Dagur - 03.02.1944, Blaðsíða 1
—-
ANNALL
DAGS
- =-. ^
í Lögbirtingablaði 22. okt sl.
er birt svofelld auglýsing frá at-
vinnumálará^uneytinu um bann
við veiði göngusilungs við
Fnjóskárósa:
Samkvæmt heimild í lögum
nr. 40, 30. júní 1942 — — um
lax- og silungsveiði, er öll veiði
göngusilungs bönnuð í sjó fyrir
strandlengjunni út frá Fnjóskár-
ósi frá Sæbóli að Kljáströnd, að
báðum jörðum meðtöldum.
Dagur vekur athygli Eyfirð-
inga og Þingeyinga á banni þessu
samkv. ósk Mr. Fortescue, er
hefir ána á leigu og gerir merki-
legar tilraunir til að rækta sil-
ung og lax í Fnjóská.
Frá Húsavík.
Sá atburður gerðist hér sunnu-
daginn 16. janúar sl., að 6 sjó-
menn, sem komu frá því að fara
með m/s. Sporð fram á bátaleg-
una, lentu allir í sjóinn.
Ætluðu þeir á litlum árabát í
land, en hvassviðri var af suð-
vestri og sjógangur mikill, og
sökk báturinn undir þeim. Svo
vel vildi til, að 5 af þessum 6 sjó-
mönnum voru syntir og syntu 4
strax til lands, þeir Stefán Her-
mannsson frá Bakka á Tjörnesi,
Jóhannes Sigurðsson sjómaður í
Húsavík, Arni Vigfússon einnig
sjómaður í Húsavík og Hermann
Sigurðsson frá Akureyri. Eftir
urðu frammi við bátinn, sem að
eins maraði í kafi, Hrólfur Sig"
urðsson formaður á Sporði með
Jón Óskarsson frá Akureyri
ósyndan. Hvolfdi Hrólfur bátn
um, svo að hægra væri fyrir Jón
að halda sér uppi úr sjónum, en
sjálfu er Hrólfur vel syndur. En
6 sinnum sneri veðrið og sjó-
gangurinn bátnum við, og 6
sinnum var Hrólfur búinn að
hvolfa honum, þegar Jóhannes
bróðir hans kom fram til þeirra
á báti. Hafði Jóhannes losað sig
við „bússumar“ á sundinu og
sýndi hið mesta snarræði í því að
rífa fram bát, strax og hann náði
landi og róa fram til bróður síns
á móti ofsaroki og miklum sjó-
gangi. Þeir Stefán og Hermann
veittu Arna hjálp, en hann var
alveg kominn að þrotum, þegar
upp að fjömnni kom.
Hrólfur Sigurðsson sýndi
þama hina mestu karlmennsku
og fómarlund. Hann er sjálfur
sundmaður góður, en hann verð
ur eftir hjá félaga sínum ósjálf-
bjarga og hugsar sér að láta eitt
yfir þá báða ganga. Hrólfur er
21 árs gamall og hinn vaskasti
maður.
Frá því um nýár hafa farið
héðan 4 vélbátar, 3 suður
Sandgerði og 1 austur á Horna
fjörð. Um 50 sjómenn hafa farið
héðan úr bænum, bæði meíí
þessum bátum og í ýmsar aðrar
verstöðvar. Fylgja þessum stóra
hópi hinar beztu óskir héðan, og
að þeir megi allir heilir aftur
koma.
XXVII. árg.
PAGUR
Akureyri, fimmtudaginn 3. febrúar 1944.
5. tbl.
BÆJARSTJÚRN ÚSKAR SAMÞYKKIS SKIPULAGSNEFNDAR
Á FYRIRKOMULAGI DRÁTTARBRAUTAR OG HAFNARMANNVIRKJA Á
ODDEYRARTÁNGA
Á fundi bæjar^tjórnar sl.
jriðjudag var samþ., samkv. til-
ögu dráttarbrautarnefndar og
hafnarnefndar, að leita samþykk-
is skipulagsnefndar og vitamála-
stjórnar á fyrirkomulagi væntan-
egra dráttarbrauta, bátakvíar og
colabryggju. Undanfarið hefir
Finnbogi Rútur Þorvaldsson,
verkfræðingur, unnið að mæl-
ingum á bráðabirgðaáætlunum
á mannvirkjum þessum fyrir bæ-
inn. — Lízt honum liagkvæmast
að ætla þessu stað austan á Odd-
eyrinni, um 200 metrum sunnan
við Glerárósa. Er gert ráð fyrir
að þar komi skjólgarður, sem
skýli dráttarbrautum og smá-
bátakvínni fyrir austan- og norð-
an-áttum, en sunnan við garðinn
komi nyrzt bátakvíin, uppsátur
FRÁ ÓLAFSFIRÐI.
