Dagur - 25.01.1945, Síða 4

Dagur - 25.01.1945, Síða 4
4 DAGUR Fimmtudaginn 25. januar 1945. DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðslu og innheimtu annast: Marinó H. Pétursson. Skriístofa við Kaupvangstorg. — Sirni 96. Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgangurinn kostar kr. 15.00. Prentverk Odds Bjömssonar. Samtök fjórðunganna. j DAG birtist hér í blaðinu Svarp Irá nefnd þeirri, er fundur presta og leiknianna í Norð- lendingafjórðungi kaus sl. haust til þess að vinna að auknu samstarfi milli héraða og bæja liér norðanlands um ýmis menningar- og skipulags- mál fjórðungsins. Er í ávarpi þessu skorað á sýsluneíndir og bæjarstjórnir á Norðurlandi að efna árlega til fulltrúafundar, ljórðungsþings, er fjalli um sameiginleg áhuga- og hagsmunamál þessara aðilja, geri um þau ályktanir og hafi for- göngu um framkvæmdir og úrlausnir þeirra. Mun hér um svipuð samtök og skipulagningu að ræða eins og bæði Vestfirðingar og Austfirðingar hafa þegar komið á laggirnar í sínum fjórðung- um, enda mun það samstarf hafa gefizt vel og borið nú þegar nokkurn markverðan árangur. j JPESSU SAMBANDI rifjast það upp fyrir mönnum, að allsterkar raddir liafa á síðustu tímum heyrzt úr ýmsum áttum, er krafizt hafa aukins réttar héraða og landsfjórðunga til sjálf- stjórnar og íhlutunar um sín eigin málefni. Er þá að sjálfsögðu gert ráð fyrir því, að valdsvið Al- þingis og ríkisstjórnar ’ þrengist að sama skapi, þótt auðvitað verði ekki hjá því komizt, að þeir aðiljar liafi eftir sem áður yfirstjórn og úrskurð- arvald í liinum stærri málum og öllum þeim at- riðum, sem sameiginleg eru fyrir þjóðarheildina alla. Er hér að vissu leyti stefnt aftur í sömu átt um skipulag og verkaskiptingu milli héraða- stjórna og ríkisvalds eins og og tíðkaðist hér á landi til forna — á blómaskeiði hins fyrra íslenzka þjóðveldis. Ekki er alls ólíklegt, að slíkt samstarf, sem nefndin stingur nú upp á að reynt verði og áður er getið, gæti orðið vísir markverðra skipu- lagsbreytinga í þessa átt. Og vissulega myndi aukin samvinna milli hinna einstöku héraða- og bæjarstjórna í hverjum landsfjórðungi aðeins leiða til góðs og þyrfti á engan hátt að veikja náuðsynlega einingu ríkisvaldsins og samstöðu allra landsmanna, þegar til kasta sameiginlegra átaka og skipulagningar kæmi. J^LLAR UMRÆÐUR og framkvæmdir, er hníga í þessa átt, eru auðvitað fyrst og fremst sprottnar af þeirri rót, að augu æ fleiri manna í landinu eru að opnast fyrir hættum þeim, sem þjóðfélaginu eru búnar af sívaxandi ægivaldi, áhrifum og sérréttindum höfuðstaðarins í öllum málefnum ríkisins að kalla. Hinn sívaxandi mannfjöldi í Reykjavík í hlutfalli við aðrar byggðir landsins var einn út af fyrir sig ærin ástæða til, þess að auka þessar hættur, auk þess sem höfuðborgaraðstaðan — aðsetur þings og stjórnar og samanþjöppun ríkisvaldsins á einum stað — hlaut ávallt að skera úr um valdaaðstöðu Reykjavíkur í þjóðlífinu. En þar við hefir svo bætzt, að með hverri breytingu að kal'la, sem gerð hefir verið á stjórnskipunarlögum, kosn- ingafyrirkomulági og kjördæmaskipan í landinu á síðustu árum, hefir markvist verið stefnt í þá átt að ójafna metin, gjöreyða síðustu leifum byggðavaldsins og selja Reykjavíkurvaldinu sjálfdæmi í hverju máli. Alþingi hefir þannig raunar verið gert að nýju bæjarþingi Reykvík- inga fremur en sameiginlegri brjóstfylking þjóðarinnar allrar. Þungir straumar hverfa vissu- lega enn í þetta horf og raunar óvíst, hvort nokk- ur möguleiki er á að ráða þar straumhvörfum að sinni — úr því sem komið er. En