Dagur - 20.01.1944, Síða 7
Fimmtudaginn 20. jánúar 1944
\
DAGUR
7
— Guðm. Vilhjálmsson forstjóri gerir at-
hugasemd við ummæli „I)agsw lLnóv.sL
(Framhald af 5. síðu).
— „Dagur6i gerir athugasemdir við grein
Guðmundar Vilhjálmssonar forstjóra.
(Framhald af 5. síðu).
S. í. S. orðið að láta senda vörur
sínar til Reykjavíkur, taka þær
í land þar, og senda síðan út á
land, það sem kann að vera selt
þangað fyrirfram, og einnig það,
sem selt er út á land eftir að vör-
urnar eru komnar og mun það
eiga sér stað um megnið af vör-
unum. Enda munu langflestar
verzlanir landsins kaupa vörur
sínar fyrir milligöngu annars
hvors þessara aðila, með því að
annað fyrirkomulag hefir reynst
lítt framkvæmanlegt. Þetta
hljóta allir, sem nokkurn kunn-
ugleika hafa á viðskiptum, eins
og þeim er nú háttað, að vita.
Er tæplega unt að búast við, að
hægt sé að komast hjá auknurn
kostnaði þegar þannig stendur
á, og getur Eimskipafélagið á
engan hátt ráðið við þetta, og
því síður er hægt að ætlast til, að
félagið taki á sig kostnað, er af
þessu leiðir. Gildir þetta einnig
um nokkrar aðrar vörur, sem
nefndar eru „láns og leiguvörur"
(þó að undanskildu alls konar
járni til bygginga og smíða, serr
er megnið af „láns- og leiguvör-
unum“ sem hingað flytjast). —
Vegna skorts á skiprúmi, hefir
samist svo um, að þær vörur séu
aðallega fluttar til landsins með
skipum Bandaríkjastjórnar, sem
Eimskipafélagið hefir á engan
hátt umráð yfir, og hafa þau skip
eingöngu affermt vörurnar í
Reykjavík. Um flutninga þessa
hafa íslenzk stjórnarvöld samið
við Bandaríkjastjóm og hefir
Eimskipafélagið engan þátt átt
í þeim samningum, en hefir hins
vegar tekið að sér að veita vörun-
um móttöku, annast afhendingu
þeirra og að innheimta flutn-
ingsgjöldin fyrir hin erlendu
skip.
Af því, er að framan er sagt,
ætti hverjum manni að verða
ljóst, að Eimskipafélaginu verð-
ur ekki kennt um neitt „Reykja-
víkui-umhleðslufargan“, enda
hafa þeir, sem hlut eiga að máli
heldur ekki borið fram „ítrekað-
ar umkvartanir", eins og grein-
arhöfundur segir, því þeim er
fullkunnugt um, að hér er um
orsakir að ræða, sem óviðráðan-
legar eru eins og sakir standa.
Eins og Viðskiptaráðinu og
öðrum þeim, sem að siglinga-
málunum vinna, er vel ljóst, þá
er vöruafgreiðslumálunum í
Bandríkjunum og Kanada,
þannig háttað, að umhleðsla á
megni varanna er óumflýjanleg,
en enda þótt unnt hefði verið að
ferma vörur til smáhafnanna
beint í skip vor og skrásetja vör-
urnar beint til hafnanna, þá
myndu tafir skipanna verða svo
miklar við að skila vörunum á
minni hafnirnar, að það myndi
stórlega draga úr flutnings-
möguleikum til landsins, en eins
og kaupsýslumönnum er kunn-
ugt, þá liggja alltaf tugþúsundir
smálesta af vörum vestan hafs,
sem bíða skiprúms og hefir því
verið talið nauðsynlegt að flýta
afgreiðslu skipanna hér við land
eins mikið og framast er unnt.
Síðar í grein þeirri, sem hér
um ræðir, segir greinarhöfund-
ur: „Það kemur æ betur í ljós, að
leiðréttingar á þessu fyrirkomu-
lagi er ekki að vænta frá forráða-
mönnum Eimskipafélagsins í
Reykjavík, sem vart getur lertg-
ur talist „eign þjóðarinnar“ með
þeirri aðstöðu, sem stórfyrirtæki
og stórlaxar í höfuðstaðnum
hafa sýnilega skapað sér innan
félagsins“.
í framangreindum orðum
kemur fram svo mikil ósvífni
eða vanþekking að undrun sæt-
ir. — í sambandi við þessi um-
mæli skal það upplýst að öll
fyrirtæki, hvort sem þau eru stór
eða smá, njóta nákvæmlega
sömu viðskiptakjara-hjá félaginu
og hefir engrar óánægju orðið
vart af hálfu hinna svokölluðu
„stórlaxa" út af þessu atriði.
