Alþýðublaðið - 23.02.1969, Page 10
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 23. febrúar 1969
Skélasajsiþykkt
Framh.*ld af 7. '*iðu.
greiad og sérhæfileikum og finna
lausn á uppeldislegum vandamál-
um, sem af því kunna að rísa. Mikla
áherzlu ber að leggja á, að slík
stofnun leggi sig fram um að
virkja starfandi kennarad hópvinnu
að rannsóknarstarfi og samningu
kennslubóka, enda verði kennurum
gefinn kostur á að vinna slík störf
í orlofi frá kennslustörfum.
3.5 Vanrx\tar ndmsgreinar: Rattn
insindi. Eins og nú er ástatt má
heita, að veigamiklar undirstöðu-
greinar nútíma vísinda, sérstaklega
raungreina (eðlis-, efna- og náttúru-
fræði) og félagsvísinda (hagfræði,
félags- og sálarfræði), séu með öllu
afræktar í íslenzku skólastarfi. Sam-
anburður á námsefni og þekkingar-
kröfum til unglinga í stærðfræði,
eðlis- og efnafræði á Islandi og ann-
ars staðar á Norðurlöndum hefur
leitt í ljós, að mikið skortir á, að
nám í þessum greinum í íslenzkum
skólum sé jafngilt námi á sam-
bærilegu aldursstigi á Norðurlönd-
um°). Þessi vanræksla veldur eink-
°) Sjá grein í Menntamálum, 2.
hefti, 39. árg. 1966 eftir Sveinbjörn
Björnsson eðlisfræðing.
um þeim nemendum, sem ekki fara
í menntaskóla, tilfinnanlegum erfið-
leikum, torveldar þeim mjög leiðir
til framhaldsnáms og veldur sér-
skólum, er veita sérhæfða fram-
haldsmenntun (t.d. tækniskóla og
kenharaskóla) alvarlegum erfiðleik-
um. Orsök þessa ófremdarástands
er cfið finna í hvorutveggja, bóka-
skorti og vöntun sérmenntaðra kenn-
ara, jafnframt sem það segir sína
sögu um hina óvirku afstöðu fræðslu
yfirvalda, að þctta ástand hefur lið-
izt svo lengi.
3.6 Vanrœ\tar námsgreinar: Fé-
lagsvísind't. Ekki verður til þess
ætlazt, að unglihgar öðlist þekkingu
á gerð og starfsháttum flókins iðn-
aðarþjóðfélags, sem stöðugt er
breytingum undirorpið, af umhverfi
og reynslu einni saman. Kennsla í
þjóðfélagsfræðum er því ómissandi
liður í námsefni og uppeldisstarfi
skólanna. Þessi kennsla þarf að vera
samtengd á öllum skólastigum og
námsefnið vandlega sniðið eftir
aldri og þroska nemenda. Nauðsyn
ber til að samræma kennslu þeirra
greina, er miðla þekkingu og skiln-
ingi á þjóðfélaginu og mannlegum
samskiptum itinan þess (félagsfræði,
saga, landafræði, hagfræði). Þá fer
einnig bezt á því, að leiðbeiningar
um nám og starfsval sé fastur þátt-
ur í þessu námi. Markmið kennsl-
unnar ætti að réttu lagi ekki að
vera það eitt að greina frá staðreynd-
um og stofnunum, heldur miklu
fremur að örva skilning á eðli og
vandamálum íslenzks nútímasam-
félags; þjálfa vinnubrögð við öflun
og úrvinnslu gagna, venja nemend-
ur við gagnrýnið hugarfar, hlut-
lægni í hugsun, og hvetja til hlevpi-
dómalausrar og jákvæðrar afstöðu
til sameiginlegra vandamála. Það er
ein alvarlegasta veilan í uppeldis-
starfi skólanna, hve illa er að þess-
ari fræðslu búið, bæði hvað varðar
bækur og menntun kennara. Verði
ekki bætt úr ríkjandi vanrækslu í
þessum greinum, getur það orðið
lýðræðislegri þróun þjóðfélagsins
fjötur um fót.
