Dagur - 20.01.1944, Side 1
ANNALL
DAGS
.
Kvenfélagið „Framtíðin“
minntist 50 ára afmælis síns með
veglegu hófi að „Hótel Norður-
land“ sl. fimmtudagskvöld. Fé-
lgaskonur og gestir minntust 50
ára starfsins með snjöllum ræð-
um. Undir borðum las frú
Gunnhildur Ryel, form. félags-
ins, gjafabréf er félaginu höfðu
borizt. Höfðu hjónin Málfríður
Friðriksdóttir og Kristján Krist-
jánsson bifreiðaeigandi, gefið
elliheimilissjóði „Framtíðarinn-
ar“ 50 þús. kr., til minningar um
mæður þeirra hjóna, er létust á
sl. ári. Þá hafði Kristján gefið 50
þús. kr. í sjúkrahússsjóð fé-
lagsins, til minningar um þrjá
látna bræður sína. Voru hjónin
hyllt af öllum viðstöddum fyrir
þessar höfðinglegu gjafir.
★
Ámi Jóhannsson, forseti bæjar-
stjómar, flutti svohlj. tillögu á
síðasta fundi:
„Legg til að bæjarstjóm sam-
þykki að fela skólaráði og skóla-
stjóra bamaskólans að athuga og
gera tillögur um, á hvem hátt
verði heppilegast og ódýrast bætt
úr húsnæðisþörf skólans. Tillög-
um sé skilað til bæjarstjórnar í
síðasta lagi 15. febrúar næstk.
Tillagan er fram komin vegna
mjög ófullnægjandi húsnæðis
barnaskólans. Þar er nú svo
þröngt, að allsendis er óviðun-
andi lengur.
★
Ungmennafélagið „Reynir" og
kvenfélagið „Hvöt“ á Árskógs-
strönd æfa um þessar mundir
gamanleikinn „Sundgarpinn".
Verður hann sýndur að Árskógi
á laugardag og sunnudag næst-
komandi. Dansleikur verður
eftir í bæði skiftin.
★
Þórður Thorarensen gullsmið-
ur andaðist í sjúkrahúsi bæjarins
sunnudaginn 16. þ. m. Þessa
merka borgara bæjarins verður
getið í næsta blaði.
★
Frú Svava Jónsdóttir, leikkona,
verður sextug n. k. sunnudag
Hefir hún um margra ára skeið
verið fremsti leikari Leikfélags
Akureyrar og er fyrir löngu
landskunn fyrir leikstarfsemi
sína hér, í útvarpi og í höfuð
staðnum. Gefst væntanlega tæki
færi til að minnast starfs hennar
nánar síðar.
★
Mjög mikill skortur er á góð
um, nýjum fiski hér í bænum
Veldur þar einkum gæftaleysi
en hitt skiptir og talsverðu máli:
að ekkert skipulag er á fiskútveg-
un og fisksölu hér í bænum. Er
þetta eitt þeirra mála, sem nauð
syn krefur að tekin verði ti
meðferðar og úrlausnar á næst
unni.
Kvenfél. „Framtíðin" hafði
skemmtun í Samkomuhúsinu sl.
sunnudags- og mánudagskvöld.
Til skemmtunar var gamanleik-
ur, söngur, upplestur,
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 20. janúar 1944.
3. tbl.
NY DRÁTTARBRAUT,
ODDEYRART
BÁTAKVi
A
Atvinnumál og nýjar framkvæmdir til um-
ræðu á bæjarstjórnarfundi s.l. þriðjudag
Bæjarstjórnarfundur var sl. aukinn fiskiðnað og væntanlegar
rriðjudag. Á dagskrá voru m. a. ' ríkisverksmiðjur til framleiðslu
járhagsáætlun kaupstaðarins og áburðar og herzlu síldarlýsis.
erindi fulltrúaráðs verklýðsfélag-
anna, er getið var í síðasta tbl.
Kommúnistar höfðu haft mik-
inn undirbúning fyrir þennan
fund. Hafði svonefnt „Sósíalista-
félag Akureyrar” látið dreifa
prentaðri áskorun um bæinn,
þar sem skorað var á verkamenn
að fjölmenna á bæjarstjórnar-
fundinn og láta bæjarfulltrúana
heyra kröfur sínar í atvinnumál-
unum. Leiðtogar kommúnista
telja, að þessi mál verði frekar
leyst með lýðæsingum en rólegri
yfirvegun. Verkamenn eru aft-
ur á móti ekki á sömu skoðun.
