Dagur - 25.01.1945, Síða 6

Dagur - 25.01.1945, Síða 6
DA6UR 9 tímmtudagínn 25. janúar 19,45. (Framhald). „Nei, síður en svo. Merkjalínan þar í milli hefir ekki óskírst í liuga mínum. En mér hefir förlast í því, að dæma um hver sé góð- ur maður og hver v'ondur. Er Arnold JacksoQ vondur maður, sem gerir góðverk eða er ltann góður maður, sem fremur illvirki? Það er ekki gott að svara því. Ætli við gerum ekki oft of mikinn manna- mun að þessu leyti? Kannske eru þeir beztu á meðal okkar syndarar og þeir verstu dýrlingar. Hver veit það?“ „Þú sannfærir mig að minnsta kosti ekki um það, að hvítt sé svart og svart hvítt,“ sagði Bateman. „Nei, það geri eg vissulega ekki, Bateman." Edward var þögull um stund. Því næst sagði hann: „Þegar eg sá þig í morgun, Bateman, fannst mér eg sjá sjálfan mig eins og eg var fyrir tveimur árum. Sami flibbinn, sömu skórnir, sömu bláu fötin og sami dugnaðurinn. Já, eg var dug- legur og ákveðinn í þá daga. Hárin risu á höfðinu á mér þegar eg sá letina og sofandaháttinn, sem hér tíðkast. Eg var fljótur að sjá, að hér voru möguleikar fyrir miklar framfarir og fram- kvæmdir. Mikil auðæfi voru ónotuð í landinu. Mér fannst heimskulegt, að flytja koprað óunnið burtu héðan og láta ame- rískar verksmiðjur vinna ólíuna. Það var augsýnilega miklu hag- kvæmara að vinna olíuna hér á staðnum, spara flutningsgjaldið og nota hinn ódýra, innlenda vinnukraft. Eg sá í huganum stórar verksmiðjur rísa upp hér á eyjunni. Eg fann upp stórum hag- kvæmari aðferð til þess að kljúfa og taka innan úr kókoshnet- ununt. Höfnin var alltof lítil. Eg gerði áætlanir um að stækka hana. Eg ætlaði að stofna félög ti! þess að kaupa lóðir næst höfn- inni, byggja glæsileg gistihús, koma á betri og öruggari siglingum til Ameríku. Á tuttug árum nrundi geta risið hér upp glæsileg horg á ameríska vísu, með 20 liæða húsum, strætisvögnum, leik- húsi, óperu, kauphöll og borgarstjóra.“ „En þetta er dásamlegt, Edward, því heldurðu ekki áfram með þessar fyrirætlanir?“ hrópaði Bateman og hljóp upp úr stólnum. „Þú hefir ímyndunaraflið og dugnaðinn, Þú gætir orðið auðugasti maðurinn á þessum hjara veraldar?“ EdwardÆrosti. „En ég kæri mig ekkert um það,“ sagði liann. „Meinarðu, að þú kærir þig ekki um peninga, — um auð svo skiptir milljónum? Veiztu ekki hvaða vald slíkur auður hefir? Og ef þú hefir sjálfur ekki áhuga á þessu, hugsaðu þér bara hvað það mundi þýða fyrir þær þúsundir mánna, sem hefðu atvinnu við þessi fyrirtækil“ „Seztu, Bateman, — taktu þessu rólega," sagði Edward og hló við. „Nýja aðferðin mín til þess að vinna úr kókoshnetunum verður ævinlega ónotuð, og ef ég má ráða, skal enginn strætisvagn nokkru sinni fá að skrölta um friðsælar göturnar í Papeeta." Bateman lét fallast í stólinn. „Ég skil þig ekki,“ sagði hann. „Þetta kom yfir mig smátt og smátt. Mér fór að þykja vænt um kyrrláta lífið hérna, rólegheitin og frístundirnar — og fólkið, ævin- lega brosandi og hamingjusamt. Ég fór að hugsa, — ég hafði aldrei haft tíma til þess áður. Ég byrjaði að lesa.“ „Þú varst bókaormur alla tíð.“ „Aðeins í vissum skilningi. Ég las undir próf. Ég las til þess að geta tekið þátt í umræðum heldra fólksins. Hér las ég mér til gleði og ánægju. Hér lærði ég að tala og taka þátt í viðræðum. Veiztu, að skynsamlegar viðræður manna í milli eru ein af mestu nautn- um lífsins? En til þess þurfa menn rúman tírna. Ég hafði alltaf verið önnum kafinn þangað til ég kom hingað. Og smátt og smátt fannst mér lífið heima verða ómerkilegt og gróft., Hvaða gagn er að öllum gauraganginum og hinni sífelldu baráttu um auð og völd? Þegar ég hugsa um Chicago nú, kemur upp í huga mér mynd af dimmri, grárri steinborg — líkust fangelsi — þar sem ysinn og þysinn eru hin innri einkenni. Og