Dagur - 20.01.1944, Blaðsíða 4

Dagur - 20.01.1944, Blaðsíða 4
4 DAGUR Fimmtudaginn 20. janúar 1944 DAGUR Rltsijóm: Ingimar EydaL Jóhann Frímann, Haukur Snorrason. Aígrelðslu og innheimtu annast: Sigurður Jóhannesson. Skrifstofa við Kaupvangstorg. — Sími 96. Blaðfð kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgangurinn kostar kr. 15.00. Prentverk Odds Björnssonar. Vafasamur gróði jþAÐ MUN naumast leika á tveim tungum, að afkoma vinnandi manna sé fyrst og fremst tveimur meginskilyrðum bundin: Fyrst því, að atvinna sé sem tryggust og stöðugust. En í annan stað er nauðsynlegt, að káupmáttur þess gjald- eyris, sem verkamaðurinn þiggur í vinnulaun, sé sem mestur og veiti honum sem drýgstan skerf nauðsynlegra og æskilegra lífsgæða. Segja má, að hlutverk hvers menningarþjóðfélags sé ekki hvað sízt það að tryggja öllum þegnum sínum rétt og aðstöðu til þessara tveggja frumskilyrða. Hitt er svo annað mál, hvort sanngjarnt og eðlilegt sé að krefjast þess, að samfélagið sé þess megnugt að veita öllum þegnunum þessa aðstöðu á þeim stað, sem þeir kynnu helzt að óska — jafnvel einum eða tveimur stöðum á landinu. Og loks er það höfuðnauðsyn, að forráðamenn hinna vinnandi stétta stimpist ekki alltaf á móti og leitist jafnan við að kyrkja í fæðingunni hverja tilraun, sem samfélagið kann að gera til þess að leysa þennan vanda á eðlilegan og framsýnan hátt. Á fyrstu árum yfirstandandi heimsstyrjaldar gafst íslenzku þjóðinni stórfellt tækifæri til þess að koma atvinnuvegum sínum — og þar með grundvellinum undir fjárhagslegri og menning- arlegri afkomu allra þegnanna um langan aldur — í vænlegt og öruggt horf. Þetta var fyrst og fremst hægt að gera með tvennu móti: Verðlagi í landinu varð að halda niðri með öflugum ráð- stöfunum á borð við það, sem bezt þekktist með öðrum þjóðum í þeim efnum. Og í annan stað var lífsnauðsyn, að þjóðfélagið tæki í sínar vörzl- ur bróðurpartinn af stríðsgróðanum, til þess síð- ar að efla atvinnulífið, auka skipastólinn, rækta landið, reisa verksmiðjur og orkuver. Til þess að þetta gæti tekizt, var höfuðnauðsyn, að pólitískur friður héldist í Jandinu og sterk og einhuga stjórn sæti hér við stýrið ófriðinn út. Framsókn- arflokknum var þetta þegar ljóst, og hann lagði fram sínar tillögur í samræmi við það. Og hann ætlaðist til þess, að aðrir flokkar tækju höndum saman við hann að koma þeim í framkvæmd og leiðrétta þær og endurskoða, jafnóðum og reynsl- an leiddi í ljós, að þær þyrfti breytinga með að einhverju leyti. Því miður varð ekki þessi raun- in á. Svokallaðir leiðtogar verkalýðsins kepptust þegar frá upphafi við að brjóta niður hverja hindrun, sem reynt var að leggja í götu sívax- andi dýrtíðar — með þeim afleiðingum, að við búum nú, að góðærinu entu, við þá ægilegustu dýrtíð, sem þekkist í sögu þjóðarinnar frá önd- verðu. Og atvinnuvegirnir eru því nær komnir í þrot af sömu ástæðu og alls ólíklegir til þess að standast samkeppnina á heimsmarkaðinum við aðrar þjóðir, sem haldið hafa dýrtíð og fram- leiðslukostnaði í skefjum hjá sér. Og í annan stað tóku þessir sömu leiðtogar höndum saman við íhaldið til þess að efna til þess magnaðasta stjóm- málaófriðar og sundrungar í landinu, sem unnt var að vekja á þessum hættulegu txmum, og efldu þannig um eitt skeið til valda eina þá veikustu og óhæfustu stjórn, sem nokkru sinni hefir setið undir stýri þjóðarskútunnar. Og þess er skemmst að minnast, að á síðasta þingi verzluðu þessir sömu menn við íhaldið um nokkra auvirðilega bitlinga sér til handa (endurskoðun landsreikn- inga, síldarútvegsnefnd, stjórn síldarverksmiðja ríkisins o. s. frv.), gegn því að koma í veg fyrir allar tilraunir til þess að ná á síðustu stundu nokkrum hluta stríðsgróðans úr höndum ein- stakra manna til opinberra ráðstafana með hag heildarinnar fyrir augum. Það er hætt við, að verkamenn — og raunar þjóðin öll — eigi eftir að súpa nokkuð beiskt og ólystilegt seiði af þessu ráðslagi „verkalýðsfor- ingjanna" svoncfndu á næstu timum. Fiskiskip handa íslendingum — byggð í Svíþjóð. CÆNSKA ríkisstjórnin hefir veitt íslendingum leyfi til að láta byggja 45 fiskiskip þar í landi. Þetta leyfi er þó þvi skilyrði bundið, að ís- lenzka ríkisstjómin verði samnings- aðili um smíði þessara skipa. — Skip þessi verða smíðuð úr tré. Þetta eru auðvitað fagnaðartíðindi út af fyrir sig. Okkur er lífsnauðsyn að endurnýja og auka skipakost okk- ar sem allra fyrst — ekki sízt vegna fiskveiðanna. En á hinn bóginn gæti það þó verið okkur fullt áhyggjuefni, að ástandið í verðlags- og atvinnu- málum okkar skuli þannig komið, að öllum flokkum kemur hjartanlega saman um, að það sé öldungis sjálf- sagt og óhjákvæmilegt að leita út úr landinu um smíði þessara litlu tré- skipa, fyrst og fremst sökum þess, að erlendar þjóðir geta smíðað slík skip fyrir miklu — svo að ekki sé sagt margfalt — minna verð en við sjálfir. Þó er þetta aðeins eitt dæmi um þá heildarsýn, sem við okkur blasir í framtíðinni: Atvinnuvegir lands- manna eru allir meira og minna óhæf- ir til þess að standast samkeppni á eðlilegum tímum við framleiðslu ann- arra þjóða, sem hafa metið framtíð- aröryggi atvinnuvega sinna meira en stopulan — og algerlega falskan — stundargróða. Við erum meira að segja nú þegar neyddir til að halda höfuðatvinnuvegum okkar í horfinu með óeðlilegum og harla tvísýnum ráðstöfunum, til þess að koma í bili í veg fyrir hrörnun þeirra og fall. Vel sloppið — fyrir stríðsgróða- mennina. QG HVERJIR hafa svo grætt é öllu dýrtíðar- og kaupsprenging- ar-kapphlaupinu, sem framar öðru, hefir sett svip sinn á þjóðlíf okkar í undanförnu góðæri? Vera má, að hag- ur verkamanna hafi eitthvað batnað, en þó ekki meira en stórlega aukin at- vinna i landinu á þessu tímabili hefði ein út af fyrir sig megnað, þótt ekk- ert kauphækkunar-kapphlaup hefði verið háð, ef verðlagi í landinu hefði aðeins verið haldið i föstum skorð- um og stríðsgróðinn hefði jafnóðum og hann varð til verið tekinn úr um- ferð til almenningsheilla og í þágu atvinnuveganna í framtíðinni. Eitt- hvað svipað má segja um afkomu alls þorra bænda og annarra vinnandi stétta þjóðfélagsins. Þær hafa ef til vill eitthvað rétzt úr kútnum í bili, en framtiðarhorfurnar eru þó allt annað en glæsilegar .Og nú þegar er svo komið, að jafnvel tiltölulega fremur smávægilegar atvinnutruflan- ir í bæjunum yfir háveturinn, — sem ávallt hafa þekkzt hér áður og ekki verið til stórvægilegra tíðinda taldar — hafa snúizt í mjög alvarlegt og kvíðvænlegt viðfangsefni vegna dýr- tíðarinnar. Stundargróðinn verður þvi miður ærið fljótur að hverfa út í veð- ur og vind verðbólgunnar, strax og nokkur atvinnubrestur gerir vart við sig — jafnvel þótt hann sé ekki stór- kostlegri en svo, að á óvenjulegum timum þætti hann ekki verulega al- varlegs eðlis. En stórgróðamennirnir — fáeinir stórútgerðarmenn og kaupsýslumenn — hafa keypt á sér frið með því að magna hina pólitizku sundrungu og ófrið í landinu i félagi við „verkalýðs- leiðtogana“ svonefndu og kasta að lokum fyrir þá fáeinum „beinum“, til þess að „hafa þá góða“. Framsýnir menn vöruðu við þess- ari öfugþróun í tæka tíð og gerðu sitt til þess að koma í veg fyrir hana. En þeirra ráðum var ekki sinnt, og því er nú komið sem komið er: Hrun at- vinnuveganna og atvinnuleysi verka- lýðsins blasir við á næstu grösum, ríkissjóður er því nær þurrausinn að entu fádæma góðæri, en stríðsgróða- mennirnir leika enn lausum hala og hagræða sér sem mjúklegast í hinni pólitízku flatsæng, sem þeir hafa bú- ið sér við hlið „verkalýðsleiðtoganna“ í bæjarstjórn Reykjavíkur og á þingi þjóðarinnar. Málgögn þessara flokka bera þessu ástandi ljóst og órækt vitni. Þar fer naumast nokkurt óþægjuorð á milli, síðan í þá sæng var gengið. Og kommúnistaforingjarnir