Dagur - 20.01.1944, Blaðsíða 6
6
DAGUR
Fimmtudaginn 20. janúar 1944
sreMÍi/MM
(Framhald).
„Jæja,“ Janoshik hélt áfram með söguna eins og ekkert hefði í
skorist, — ,,dag nokkurn hélt Krupatschka heim frá vinnu sinni og
bjóst við að konan hefði dýrindis kvöldverð tilbúinn handa hon-
um eins og venjulega, — en hann greip í tómt. Konan var ekki þar
og kvöldverðurinn ekki heldur. Hún hafði hlaupizt á brott með
Lúðvík nokkrum Polatschek, laglegum strák, sem les læknisfræði
við háskólann."
Þjónninn sleit sig lausan.
„Hvers vegna ertu að tefja mig með svona nauða ómerkilegri
sögu?“
„Vegna þess, að hún er ekki eins vitlaus og þú heldur," sagði
Janoshik, ofur rólegur. „Það er nefnilega dálítið svipað, sem hér
hefir gerzt. Því að það er alveg eins með Þjóðverjann þinn og kon-
una hans Krupatschka. Hann er horfinn. Ekki snefill eftir af
honum."
„Ertu vitlaus?“ Þjónninn var skelfdur. „Þetta getur ekki verið.“
„Leitaðu þá sjálfur,“ sagði Janoshik. — „Eg finn hann hvergi.“
Þjónninn hringsnerist nokkrum sinnum á ganginum, leit inn á
öll salernin, gægði'st út um litlu dyrnar, út í myrkrið á pallinum, —
en sá ekki neitt af Glasenapp liðsforingja. — „Heilagi Mósesl“
hrópaði hann. „Þetta er óskaplegt, - skelfilegt. Veíztu hvaða af-
leiðingar þetta getur haft fyrir okkur?“
„Nei,“ svaraði Janoshik, ráðvendnislega. „Eg hefi enga hug-
mynd um það.“ — Bara að Breda væri nú sloppinn! — Þjónninn
var fölur sem nár.
„Þú ert svo vitlaus að eg gæti snúið þig úr hálsliðnum," hreytti
hann út úr sér og hélt upp stigann.
Hann skildi dyrnar eftir opnar og Janoshik heyrði fljótt hvaða
áhrif fregnin um hvarf Glasenapps hafði á gestina uppi. Þungt
skóhljóð heyrðist í efstu stigaþrepunum. Janoshik sá Þjóðverjann
þramma niður stigann, — fyrst sá hann leðurstígvélin, þá einkenn-
isbuxurnar og loks manninn allan. Öll var sýnin heldur
óskemmtileg. Skelfing og ofsaleg bræði brunnu í augum Þjóðverj-
ans. Hann hélt á skammbyssu í hægri hendi.
„Hvar er Glasenapp liðsforingi?“ þrumaði Patzer, jafnskjótt og
hann steig fæti á gólfið. Janoshik fórnaði höndum til himins.
„í einlægni sagt, herra minn, hefi eg ekki hugmynd um það.
Eg get ómögulega fylgzt með því, hverjir koma hér niður og hverj-
ir fara. Eg fór upp þarna áðan, eins og þér munið.“
Hann sneri sér undan og fór að tína hrein handklæði út úr
skápnum. Höfuðsmaðurinn froðufelti af bræði.
„Komið með mér undireinsl“
„Hvert? Til hvers?“ spurði Janoshik.
Skammbyssuhlaupi var þrýst að bakinu á honum. Þjóðverjinn
hafði svarað spurningunni á sinn hátt.
„Enga vafningal Komið undireinsl" endurtók hann.
Janoshik brosti sakleysislega.
„Þér verðið að afsaka, herra minn,“ sagði hann, „en eg spurði
bara vegna þess að liúsbóndanum líkar ekki að eg slæpist 1 vinnu-
tímanum. En vitaskuld er mér sérstök ánægja að því að vera yður
samferða. Þér heiðrið mig sannarlega með þessu kurteislega boði
yðar. Eg á að hjálpa yður að finna liðsforingjann. — Glasenapp.
heitir hann víst, — er það ekki?“
Janoshik hélt áfram spjalli sínu á leiðinni upp stigann og virtist
hinn kátasti.
