Dagur - 04.05.1944, Blaðsíða 8
í
I
ÚR BÆ OC BÝCGÐ
KIRKJAN. Messað í Lögmanns-
hlíð sunnudaginn 7. maí kl. 12 á hád.
Ferming. — Altarisganga.
Gjöt til Akureyrarkirkju: Kr. 30.00
frá N. N. — Þakkir. — Á. R.
Stúkan Brynja heldur fund í
Skjaldborg þriðjudaginn 9. maí kl.
8.30 e. h. Innsetning embættismanna,
kosning fulltrúa á Stórstúkuþing og
f ramhaldssagan.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína: Ungfrú Margrét Ólafs-
dóttir skrifstofumær og Henning
Kondrup, söngvari. Ungfrú Guðrún
Ólafsdóttir og Ásgeir Halldórsson,
verzlunarmaður, K. E. A. Ungfrú
Bergþóra Bjarnadóttir frá Fáskrúðs-
firði og Torfi Guðlaugsson, verzlunar-
maður, K. E. A.
Jðnskóla Akureyrar verður slitið n.
k. laugardag kl. 6 e. h.
Bílstjóri
með meira prófi, getur fengið
■ atvinnu með mjólkurbíl Saur-
bæjarhrepps, næsta fardagaár.
Umsóknir, ásamt kaupkröfu,
sendist til undirritaðs fyrir 20.
maí næstkomandi.
M. H. ÁRNASON,
Krónustöðum.
Tvenn föt
til sölu, með tækifæris-
verði. — Upplýsingar
gefur ÓlafurDaníelsson,
saumastofu Gefjunar.
TIL SÖLU
40—50 ær og 30—40 hest-
ar af töðu. Nánari upplýsingar
gefur Þorsteinn Þorsteinsson,
Brekkugötu 43, Akureyri.
JÓNAS ÞORSTEINSSON,
Eyvindarstöðum.
UPPBOÐ
Samkvæmt kröfu bæjargjald-
kera Akureyrar og að undan-
gengnu lögtaki 31. f. m., verð-
ur opinbert nauðungaruppboð
haldið við Slökkvistöðina á Ak-
ureyri, þriðjudaginn 16. maí
1944, kl. 2 e. h., og þar seldur
ýmiss konar búðarvarningur,
svo sem: Kventöskur, karl-
mannahattar og smávörur, til-
heyrandi Pálmi Ólafssyni, Ak-
ureyri.
Skrifstofa Akureyrar,
29. apríl 1944.
G. EGGERZ
settur.
I NÝJA BÍÓ I
j sýnir í kvöld kl. 9:
ÓSÝNILEGI
NJÓSNARINN.
I Föstudaginn kl. 9:
, SÖNGVADÍSIN.
j Laugardaginn kl. 6:
SÖNGVADÍSIN.
I Laugardag kl. 9:
ÓSÝNILEGI
N JÓSNARINN.
! Sunnudaginn kl. 9:
SÖNGVADÍSIN.
Kl. 5:
Sjá götuautlýsinfar.
gWWWWmimmwmmtOMMiMMUMWUMtBtWlgMMHMtWWtW
DAGUR
Fimmtudagur 4. maí 1944
Þökkum innilega öllum þeim, sem auðsýndu okkur vináttu
og samúð við andlát og jarðarför
VILHJÁLMS JÓNSSONAR, Þorsteinsstöðum.
Fyrir hönd móður minnar og systra.
Kristinn Vilhjálmsson.
Þökkum auðsýnda samúð og hjálp við andlát og jarðarför
STEFÁNS MARZSONAR.
Jónína Jónsdóttir og börn.
Ný byggt hús á norðurbrekku
3 herbergi, eldhús, bað, 2 geymsluherbergi, Vá
þvottahús, til sölu og laust til íbúðar 14. þ. m. —
Tækifærisverð, ef samið er strax.
BJÖRN HALLDÓRSSON. — Sími 312.
í#l3<B3Ö-Ö-Ö-Ö<B3Ö<B3<BKB3&<BKBKHKH3fiHKHÍBKHKH>lKHKHKBKBKHKBK8KKj
Gleymið ekki að endurnýja
Happdrættid.
FOKDREIFAR.
(Framhald af 4. síðu).
húegesti þetta kvöld. En það var ekki
leikurinn, se még ætlaði að tala um.
Sætunum í Samkomuhúsinu fer lít-
ið fram, ef maður rótar sér nokkuð i
þeim brakar bg brestur svo hátt, að
það yfirgnæfir oft á tíðum það, sem
talað er á leiksviðinu, en þó vil ég
taka það fram, að allir leikendur töl-
uðu mjög skýrt og greinilega að þessu
sinni. En það voru ekki sætin í Sam-
komuhúsinu, sem ég ætlaði að tala
um. —
í nsesta sæti framan við mig sat
einhver frú eða fröken með fínan, ný-
móðins hatt á höfðinu, sjálfsagt
smekklegan og fallegan, en óþægileg-
an fyrir mig, því að hann skyggði á
leiksviðið fyrir mér að mestu. Eg fór
að athuga hvort fleiri dömur sætu
með höfuðfötin í húsinu. Jú, hér
og þar sá eg hilla undir kven-
hatta, misjafnlega stóra að vísu, en
alstaðar voru þeir, sem aftan við þá
sátu, að teygja sig í allar áttir, til þess
að sjá eitthvað. Af þessu leiddi svo
brak í bekkjunum, sem alltaf hlýtur
að trufla þá, sem ætla sér að taka
eftir.