samtök fjórð- unganna mættu þó reynast markverð tilraun til eðlilegs og« heilbrigðs viðnáms í þessum efnum og upphaf nauðsynlegrar valda- og aðstöðujöfn- ^ngr í þjóðfélaginu, Skip Bandaríkjainanna við Leyte. Onustan á Filippseyjum er nú í algleymingi. Herir MacArthuis haifa náð eyjunum Leyte og Mindoro og hafa stóran hluta Luzon á valdi sínu. Myndin er frá innrásinni á Leyte í október síðastl. Fögur og gleðileg sjón. gLYSFÖRIN MIKLA, sem farin var heim til Davíðs skálds Stef- ánssonar á afmæli hans sl. sunnudags- kvöld, var óvenjuleg og hrífandi sjón. Það er gleðilegt tákn tímanna, að bæjarbúar — og þjóðin öll — keppt- ist við að tjá ástsælasta og dáðasta skáldi sínu verðskuldaðar þakkir og aðdáun á svo eftirminnilegan og glæsilegan hátt sem raun bar vitni þennan dag. Aldrei hefir nokkprt skáld á íslandi verið hyllt svo al- mennt og virðulega áður — sízt á miðjum aldri — og ber það öllum, sem hér áttu hlut að máli, fagurt og órækt vitni um vaxandi ást á fögrum ljóðum og listum og hækkandi mat á gildi andlegra verðmæta. Sannarlega er það satt og rétt, að „strjáll er enn vor stóri gróður, stendur hann engum fyrir sól“ — og því fer sérlega vel á því, að hann vetmist við sólskin sam- úðar og skilnings, er að ofan kemur. Og vonandi á sú sól næga hlýju til þess að verma einnig skógarbotninn og hlúa að hverjum lífvænlegum kvisti, sem lyftir þar kollinum úr moldu, svo að hann kali ekki í næð- ingum tómlætis og þagnar. Slík tíð- indi hafa nefnilega stundum gerzt hér á íslandi —- í gamla daga — en ger- ast nú væntanlega ekki framar. Hendurnar, sem kyntu blysin svo fagurlega á laugardagskvöldið var, munu væntanlega sjá svo um, að vitar samúðar og skilnings nái framvegis að „lýsa hverjum landa, sem leitar heim og þráir höfn.“ „Brúðuheimilið“ flogið til höfuðstaðarins. J^-Ú ERU LEIKARARNIR okkar úr „Brúðuheimilinu" flognir suð- ur yfit fjöll og heiðar, til þess að leika listir sínar fyrir Reykvíkinga. Við óskum þeim góðrar ferðar og gæfu- samlegra leiksloka. Það er mjög vin- samlegt af leikfélaginu syðra að bjóða heim leikflokki héðan að norð- an. En hins vegar þykir okkur það óneitanlega dálítið undarlegt — ef satt reynist það, sem altalað er — að forráðamenn höfuðstaðarbúa í leik- húsmálum skuli einmitt sérstaklega hafa óskað eftir „Brúðuheimilinu“ í þessu sambandi. Við hefðum nefni- lega talið allt eins eðlilegt, að leikar- ar okkar hefðu fengið að spila alveg upp á eigin spýtur og sýna rækilega, hvað þeir geta i raun og veru, fyrst þeir leggja nú hvort eð er land undir fót til höfuðstaðarins, en væri ekki aðeins ætlað að mynda snotra, en annars fremur tilkomulitla umgerð kringum dásemdir reykvískrar leik- konu — að visu ágætrar — sem lék aðalhlutverkið hér í þessum sjónleik, og enn mun ætlað að „tína lárberin‘“ með hjálp „statistanna" héðan að norðan. En hvað um það: — Góða ferð og gæfuríka heimkomu! „Þegar hús nábúans brennur“. j NÝÚTKOMNU hefti „Símablaðs- ins“ málgagns símamanna, birtist ritstjórnargrein um aðfarir kommún- ista á síðasta Alþýðusambandsþingi og viðhorf annarra launþega í land- inu til slíkra viðburða. Segir þar svo meðal annars: „Hin tiltölulega nýstofnuðu samtök starfsmanna ríkis og bæja hljóta af eðlilegum ástæðum að gefa því gaum, sem gerist hjá þeim félögum eða fé- lagssamböndum. sem eldri eru að ár- um og reynslu, og sem helzt er að taka til fyrirmyndar um faglegt starf. En af þeim vettvangi spyrjist nú vá- leg tíðindi og ógiftusamleg, þar sem hinn pólitíski draugur, sem kveða átti niður með öllu á þingum Alþýðusam- bands Islands, hefir nú gengið