Dagur - 19.02.1921, Blaðsíða 3

Dagur - 19.02.1921, Blaðsíða 3
tbl. 7. DAGUR 27 Gripið í strenginn. n. I fyrri hluta þessa máls drap eg á dýrtíðina í landinu, þá sem menn- irnir hafa skapað sér sjálfir. Eg þóttist skifta jafnt til beggja handa og láta hverja stétt njóta sannmælis. Nú drep eg sérstaklega á kaupkröfur verkafólksins, ekki fyr- ir þá sök, að eg eigi þar um sárt að binda, heldur fyrir þá sök, að þetta er nauðsynlegt mát til umræðu, og verður að ræðast. wVerkamaðurinn" taldi í fyrra wsanngjarnt kaup" við heyvinnu 75 kr. handa stúlku um vikuna. Mér bíöskraði alveg, þó að eg þegði. Mér ógnaði ekki orðalagið, því að það var hóflegt. En mér blöskraði hitt, að skynsamur maður, sem er alinn upp í sveit og gagnþekkir alt, setn að búskap lýtur, skuli geta orðið svona blindur á sviði sinnar eigin ættar og framleiðslu. Þegar þetta er sett í Verkamanninn, er al- kunnugt, að afurðir búanna muni stórfalla á útlendum markaði og hitt er komið á daginn, að veturinn n. 1. var þá búinn að eta upp hagn- aðinn, sem sveitabændur höfðu yfir- leitt haft af sölu afurða sinna í fyrra- haust. Þarna blöstu við tvær gleypi- gjár sín til hvorrar hliðar, sem í hlutu að lenda stórar upphæðir. Það, að einn og einn bóndi býður þessa vitleysu, stafar af því, að hann (einn og einn) á í sjóði til þess að grípa til. Sumum er það metnaðarmál, að whalda við" í Iengstu lög fjártölunni og er þá það ráð gripið, að þæfa í móinn eitt ár og sjá hvað setur. Á stökum stöðum eru landskostir svo góðir, eða aðstaða bóndans, að hann getur boðið það, sem almenningur getur alls eigi, eða ef hann er ó magalaus og fleira mælti telja, t. d. það, að bóndi sem er ómagalaus og á fé í sjóði, er jarðeigandi o. s. frv., getur boðið afarhátt kaup, ef hann lætur sér lynda að «halda við" eitt ár og reiknar sér og sínum ekkert kaup og enga rentu af eign- inni. Petta er það sem margir haja gerl s. I. ár. - Allir þeir, sem gold- ið hafa kaupakonuöO kr. og kaupa- manni 80 kr. eða þar yfir, um slátt- inn, og hlutfallslega aðra tíma árs. Ef nokkur maður, sem orðastaður er eigandi við, reynir til að véfengja þetta, skal eg færa honum heim sanninn um að eigi verði móti mælt með viti. Til bráðabirgða skal eg geta þess, aö ef eg hefði átt að heyja fyrir mínum skepnum með kaupafólki og hirða fé mitt með vinnukrafti, sem keyptur væri þvílíku verði, sem sumt fólk setur upp — þá mundu tnínar afurðir s. I. ár hafa hrokkiö aðeins handa fólkinu yfir sumar- tímann, þar með talið vor og haust — þó því aðeins, að ull og gærur seljist viðunandi verði. En þá hefði eg staðið á haustnóttum allslaus með fjölskyldu mína, okkur hjónin þar með talin, og öll útgjöld af jörð- inni og til þess opinbera óborguð. En sem betur fer, er ekki alt fólk í landinu orðið vitstola afjkaup- græðgi og þessvegna hefi eg feng- ið fólk fyrir sanngjarnt kaup — það kaup sem búskapurinn þolir alment. Eg er ekki að kvarta fyrir rnig, held- ur tek eg til máls um alment efni eins og stundum fyrri, þegar eg tel rétt að leggja orð í belg opinber- lega, hvort sem það þá líkar betur eða ver. Það sem kemur mér af stað í þessu raáli er það, að mér sýnist í þessu efni vera stefnt út í ófæru á báða bóga. Ef vinnuveitendur verða gerðir uppiskroppa, veit eg eigi hvar verður að leita atvinnunnar í framtíðinni. Síðastliðið sumar var fulltíða mað- ur úr minni sveit kaupamaður í Danmörku og hafði í kaup 350 kr., var sagt að þetta væri meðalkaup þar í landi. Hann var á stórbúi og hafði ráðsmaðurinn 1000 kr. eða sama kaup og óvalinn