Nú dettur mér í hug að spyrja
kvenfólkið hvort það sé nokkuð
nauðsynlegt að sitja með hattana á
höfðinu, hvort það muni ekki eins
gott að geyma þá frammi í fata-
geymslunni, eins og að láta þá spilla
ánægju bæði minni og annarra að ó-
þörfu?
3 hestar
ásamt aktýgjum, diskherfi, plóg,
taugum, skeflum o. fl. til sölu.
BJÖRN HALLDÓRSSON
lögfræðingur.
Sími 312, Akureyri.
Vörubifreið
í góðu standi, til sölu. —
Upplýsingar gefur
BOGI ÁGÚSTSSON. Sími 79.
Efsta hæðin
í húsinu nr. 1 við Eiðsvalla-
götu, er til sölu. Tvær íbúðir,
önnur laus 14. maí. Upplýs-
ingar gefa
JÚLÍUS BOGASON og
BOGI ÁGÚSTSSON, Simi 79.
Kartöflur
M ALT
(í lausri vigt),
H U M L A R
Vöruhús Akureyrar
Réykhúsið
Norðurg. 2 B
er til sölu. Semja ber við
SIGFÚS GRÍMSSON,
Laxagötu 4. (Heima kl. 6
—8 síðdegis).
ALLT ER FERTUGUM
FÆRT,
HULD, 1. II.,
SAGNAKVER, safnað hefir
Björn Bjarnason frá Viðfir&i.
ÆVINTÝRI, þýtt hefir Björn
Bjarnason frá Viðfirði.
Bókabúð Akureyrar
Eilífðarpappír,
Vasabækur,
Vatnslitakassar,
Penslar,
Strokleður,
T eikniblokkir,
T eiknibólur.
BókabúSAkureyrar
Framvegis
getum vér ekki veitt vörum
móttöku á laugardögum.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
Herbergi
óskast frá 14. maí.
Upplýs, { símn 196
\
Sauðffáreigendum
í Eyjaf jarðarsýslu og Akureyri tilkynnist, að eins
og síðastliðið vor, skal allt sauðfé, á svæðinu frá
sauðfjárveikigirðingunni í Glæsibæjarhrepþi, að
girðingunum við Finnastaðaá og Rútsstaði, litar-
merkt á sama hátt og þá, áður en því er sleppt
úr húsi í vor, þ. e.: MEÐ RAUÐUM LIT Á
HÆGRA HORNI EÐA KJAMMA EF KOLL-
ÓTT ER. — Brot gegn þessu varðar sektum. —
Hreppstjórar eru beðnir að sjá um, að fyrir mæl-
um þessum verði fylgt. — Sauðfjármálningin
fæst í KAUPFÉLAGI EYFIRÐINGA.
Akureyri, 3. maí 1944.
F. h. sauðfjársjúkdómanefndar.
HALLDÓR ÁSGEIRSSON.
«HWHKhKHKHKhKBKHKHKHKhKHKhKhWHKhKHKHKHKHKHKHKHKhKHKHÍ
Frá barnaskólanum
Sýning á handiðju og teikningu bamanna verður
sunnudaginn 7. maí kl. 2—7 e. h.
Verður þá einnig til sýnis skrift bamanna og
vinnubækur í kennslustofunum.
Böm, fædd 1937, verða innrituð og prófuð í lestri
8. maí kl. 1—3 e. h.
Skólaslit fara fram 10. maí kl. 5 e. h.
Nýtt skólaár hefst með kennslu í vorskóla 12.
maí kl. 10 f. h.
SKÓLAST JÓRl.
Whkhkhkhkbkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkk
71
UPPBOÐ
Mánudaginn 15. maí næstk. verður opinbert upp-
boð að Fornhaga í Hörgárdal. Þar verður selt m. a.:
Kerra, aktygi, vagngrind, plógur og mjólkurflutn-
ingsfötur. — Einnig þrjú hross (ungviði), ef viðun-
andi boð fæst. — Uppboðið hefst kl. 1 e. h.
INGÓLFUR GUÐMUNDSSON.
ÍHWHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK
Upphoð
verður haldið þriðjudaginn 16. maí .á Sílastöðum,
Glæsibæjarhreppi, kl. 11 f. h. — Þar verður selt, ef
viðunandi boð fæst: Sláttuvél, rakstrarvél, kerra og
langgrind, plógur, herfi og ýmsir aðrir búshlutir og
áhöld. Ef til vill nokkrar ær og kýr.
ÁGÚST JÓNASSON, Sílastöðum.