Dagur - 07.09.1944, Blaðsíða 1
ANNALL
DAGS
. -----
FRÁ VESTFJÖRÐUM.
(Niðurlag).
Fyrir rúmri viku var eg stadd-
ur á ísafirði. Var þar fjöldi
manns, sem þurfti að komast til
Reykjavíkur. Sumir fóru með
Djúpbátnum að Amgerðareyri,
svo yfir Þorskafjarðarheiði,
gangandi eða ríðandi. Flestir
ætluðu áð fara með Súðinni til
Hólmavikur og þaðan á bíl, en
þá fór Súðin til Akraness í
skemmtiferð og tafði það vestur-
för hennar. I»á kom Selfoss á leið
til Siglufjarðar og Akureyrar og
fengu margir far með honum,
þó farþegarúmlaus sé, til að
komast til Reykjavíkur. Þessi
ferð tók um 17 klukkustundir
frá ísafirði og vel geta hraustir
menn þolað III. farrými að sum-
arlagi í góðu veðri, en svo er eft-
ir 9 stunda sjóferð með mjólkur-
bátnum til að komast til Akur-
eyrar, þó í þetta skipti hittist svo
á, að hægt var að fara með Esju.
En þetta getur verið sýnishom
þess, hve óþægilega lykkju
menn verða nú oft að leggja á
leið sína, til þess að komast áleið-
is. — Þetta er meira en þreföld
leið að tíma, kostnaði og vega-
lengd, en margföld að óþægind-
um.
Bj. Guðmundsson.
Frá Þingeyingum.
Síðastl. vor var afar kalt og
gróður kom mjög seint. Fénað-
ur gekk þó sæmilega fram. Hey-
fyraingar engar teljandi. Kraft-
fóðurgjöf mikil handa öllum bú-
fénaði. Sumir láta sér ekki nægja
að gefa kraftfóður yfir veturinn,
heldur gefa hann mjólkurkúm
yfir hásumarið, þegar grös em í
fullum gróðri, og þykir það
borga sig, þótt hagar séu ágætir.
★
Heyskapur mun almennt hafa
byrjað í vikunni 2.-8. júlí. A1
mennt byrjar hann seinn^ en áð-
ur fyrr. Því veldur aðallega
vegavinna, sem gengur langt
fram á vor, í öðm lagi fólksfæð
sveitanna. Síðan heyskapur byrj-
aði, hafa öll hey náðst óhrakin
og með beztu verkun. Gras-
spretta mun víðast vera í meðal-
lagi. Á vemlegum harðlendis-
jörðum mun það þó tæpast vera
Og vegna hinna miklu þurrka,
sem verið hafa, er kvartað und
an því að losa heyið.
★
Mikið er um fundahöld og
ferðalög hér sem annars staðar,
og það um há-heyskapartímann
Enda hafa vegir verið þurrir og
landið okkar með sólarsvip
Varla líða svo vikumót, að eigi
sé einhvers staðar fundur, og
þangað er þá ferðinni heitið,
ekki sízt, ef dans er væntanlegur.
Það er eins og fólkið fái aldrei
nóg af því að dansa. Mikill er
munurinn frá fyrri tímum, þeg
ar hver „undi glaður við sitt“,
heima, og eingöngu var hugsað
um heill og hagsæld heimilisins,
— helga daga sem virka.
(Framhald á 8. síðu),
LL
AGUR
XXVII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 7. september 1944
36. tbl.