maður heirnt- aði hér um sláttinn. Þetta viðgengst í akuriandinu Danmörk, en hér í óveðra og annmarkalandinu er bog- inn spentur svo sem kunnugt er, að jafnvel um háveturinn fæst ekki handarvik gripið nema fyrir hátt tímakaup, í kaupstöðunum a. m. k. Þessa frekju bera ekki íslenzkir stað- hættir, eða atvinnuvegir eins og þeir eru nú staddir. »Það er fjallgrimm vissa fyrir því", á máli Jóns gamla Ósmanns. Nú kynni eg að verða að því spurður, hvaða kauphæð eg teldi sanngjarna. Svar mitt mundi verða á huldu, ef eg reyndi að svara — af því að Jramtiðin er á huldu. S. 1. sumar hefði verið sanngjarnt að borga stúlku 30—36 kr. um vik- una og karlmanni að sama skapi. Þetta er miðað við kaupið sem var á undan dýrtíðinni og gert ráð fyr- ir, að okkar afurðir séu í fjórföidu verði við það, sem þær voru áður en djöfull ófriðarins fór í svínin stórveldanna. En þó eru okkar af- urðir ekki í fjórföldu verði nú, nema smér, ekki kétið og því miklu síður gærur og ull. En aftur er á það að líta, að í fyrra mátti gjalda hærra en þá var goldið og læt eg það jafna sig þannig, að segja má, að fjórfalt sé sanngjarnt nú við það sem var fyrir 1914. Margur hyggur auð í annars garði og margur ristir breiðan þveng af annars manns skinni. Þeir sem ekki búa, halda að landbændur leiki við hvern sinn fingur þessi árin. Sannleikurinn er sá, að tvisvar síðan ófriöurinn mikli hófst, hafa bændur grætt að haustnóttum — þegar sláturfjárafurðir hiupu upp skyndilega haustið 1915 eða '16 og svo í fyrra. En sá hængur varð á, að í bæði skiftin kom víkingsvetur yfir okkur og át upp mestallann hagnaðinn. Það veit eg, að verkamenn f bæj- unum eiga örðugt þessi ár og gleðilegt væri, ef við gætum borg- að vel þeim, sem vinna fyrir okkur. En þegar við bændur ritum um þetta mál, er okkur næst að segja frá okkar getu, og þoli okkar atvinnu- vegar. Vandræði hinna stéttanna koma auðvitað í Ijós frá þeim sjálf- um, eða þeirra málsvörum. Eitt mesta meinið í okkar Iandi er hugsunarhátturinn sá, að ætla sér að grípa upp í þrem mánuðum eða fjórum kaup, sem endist hina mán- uðina. Jafnvel einhleypir menn eta það upp ef aðgerðarlausir eru 4 mánuði ársins eða 9. Að vinna fyr- ir mat sínum tvo þriðju ársins er gamall siður í landi voru og ætti enn að vera boðlegur einhleypu fólki. Þeir sem stefna „miklu hærra" eiga í rauninni ekki heima á því breiddarstigi, sem forsjónin hefir sett Fjallkonuna á og eigi verður um þokað, þó að hún liggi nú und- ir ríkisréttindunum. Guðmundur Friðjónsson. Fóðurbirgðamálið. Hin síðari árin, er farið var að hugsa um endurreisn hins íslenzka landbúnaðar, hefir fóðurbirgða- eða fóðurtrygginga|pursmálið verið tekið til athugunar af mörgum okkar nýt- ustu manna. Horfellirinn, er hafði þvf miður alt of oft gist íslenzka bændur, var sá vágestur, er tryggja þurfti að ekki bæti að garði bænda, ef nokkur framtfð átti að vera fyrir landbúnaðinn. Mörg ráð og leiðir hafa vérið dregn- ar frani f dagsins Ijós f þessari trygg- ingarbaráttu búnaðarfrömuða vorra, en þótt ekki hafi skort ráðin, þá getum við þó sagt, að þetta þjóðnauðsynja- mál eigi enn langt eftir að því marki, sem verður að setja. Markið er : Að hver bóndi hafi ncegan fóðurforða fyrir búpening sinn, og fóðri búféð þannig að. það geti gefið miklar og góðar afurðir. Fyr en þessu marki er náð, getum við ekki sagt að landbúnaðurinn sé trygg atvinuugrein. Það sfðasta, sem komið hefir fram f þessu máli, er: „Frumvarp til sam- þykiar Jyrir eftirlits og fóðurbirgða- félög'1, sem Búnaðarfélag ísfands hefir samið, samkvæmt heimildarlögum No. 42. 