Hvarf Þjóðverjans hafði valdið miklum æsingum í veitingastof-
unni og þar heyrðist ekki mannsins mál.
„Þögnl" hrópaði Patzer, ógnandi, — um leið og hann ýtti Jano-
shik inn fyr<r. Dúnalogn datt á. „Yður er kunnugt, hvað hér hefir
komið fyrir,“ - hann gerði sér far um að vera ekki þvoglumæltur,
en tékkneski snapsinn leyndi sér þó ekki, — „og því mun engan
furða á því, þótt eg geri róttækar ráðstafanir. Glasenapp, liðsfor-
ingi er horfinn, — horfinn á mjög dularfullan hátt.
Þetta eru erfiðir tímar. Við Þjóðverjar erum að reyna að koma
á aga og skipulagi í þessu landi, en svo virðist sem allir kunni ekki
að meta störf okkar. Það hefir komið fyrir að þýzkir hermenn hafa
týnzt. Eg ásaka engan hér, — takið eftir þvi, — engan — ekki ennþá
að minnsta kosti.“
„Gæti ekki verið að liðsforinginn hefði bara farið aftur til her-
mannaskálanna?" spurði einhver.
„Hver talaði?" spurði Patzer byrstur.
„Það gerði eg,“ svaraði roskinn maður í góðum holdum. „Eg
heiti Lev Preissinger, forstjóri Bæheimska kolahringsins."
„Einmitt það,“ sagði Patzer. „Kannske þér viljið þá vera svo góð-
ur, að segja okkur hvort þér hafið séð Glasenapp liðsforingja fara
út um dyrnar þarna,“ — hann benti á útidyrnar, — „og hvenær þér
sáuð hann fara?“
„Því miður get eg ekkert um það sagt, því að eg var niðursokk-
inn í samræður við vin minn, dr. Wallerstein."
„Jú, jú, — allir áttu svo sem annríkt, - allir voru niðursokknir
(Framhald),
f*
Framsóknarfélag Akureyrar:
ÁRSHÁTÍÐ
verður haldin í Samkomuhúsi bæjarins laugardaginn
29. janúar n. k., kl. 8.30 e. h.
!
Til skemmtunar:
1. Kaffidrykkja.
2. Ræðuhöld.
3. Söngur (kvartett).
4. Lúðrasveit Akureyrar (Jakob Tryggvason stjórnar).
5. Dans.
Áskriftalisti fyrir félagsmenn og gesti liggur frammi í ||
Timburhúsi K. E. A. næstu viku.
I
V.
STJÓRNIN
TILBÚINN ÁBURÐUR
Pöntunum á tilbúnum áburði óskast skilað f
á skrifstofu vora fyrir 20. febrúar næstk.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
Fyrirligg jandi: ★
SKÍÐABINDINGAR
m. a. KANDAHAR og DARTMOUTH
STÖKK- OG SLÁLOM-BINDINGAR
Ennfremur skíði og skíðastafir. —
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Járn- og glervörudeild.
BRAUÐARÐMIÐUM
frá s. 1. ári eru félagsmenn vorir beðnir að skila
á skrifstofu verksmiðjanna fyrir 30. jan. n. k.
BRAUÐGERÐ
r
Aramót
Far vel, þú liðna ár í gengins gröt.
Hver geisli nýr raun sindra skær sem tyrr
í baksýn raðast upp þin myrkra mögn.
Lát fymast, hljóðna öll þín kvalakvein,
með kistu þinni jarðist heimsins sorg.
Tak með þér dauðans gný í grafar þögn.
Hvað ber þú, nýja ár, á armi þér?
Mun alda blóðs og tára svelgja þig,
likt og hún dró i djúp sitt liðið ár?
Hvort gróa vorrar jarðar svöðusár?
Fá saklaus böm um heimalandsins skóg,
mót björtum degi að leiðast, hönd í hönd?
Sjá, ennþá litar bárufald þann blóð,
sem brotnar upp við þína lágu strönd.
