Dagur - 25.01.1945, Qupperneq 9
Fimmtu'daginn 25. janúar 1945.
D AG U R
9
EINRÆÐI KOMMUMSTA I OLLUM
VERKALÝÐSSAMTÖKUM, ER NÝJ-
ASTA .,LÍNAN“
Hjartanlegt þakklæti vottum við hér með öllum þeim, sem
sýndu
Kristínu Kristjánsdóttur,
Skólastíg 7, Akureyri,
ástúð og vináttu á meðan hún lilði og sem heiðruðu minningu
hennar við útförina, þann 14. þ. m.
- Vandamenn.
ANNÁLL — framh. af 1. síðu
23. JANÚAR. Rússar taka
Bromberg í Póllandi, eru komn-
ir að íljótinu Oder skammt frá
Breslau. Sækja fram í Austur-
Prússlandi, eru um 40 km. frá
Eystrasalti og ógna innikróun
þýzka hersins í Austur-Prúss-
landi. Bretar sækja hægt fram á
norðurhluta vesturvígstöðvanna.
Landleiðin frá Indlandi til Kína
opnuð á ný vegna sigra Banda-
manna í Bunna.
24. JANÚAR. Rússar komnir
að Oppeln í Slésíu, eru um 25
km. frá Breslau. 1 A.-Prússlandi
nálgast þeir Königsberg að aust-
an, en eau aðeins 25 km. frá
Eysrasalti að sunnan. Banda-
ríkjamenn taka St. With á Ar-
dennavígstöðvunum og er Ar-
dennafleygur Þjóðverja þar með
úr sögunni.
HÚSAVÍKURBRÉF
Um langt skeið hefir tíð verið
hér mjög óstillt, oft mörg veður
sama sólarhringinn. — Snjór er
hér ekki mikill, en lijarn og
svellalög mikil. Hér hefir sjald-
an verið farið á sjó síðan löngu
fyrir jól vegna ógæfta.
•
Nýlega eru farnir héðan tveir
bátar á Suðurlandsvertíð, og
fjöldi af sjómönnum, bæði með
þessum bátum og í aðrar ver-
stöðvar. Fylgja þessurn stóra
hópi hinar beztu óskir héðan og
að þeir megi allir heilir aftur
koma.
•
Þann 4. þ. m. átti Þórhallur
Sigtryggsson kaupfélagsstjóri
sextugsafmæli. — í því tilefni
tærði starfsfólk og endurskoð-
endur kaupfélagsins honum
skrautritað ávarp, þar sem hon-
um er þökkuð ágæt stjórn og
góð samvinna. Ávarpi þessu
fylgdi stækkuð ljósmynd af
Húsavík með áletruðum silftir-
skildi. Sömuleiðis lagði þetta
sama fólk peningaupphæð 4nn í
Menningarsjóð Kaupfélags Þing-
eyinga til minningar um þennan
dag og þetta aímæli. — Ávarpið
ritaði einn starfsmaður kaupfé-
lagsins, Kristján Ólason, af hag-
leik miklum. — Þennan dag bár-
ust Þórhalli um áttatíu heilla-
óskaskeyti, víðs vegar að af land-
inu. — Um kvöldið var gest-
kvæmt á heimili þeirra hjóna,
Kristbjargar og Þórhalls. Var fé-
lagsstjórn þar öll og lýsti því þar
yfir, að hún gæfi Þórhalli mál-
verk, sem því miður væri ekki
tilbúið. — Þennan sama dag voru
þau gefin saman í hjónaband
hér, Þorbjörg, dóttir Þórhalls og
Ari Kristinsson Jónssonar kaup-
manns hér í bæ.
Nýlega er látin í Nesi í Aðal-
dal Kristbjörg Guðmundsdóttir,
tengdamóðir Steingríms Bald-
vinssonar bónda þar.
Frestur til að skila skattaframtöl-
um er liðinn 31. janúar. Munið að
skila skýrslum á skattstofuna í tæka
tíð.