28/n 1919. í frumvarpi þessu er bent á nýjar leiðir að nokkru í þessu máli, og tel eg það fyrirkomulag, sem þar er lagt til grundvallar, vera það bezta, sem eg þekki í þessu máli. Þvf verður að vísu ekki neitað, að það fyrirkomulag sem hér ræðir um, hlýtur að hafa talsverða fyrirhöfn í för meö sér, en þá fyrirhöfn ættu bændur að fá margborgaða f þeim upplýsingum, er slíkur félagsskapur aflaði þeim. Nefnt frumvarp mun nú um þessar mundir verða lagt fyrir bændur um land alt til ákvörðunar um hverja stefnu þeir vilji velja fyrir framtíðina í þessu afar þýðingarmikla máli fyrir þá. — Að þessu sinni er ekki tími eða rúm til að benda á kosti þessarar stefnu, en vonandi að til þess gefist tækifæri áður en langt um lfður. Vil aðeins benda bændum á, að athuga þetta mál alvarlega áður en þeir taka ákvörðun um, að bafna stofnun slfkra félaga, sem hér um ræðir. í nágrannalöndunum hafa lík félög unnið ómetanlegt gagn og eg bér það traust til bændastéttarinnar íslenzku, að hún einnig skilji köllun sfna og snúi inn á þessa braut, því verði það alment, þá mun orðið horfellir og fóð- urskortur eftir nokkur ár, aðeins finn- ist sem forngripur í landi voru. Einar J. Reynis. Þingmálafundur. Ár 1921, 17. jan. var þingmálafund- ur haldinn að Möðrufelli í Eyjafirði, sem þingmenn kjördæmisins höfðu boð- að til. Stefán alþm. Stefánsson setti fundinn og stakk uæp á Davfð Jóns- syni hreppstj. fyrir fundarstjóra, og var það samþykt. Fundarstjóri kvaddi til að vera skrifara á fundinum þá Júl- íus Ólafsson og Hólmgeir Þprsteinsson, og var fundurinn þvf 3amþykkur. Á fundinum gerðist þetta: I. Skattámál. Svohljóðandi tillaga samþykt með 21 atkv. gegn 1: ( Fundurinn telur skattafyrirkomulag það, sem nú er, mjög ófullnægjandi og óréttlátt, og skorar þvf á þingið að samþykkja lög f þessu efni, er við megi hlýta til frambúðar, og er skatta- frumvörpum stjórnarinnar yfirleitt sam- þykkur, þó vill fundurinn taka það fram, að óráðlegt muni að hækka svo beina skatta, að veruleg áhrif hafi til lækkunar á tolli af aðfluttum óhófs- vörum. II. Bankamál. Svohljóðandi tillögur komu fram. 1. Fundurinn lítur svo a, að það sé óeðlilegt og hættulegt fjárhag ríkisins að seðlaútgáfa og þjóðbankastörf séu falin íslandsbanka, eins og skipulagi hans sé háttað, þar sem hann mun ávalt vera rekinn, fyrst og fremst sem gróðastofnun einstakra manna. Því vill fundurinn skora á þing og stjórn, að gera nú þegar ráðstafanir, til þess að rfkið nái aftur fullum tökum á allri bankastarfsemi, sem eftir eðli sínu heyrir undir þjóðbankastörf, annað- hvort þannig, að kaupa upp íslands- banka og sameina hann Landsbank- anum, eða á annan tiltækilegan hátt. Samþ. með 23 samhlj. atkv. 2. a. Fundurinn telur að þingi óg sfjórn beri að stefna að þvf skipuiagi bankamála rfkisins, að til verði í land- inu einn öflugur þjóðbanki, er jafn- framt sé aimennur viðskiftabanki, og einn sérstakur banki eða lánsstofnun fyrir fasteignir, er einnig sé ríkisstofn- un. Samþ. með 27 samhlj. atkv. b. Auk þessara banka telur fundur- hagfelt, að koma á stofn samvinnu- banka, er hefði með höndum miðstjórn peninganjála allra samvinnufélaga f landinu. Loks telur hann eðlilegt, að kaupmannastétt Iandsins kæmi upp sérstökum verzlunarbanka. Telur fund- urinn ástæðulaust að ama3t við því, að einstakir menn komi upp hluta- banka, ef hann er á tryggum grund- velii bygður, en ástæðulaust og órétt að veita slfkum gróðastofnunum ein-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.