Dagur - 19.02.1921, Side 5

Dagur - 19.02.1921, Side 5
7. tbi. DAQUR 29 þessir menn hafa ekki getað staðið í skilum, og þess vegna ekki getað Ieynt sjóðsþurðinni lengur, þótt eng- inn hafi litið eftir sjóðnum. Og stundum er um svo mikla sjóðþurð að ræða, að hún hefir hlotið að eiga langan aðdraganda. Hún hl^tur að hafa byrjað löngu áður en síðasta „eftirlitið" fór fram. Eftirlitið með þessum mönnum hefir því verið f skýunum, eins og ýmislegt fleira, hér á landi, sem ætti að halda sér við jörðina. Hér skal enginn alsherjardómur Iagður á það, hvernig hæstu herrar þjóðarinnar ræki skyldustörf sín yfir- leitt. En eftirlitsskyldu sína hafa margir þeirra svo átakanlega van- rækt, að slfkt má ekki lengur liggja í þagnargildi. Peir hafa gert sig seka um megna embættisvanrækslu gagnvart þjóðinni og mega jafnvel teljast meðsekir sumum þeim mönnum, sém orðið hafa uþpvísir að sjóðþurð. Veitingarvald og eftirlitsskylda fylgist venjuleg að, beinlínis eða ó- beinlínis. Veitingarvaldið ber siðferð- ferðislega ábyrgð á skyldustarfrækslu þeirra manna, sem það veitir opin- ber störf, og getur vikið frá ef á- stæða er til. — Þegar vitanlegt er, að fremur lélegum starfsmanni, illa launuðum, bláfátækum ómagamanni og síst af öllu fjármálamanni, hefir verið falið að gegna afar erfiðu starfi og er trúað fyrir stórfé, þá er eftirlitsleysi með þessu fé, í slíks manns vörzlum, árum saman, svo megn embættisvanræksla í mínum augum, að eg vil ekki leyfa mér að nefna hana opinberlega því nafni, sem eg tel bezt við eiga. B. L. Þingmálafundur. Ár 1921, þ. 29. d. janúarmánaöar, var almennur þingmálafundur fyrir Akureyrarkaupstað settur og haldinn í Samkomuhúsi bæjarins. Alþm. M. J. Kristjánsson, Iands- verslunarstjóri setti fundinn. Fundur- inn hafði verið boðaður í öllum blöðum bæjarins. Fundarstjóri var kosinn Júlíus Havsteen, bæjarfógeti og tók hann fyrir fundarskrifara þá kennarana Brynleif Tobíasson og Lárus J. Rist. Þá var þetta fyrir tekið: I. Skattamál. Alþingismaöurinn iagði fram nokk- ur ný stjórnarfrumvörp og fór um þau nokkrum orðum. Spunnust nokkrar umræður um þessi mál. Svo hljóðandi tillaga samþykt f einu hljóði: Fundurinn er mótfallinn öllum ót- flutningsgjöldum á afurðum landsins, en verði þeim baldið áfram, mótmælir hann harðlega, að þau séu hlutfallslega hærri á síld heldur en öðrum útflutt- um vörum. Enn-fremur var eftirfarandi tiliaga samþykt með öllum greiddum atkvæð- um gegn i: Fundurinn er mótfallinn frumvarpi því til stipilgjaldslaga, sem leggja á nú íyrir Alþing og vill heldur láta lög þau um stimpilgjald, sem nú gilda, standa óbreytt. 2. Verzlunarviðskifti við önnur lönd og Landsverzlun. Alihörð senna varð um þetta mál og snerust umræðurnar éinkum um innflutningshöftin. Margir tóku til máls. Þá komu fram þrjár tillögur í þessu máli: a) Fundurinn skorar á þingið, að hlutast til um það, að sala inn- lendra afurða á erlendum mark- aði fari fram sem mest undir sameiginlegri stjórn og opinberu eítirliti. Samþykt með 75 atkv. gegn 52. b) Fundurinn er mótfallinn öllum verziunarhöftum og einkasölu á nauðsynjavörum og skorar því á Alþingi að afnema viðskiftanefnd- ina, koma vörubirgðum Lands- verzlunarinnar sem fyrst í pen- inga og leggja hana síðan tafar- laust niður. — Feld með 91 atkv. gegn 58. c) Fundurinn er því mótfallinn, að vald og verksvið viðskiftanefndar verði i nokkru rýrt, meðan ekki greiðist fram úr viðskiftakrepp- unni. Jafnframt telur fundurinn, að brýna nauðsyn beri til að verðlagsnefnd láti til sfn taka um verðlag á varningi, svo að verðfall á erlendum markaði komi jafnharðan fram í vörum hér á landi. Ennfremur telur fundurinn nauðsynlegt, að Landsverxlun með helztu nauðsynjavörur verði hald- ið áfram og hyggilegt, að land- ið taki einkasölu á einstökum vörutegundum, svo sem lyfjum, tóbaki og ef til vill fleiru. — Samþykt með 97 atkv. gegn 22. Pétur kaupmaður Pétursson mót- mælti því, að atkvæöagreiðslan væri lögmæt, með því að ókosningabær- ir menn hefðu greitt atkvæði. 