ORRUSTAN UM ÞÝZKALAND ER HAFIN
Athyglisverð forustugrein um íslenzh
málefni í „New York Times64
Daginn, sem borgarstjórinn í New York tók á móti forseta ís-
lands og utanríkisráðherra í ráðhúsi borgarinnar, 29. ágúst sl.
birti New Times þessa forystugrein undir fyrirsögninni „Presi-
dent Bjömsson“:
Bandamenn hafa mestan hluta Belgíu
á valdi sínu og sækja inn í Holland
„Tekið verður opinberlega á
móti' herra Sveini Björnssyni for-
seta íslands í ráðhúsinu í dag. En
móttökurnar í þessari borg og
þessu landi eru meir en fyrir
siðasakir ofg forms vegna. Hann
er, þjóðhöfðingi hins nýja lýð-
veldis, sem hin þúsund ára
gamla þjóð hefir stofnað með
sér. ísland, sem áður fyrr átti
margt af hetjum og skáldum, er
á vorum dögum land bænda og
fiskimanna, svipað hinu forna
Nýja Englandi, og þar býr frjáls
og óháð þjóð. Danmörk réði ís-
landi í margar aldir, en landið
öðlaðist heimastjórn eftir langa
baráttu 1874. 1918 varð landið
sérstakt konungsríki, og myndi
sambandslagasamningurinn hafa
runnið út 1943, en 1941 sam-
þykktu íslendingar einróma
skilnað.
Hið þýzka hernám Danmerkur
og gremjan út af því var aðal-
ástæða skilnaðarins. Herra —
Björnsson hafði verið sendi-
herra fslands í Kaupmannahöfn.
Hann hafði tekið þátt í ráð-
stefnum þeim, sem Norðurlönd
og'Finnlanddiéldu í þeirri von
að geta varðveitt hlutleysi sitt.
Hann var kjörinn ríkisstjóri og
endurkosinn tvívegis. Forseti var
hann kjörinn í júní.
Brefar komu í veg fyrir þýzkt
hernám með því að hernema ís-
land. Amerískur her kom í kjöl-
far þeirra með hervernd. íslend-
ingar sem fyrir reynslu sakir eru
tortryggnir menn. höfðu í fyrstu
illan bifur á þessu, en vinátta og
skilningur uxu, þegar þeir sann-
færðust um, að vér höfurn eigi
landvinninga í huga. Samt
munu þeir efalaust fagna því, er
þeir fá aftur frjáls umráð yfir
(Framh. á 8. síðu).
Bandaríkjamenn eru
koninir að landamærum
Þýzkalands við Saar.
r
Arásir á Sigfriedlínuna
að hef jast
ANTONESCU, rúmenska einvaldan-
um og fasistanum, var steypt af stóli
í fyrri viku. Hann er nú fangi.......
Alþingi
kom saman til funda
s.l. laugardag
Ríkisstjórnin hefir lagt
fram nýtt dýrtíðar-
frumvarp.
Verða kosnlngar í haust?
J^LÞINGI KOM SAMAN til
fundar sl. laugardag. Nokk-
ur stjórnarfrumvörp hafa þegar
verið lögð fram, þar á meðal
þessi: Dýrtíðarfrumvarp, verður
þess nánar getið síðar. Frumvarp
um framboð og kjör forseta ís-
lands. Frumvarp um sameining
Áfengisverzlunar og Tóbaks-
einkasölu ríkisins. Frumvarp um
endurskoðun tollskrárinnar.
Umræður munu nú fara fram
milli þingflokka um myndun
nýrrar stjórnar. Er talið heldur
ólíklegt að samkomulag náist. —
Virðist þá aðeins tvennt fyrir
höndum í stjórnmálum lands-
ins: Að samkomulag verði um
lausn dýrtíðarmálsins milli þings
og stjór^nar. Ella verði þingrof og
nýjar kosningar þegar á þessu
híUisti.
Lax í Eyjafjarðará!
A. m. k. 14 laxar hafa veiðzt í
Eyjafjarðará að undanförnu, að
því er blaðið hefir frétt frá áreið-
anlegum heimildum. Er þetta
árangur af því, er KEA lét setja
nokkur hundruð þúsund laxa-
seiði í ána á árunum 1936—38.
