Dagur - 19.02.1921, Blaðsíða 1

Dagur - 19.02.1921, Blaðsíða 1
DAGUR keinur út á hverjum Iaugard. Kostar kr. 8.00 árgangurinn. Gjalddagi fyrir 1. ágúst. IV. dr. Akureyri, 19. febrúar 1921. Líndal »kastar hanskanum«. Fyrirlestur herra Björns Líndal: »Frjálsir menn í frjálsu landic, sem hann flutti hér á Akureyri 2. febr. s. 1. verður líklega »víða frægur um síðir«. Að þessu sinni verður lík- lega litlu öðru komið við, en að gefa lesendunum lítilsháttar útdrátt úr því, sem hr. Líndal lét sér um munn fara. Vegna þess að merkur maður á í hlut, verður að taka órð hans fyllilega til greina. Að því má þó ganga vísu, að honum þyki ekki orð sín rétt hermd. Fyrir því eru alveg sérstök dæmi um hann. Ftann hefir bæði í ræðu og riti kvartað um það, að svo virtist vera, sem hann væri sérstakur píslarvottur misskilnings og rangfærslu and- stæðinga sinna. Björn er uppvöðslu- mikill í ræðum, og ekki óhugsan- legt, að hann í kappræðuhita mæli sumt, sem honum eftir á þætti bet- ur ósagt. Slíkt getur þó ekki orðið tekið til greina. Björn er engin skynskiftingur né vesalmenni til vitsmuna, svo ástæða sé til, að sjá í gegnum fingur við hann í þessu efni. Honum er ætlandi að segja það eitt, er hann á við, enda gerir það vafalaust. Sterkustu orðin eru oftast dýpst sótt í hugsunarhátt manna, eðli þeirra og innræti. F*egar rammast 6r kveðið að orði, fer ekki á milli mála, að á bak við er sannfæring- arhiti. Nú mun þeim, sem á hlýddu erindi Björns, hafa þótt hann taka af skarið all víða. Hann hefir ekki með því vilt á sér heimildir. Flest- um mun nú virð^st, að hægt sé að ganga að honum vísum, þar sem hann er. Mun þetta koma í Ijós áður þessu máli lýkur. Fari nú svo, að Björn vilji ekki kannast við orð sín, sem hann iét falla við þetta tækifæri og sem nokkuð margir menn skrifuðu upp eftir honum, um leið og þau voru sögð, verður honum virt það til lítilmensku og óhreinlyndis, en mótmæli hans ekki að öðru leyti tekin til gréina. Hér skulu þá tilfærð ummæli hr. B. L. og áherzla lögð á það, að rekja hugsanaferilinn, eins og hann kom fram í erindi hans. Hann hóf ræðu sína á því, að minnast þess, að þann dag hefði hann fylgt til grafar þeim manni, sem hefði verið öruggur formælandi hugsjónarinnar um frjálsa menn í frjálsu landi. Hann hefði haft það mikla lán og heiður, að vera vinur þessa manns. Hefði hann átt tal við Stefán skólameistara skömmu áður en hann Iagðist banaleguna og vitnaði til orða hans um það, hversu mjög honum hefði virzt þessari hugsjón vera nú misboðið á landi hér. Fyrirlesaranum þótti, sem hann hefði með þessum manni verið að fylgja þessari hugsjón til grafar og það væri vanhelgun á þessum degi, að tala um nokkuð annað en frjálsa menn í frjálsu landi. Mörgum sem á hlýddu mun hafa þótt, sem tæpjega hafi verið hægt að vanhelga þennan dag meira, en hr. B. L. gerði sjálfur. Honum hefir vafalaust verið það ljóst, þegar hann stefndi fólki saman og bauð and- mælendum sínum að hlýða á er- indi það, sem hann hafði að flytja, að hann var að stofna til úlfúðar og