Ef greinarhöfundur á hins
vegar við það, að þeir, sem hann
nefnir „stórlaxa höfuðstaðarins“,
hafi náð einhverri sérstakri að-
stöðu innan félagsins, þannig, að
það geti ekki lengur talist „eign
þjóðarinnar", með því að kaupa
upp hlutabréf í félaginu, skal
það upplýst, að tala hlutahafa,
sem var 14609 þegar þeir voru
flestir, árið 1919, var við síðast-
liðin áramót 13797. Hluthöfum
hefir því á liðnum 24 árum að-
eins fækkað um 5%. Er ávalt
skýrt frá eigendaskiptum hluta-
bréfa í ársskýrslum félagsins,
jiannag, að um þetta atriði getur
hver sem vill vitað hið rétta.
í hvatningargreinum þeim, er
birzt hafa í blöðum samvinnu-
manna í sambandi við fyrirhug-
uð skipakaup S. í. S., hefir ver-
ið reynt að láta það líta svo út,
að skipakaup þessi yrðu á engan
hátt til að skapa samkeppni við
Eimskipafélagið, heldur miklu
fremur til að hjálpa félaginu
með flutningana. F.nda þótt hér
og forstjóranum linnst hart að-
göngu, að „Dagur“ skuli ekki
vilja viðhalda þeirri nafngift.
Því miður treystir „Dagur“ sér
ekki til þess. Gremja almenn-
ings hér út af afskiptum félags-
ins af málefnum dreifbýlisins að
þessu leyti hefir við mikil rök að
styðjast. Fyrirtæki þjóðarinnar
mundi vart hafa leyft sér það,
sem nú kemur þráfaldlega fyrir,
I að þegar sá sjaldgæfi viðburður
virðist muni vera um mjög
hæpna ályktun að ræða, þá ber
að viðurkenna, að í þessum
hvatningargreinum hefir ekki
fallið nein hnúta í garð Eim-
skipafélagsins.
Nú virðist höfundur umræddr-
ar greinar í „Degi“ álíta, að
skipta beri um aðferð til að
vinna skipamálinu fylgi og
stuðning samvinnumanna.
Hvort samvinnumenn telja
flutningamálum sínum betur
borgið í höndum Sambandsins,
gera þeir að sjálfsögðu upp við
sig ,en hitt virðist óþarfi og óvið-
eigandi, að bera Eimskipafélagið
óverðskulduðum sökum til fram-
dráttar skipakaupum S. í. S. —
Þessir menn vita þó vel, að Eim-
skipafélagið hefir verið, er og
verður alltaf þjóðarfyrirtæki og
„óskabarn þjóðarinnar".
Reykjavík, 20. nóvember 1943.
H. f. Eimskipafélag íslands.
skeður, að millilandaskip kemur
lrér í höfnina, þá neiti það
flutningi frá fyrirtækjum hér
suður um land. Þetta mun því
miður ekkert einsdæmi þótt
mesta athygli hafi vakið í seinni
tíð, er eitt af skipurn félagsins
var hér á ferð í samgönguleysinu
fyrir jólin og neitaði öllum
flutningi héðan til Reykjavíkur.
Það sannar ekki þjóðarhollustu
félagsins, þótt hluthöfum hafi
ekki fækkað um meira en 812
síðan 1919, eins og forstjórinn
upplýsir. Fækkunin virðist
meira að segja bera með sér, að
hún hafi sljóvgast, og fróðlegt
væri að vita hvort nokkurt af
hlutabréfum þessara 812 hlut-
hafa hefir lent utan landamerkja
höfuðstaðarins. í vitund þeirra,
sem úti urn land búa, sker það
eitt úr í þessu efni, hvern dreng-
skap og réttlæti forráðamenn fé-
lagsins sýna dreifbýlinu í æ erf-
iðari aðstöðu þess fyrir ofvöxt
höfuðstaðarins og fjárflóttans
þangað.
Því miður verður að segja það,
eins og er, að Eimskipafélaginu
hafi verið önnur sjónarmið kær-
ari á undangengnum árum en
þau, að láta landsmenn njóta
sem mest svipaðrar aðstöðu með
siglingar og viðskipti. Það er
því ekkert undarlegt, þótt sam-
vinnumenn, sem sterkust vígin
eiga í dreifbýlinu, telji sig til
neydda að hefja __ samtök um
skipakaup og siglingar. Skap-
brestir „óskabarnsins“, sem lifað
hefir í meðlæti, eru orðnir of
áberandi og erfiðir, til þess að
una þeim aðgerðarlaust öllu
lengur. Og ef til vill er holl sam-
keppni ekki það lakasta, sem
verða kann á vegi Eimskipafé-
lagsins í framtíðinni.