Var ætlunin að stofna fiskirækt-
arfélag meðal bænda, er land
eiga að ánni, en varð ekki úr. —
Sýnist ástæða til þess að taka mál-
ið upp að nýju í ljósi þessa
árangurs, alfriða ána og ósana og
auka laxastofninn af kappi.
gTÓRTÍÐINDI Hafa gerzt í
styrjöldinni á vesturvígstöðv-
unum undanfarna daga. Sam-
felldar vamir þýzka hersins í
Frakklandi hafa gersamlega bil-
að. Annar brezki herinn, undir
stjórn Dempseys hershöfðingja,
hefir geystzt fram austur frá
Seine-fljóti — farið inn í Belgíu.
tekið Briissell og sótt til Hol-
lands. Fyrsti ameríski herinn
hefir náð Vestur-Belgíu á sitt
vild, en þriðji ameríski herinn,
undir stjórn Pattons, hefir sótt
allt til landamæra Þýzkalands,
eftir töku Verdun og er nú kom-
inn að þýzku landamærunum
við Saar, fyrir vestan Nancy,
sem er í höndum Bandaríkja-
manna. Her Patch hershöfð-
ingja, sem sótti að sunnan norð-
eftir Rhone-dalnum, hefir
ur
MIKAELS KONUNGS í kjallara
konungshallarinnar. Rúmenar hafa,
að undirlagi konungs, sagt Þýzkalandi
stríð á hendur, rekið Þjóðverja úr
Búkarest og afvopnað þýzkt herlið í
landinu.
Sjávarútvegsnefnd bæjarins vill ekki
mæla með kaupum Svíþjóðarskipa
Engin tilboð um fjárframlög komu fram, þótt aug-
lýst væri eftir þeim
J|INS og frá var greint hér í
blaðinu sl. vor, var nefnd
skipuð af bæjarstjórn Akureyrar
til þess að athuga um og leita til-
boða í kaup á 2—3 fiskiskipum
hingað til bæjarins. Var ætlunin
að skip þessi yrðu 75, 100 og 150
smál. að stærð.
í nefndina voru kosnir Þor-
steinn M. Jónsson, skólastj., for-
maður, Gunnar Larsen, ffamkv.-
stj., Sigfús Baldvinsson, útg.m.,
Indriði Helgason, rafvirkam.bg
jóhannes jósefsson, verkam,
F.ftir að nefndinni höfðu bor-
izt upplýsingar þær, sem at-
vinnumálaráðuneytið gefur nú
um sænsku skipin, ákvað nefnd-
in að mæla ekki með kaupum
skipanna, enda höfðu }:>á engin
tilboð um fjárframlög borizt,
þótt leitað • væri eftir með út-
varpsauglýsingum. — Eins og
kunnugt er af útvarpsfrásögn
eru skip þau, sem um ræðir í
hinum sænsku tilboðum 50 og
80 smál. að stærð. Verð skipanna
(Frstnhald á §, iiíSu).
tekið Lyon og er nú það bil að
ná sambandi við sveitir Pattons.
■ Er hringurinn um Þýzkaland því
; þar með að lokast. — Einangrað-
j ar sveitir Þjcðverja verjast í
hafnarborgunum Le Havre,
Calais og Dunkirk, en eru gjör-
(Framh. á 8. siðu).
Forsetinn
kominn heim
Forseti íslands, herra Sveinn
Björnsson, utanríkisráðherra,
Vilhjálmur Þór. og förunautar
þeirra, komu 2. þ. m. heim úr
vesturförinni. Frú Georgía
Bjornsson, frú Rannveig Þór og
konur samferðamanna þeirra,
tóku á móti }:>eim á flugvellin-
um. Björn Ólafsson, fjármála-
ráðherra og Agnar Kl. jónsson,
skrifstofustjóri, fögnuðu þeim af
hálfu ríkisstjórnarinnar. Auk
þess voru Louis Dreyfus sendi-
herra og frú, Key hershöfðingi
og aðrir yfirmenn hers og flug-
hers viðstaddir.
Hefir ferðalagið gengið mjög
vel og algerlega eftir þeirri á-
ætlun, sem gerð hafði verið,