3. Bankamál. Svo hljóðandi tillaga kom fram: Fundurinn telur hina brýnustu nauð- syn á, að þingið geri nú þegar ráð- stafanir til þess, að bankamálum lands- ins verði betur komið fyrir framvegis en verið hefir. Telur fundurinn íulla ástæðu til að óttast, að bankamálum f landinu verði eigi stjórnað með hag þjóðarinnar ein- an fyrir augum, á meðan hlutabanki einstakra manna, og mest útlendinga, hefir einkarétt til seðlaútgáfu og þar af leiðandi hin æðstu völd um alla stjórn peningamálanna. Fundurinn skorar því á þing og stjórn að leita allra ráða til þess, að seðlaútgáfu- rétturinn verði fenginn f hendur Lands- bankanum annaðhvort einum, eða svo að íslandsbanki megi framvegis hafa í umferð aðeins þá seðlafúlgu, er honum var heimilað í fyrstu; enda tel- ur fundurinn íslandsbanka hafa brotið svo skyldur sínar og skilyrði fyrir einkaréttindum sfnum og hlunnindum, að hann geti eigi lengur haldið nein- um einkaréttindum gegn vilja stjórnar, þings og þjóðar. Samþykt með öllum þorra atkvæða gegn 1. 4. Brúin á Eyjafjaröará. Eftir nokkrar umræður kom fram svo hljóðandi tillaga: Fundurinn telur óhæfilegan drátt orðinn á brúarsmfðinni yfir Eyjafjarð- ará og skorar á stjórn og þing að láta þegar á næsta vori byrja á brú- arsmíðinni og hraða því verki, svo að brúin verði fullger eigi sfðar en sum- arið 1922. Samþykt f einu hljóði. 5. Húsmoeöraskóli á Norður- landi. Svo hljóðandi tillaga samþykt í einu hljóöi. Fundurinn skorar á rfkisstjórnina, að gera þegar á þessu ári nauðsyn- legar ráðstafanir til undirbúnings þvf, að húsmæðraskólinn fyrir Norðurland verði reistur eigi síðar en árið 1922 á þeim stað, sem bæjarstjórn Akur- eyrar hefir til tekið. ó. Sjúkrahúsið á Akureyri: Svo hljóðandi tillaga samþ. í einu hljóði: Fundurinn skorar á Alþing, að greiða eigi minna en helminginn af kosnaði þeim, sem leitt hefir af viðaukanum við Akureyrarspftala og endurbótum þeim, sem spftalinn hefir fengið, sem nemur um 110,000 krónur. Og þar cð fundurinn lítur svo á, að árlegur styrkur til sjúkrahússins hafi til þessa verið altof lágur í hlut- falli við það, sem veitt hefir verið til lítilla sjúkraskýla út um landið, skorar fundurinn ennfremur á -Alþingi að styrkja sjúkrahúsið árlega að hálfu leyti við bæ og sýslu, því að aðsóknin að spítalanum af utansýslusjúklingum er í seinni tíð orðin þvf nær jafnmikil og aðsókn sjúklinga frá Akureyrarbæ og Eyjafjarðarsýlu og fer stöðugt vax- andi hröðum fétum. 7. Loks bar F. B. Arngrímsson fram svohljóðandi tillögu, er sam- þykt var með öllum þorra greiddra atkvæða: Fundurinn skorar á þingið að koma sem fyrst á fót rannsóknarstofu hér á Akureyri til að rannsaka steina og leirtegundir og nytsemi þeirra til bygginga, jarðræktar og iðnaðar. Rannsóknarstofan sé sett f samband við Gagnfræðaskólann. Fundarbók Iesin og samþykt. Fundi slitið. /«/. Havsteen, fundarstjóri. Brynleifur Tobiasson, Lárus /. Rist, ritarar. « Una Kristjánsdóttir lézt hinn 30. desember sfðastliðinn að Fremstafelli f Köldukinn eftir langvar- andi hjartasjúkdóm. Hún var fædd að Ulfsstöðum f Skagafirði 1856, en ætt hennar öll eyfirsk. Kristján faðir henn- ar var Þorsteinsson frá Grund. Systir hans var Dómhildur kona Ólafs Briem á Grund. Börn þeirra eru meðal ann- ara sr. Valdimar sálmaskáld á Stóra- núpi og Sigríður kona sr. Davíðs á Hofi móðir Ólafs Davfðssonar. Móðir Unu var Guðrún Margrjet Sigurðardóttir