1
3.7 Úreltar bœ\ur. Það er brýn-
asta verkefni rannsóknarstofnunar
í skólamálum að hafa forgöngu um
samningu og/eða þýðingu nothæfra
kennslubóka í þessum og öðrum
greinum. Vandamál kennaramennt-
unarinnar getur slík stofnun ekki
leyst, enda þarf fleira að koma til.
Bókaskorturinn hefur svo lamandi
áhrif á alla umbótaviðleitni i skóla-
starfinu, að það þolir enga bið, að
verja bæði fé og starfskröftum til
þess að úr verði bætt. Nægir að
minna á þá staðreynd, að þær
kennslubækur, sem Islandssögunám
í skólum landsins grundvallast á,
eru meira en hálfrar aldar gamlar
og burðarás móðurmálskennslunnar
er málfræði, sem lifað hefur þriðj-
ung aldar.
38 Námsaðstaða í s\6lum. Næst
endyrnýjun námsefnis og betri og
fjölbreytilegri bókakosti verður að
gera átak til að bæta kennslu- og
námsaðstöðu skólanna. Með náms-
aðstöðu er átt við bókasöfn, vinnu-
herbergi nemenda og kennara, sér-
kennslustofur, kennslutæki o. s. frv. -
A það nægir að benda, að krafan
um betri kennsluhætti í raungrein-
um, svo sem eðlis-, efna- og náttúru-
fræðum, er út í hött, meðan ekki
er séð fyrir sér-kennslustofum, sem
séu sérstaklega útbúnar til slíkrar
kennslu.
Bókasafn og vinnuherbergi kenn-
ara og nemenda í skólanum er skil- \
yrði þess, að unnt sé að kenna nem- •-
andanum eðlileg vinnubrögð við
gagnaöflun og úrvinnslu, er þroski
sjálfstæða dómgreind, rökvísi og f
ályktunarhæfni. Sama máli gegnir V
um nýjar hugmyndir um aukið
leiðbeiningarttarf (handlieiðslu) í .
stað prófa. Það skortir bæði hús- í;
næði og aðstöðu í skólum til þess, .
að slíkar hugmyndir verði annað en :
orðin tóm að óbreyttum aðstæðum.
En ein meginforsenda bættrar náms-
aðstöðu er algerlega ný stefna í ;
húsbyggingamálum skólanna. Sú %
hefð, að hver skólabygging saman-
standi fyrst og fremst af kennslu
stofum, sem hver um sig rúmi um
30 nemendur, á sér lítil eða engin
uppeldis- eða kennslufræðileg rök.
Ekki ætti að þurfa að taka frarn,
að tví- og þrísetning skólahúsnæðis
er í sjálfu sér afneitun skólahugtaks
ins; þá er ekki lengur um að ræða
skóla, heldur verksmiðju, sem rekin
er með vaktavinnu og óþarfi að
nefna nokkrar hugmyndir um
etidurnýjun skólastarfs í því sam-
bandi.
Smáa tiffh/.si*
Grímubúningaleiga
Þóru Borg er nú opin kl. 5 til 7
alla virka daga, bæði barna og
fullorðlnsbúningar. Barnabún-
ingar eru ekki teknir frá, bc!<I-
ur afgreiddir tveim dögum fyr
ir dansleikina. Þóra Borg,
Baufáóvegi 5. Simi 13017.
Bifreiðaviðgerðir
Byðbæting, réttingar, nýsmíði,
sprautun, plastviðgerðir og aðr
ar smærri viðgerðir. Timavinna
og fast verð. —
JÓN J. JAKOBSSON,
Geigjutanga við EUiðavog.
8íml 31040. Heimasími 82407.
Ökukennsla - Æfinga-
tímar.—
Útvega öll gögn varðandi gU-
próf, tímar eftir samkomulagi
Ford Cortina ’68.
Hörður Kagnarsaon,
síml 35481 og 17601.
Bifreiðaeigendur!
Þvoum, og bónum bíla. Sækjum
og sendum. Bónastofan lleið
argerði 4. Sími 15892. Opið frá
8 tU 22.