sundurþykkju. Dagurinn, sem hann valdi til þess, var einn af þeim fáu dögum, sem auðnast að draga menn saman svo þeir geta staðið einhuga eins og bræður, hvað sem annars kann að bera á milli. Inn í þetta musteri samúðar- innar, ruddist hr. B. L. og gerði það að ræningjabæli. Það vill svo til, að fleiri hafa talað við Stefán skólameistara en hr. B. L. og vita hug hans um samvinnumál. Það liggur engin heimild frammi fyrir því, að hr. B. L. hafi haft nokkurt umboð til þess að fara með nafn Stefáns á vörunum upp á ræðu- pallinn þennan dag og ausa úr sér ókvæðisádeiium þeim á Hallgrím og Sigurð Kristinssonu, sem síðar verður bent á. Pað liggur nærri að alíta, að fyrirlesarinn hafi á þann hátt viljað slá á strengi hjá fólkinu, sem voru viðkvæmir eftir athöfn dagsins. En það vopnið hefir áreið- anlega snúist í hendi hans gegn honum sjálfum, og heilskygnir menn munu álíta, hvernig sem þeir líta á málin að öðru leyti, að þessi þáttur í framkomu hr. B. L. hafi vérið, vægast sagt, ósmekklegur. Eftir þennan formála, gaf fyrir- lesarinn tilheyrendum sínum sögu- legt yfirlit. Mun það hafa verið gert, til þess að finna samanburð í fortíðinni, hliðstæðan því, sem nú sé að gérast i landinu. Hann mint- ist á Gamla sáttmála, þar sem áskilið hefði verið, að eigi færri en sex skipsfarmar af mat yrðu flutt- ir til landsins árlega. Var svo að skilja, sem landsmenn hefðu selt sjálfstæði sitt fyrir þéssa sex skips- farma af mat. Hefir sú söguskýring aldrei heyrst fyrri, svo mér sé kunn- ugt. Hér var ógæfusporið, að blanda saman stjórnmálum og mat. Og þegar frelsið var glatað, kóm bölvun einokunarinnar yfir þjóðina. Siðan eignaðist þjóðin marga góða menn, sem börðust fyrir verzlunarfrelsi og frelsið fekst, en íslenzkir kaupmenn voru fyrverandi þjónar einokunar- innar og voru þröngsýnir menn. Þá rísa upp samvinnufélögin, Gránu- fél. og verzlunarfélag Húnvetninga. Þó þessi félög yrðu skammæ, gerðu þau ómetanlegt gagn. Upp af þeim risu pöntunarfélögin. Pöntunarfé- lögin eru ’ fyrirmyndirnar í augum fyrirlesarans. Pau hafi ekki kastað áhyggjum sínum upp á einstaka menn, eða fengið þeim völd í hend- ur, né lagt þeim- á herðar ábyrgð þeim samfara. Pau hafi kent mönn- um samvinnu og gert menn með- vitandi um sjálfstæði sitt. Efnalegt sjálfstæði hafi farið í vöxt og fram- tíðin hafi virst brosa við okkur ár- in á undan stríðinu. Samvinnufé- Iagsskapurinn hafi á árunum fyrir striðið verið kominn í svo gott horf, sem hugsanlegt hafi vérið, að hann gæti komist. Svo hafi styrjöldin dunið yfir. Ýrnsar öryggis ráðstafanir hafi orð- ið nauðsynlegar, sem hafi verið fyllflega réttmætar meðan stríðið hafi staðið yfir. En nú sé aðstaðan breytt. Ástæðurnar til viðskiftahaft- anna séu fallnar burtu. Pess vegna verði mönnurn torskilið, hvers vegna eigi að halda þeim við enn þá. Einhversstaðar um þetta bil í ræðu sinni, lýsti hr. B. L. því yfir, að nú kastaði hann hanzkanum. Eftir það fór ræðan að harðna. Verður nú fljótt yfir sögu farið og gripið niður á helztu atriðum sem máli skifta. Minningar