100 manns leituðu
atvinnu á Suður-
nesjum um áramót
Hundrað ára afmæli
Fjórir vélbátar frá Ólafsfirði
eru gerðir út frá Sandgerði á
þessum vetri. Fóru þeir suður í
sl. mánuði. Með þeim fór fjöldi
manns í atvinnu suður þangað.
Alls munu 100 Ólafsfirðingar
hafa farið suður í atvinnuleit í
sl. mánuði.
I gær átti 100 ára afmæli
Anna Lilja Jónsdóttir, nú til
heimilis að Vatnsenda í Ólafs-
firði. Hú ner fædd að Silfrastöð-
um í Skagafirði 2. febrúar 1844.
Átt lengst af heima í Héðins-
firði, en fluttist 1922 að Vatns-
enda og hefir búið þar síðan. —
Anna hefir eigi fótavist lengur
og er blind orðin fyrir nokkru,
en heldur sálarþreki óskertu.
Mun hún vera elzta mann-
eskja hér í sýslu.
fyrir smábáta og dráttarbraut
fyrir allt að 50 tonna báta. l'yrir
sunnan þessa dráttarbraut komi
vegur til sjávar og í framhaldi
af veginum timburbryggja. Þá
komi önnum dráttarbraut fyrir
allt að 500 tonna skip, en sunnan
við hana vegur og timbui-
bryggja. Sunnan þess vegar er
ætlað plássi fyrir þriðju dráttar-
brautina, sent taki allt að 1000
tonna skip, en sunnan þeirrar
brautar komi kolabryggja, sem
lokar dráttarbrautahöfninni fyr-
ir sunnanátt.
Áætlað er að samtímis geti
verið á landi í dráttarbrautun-
um 3 1000 tonna skip, 11 500
tonna skip og 30 50 tonna skip.
Er vonandi að framkvæmdir
geti hafizt við þessi mannvirki á
yfirstandandi vetri. Allt eru
þetta mannvirki, sem bærinn
þarf nauðsynlega að fá hið allra
fyrsta, og er þess að vænta, að
samþykki skipulagsnefndar og
vitamálastjórnar fáist án mikilla
tafa og ætti þá ekkert að vera
því til fyrirstöðu að hægt verði
að hefjast handa.
ERLENÐ TIÐINDI
Hinn 30. janúar liófst 12.
stjórnarár Hitlers og væntanlega
það síðasta. I ræðu á afmælisdag-
inn, kenndi hann
Bretum um styrj-
öldina. Sagði þá
hafa búið sigund-
ir stríð síðan
1936! - Aldrei
þessu vant hótaði
hann Bretunt eng-
um hefndarað-
gerðum. — Hann
minntist ekkert á
loforðiðsem hann
gaf þýzku þjóð-
inni fyrir 2 áruni:
„Vérum munum
taka Leningrad“, sagði hann þá.
Skömmu áður en hann hélt ræð-
una var Leningrad endanlega
leyst úr umsátrinu. Þjóðverjar
fara nú mjög halloka á Lenin-
grad-vígstöðvunum.
Jarðýtan hreínsar
Ðalvíkurveginn
Dalvíkurvegurinn varð ófær
bifreiðum sl. laugardag vegna
snjókomu og stöðvuðust mjólk-
urflutningar úr Svarfaðardal
hingað í bæinn. Á mánudaginn
var jarðýtan send á vettvang og
hreinsaði hún veginn út eftir á
9 klst. Var vegurinn eins og hann
getur beztur orðið á eftii', segja
Dalvíkingar. Jarðýtan er ómiss-
andi tæki. Kemur það æ betur í
ljós.
