guðmunds- son. Trúlegt er, að þessir gamalreyndu nienn styrki liðið, það hefur verið deilt töluvert á landsliðsnefnd fyrir að velja of marga unga menn með tiltölulega litla reynslu. Við skul- um vona, að vel fari í dag, en í danska liðinu eru margir sterkir leikmenn, m.a. Max Nielsen einn reyndasti leikmaður Dana með 65 landsleiki að baki. ★ _ HLJÓMSKÁLAHLAUP ÍR í dag kl. 15,30 verður háð 3. Hljómskálahlaup 1R, en þátttakend- ur eru eða hafa verið ungir en aði fyrsta unglingalandsliðið í körfuknattleik en þeir piltar scm léku í því skipa kjarnann í lands- liðinu. Eftirtaldir piltar hafa verið valdir. Frá KR: Birgir Guðbjörnsson Hilmar Viktorsson Bjarni Jóhannesson Eiríkur jónsson Einar Brekkan Ólafur Finsen Frá KFR: Stefán Bjarkason Kári Maríusson Einar Lárusson Jens Magnússon ___________ Frá Armanni: Jón Sigurðsson Björn Christjansen Magnús Þórðarson Haraldur Hauksson Helgi Magnússon _____________ Frá ÍKF: Gunnar Þorvarðarson Kjartan Arinbjörnsson. Frá ÍR: Gunnlaugur Pálmason Árni Pálsson Þorsteinn Guðnason Guðmundur Pétursson. Það skal tekið fram að cftir er að velja pilta utan af Iandi, en líklega munu þcir æfa eftir sérstakri æfingaáætlun sem Unglingalandsliðs nefnd lætur gera. Piltar frá Borgar- nesi og Selfossi koma sterklega til greina til að æfa með liðinu. Það verður ékki eingöngu miðað við þennan hóp. Æft verður einu sinni í viku fram á vor auk æfingjaleikja, og fara æfingarnar fram í Iþrótta- húsi Háskólans kl. 10.00 á sunnu- dagsmorgnum. áhugasamir piltar. Nú verður sú breyting að fullorðnir taka þátt í hlaupinu, en sjórn' FRI hefur sam- ráð við IR um að gefa þeirn eldri tækifæri til að reyna sig. Þeir eldri hlaupa í tveimur flokkum og þeir sem hljóta beztan tíma samanlagt í fjótum hlaupum hljóta bikara til eignar. 2. hlaup þeirra fullorðntl fer fram eftir tvær vikur. ★ KNATTSPYRNAN 13. æfingaleikur landsliðsins í knattspyrnu fer fram á Framvellin- utn í dag og hefst kl. 1,30. Þess skal getið, að enginn leikmaður úr ÍBV eða KR leikur með að þessu sinni, þar sem liðin léku t meist- arakeppni KSI í Eyjum í gær. Ung- lingaliðið leikur við hið unga og efnilega lið Ármanns, sem náð hef- ur góðum árangri undanfarið, tap- aði t.d. naumlega fyrir IBK 4:5 um síðustu helgi. Nú hcfur stjórn KSI gengið frá samningum við Arsenal um að koma hingað f byrjun maí. KRR mun einnig taka þátt í mótttöku þess fræga liðs og er ekki að efa, að hér verður um stórviðburð að ræða. Stjórn KSI er með ýmislegt fleira í bígerð, sem ekki heftir verið gengið frá að fullu, t.d. heimsókn fransks -úrvalsliðs. Allar líkur benda til þess, að mikið líf verði í knatt- snvrnunni í sumar. — ÖE. Geir Ilallsteinsson, FH. í RAUNINNI ætti ég að vcra leiður út í MK 31. Ég veðjaði bjór- kassa um að liðið ynni til verðlauna í ár. F.n ég er ekki leiður út í liðið, þvert á móti, álít ég það lang skemmtilegasta liðið í dönskum handknattleik í dag. Til þess liggja margar ástæður, ekki aðeins hve liðið er ungt, þó það skipti að sjálf- sögðu einnig máli. Fleldur fyrst og fremst sú staðreynd hve liðið er ljómandi efnilegt. Mestu skiptir þó að liðið getur útfært leik sinn þrátt fyrir sfnar óumdeilanlegu veiku hlið ar. Flinir kornttngu leikmenn eru nógu fljótir, Hiirka þeirra er að SVEINN H. VALDIMARSSON hæstaréftarlögmaður. Sölvhólsgata 4 (Sambandshús, 3. hæð). Símar: 23338 — 12343. verða nægilcg og skothörku hafa þeir í ríkum mæli. Hins vegar skort ir nokkuð á það, að þeir séu nægi- lega hávaxnir. Unglingameist- aramót í frjáls- um íþróttum Unglingameistaramót Islands í frjálsum íþróttum innanhúss fcr fram í Iþróttahúsi Háskól- ans sunudaginn 2. marz n.k. Keppt verður j langstökki, há- stökki og þrístökki án atrennu, kúluvarpi, stangarstökki óg hástökki með atrennu. Þátttaka tilkynnist Gúðmundi Þórarinssyni, Baldursgötu 6, í síðasta lagi 26. febrúar. Æfingar unglinga í körfuknattleik

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.