Aðalfundur Vélstjórafélags Akur-
eyrar verður haldinn að Hótel KEA
næstk. sunnudag kl. I e. h.
Mikil átök fara nú frarn í
Reykjavík í tilefni af kosningu
í stjórn og fulltrúaráð Dags-
jrúnar, sem fara á fram á næst-
unni. „Línan“ frá Alþýðusam-
bandsþinginu í haust ræður að-
gerðum kommúnista í kosning-
um þessum. Þeir skrafa mikið
um nauðsyn á einingu innan
verklýðshreyfingarinnar en í
reyndinni berjast þeir hatram-
lega fyrir einræði kommúnista í
samtökunum, svo sem Irerlega
kom í ljós á Alþýðusambands-
þinginu. í samræmi við þessa
stefnu berjast þeir nú til algerra
yfirráða í Dagsbrún. Lýðræðis-
sinnuð öfl í félaginu hafa borið
fram lista á móti einræði komm-
únista. Standa Alþýðuflokks-
menn og annara flokka verka-
menn en kommúnistar að hon-
um. Kosningaátökin virðast vera
hörð; kommúnistar höfðu
„framboðsfund" í Listamanna-
skálaniun í gærkvöldi og efndu
þar til æsinga.
Hér á Akureyri er sama „lín-
an“ í uppsiglingu. Kommúnistar
seilast til algjörra yfirráða í
Nýjir skattar enn!
Meirihluti fjárliagsnefnda
beggja deilda Alþingis (stjórnar-
flokkarnir) flytja að tilhlutan
fjármálaráðherra tvö ný skatta-
frumvörp. Annar skatturinn er
2% af söluverði fiskjai- á erlend-
um markaði á sl. ári og ber út-
^erðarmönnum Jjeirra skipa er
veiddu í sig sjálf og sigldu með
fiskinn, að greiða skattinn. Tekj-
ur af þessu eru áætlaðar 2,1
millj. kr. Ilinn skattturinn er
nefndur veltuskattur og ber fyr-
irtækjum er verzla með hvers
oknar varning, iðnað eða vinnu,
sem álagning er á, að greiða
hann af veltu sinni á yfirstand-
andi ári. Skatturinn nemur
\Vz% af veltu heildsölu- og um-
boðsverzlana, þó ekki yfir 25%
af umboðslaunum, 1% af smá-
söluveltu og 1% af iðnaði. Und-
anþegnar skattinum eru inn-
lendar afurðir, svo sem fiskur,
mjólk, kjöt o. s. frv.
Skattur þessi skal greiðast árs-
fjórðungslega og eru öll fyrir-
tæki skýrsluskyld til skattstjóra
og skattanefnda. Skatturinn fæst
ekki dreginn frá í framtalningu
til tekjuskatts.
Samkvæmt frumvarpi þessu er
samvinnufélögum ekki skylt að
greiða 1% af veltu sinni í vara-
sjóði sína fyrir yfirstandandi ár,
svo sem ætlast er til í samvinnu-
lögunum. Tekjur af Jjessum
skatti eru áætlaðar 9—10 millj.
króna. Verzlunum er ekki heim-
ilt að taka tillit til skattsins í
verðlagningu vara.
Þá eru boðaðar 50—100%
hækkanir á ýmsurp lögboðnum
gjöldum, svo sem stimpilgjöld-
um, leyfisgjöldum, vitagjöldum
og eignaskatti. Tekjur af þessum
liðum eru áætlaðar tæpar 3
millj. Fleiri skattaálögur m.unu
vera í undirbúningi.
Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar undir því yfirskini,
að núverandi formaður félagsins
og þeir sem honum fylgja að
málum „hafi rofið eininguna" í
félaginu. Marteinn Sigurðsson
svarar þesari aðdróttun í grein
hér í blaðinu í dag. Vonandi ber
verkalýðurinn gæfu til að sigrast
á þessum einræðisfýrirætlunum
kommúnista.