Stefán Þorvarðsson
sendiherra í London
Nýr sendiherra íslands í Lon-
don hefir verið skipaður í stað
Péturs Benediktssonar, sem fer
til Moskva. Er það Stefán Þor-
varðsson, skrifstofustjóri í utan-
ríkisráðuneytinu. Hefir hann
þegar hlotið • viðurkenningu
brezku ríkisstjórnarinnar. Þá
mun hann, eins og fyrirrennari
hans, gegna sendiherrastörfum
hjá norsku ríkisstjórninni í Lon-
don.
Agnar Kl. Jónsson, deildar-
stjóri í utanríkisráðuneytinu hef-
ir verið skipaður skrifstofustjóri
í stað Stefáns Þorvarðssonar.
Flokksþing Fram-
sóknarmanna hefst
í apríl n. k.
Á miðstjórnarfundi Fram-
sóknarflokksins sl. mánudag var
ákveðið að flokksþing skyldi
kallað saman í Reykjavík í apríl
næstk. Var 11 manna nefnd falið
að undirbúa þingið. Nánar
verður ákveðið um þinghaldið,
þegar kunnugt er, hvernig ferðir
falla til höfuðstaðarins í apríl.
Aðalfundur
Verkamannafélags Akureyrar-
kaupstaðar var haldinnsl.sunnu-
dag. Allir starfsmenn félagsins
voru endurkosnir. Sæti eiga í
félagsstjórn: Marteinn Sigurðs-
son formaður, Jóhannes Jóseps-
son ritari, Björn Einarsson gjald-
keri, Sigurður Baldvinsson og
Þórður Valdimarsson meðstjórn-
endur.
Framsóknarfélag
Akureyrar
hafði árshátíð sína í Samkomu-
húsi bæjarins sl. laugardags-
kvöld. Undir borðum fluttu
ræður Þoríteinn M. Jónsson,
skólastjóri, Jakob Frímannsson,
framkvæmdastjóri, Jóhann Frí-
mann, skólastj. og Ólafur Magn:
ússon, sundkennari. Lúðrasveit
bæjarins, undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar, lék og „Smára-
kvartettinnn" söng. Að lokum
! var stiginn dans. Hófið var í alla
I staði hið prýðilcgasta.
Fastanefndir bæjar-
stjórnar endurkosnar
Á bæjarstjórnarfundi sl.
þriðjudag var kosið í fastanefnd-
ir bæjarstjórnarinnar fyrir yfir-
standandi ár. Voru nefndirnar
allar endurkosnar óbrevttar.
Hríseyjarkirkju
berst vegleg gjöf
Frá sóknarnefnd Hríseyjar
hefir blaðinu borizt eftirfarandi
frétt:
Hríseyjarkirkju hefir borizt
mjög myndarleg gjöf frá þeim
Guðmundi Jörundssyni skipstj.
og konu hans frú Mörtu Sveins-
dóttur. Var það raflýsing í kirkj-
una, kostaði um fjögur þúsund
krónur.
Verki þessu var lokið rétt fyr-
ir síðastliðin jól og var messað í
kirkjunni í fyrsta sinni við hin
nýju ljós á annan jóladag.
Gjöf þessa gáfu þau hjón, er
þau fluttu búferlum úr Hrísey
til Akureyrar á sl. hausti.
Sóknarnefndin færir þeim
hjónum beztu þakkir fyrir þessa
mjög svo rausnarlegu gjöf, og
biður gjafara allra góðra gjafa
að launa þeim af ríkdómi náðar
sinnar.
Skattstjóri skipaður
Fjármálaráðuneytið hefir skip-
að dr. Kristinn Guðmundsson til
að vera skattstjóra hér í bænum
frá 1. febrúar s.l. Er þetta nýtt
Aðalfunclur „Þórs“
Aðalfundur Iþróttafélagsins
Þór var haldinn í samkomuhús-
inu „Skjaldborg" 30. þ. m. — í
stjórn voru kosnir: Jón P. Hall-
grímsson formaður, Jón Krist-
insson ritari, Jósef Sigurðsson
gjaldkeri og Kári Sigurjónsson
og Tryggvi Þorsteinsson með-
stjórnendur.
Á sl. ári bættust félaginu 63
nýir meðlimir og telur það nú
alls 329 félaga. Starfssvið félags-
embætti, stofnað skv. lögum frá
síðasta Alþingi. Skattstjóri tekur ' ins var svipað og undanfarin ár
við störfum skattanefndar, sem 1 og sömú íþróttagreinir stundað-
hættir störfum frá sama tíma. ar.