Vélritun
Tek að mér vélritun á íslcnzku,
dönsku og ensku. Uppl. í sima
81377.
Nýjung íteppáhreinsun
Við lirejnsum teppi án þess að
Þau blotni. Trygging fyrir því
að teppin hlaupl ekki ða llti
frá sér. Stuttur fyrirvari.
Einnig teppaviðgerðir. _ Uppi.
í verzl. Axminster símj 3067G.
Jarðýtur — Traktors-
gröfur
Höfura tU leigu litlar og stórar
Jarðýtur, traktorsgröfur bU-
krana og flutnlngatæki tU ailra
framkvæmda innan sem utan
borgarinuar.
•j|parðviimslaii sí
Siðumúla 15 _ Símar 32480 og
31080.
Ves-firzkar ættir lokabind
ið. Eyrardalsætt er komin
út. Afgr. er í Leiftri, Mið-
túni 18, sími 15187, og Víði
mel 23, símj 10647-
UNG STÚLKA
óskar eftir vinnu
hefur bæði unnið í verzlun
og á skrifstofu.
Tilboð sendist blaðinu
merkt .,1. marz“
eða í síma 37597.
BÓLSTRUN —
SÍMI 20613
Klæði og geri við bólstruð
gögnm Læt laga póleringu, ef
óskað er. Rólstrun Jóns \rna
sonar, Vesturgötu 53B, sími
20613.
Milliveggj aplötur
Munið gangstéttarhellur og
milliveggjaplötur frá Heliuverl,
skor steinsstelnar og garð-
tröþpur. HeUuver, Bústaða-
bletti 10, sími 33545.
3.9 Menntun \ennara. Akillesar-
hæll íslenzkra skóla cr .vöfitun- á
sérmenntuðum kennurum. Meðan
sá mikli vandi, sem felst í ófullnægj-
andi kennaramenntun,, er óleystur,
verður flest annað reist á sandi.
Endurnýjun námsefnis, bókakosts
og bætt námsaðstaða I skólum kem-
ur því aðeins að haldi, að skólarnir
hafi í sinni þjónustu nægilegan
fjölda vel menntaðra kennara; án
þeirra er lítilla framfara að vænta.
4.0 GöIIttð lagasmíð. Núgildandi
lagaákvæði urn menntun og rétt-
indi gagnfræðaskólakennara er að
fiana í 37. gr. laga unr gagnfræða-
nám nr. 48/1946 og í forgangs-
réttarlögunum svonefndu. (Sjá nán-
ar fvlgiskjal 1 s. 1 og 2.). Samkvæmt
gr. 37 er þess ekki krafizt, að kenn-
arar í bóknámsgreinum hafi lokið
námi, hvorki í kennslugrein(um)
eða kennslufræðum. Með forgangs-
réttarliigunum viðurkennir ríkisvald
ið þó nauðsyn þess, að gerðar séu
. strangar kröfur til menntunar og
: starfsréltinda framhaldsskólakenn-
ara.
En reynslan sýnir, að ! þessu efni
verður að taka vilja stjórnarvalda
fyrir verkið. Það ber einkum tvennt
til :
1. I.ögin sjálf eru hvergi nærri
nógu skýr né afdráttarlaus, þannig
að í skjóli fyrirvara og undantekn-
inga er unnt að brjóta I bága við
- anda og tilgang laganna, enda eru
þau óspart sniðgengin í fram-
kvæmd. (Sjá fylgiskjal I.).