KVEÐJA
til Jóliannesar Bjömssonar (frá
Hóli) frá bróðir lians, Jóni
Björnssyni fyrr bónda á Hóli í
Svarfaðardal.
Það var áður í átthaga vænum
þegar allt lék á gleðinnar streng,
að eyglóin baðaði í blænum
hinn bjartleita smaladreng.
Þá var svo ljúfhlýtt að lifa —
listrænt að skapa sér tjöld —
með systkinum samúð að skrifa
á saklausan æskunnar skjöld.
En svo komu árin og annir
með umhvörf í huga þinn.
Þú leitaðir lífsins um hrannir
að láninu, bróðirir* minn.
Og lánið að lokum þú hrepptir,
er lífið bauð þér sinn yl.
En fordild og fjálgleik þú hnepptir
sem fanga þitt lífstímabil.
Þú undir við allt sem var þarfi,
og annað hitt mikils umvert:
trúmennska í tungu og starfi,
það túlkuðu verkin þín bert.
Hið lága þú lézt þig ei varða
en leitaðir alla tíð hins,
að mæla á mannúðar kvarða
mistökin náunga þíns.
Þú varst svo fljótur að finna
hve fátækt er þung og leið
þegar gekkst þú á göturnar hinna
og greiddir úr þeirra neyð.
Og nú þegar laufvindar leika
og lyngið er máð og fölt
skilzt bezt því skapaða, veika
hve skammæ er hérvist og völt.
Eg fagna þó frelsinu þínu
þótt fölnaði bróður hönd.
Eg bíð eftir byrleiði minu
að bjartri framtíðarströnd.
Eg sendi þér sálræna hlýju.
Þig signi mín kveðjuorð
á vonanna vegunum nýju
um víðfeðma framliðins storð.
Far nú heill ferðina þina.
Fylgi þér máttaröfl góð,
þau leggi þér leiðsögu sína
og lífsþrótt á ódáins lóð.
Á. S.
Ýmsar fregnir
Nýkominn ev til landsins
Grettir F.ggertsson rafmagns-
verkfræðingur frá New York. —
Mun hann dvelja hér nokkrar
vikur og ræða við rafmagnseftir-
lit ríkisins og forráðamenn raf-
magnsveitu Reykjavíkur um fyr-
irhugaðar framkvæmdir í raf-
orkumálum og efnisútvegun. —
Grettir hefir að undanförnu að-
stoðað sendiráð íslands í Was-
j hington i sambandi við útvegun
slíkra efnivara frá Bandaríkjun-
um. Ekki veit blaðið hvort Raf-
veita Akureyrar hefir hafizt
handa um að taka þátt í þessum
viðræðum í sambandi við þær
efnivörur, sem sagt er að hörgull
sé á hér til Jjess að „nýja raf-
magnið" svonefnda komi bæjar-
búum að fullum notum.
❖ #
Allsherjar berklaskoðun fer
nú fram á Reykvíkingum, Eru
um 400 manns á dag teknir til
skoðunar. Ekki hefir verið opin-
berlega tilkynnt, að skoðun þessi
nái til annarra en Reykvíkinga,
enn sem komið er.
❖ H<
Færeysk sendinefnd er komin
til Reykjavíkur. Á hún að ræða
við íslenzk stjórnarvöld um
verzlunar- og atvinnumál.
Þingstúka Reykjavíkur hefir
sent bæjarstjórninni áskorun um
að loka öllum veitingastofum
við Hafnarstræti í höfuðstaðn-
um vegna slarks og óreglu, sem
Jjar tíðkast.
* *
I Menntamálaráð hefir úthlutað
listamannastyrkjum Jjeim, sem
veittir eru á fjárlögum félögum
hinna ýmsu listagreina, en
nefndir listamannanna sjálfra
eiga að fjalla um úthlutun til
einstaklinga. Skiptingin er Jjessi:
Félag rith.öfunda hlaut 84500
kr„ Félag myndlistarmanna
38500 kr., Félag Tónlistarmanna
27500 kr. og Félag leikara 24500
kr.