Kristján Einarsson frá Djúpalæk.
Æfður spilamaður stendur auðvitað
miklu betur að vígi við spilaborðið en sá,
sem sjaldan grípur í spil, jafnvel þótt
hann kunni eitthvað dálítið fyrir sér. En
„spilalukkan" er svo hverful, að það kem-
ur ekki ósjaldan fyrir, að hinn æfði garp-
ur hefir lakari útkomu í keppni en mið-
lungsmaðurinn. Það er ekkert einsdæmi,
að klaufabárðurinn slampast á að vinna
sögn, sem garpurinn, þrátt fyrir mikil
heilabrot og „vísindalegar" aðferðir, tap-
ar. Þannig gengur það stundum. Og gam-
an er fyrir skussana að geta snúið á garp-
ana, annað veifið.
Eftirfarandi Jeikur er úr keppni í Lon-
don fyrir áramótin:
S. -10.
H.-A.9.3.
T. -K.G.9.8.4.
L.-10.7Æ.3.
S. -K.D.G.9.4.3.
H.-K.8.7.5.
T, — -
L.-G.8.4.
S. -A.8.7.6.
H.-10.6.4.
T. -A.D.10.7.6.
L.-D.
S. átti sögnina, 5 tigla. V. hafði sagt
spaða og A. lauf. V. sló laufgosanum út.
Þegar spil blinds voru lögð á borðið, sá
S.„ að hann mundi tapa einum slag í
laufinu og tveimur i tigli. A. tók fyrsta
slaginn með laufkóngnum og spilaði út
spaðafimmunni. S. spilaði ásnum og næst,
— í veikri von, — spaðasexunni. Það virt-
ist augljóst, að hann ætlaði sér að trompa
frá blindi, og V. gekk f gildruna. Hann
gaf fjarkann i, en S. hafði gizkað rétt á
það, að þegar A. spilaði spaðanum, hefði
hann látið sitt hæsta spil, og S. lét því
hjarta i slaginn frá blindi, og spaðasexan
átti slaginn! — (Times.)
S. -5.2.
H.-D.G.2.
T. -5.3.2.
L.-A.K.9.65.
m:i0*&>íux
Hið fyrsta íslenzka skáktímarit hét „f
uppnámi" og hóf göngu sina á þorranum
1901. Taflfélag Reykjavikur gaf það út,
en Pétur Zophóníasson stjórnaði útgáf-
unni. Tímaritið var hið vandaðasta að
frágangi og mun að útliti og efni til hafa
verið í fremstu röð slikra tímarita i Ev-
rópu á þeim tíma. Því miður varð það
ekki langlíft. Síðasta heftið kom út á
jólum 1902. Ritið flutti ýmislegan fróð-
leik um skáklif innan lands og utan,
skákir og mikið af skákdæmum. Flestar
skákirnar voru erlendar, enda litið um
það hér þá, að skráð væru töfl og fátt
góðra skákmanna.
Mesta athygli ( þá daga vakti Vestur-
íslendingurinn Magnús Smith, sem varð
skákmeistari Kanada um aldamótin. Birt-
ust nokkrar skákir hans i „í uppnámi".
Hér fer á eftir ein, sem tefld var í Winni-
peg 1901.
Spænskur leikur.
Hvítt: Magnús Smith. Svart: G. Patterson.
1. e4—e5. 2. Rf3-c6. 3. Bb5-d6. 4.
Bxc6f—bxc6. 5. d4—Df6. 6. dxe5—dxe5.
7. Bg5—Dd6. 8. De2-f6. 9. Bd2-Rge7. 10.
Rbc3-a6. 11. 0-0-Reg6. 12. Hadl-De6.
13. Rfel—Bc5. 14. Ra4-Ba7. 15. Bb4-
Rgf4. 16. Dd2—Bb7. 17. Bc5-Dc8. 18. DeS
—Bb8. 19. Hd2-Re6. 20. Rf3-Rxc5. 21.
Raxc5—Ba7. 22. Hfdl-0-0. 23. DbSf-
KhR, 24, Rvb7—H*b8. 25. Hd8, Gefið.