til hvers er allur þessi gaura- gangur? Verða menn hamingjusamastir í hringiðu lians? Erum* við fæddir í heiminn til þess að hraða okkur á skrifstofu að morgn- inum og sitja þar til myrkurs á degi hverjum? Hraða okkur síðan heim og borða og fara svo út til þess að skemmta okkur? Á maður að eyða æskuárunum á þann hátt? Æskan varir skamma hríð, Bate- man. Og hvað bíður manns í ellinni? Hlaup á skrifstofu og lieim aftur? Þetta kann að duga þeim, sem safna auði á þennan hátt, en hvað bíður hinna? Svona líf hefir ekkert upp á að bjóða, sem ég girnist." „Hvað er það þá, sem þú sækist eftir?" „Þú hlærð kannske að mér, — en ég leita að fegurð, sannleika og góðvild.“ „Og heldurðu, að þú getir ekki höndlað þessi hnoss heima í Chicago?" „Einhverjir geta það ef til vill, en ekki ég.“ Edward var staðinn á fætur. „Þegar ég hugsa um það, hvernig ég eyddi mínum ungu árum heima í Chicago, fylltist ég gremju,“ hrópaði hann. „Þar skall (Frámhald), j HKHKHKHKHKKKHKHKHKHKHKBKHKHKBKHKHKKKHKKKHKHKKKBKHKHKÍ HUGHEILAR ÞAKKIR til allra þeirra er sýndu vináttu með heimsóknum, gjöíum og skeytum á 75 ára afmæli rrúnu. — Guð blessi ykkur öll. FRIÐRIK. P. ÞORGRÍMSSON. khkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkkhkhkhkhkhkí Halizt handa um stofnun bandalags Norðlendinga. (Framhald af 1. síðu). unnin norður hér, ekki sízt með- an forystu Hólastóls naut bezt við. Með samtökum hinna beztu krafta mæíti enn takast að lninda mörgu nytjamáli lengra á veg en ella, innan fjórðungsins, og munu verkelnin gefast ærin. Við leggjum til að hver sýsla og bæjarstjórn kjósi árlega tvo menn til þess að mæta á fjórð- ungsþingi, sem kæmi saman í höfuðstað Norðurlands. Komi þeir, hver úr sínu héraði, nest- aðir áhugamálum, sem áður hafa verið rædd heima fyrir. Hlut- verk þingsnis sé síðan að taka af- stöðu til þeirra, leggja ráð á hvernig bezt sé að fylgja þeim eftir og hrinda þeim í fram- kvæmd. Tillögur slíkra þinga munu ætíð reynast þyngri á met- um en samþykktir gerðar af ein- stökum fundum takmarkaðs svæðis. Jafnframt sé að því unn- ið, að tryggja fjórðungnum meira vald yfir einstökum sér- málum sínum. Viðfangsefnin, sem slíkt þing fengi árlega við að glíma, munu verða mikil og margþætt. Hver einasta sýsla á gnægð margs kon- ar auðlinda, lítt eða ónotaðra, sem bíða eftir samtaka höndum, svo leystar verði úr læðingi. Úti fyrir ströndinni liggja, steinsnar frá landi, einhver auðugustu síldarmið heimsins. Ekki væri undarlegt þótt meiri áherzla yrði nú en hingað til lögð á það, að allríflegur skerfur þess auðs, senr þar er árlega ausið upp, fari að nokkru til að byggja upp sjálf síldarþorpin, efla menningu þeirra og fegra þau. Höfuðstað- ur Norðurlands er frá náttúr- unnar hendi einhver fegursti bær á landi hér. Allur fjórðung- urinn þarf að stuðla að blómgun hans. Fyrir þrautseiga sókn ör- fárra manna fékkst þar loks Menntaskóli. Árléga kemur hann nú álitlegum hópi manna til nokkurs þroska, sem ella hefðu tapast að nokkru menn- ingu þjóðarinnar, sakir fátæktar og einangrunar. Þar í nánd er Kristneshæli, sem ljær vist brjóstveiku fólki norðanlands og gerir því kleift að dvelja nær átthögum en ella. Á Akureyri þarf að rísa af grunni, áður en langt um líður, fjórðungsspítali, sem tryggðir væru beztu starfs- karftar, sem völ væri á. Einnig spítali fyrir taugaveiklað fólk og geðbilað. Vér viljum einnig benda á það, að það er menn- ingu fjórðungsins til tjóns, að ekkert safn íslenzkra skjala og handrita skuli vera norðanlands, og þarf að vinna að því að slíkt safn komizt upp á Akureyri. Hér er aðeins drepið á nokkur aðkallandi viðfangsefni, almenns eðlis, er bíða úrlatisnar í fram- tíðinni, og má öllum ljóst vera að samfylking alls fjórðungsins | um framgang