aftur og gerzt verri viðureignar en nokkru sinni fyrr. Og í raun og veru má segja að nýlokið Alþýðusambandsþing hafi vakið ugg hjá öllum þeim, er skilja þýðingu og tilgang þess, og á því hafi komið fram þau sjúkdómseinkenni, sem skaðlegust megi telja samtökum vinnandi manna, eða með öðrum orð- um pólitísk barátta í stað faglegs sam- starfs. Lauk því, svo sem kunnugt er, á þann veg, að sá, sem sterkari var um flokkslegt fylgi, neytti meirihluta- valdsins án allrar hlífðar. Þetta er í örfáum orðum sú raunasaga, sem til okkar berst af heimili nágrannans." Viðhorf annarra launþega. þÁ SEGIR ennfremur svo i nefndri grein i „Símablaðinu": „Svo vel vil! til, að enn sem komið er, hefir samtökum starfsmanna ríkis og bæja tekist að starfa á faglegum grundvelli, og engin rödd komið fram um annað en að það væri höfuðnauð- syn til að tryggja einingu í samtökum manna, sem á ýmsan hátt greinir á um stjórnmál. Viðhorf sambandsins til annarra launþegasamtaka og samvinna við þau hlýtur því í fram- tíðinni að mótast af því, hversu þeim tekst vel að halda þær leikreglur, sem telja verður affarasælastar fyrir stéttasamtök almennt, en það er, að gæta pólitísks hlutleysis. En hér hefir (Funmhiild á fi, iflfut „Bara búa sig vel“ segir firú GERD GRIEG. Eg var á göngu í bænum nýlega. Það var í stúrhríðinni, sem Þorri karlinn færði okkur á dögunum og |r\í ekki margt manna ;í ferli. — Sanu ínætti eg norsku listakonunni, frú Gerd (írieg, sem flestir bæjarbúar kanhast orð- ið við. ..Kinnst yður ekki kalt í dag?“ spurði eg frúna. Mér til mikillar líndrunar svaraði hún strax ákveðið: ,.Nei.“ ..Jæja,“ :a ði eg, „við íslendingar kvörtum undan kuldamim og hríðinni, en jrér, útlending- urinn, berið yður svona hraustlega." — Já, J>að er kalt í Noregi, væna mín,“ bætti frúin )>á við og lagði áherzlu á hvert orð, ,,en maður verður bara að kunna að klæða sig. Ull, n 11 og aftur ull — mörg lög, og J>á er dá- samlegt að vera úti í kaldasta veðrinu og mestu hríðinni. — Þá er svo dásamlega hreint loftið og lieil- næmt fyrir okkur á alla lund. — — Bara búa sig vel —“ Eg gat ekki stillt mig um að segja ykkur frá J>essu samtali okkar frú Grieg, og eg vona að frúnni mislíki J>að ekki við mig. í þessum efnum eigum við, íslenzkar stúlkur, mikið ólært. Einfaldir skinnhanzkar og þunnir rykfrakkar sjást oft í frosthörkunum. Meðan slíkt tíðkast, er ekki að búast við, að séum dug- legar við útivistina. — Við þurfum að láta okkur lærast, að J>að er ekki ófínt að vera dúðaður í stórhríð og kuldum, heldur þvert á móti fínt, eða hið eina rétta. — Eg þykist þess fullviss, að okkur muni þykja dásamlegt að vera úti í hríðinni, engu síður en frú Grieg, þegar við höfum lært að búa okkur — og búa okkur vel, en áreiðanlega ekki fyrr. Puella. ★ Látið þið nú hús- bóndann halda í hespuna fyrir ykk- ur — trefla, vettl- inga, vesti, peysur, o. s. frv., o. s. frv., er hægt að hafa á prjónunum. — Þegar þið vindið lopa, skuluð þið láta hann liggja á gólf- inu og standa við að vinda hann. — Láta þræðina rekjast sem beinast uþp (lóðrétt) og hafa lopana, þegar þið vindið marga saman, sem næst hverjum öðrum. ★ R Á Ð. Et þú þarft að ná blekklessu af höndum þér, skaltu væta brennistein á eldspýtu og núa kless- urnar. Þvoðu þér síðan vel úr sápu og vatni. Þegar þú baðar ungbarn skaltu gæta þess að hafa ekki of langar neglur og fjarlægja alla lu inga á meðan á baðinu stendur. Líkamir vorir eru garðar vor- ir — og vilji vor garðyrkjumað- urinn. Heimilið er öruggasta vígi manns. I

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.