2. Reynslan sýnir einnig, að
strangari lagakröfur um menntun
og réttindi ein sarnan geta ekki leyst
‘isandann. Sá vandi verður fyrirsjáan-
f£gð aldrei Ieystur nema ríkisvaldið
WSurkenni í reynd grundvallarregl-
um laun eftir menntun og
ýyggi. að háskólamenntaðir kennar-
fctriijóti sömu launa og aðrir liá-
píáBÍenntaðir starfsmenn í þjón-
jto ríkisins. A það skortir nú mik-
^j^Meðan svo er, mun réttindalaus-
m;-kennurum fara enn fjölgandi
|iian kennarastéttarinnar með
Sím afleiðingum, að útiloka mcð
m éða tefja og torvelda allar þær
mlhætur á íslcnzku skólastarfi, sem
í»cst eru knýjandi. Meðan ríkis-
gjidið lætur stjórnast af skammsýn-
' stundarhagsmunum í kjaramál-
jrri kennara, hlýtur það um leið að
H&.á-sig alla ábyrgð á því ófrémd-
astandi, sem þar ríkir. Skólanum
þ;í af hálfu ríkisvaldsins gert ó-
. að verða við þeim kröfum,
~þjóðfélagið gerir til hans.
4.1. Tillögur um lagabreytingar.
I fylgiskjalL I eru birt gildandi laga
ákvæði nni menntun og réttindi
kennara í gagnfræða- og framhalds-
skólum, eii í fylgiskjali II eru settar
fram breytingartiilögur FHK á
þessum lögum.
Félagið leggur á það megináherzlu
að breytingar í þá átt, sem ráð er
fvrir gert í þessum breytingartillög-
um, eru frumskilyrði, sinc qua non,
flestra annarra umbóta, er miða að
því að auka gæði menntunar I land-
inu.
4.2 A\adcmis\ menntun \cnn-
ara. Ef taka á upp nýtt námsefni í
barna- og þó einkutn gagnfræðaskól-
um, dreifa námsefninu á fleiri ár,
sem þýðir að hefja kennslu fyrr í
mörguni greinum og gera almennt
strangari kröfur um námsefni og
vinnubrögð, er Ijóst, að gera verður
nú þegar viðeigandi ráðstafanir til
að stórauka framboð sérmenntaðra
kennara. Eins og nú horfir, er mjög
illa séð fyrir menntun kennara á
gagnfræðastigi. Telja verður ein-
svnt, að þrátt fyrir ýmsar umbóta-
tilraunir í starfi Kennaraskóla ís-
lands að undanförnu, geti hann
ekki gegnt þessu hlutverki. K. I.
er fjögurra ára skóli, hliðstæður
menntaskóla, er veitir unglingum
almenna framhaldsmenntun að
loknu landsprófi eða gagnfræðaprófi,
með sérstakri áherzlu þó á kennslu-
fræði. Hvað kunnáttu snertir í éin-
stökurn kennslugréinum, má ætla,
að kennarar frá K. I. standi þegar
bezt lætur á svipuðu stigi og stúd-
entar frá menntaskóla.
Samkvæmt gildandi lagaákvæð-
um er slík menntun ekki talin full-
nægiandi til kennslu á gagnfræða-
og framhaldsskólastigi. Það er því
óraunsætt með öllu að ætlast til þess
af K. I., að hann annist menntun
kennara fyrir annað en barna-
fræðslustigið.
Kcnnarar gagnfræða- og frnm-
haldsskóla liljóta því framvegis að
sa’kja menntun sína til: a. Háskóla
Islands, b. erlendra háskóla, c. til
sérstaks kennaraháskóla, ef stofn-
aður yrði, sem krefðist stúdents-
prófs sem inntökuskilyrðis Hkt og
aðrir háskólar. En til þess að stúd-
entar fáist til að leggja fyrir sig
slíkt nám, verður að gera tvennt:
a. tryggia þeim sambærileg kjör
við aðra háskólamenntaða menn að
námi Ioknu,
h. gera myndarlegt átak til cfl-
ingar kennaramenntunar við H. I.
með auknum fjárframlögum, fjölg-
un kennslukrafta og breyttri náms-
tilhögun. (Sjá síðar).
Barnagæzla
Kona eða unglingsstúlka óskast til að sækja tvö börn
á daglieimili og vera hjá þeim ca. tvo ’kl. tíma, vegna
atvinnu móð'urinnar.
Upplýsingar í síma 81071 og 14900.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
föður okkar tengdaföður og afa
ÓLAFS SIGURÐSSONAR, skipstjóra
Marargötu 7.
Börn, tengdabörn og barnabörn.