þeirra, og nrargra fleiri mála, mun reynast giftu- drýgri, en ef hvert lrérað stendur eitt sér í baráttunni fyrir hags- og menningarmálum sínum. Hið fyrsta þing mun nefndin kalla saman eftir að hafa fengið vitneskju um undirtektir." Hér er hafizt handa í merki- legu máli. Slíka bandalag gæti orðið upphaf allsherjar viðnáms fjórðungsins gegn þeirri stefnu, sem miðar allar framkvæmdir í þjóðlífinu við einn stað á land- inu og téflir þar með framtíð byggðanna í mikla lrættu og óvissu. Á þeinr vettvangi gæti öflug samtakahreyfing Norð- lendinga fengið miklu áorkað. Er þess að væjnta, að aðilar þeir, senr hér eiga hlut að máli, taki þessari tilraun af skilningi og áhuga ,og láti ekki deyfðina og sinnuleysið eyða. þessari hug- mynd í fæðingunni. FOKDREIFAR (Framhald af 4. síðu). orðið misbrestur á, og ekki rétt um að þegja. Samtök verkamanna geta aldrei búist við að öðlast tiltrú ann- arra félagssambanda til nánari sam- vinnu, fyrri en sá pólitíski draugur hefir verið kveðinn niður, sem þar hefir gengið ljósum logum og gengur enn, og síðustu atburðir munu gera það að verkum að gætt mun hinnar mestu varúðar um öll tilboð, sem ber- ast um samstarf úr þeirri átt, meðan það ástand ríkir í félagsmálum þeirra, sem Alþýðusambandsþingið sýndi.“ „Hundalogik heitir það-------“ SVO ER það hinn nýi Bárður í „Islendingi". Hann fullyrðir, að „Dagur“ hafi í síðasta tbl. kallað ann- an ritstjóra „Islendings" hund! Ekki höfum vér þó annað til saka unnið í þeim efnum en að vér hældum Jak- obi á hvert reipi, en töldum þó, að andlegt hundasund væri naumast sú íþrótt,. sem maðurinn væri bezt til fallinn frá náttúrunnar hendi, þótt vel mætti vera, að hann kynni að reyn- ast liðtækur, einnig á því sviði, ef hann legði sig allan fram og nyti til- sagnar heppilegs kennara. Nú er sýnt, að sá kennari er þegar fenginn, sem fulltreystandi er til að kenna honum þessa ágætu og nauðsynlegu íþrótt fyrir íhaldsritstjóra. En meðal ann- arra orða: — Ekki er öldungis víst, að allir séu hross, sem reka upp hrossahlátur, enda gera góðir hestar það aldrei, og ekki heita þeir allir Bárðar, sem kallaðir eru Klaufa- Bárðar, þótt dæmalaust sé það ef til vill ekki, að þetta tvennt fari saman. HÚS TIL SÖLU Til sölu er efrihæð húss- ins Lækjargata 3, Akur- eyri. —• Upplýsingar gefu.r eigandinn, PÉTUR JÓNSSON. Samkomur vikulega, Gránufélagsgötu 9, niðri. Fimmtudaga kl. 8 V2 e. h. Sunnudaga kl. 8V2 e. h. Allir velkomnir. Filatjelfiq, 25 ÁRA STARFSAFMÆLI. r> /*• Sigurður Guðmundsson, dömuklæð- skeri í Reykjavík á 25 ára starísaf- mæli, sem danskennari um þessar mundir. Sigurður hetir tjáð blaðinu að hann hafi í hyggju að koma norð- ur í þessum mánuði og halda hér dansnámskeið. iÞRÓTTIR. (Framhald af 3. síðu). til að ella heilbrigt og drengilegt íþróttalíf með þjóð okkar. Er þar um margt að gera, t. d. væri gott að heyra raddir um glím- una, þjóðaríþrótt okkar, hverj- uni tökum hún skuli tekin henni til eflingar, eða hvort við skul- um sleppa glímutökunum alveg, eins og sumir telja ráðlegast. Mér til ánægju hefi eg haft kynni af norðlenzkum íþrótta- mönnum fyrr og nú og vænti enn.góðs frá þeim við þenna þátt starfsins. Félagar góðir, í austri og vestri, inni við fjöll og úti við sjó! Mætumst hér framvegis, spyrjandi, úæðandi, tillögugóð- ir — og ætíð sem sannir íþrótta- menn. Heilir að starfi! [. J. frá Brekknakoti. Reynið Krafta- SUÖU- súkkulaði Notkunarreglur fylgja hverjum pakka. Kaupfél. Eyfirðinga Nýlenduvörudeild. TIL SÖLU eru 2/3 hlutar húseignarinnar Aðalstræti 2 á Akureyri. Eign- in laus til íbúðar 14. maí í vor. — Semja ber við eiganda eignarinnar, Gunnlaug Sig- fússon, Aðalstræti 2, senr gefur allar nánari upplýs- ing?r.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.