Háskóla íslands
Happdrætti
1. febrúar næstk. byrjar Happ-
drætti Háskóla íslands sölu
happdrættismiða sinna í- 12.
sinn. Eins og tekið er fram í aug-
lýsingu annars staðar hér í blað-
inu, er frestur til þess að endur-
nýja sömu númer og hver við-
skiptamaður hafði á fyrra ári, til
20. febrúar. Vill umboðið hér á
Akureyri sérstaklega minna á, að
marg-gefnu tilefni, að eftir þann
tíma, frá J?0. febr., missa fyrri
eigendur rétt sinn til númera
Jjeirra, sem þeir höfðu árið áður,
og nýir kaupendur geta, samkv.
reglugerð happdrættisins, geng-
ið í valið. Þetta er því mjög
nauðsynlegt, að þeir, sem ant er
um að halda sínum gömlu núm-
erum, komi fyrir þann tíma og
endurnýi þá eða láti taka þá frá,
ef einhverjar ástæður hamla, að
þeir geti ekki endurnýjað fyrir
þann ákveðna tíma. Sérstaklega
gildir Jjetta um heila og hálfa
miða, því að til margra ára hafa
þeir verið uppseldir, og þess
vegna -geysileg eftirspurn eftir
þeim. — Annars eru engar breyt-
ingar á tilhögun happdrættisins.
Árlega fellur mikill fjöldi
vinninga til happdrættisins sjálfs
vegna þess að Jjeir eru ekki sótt-
ir. Svo er og í Akureyrarumboð-
inu. Fara hér á eftir þau númer,
sem enn hefir ekki verið vitjað
og vinningar eru á. Eru það til-
mæli umboðsmannsins, að
þeirra verði vitjað hið fyrsta;
1. ílokkur: 7122D.
4. flokkur: 23581A.
5. flokkur: 9233A, 18029A.
6. flokkur: 18997A.
7. flokkur:. 2947B, 5659A,
12439D, 18979AB, 21946A.
8. flokkur; 4153D, 9075C,
12177D, 16946A, 17466CD.
9. flokkur: 2464A, 3370ABCD,
4655A, 6892A, 8277AC,
15978A, 19071C, 19578B,
22089A, 24751A.
10. flokkur: 538A, 1161A,
1168AB, 1548AB, 1602A,
2936A, 3167BC, 3169ABC,
2365ABC, 3366CD, 337ÍAB-
CD, 3356AD, 3366CD, 3373B,
3580A, 3589A, 401ÍAB,
4167D, 4338A, 4344A, 4346A,
4688AB, 4990A, 5214, 5222,
5674A, 6887A, 7035A, 7036A,
7038A, 7122D, 7254D, 7384D,
7396AD, 7523A, 8282AB,
8283ABC, 8503A, 8518A,
8826A, 8833A, 8839A, 8847A,
8982C, 8987AB, 8994A, .
8997ABC, 9053BC, 9061C,
9183B, 9240A, 9249A, 9762A,
9771A, 10206, 10628B,
10629AB, 10630A, 10631AB,
11703A, 11187B, 11200A,
11722A, 11976C, 12061D,
12213A, 12445D, 12566CD,
12698A, 13154A, 13386A,
13400A, 14190D, 14254A,
14256A, 14399A, 14441D,
14993AD, 15573A, 15996A,
16059AB, 16578A, 16581A,
16943A, 16944A, 17321A,
17458ACD, 17857A, 17875A,
17935A, 18985AB, 19013A,
19363A, 19598A, 1991ÍABD.
19913ABD, 19921ABD, 20503-
A, 20706B, 20709AB, 20718B,
21694C, 22134CD, 22228A,
22245A, 22417A, 22734A,
23239A, 23247A, 23576A,
23853A, 24019A, 24756A,
24765A, 24908A, 24910.