Einir 8—10 menn fóru að ráði
kommúnistaleiðtoganna og
mættu á fundinum. Var þetta
æsingabrall ,,foringjanna“ hvort
tveggja í senn þeim til vonbrigða
og háðungar.
Á fundi bæjarstjórnar var er-
indi fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna tekið til umræðu. Flestar
þær uppástungur er þar komu
fram voru þegar til athugunar í
bæjarstjórn, komnar frá atvinnu-
málanefnd eða einstökum bæjar-
fulltrúum. Sérstök nefnd var sett
til að athuga 4., 5. og 6. lið er-
indis verkalýðsfélaganna, en þar
er rætt um aukna útgerð héðan,
Verkamaður stefnir
Vinnuveitendafélaginu og
Verkamannafélagi Akur-
eyrarkaupstaðar
Bergþór Baldvinsson, verka-
maður hér í bæ hefir stefnt
Vinnuveitendafélagi Akureyrar
og Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar, þar sem hann telur,
að samningur Vinnuveitendafél.
og Verkamannafélagsins, þar
sem áskilið er, að félagsmenn
Verkamannafélagsins skuli sitja
fyrir vinnu, svifti sig rétti til þess
að stunda atvinnu sína og muni
þar að auki brot á stjórnar-
skránni, en Bergþóri mun hafa
verið neitað um vinnu með þeim
forsendum, að hann er ekki fé-
lagi í Verkamannafél. Ak.kaupst.
Málið hefir komið fyrir sátta-
nefnd og urðu ekki sættir. Verð-
ur fróðlegt að sjá úrskurð dóms
í þessu máli.
Um 2. lið erindis fulltrúaráðs-
ins er það að segja, að í því efni
voru þegar hafnar framkvæmdir,
eins og lesendum „Dags“ erj
kunnugt, en þar er rætt um
dráttarbraut og ný hafnarmann-
virki. Nefnd sú, er starfar í drátt-
arbrautarmálinu, skipuð af bæj-
arstjórn, útgerðarmönnum og
fiskifélagsdeildinni hér, hafði
þegar tekið málið föstum tökum.
Hafði nefndin fengið norður
Finnboga Rút Valdemarsson,
verkfræðing, til þess að ákveða
brautinni stað og gera teikning-
ar að framkvæmdum. Er hann
þegar tekinn til starfa. í sam
bandi við þessa athugun er hon
um einnig falið að athuga um
stað fyrir nýja bátakvf, en Árni
Jóhannsson hafði flutt tillögu
um slíka athugun fyrir nokkru
síðan. Fnnfremur að athuga um
stæði fyrir kolabryggju á Tang-
anum, en oft hefir verið rætt um
bað, að nauðsyn bæri til að flytjn
kolageymslur úr miðbænum nið
ur á Tanga, en til þess að svo
megi verða þarf bærinn að skap:
aðstöðu til losunar þar. Bæjar
fulltrúar munu yfirleitt sam-
rnála um nauðsyn þessara fram-
kvæmda og er því líklegt, að
strax og undirbúningsáætlanir
hafa verið gerðar, verði fram
kvæmdir að þessum mannvirkj
um hafnar. Eru þegar komnar
frarn tillögur um, að reisa þessi
mannvirki öll á svæðinu á mill
golfvallarins og Skipasmíða
stöðvar Nóa Kristjánssonar, á
Oddeyrartanga norðanverðum
Er verkfræðingurinn að athuga
möguleika fyrir því. Er hér um
milljónaframkvæmdir að ræða
og mikla atvinnu.
1.1. erindisins, um tunnuverksm.
var settur í athugun hjá atvinnu-
málanefnd. Þriðja lið, um aukna
ræktun bæjarlandsins, vísað til
jarðeignanefndar. „Dagur" mun
greina nánar frá þessum fyrir-
ætlunum öllum, þegar frekari
ákvarðanir hafa verið gerðar.
Dwight D. Eisenhower
yfirhershöfðingi innrásarhers Banda-
manna, er kominn til Englands og hefir
tekið við störfum sínum þar.