bjarg- ast á atkvæðum íhaldsins inn í hverja trúnaðarstöðuna á fætur ann- arri við þýðingarmestu atvinnufyrir- tæki landsins. Deilt um þjóðleikhúsið. P*KKI ALLS fyrir löngu reit Halldór Kiljan Laxness grein í „Þjóðvilj- ann“, þar sem hann réðst allhvat- skeytlega að þjóðleikhússbygging- unni, taldi hana stórgallaða og varla nothæfa sem leikhús, þótt fullgerð yrði. Nú hefir einn af leikurum höfuð- staðarins, Hjörleifur Hjörleifsson, svarað þessari ádrepu skáldsins með langri og — að því er virðist — vel rökstuddri grein í „Alþýðublaðinu", þar sem hann hrekur fullyrðingar Laxness lið fyrir lið. Kemst Hjörleif- ur svo að orði í upphafi greinar sinn- ar, að hér sé auðsjáanlega „um að ræða tilraun að sá tortryggni og óá- nægju í hug allra þeirra, sem eiga að njóta góðs af byggingunni, bæði lista- manna og almennings, og því er nauðsynlegt að leiðrétta það, sem ranghermt er eða fært aflaga“. Og síð- ar í greininni segir: „Það er ekki ann- að sýnilegt en að tilgangur H. K. L. með skrifum þessum sé sá að spilla fyrir þjóðleikhússbyggingunni meðal þeirra, sem ekki eru kunnugir mála- vöxtum. Það er illt verk, og allt ann- að en íslenzk leiklist þarfnast“. Mun það og hverju orði sannara. En rithöfundar kommúnista kunna vel til vígs og vita hvað þeir syngja, þegar þeir „sá tortryggni og óánægju í hug allra þeirra, sem eiga að njóta góðs af“ allri menningarviðleitni þjóðarinnar. MÖDIH KONA, MEYJA Barnið er framtíðin. Merkur uppeldisfrömuður komst eitt sinn að orði í ræðu, eitthvað á þessa leið: — Allt uppeldi er einungis venjuj:. Því skyldum vér, þegar á Þetta et ekki fluéeldasýniné frá friðartímum, heldur loftvarnaskothríð yfir Neapel er þýzkir flugmenn freistuðu að gera árás á hana um nótt, eftir að Bendemenn höfðu ná$ bor&nni á eitt vnld. unga aldri, temja oss góðar venjur, en forðast þær illu. - Enginn vafi er á því, að í þessum orðum eru mikil sannindi fólgin, og ættu allir, er ung börn eiga og við uppeldi fást, að gefa þeim rækilegan gaum. Heitasta ósk hverrar sannrar móður er, að barn- ið hennar verði hraustur efnismaður. Hún gerir allt til þess, að svo megi verða — fómar öllu fyrir litla angann sinn. Hollar venjur er eitt hið bezta, sem móðir gef- ur barni sínu. Þær skapa innri festu hjá barninu og gera um Ieið allt uppeldið mun léttara. Þá er höfuðatriðið að byrjað sé nógu snemma á regluseminni, þ. e. a. s. strax og barnið er fætt. Um þetta atriði segir: „Uppeldið byrjar aldiei of snemma. Barn getur verið óstýrilátt þegar á fyrsta ári, það getur snemma orðið stríðlyndur harðstjóri á heimilinu, ef foreldrarnir fara skakkt að.“ Hver rnóðir ætti að muna það, að jafnauðvelt er að temja barninu illar venjur og þær góðu, en erfiðlega getur reynzt að uppræta ósiðina, er barnið hefir tamið sér þá. Barnið er yfirleitt mjög vanafast, og sé það líkamlega heilbrigt á að vera mjög auðvelt að temja því fastar og, þá um leið, hollar venjur og gera allt daglegt líf þess reglubundið. Takist Jretta, mun það verða uppalandanum til mikillar ánægju, barninu til blessunar og þjóð- inni gagnlegra en margan grunar. „Puella“. Haframakrónur. 11 gr. smjör eða smjörlíki. 100 gr. sykur. 120 gr. hveiti. 100 gr. hafragrjón. 1 egg 1 teskeið gerduft. Smjör og sykur hrært í 5 mín. Eggið því næst hrært vel saman við, og síðan hveitið, haframjöl- ið og lyftiduftið. Deigið látið með teskeið á vel hreina og smurða plötu, með dálitlu millibili. Bakist í ca. 10 mínútur. Húsráð. Gólfábreiður er gott að hreinsa á vetrum þannig, að breiða þær slétt á harðan sjó, snúa rétthverfunni niður, og berja þær svo vel. Rykið og óhreinindin verða þá eftir í snjónum, og ábreiðurnar veiða fallegar og hreinkast mikið. ________w Gla« hjarta gjörir andlitið hlýlegt, en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur. Orðskviðir Salomons.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.