og Ingibjargar frá Hvassafelli. Er ætt sú vel kunn þar í Firðinum. Sigurður var gáfumaður og skáldmæitur vel. Bróðir Guðrúnar var Sigtryggur »sterkic f Húsavík. Una átti 13 systkini, dóu 5 þeirra ung, en 6 fóru til Ameríku. Einn þeirra systkina var Benedikt póstur á Úlfsstöðum. Hingað austur í sýslu fluttist Una 1883. Giftist Sveinbirni Guðmundssyni ættuðum úr Reykjadal árið 1890. Bjuggu þau lengst f Glaumbæjarseli og þar andaðist Sveinbjörn árið 1907. Þau áttu saman 3 börn, dóu tvö á unga aldri, en hjá hinu þriðja, Valdi- mar, hefir Una dvalið hin sfðustu árin. Una var mikil raunakona, og bar margt til, en vel reyndist gull hennar í eldinum. Kunni hún að bogna en eigi að brotna, mælti aldrei æðruorð né beiskjublandin. Öllum óx til hennar velvild og virðing með aukinni kynn- ingu, og er vel um alla þá, er svo er farið. /. Kvittun til Porsteins á Svínárnesi. Jeg kann betur við að láta Þorstein á Svfnárnesi vita, að eg hef gert hon- um þann sóma, að lesa ritsmfð hans hina sfðustu, er barst mér f fyrradag. Vitanlega verða 5—ódálka fúkyrða-og ósannindavef ekki svarað til gagns f 1 dálki, en bótin er að allir skynsamir og réttsýnir menn munu sjá, að grein Þ. er svo úr garði gerð, að hún atar eingöngu höf. sjálfan, en hvorki mig né minn málstað. Læt mér því nægja að benda, rétt til dæmis, á tvö atriði, þar sem fljótlegt er að gera Þ. ber- an að ósannindum. Annað ér sagan um kúna. Hún ér auðsjáanlega sett til að gefa það f skyn, að eg hafi svelt kúna um geld- stöðutfmann annaðhvort af heyleysi eða illmensku, og hafi hún fyrir það komist í það ástand, er Þ. lýsir. Þ. varar sig ekki á, að eg á enn mjókur— og fóðurskýrslu frá 1913, og get þvf sýnt svart á hvítu, hvað hæft er f þessu, og vottorð um meðferð mína á skepnum mun eg geta sýnt, ef Þorst. skyldi reyna með málssókn að losa sig við ósanaindamánns-stimpilinn sem hann ávinnur sér með söguburði sín- um. Honum dugir ekki afsökun Gróu á Leiti, því að sagan ber með sér, að enginn kunnugur hefir smfðað. T. d. segir haun, að kýrin hafi verið nýborin í fardögum 1913, og á því byggir hann ályktun sfna um orsök veikinnar en hún bar raunar 2S. marz hið um- rædda ár. Vísvitandi ósannindamaður verður hann þvf að heita, að öllu þvf, sem hann segir að »sér hafi verið sagt< um þetta mál, nema hann geti tilgreint sögumann sinn, og ræður hánn hvort hann telur þennan titil til »krossa eða nafnbóta.* — Hitt er ekki ástæða til að rengja, að Þ. hafi séð hér veika kú þetta vor, þvf að kýr, sem eg átti þá, veiktist nálega á hverju ári. En henni batnaði altaf, sem betur fór. Þetta var einstök sómakýr, ættuð af Látraströnd, eins og Þorsteinn, en miklu meiri gagns- muna-gripur en hann. Þ. segir að hún hafi haft »kroniskan doða.« Má vera, að honum ratist þar satt á munn. Sjálíur hefur hann sýnilega »kroniskan« vitsmuna doða, og bera ritsmfðar hans vott um, að andlegt ástand hans sé sfzt glæsilegra en lfkamlegt ástand kýrinnar var, er hann lýsir svo átakan- lega. Og þvf er nú ver, að líklega er torveldara að lækna vitsmuna-doða Þorsteins en »kroniska doðann« kýr- innar. Hitt atriðið er dæmi um rithöfund- ar ráðvendni Þorsteins. Hann hefur það eftir mér, að embættismenn verði að »tefla á skynsamlega vvogun« til ag geta lifað, og notar það svo til að reyna að gera mig samsekan sér f barlómnum. Eg fullyrði, að enginn maður með fullu viti geti skilið nokkra setningu f grein minni á þapn veg, að eg haldi þessu fram, og er því Þ. hér með f annað sinn lýatur vísvitandi ósannindamaður, svo framarlega sem hann getur ekki lagt fram læknisvott- orð um, að vitsmunadoði hans sé á svo háu stigi að honum sé ofætlun að

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.