29 meriii farast með
„Max Pemberton"
Togarinn „Max Pemberton'
úv Reykjavík befir farizt i of-
viðri fyrri part sl. viku. Var skip-
ið á leið til Rvíkur frá veið-
um við ísafjarðardjúp. Skip og
flugvélar hafa leitað en ekkert
hefir fundist, sem geíið getur til
kynna hver hafa orðið afdrif
skipsins. 29 vaskir sjómenn hafa
farizt með skipinu og tugir
barna hafa orðið munaðarlaus.
Er þetta eitt hið mesta og
hönnulegasta sjóslys hér við
land.
Fjárhagsáætlun kaupstað
arins fyrir 1944 samþykkt
Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðju-
dag var fjárhagsáætlun kaupstað-
arins samþykkt, samkv. frum-
varpi fjárhagsnefndar, er greint
var frá í síðasta blaði, með smá-
vægilegum breytingum. Útsvars-
áætlunin var hækkuð um 43 þús.
kr. og eru niðurstöðutölur áætl-
unarinnar því 2.621.700 kr. —
Gjöldin hækkuðu og um 43 þús.
kr„ og skiptist það þannig: Verk-
legar framkvæmdir hækka um
30 þús., styrktur til Amtsbóka-
safnsins um 4 þús. og samþ. að
greiða barnakennurum hér stað-
aruppbót 9000 kr. samtals.
Hríseyjar-, Svarfaðar-
dals-, Árskógs- og Arnar-
neshreppar vilja kaupa
rafmagn frá Laxár-
virkjun
Oddvitar hreppanna hér út
með Eyjafirði hafa sent bæjar-
stjórn Akureyrar erindi, þar sem
þeir óska að fá keypt rafmagn frá
Laxárvirkjun, þegar háspennu-
lína hefir verið lögð um viðkom-
andi hreppa. Aflþörfina áætla
þeir 12—1400 kw. og er þar inni-
falin orkuþörf síldarverksmiðj-
anna á Hjalteyri og Dagverðar-
eyri.
Erindi þetta var tekið til með-
ferðar á fundi bæjarstjórnar sl.
þriðjudag og var samþykkt álit
rafveitunefndar, þar sem segir,
að líkfegt sé, að nágrannahrepp-
ar geti fengið keypta raforku
jafnskjótt og þeir hefja fram-
kvæmdir á raflögnum. Hins veg-
ar frestar bæjarstjórn að gefa
ákveðið loforð urn raforku fyrr
en vitað er hvenær hin fyrirhug-
aða lína um hreppana verður til-
búin.
ERLEND TlDINDI
Vaxandi skemmdarstarfsemi í
Danmörku. — Norskir stúdentar
stóðust prófið. — Sókn Banda-
manna.
Ný alda skemmarverka hefir
riðið yfir Danmörku eftir morð-
ið á Kai Munk. Danskir föður-
landsvinir hafa sprengt í loft
upp hluta af skipasmíðastöð
Burmeister &: Wain í Khöfn, að
því er segir í enskum fregnum.
Á þriðjudaginn urðu sprenging-
ar í 2 verksmiðjum, sem vinna
fyrir Þjóðverja og í nokkrum
járnbrautarstöðvum. Þýzka út-
varpið tilkynnti sl. þriðjudag, að
Þjóðverjar hefðu neyðst til að
taka lögreglustjórn Kaupmanna-
hafnar í sínar hendur. Lögreglu-
liðið, um 5000 manns, hefir ver-
ið kyrrsett.
Jarðarför ÞÓRÐAR THORARENSEN gullsmiðs, er and-
aðist 16. þ. m., fer fram miðvikudaginn 26. þ. m. og hefst með
húskveðju á heimili hans, Aðalstræti 13, Akureyri, kl. 1 e. h.
Ekkja, börn og tengdaböm.
400 norskir stúdentar hafa ný-
lega verið fluttir fangar til
Þýzkalands. Er þetta einn þáttur-
inn í sókn Gestapo á hendur
sjálfstæðri hugsun, menningu og
þjóðlífi í Noregi. Þegar ákveða
skyldi, hverja skyldi senda í út-
legðina, voru lagðar þrjár spurn-
ingar fyrir stúdentana, og þótti
yfirvöldunum þýzku svör þess-
ara 400 algjörlega óviðunandi.
(Framhald á 8. síðu).