frá þingmála- fundinum höfðu vakið ræðumann til þess að gera samanburð á Sturl- unga öldinni og einokunartímabil- inu annars vegar og því sem nú er að gerast hinsvegar. Peir sem ofan á hefðu orðið á fundinum (samvinnumenn og verkamenn) vildu halda við ófrelsi í verzlun. Peir vildu leggja einokunarfjötra á þjóðina. Menn mundu telja ólíku saman að jafna, en i augum ræðu- manns, væri síðari villan argari hinni fyrri. Fyr hefðu íslendingar orðið að etja kappi við útlendinga. nú væru íslendingar gegn íslend- ingum. Nú standi að þessu frelsis- ráni með stjórn landsins þeir menn, sem hafi peningana og völdin, en AFOREIÐSLAN er hjá Jóni E». Þór, Norðurgölu 3. Talsími 112. Innheimtuna annast ritstjórinn. 7.-8. blað. það séu forkólfar Landsverzlunar, Sambands ísl. Samvinnufélaga og verkamanna. Pessir menn hafi pen- ingana og völdin og þá sé hætt við að sannfæring fjöldans megi sín lítils. Frá þessum mönnum sé runnin hreyfingin fyrir Landsverzlun einkum þeim sem stjórna Lands- verzlun og S. í S. Petta tvent hafði fyrirlesarinn í einu númeri: Sam- bandið hefði Landsverzlunina og stjórnina í vasa sínum. Petta tvent stefndi nú að því, að verða einokun. Bœndur séu orðnir viljalaus verkfœri i höndum samvinnuforingjanna, sem séu að fara með félagsskapinn út í öfgar. Forsprakkarnir séu búnir að gera félagsskapinn pólitískán, til þess að tryggja sér atvinnu og völd. Fyr- irlesarinn kvaðst ekki beygja sig fyrir þeirri stjórnarfarsstefnu, sem sé komin fram móti betri vitund og i eigin hagsmunaskyni þessara jor- kólfa. Taldi hr. B. L. það mesta mein hverrar þjóðar, þegar stjórn- endur hefðu sérstakra hagsmuna að gæta, eins og hér ætti sér stað. Sér- stök laun væru fyrir hvort forstöðu- starfið Landsverzlunar og S. í. S. þessvegna héldu hvor þessara ein- okunarstofnana annari við og af því stafaði hætta. Nú væru þeir menn í meiri hluta, sem vœru að koma öllum góðum hugsjónum i gröjina og sem vœru að drepa hug- sjónina um frjálsa menn i frjálsu landi. Pá mintist hr. B. L. á pólitísk níð- ingsverk. Þau hefðu fyrst komið til sögunnar, þegar farið var að blanda saman völdum og mat. Hið fyrsta hafi verið, að senda sem verzlunar- erindreka fyrir þjóðina, allsófróðan mann í verzlunarsökum, þar sem var Bjarni Jónsson frá Vogi. Annað, þegar Tryggva Gunnarssyni var vikið frá bankastjóraembættinu. Til- gangurinn sá, að koma einhverjum stjórnargæðingum að kjölkötlum Iandssjóðs. Nú vilji hinir sömu menn koma íslandsbanka á kné. Nú sé verið að vinna ódáðaverk í póli- tík á Iandinu, það séu að verða bróðurvíg. íslenzka þjóðin sé að verða sinn eigin böðull. Fyrirlesarinn taldi að íramtíðin hefði verið glæsileg fyrir okkur síð- ustu árin fyrir 1918. Innflntnings- höft stjórnarinnar hefðu á stríðsár- unum verið spor í rétta átt, til að ávinna okkur frelsið, en nú, þegar aðstaðan væri breylt, þá væru slík höft spor í öfuga átt. Næst varð hr. B. L. margrætt um sykur og kol Landsverslunar. Spurði hvort það væri að reka almennings-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.