★
G. Vilhjálmsson.
íslendingar voru trúmenn
miklir —. á sína vísu — á
galdraöldinni, en ærið er hugs-
urún og orðalagið á prédikun-
um og sálmum þeirra tíma trá-
brugðið því, sem nú gerist.
Jaínvel titlarrúr á sumum guðs-
orðabókum miðaldanna munu
virðast nútímamönnum allhjá-
kátlegir. Skulu hér neínd fáein
dæmi þessa: Árið 1731 kom út
á Hólum bók, er nefrtdist: „Það
andlega tvípartaða hæna reyk-
elsi. ... í andlegt einrúg tví-
partað sálmasalve sett og snú-
ið“. í Skálholti kom árið 1692
út bók, er nefndist: „Þau
blómguðu bein þeirra dauðu“.
— Og loks skal þess getið, að í
Landsbókasafrúnu í Rvík er til
handrit eitt (Lbs. rtr. 305. 4o)>
er ber þennan langa og hátíð-
lega titil: „Cataplasma Lugen-
tium, eður plástursklútur við
sár þeirra, sem syrgja afgang
sinna ástvina og náunga, í útfar-
ar minning þess bráðþroskaða
blómsturs, sem í æskutíma var
af sigð dauðans uppskorið, eðla-
göfugs og hágáfaðs stud. art. lib.
Skúla Brynjólíssortar Thorla-
cii“. — Skrautlegt bókarheiti
og mættu skáld og rithöfundar
nútímans nokkuð af því læra,
er þeir velja bókum sírrum hæfi-
leg nöfn!
★
Hér er að lokum eitt lítið
sýnishorn áf sálmakveðskap
þeirra tíma, og er það að firtna í
svonefndri Flokkabók (bls. 417
—18), en sú guðsorðabók kom
út árið 1780. Er þetta upphaf
sálmsins:
„í helvítí er alls ills næéS,
á öllu góðu mésta óhægS,
óbærilegur hiti hár,
heljarnístandi grimmdin sár.
Ormur samvizku etandi,
ótti, þurrkur, svengd, harmkvæli,
öfund, hatur, víl, örbyrgð mest,
engin góð von með heilsubrest.
Myrkur og svæla sífelldleg,
sorg og djöflamynd ófrín mjög,
óp og ýlfranir eilífs veins,
andstyggilég lykt brennisteins.
Sól og tungl enginn sjá þar kann,
sht at öjlu þó guS sjálfan. - ~
Sú litla skíma eldi af
enga hughægð fordæmdum gaf.
Magirm í hungri mæðist mest,
munnur af þorsta pínist mest,
eldsloginn verkar óp og kvein,
innlæsist hann í merg og bein.
Af einum neista af eymdar glóð
ólíðanlegri pína stóð
en þó kvinnu hér kynni sár
kvelja jóðsótt um þúsund ár
Hverrúg skyldi okkur, synda-
selum 20. aldarinnar, getast að
því, ef slíkir sálmar, eða aðrir
ennþá magnaðri, væru kyrjaðir
yfir hausamótunum á okkur á
stórhátíðum — þar uppi á
kirkjuloítinu? Ja, satt er það:
Heimur versnandi fer, — og þá
ekki hvað sízt braglist og orð-
kynngi skáldanna og krafturinn
og andagiftin í boðskap þeirra
til samtíðarinnar!!
★
Kerling ein utan úr Möðru-
vallasókn fór eitt sinn í verzlun-
arerindum til Akureyrar. Þetta
var íyrir miðja síðustu öld, Að
loknum viðskiptum við kaup-
mann einn á Akureyri gaf hann
kerlingu tóbaksdósir í kaup-
bæti. Þá kvað hún:
Cóði kaupmann gef mér þessar dósir,
honum þakka má ég mest,
því hann reynist allra bezt.
Logandi og gylltar eru innan,
en kóngsmyndin á þeim er,
sem allir mega líta hér.
Attundi sá eðla kóngur góði
Kristján heitir svo til sanns,
sjá má hérna prýði hans.
★
Helgi Jónsson, til heimilis í
Oxnafelli, var eitt sinn á ferð
síðla dags með kú í eftirdragi.
Kunningi hans mætti horrum,
og kvaðst hann hafa haldið, að
þar væri draugur á íerð, er
Helgi fór. Helgi var hagorður og
kastaði þá fram þessari stöku:
Það er ei draugur, sem þú sérð
sveima um græna velli,
héldur er með Hjálmu á ferð
Helgi í Öxnafelli.
ATHUGIÐ!
★
Auglýsingar og tilkynningar,
sem óskast birtar í blaðinu,
þurfa að vera komnar á a£-
greiðslu þess cða í Prentverk
Odds Bjömssonar fyrir kl. 12
á miðvikudögum.
★