Dagur


Dagur - 15.03.1945, Qupperneq 8

Dagur - 15.03.1945, Qupperneq 8
8 DAðUR Fimmtudaginn 15. marz 1945 A EG AÐ SEGJA ÞER SOGU Átján sögur eftir heimskunna smásagnahöfunda, í þýðingu Brynjólfs Sveinssonar, menntaskólakennara Þar er Regn, frægasta smásaga W. Somerset Maugham, Þ etta er óvenjulega skemmti- leg bók. Gleði og harmur, fyndni og alvara skiptast hér á eins og myndir á tjaldi. Töfrar smásögunnar heilla huga miljóna manna um víða veröld. HOTEL K.E.A. Salirnir opnir n. k. sunnudag kl. 3—6 e. h. Hljómsveit leikur danslög frá kl. 9—11.30 e. h. Úr bæ og byggð I. O. O. F. 12631681/2 KIRKJAN. Messað á Akureyri næstk. sunnudag kl. 2 e. h. Guðsþjónustur í Grundarþinga- prestakalli: Möðruvöllum, pálma- sunnudag kl. 1. — Hólum, skírdag kl. 12 á hádegi. — Saurbæ, sama dag kl. 3 e. h. — Grund, föstudaginn langa kl. 1 e. h. — Kaupangi, páska- dag kl. 2 e. h. — Munkaþverá, annan í páskum kl. 1. 80 ára er í dag (15. marz) Ragn- heiður Jakobsdóttir frá Saurbæ, nú til heimilis í Norðurgötu 11, Akur- eyri. Jórunn Bjarnadóttir ljósmóðir er nú til heimilis að Hótel Goðafoss. Dánardægur. Aðfaranótt 7. þ. m. lézt að heimili sínu, Oddeyrargötu 26 hér í bæ, Helga Kristjánsdóttir, kona Valdimars Pálssonar verkamanns, eftir langa og þunga sjúkdómslegu. Aöalfundur Skógræktarfélags Ey- firðinga verður haldinn að Hótel KEA í kvöld (fimmtudag) kl. 8.30 e. h. Hjúskapur: Nýlega hafa verið gefin saman í hjónaband af sóknarprestin- um, sr. Friðrik J. Rafnar, vígslubisk- upi: Ungfrú Ragnheiður Jónsdóttir frá Yztagerði og Ólafur Jakobsson, bóndi, Gili. Ungfrú Margrét Pálsdótt- ir Bergssonar frá Hrísey og Jóhann Halldórsson, skipstj., Ak. Ungfrú Nanna J. Steindórsdóttir frá Ytra- haga og Sigurður Traustason, útgerð- armaður á Hauganesi. Dánardæéur. Hinn 10. þ. m. lézt að elliheimilinu í Skjaldarvík Guðný Jónsdóttir frá Gili, 81 árs að aldri. Innbrot. í síðastl. viku var brotist inn í skála Framsóknarfélaganna að Hrafnagili og stolið þaðan ýmsum húsmunum. Lögreglan hefir málið til rannsóknar. Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1 heldur fund næstk. þriðjudag kl. 8.30 e. h. í Skjaldborg. — Fundarefni: Venjuleg fundarstörf. — Erindi: Jón- as Jónsson, kennari. — Tvísöngur. — Upplestur. — Félagar eru beðnir að fjölmenna. Kantötukór Akureyrar hafði söng- skemmtun í Nýja-Bíó sl. sunnudag við húsfylli og ágætar viðtökur áheyr- enda og er ákveffið að söngskemmt- unin verði endurtekin næstk. sunnu- dag, 18. marz, í Nýja-Bíó kl. 5 e. h. Þetta verður eina tækifærið til þess að hlusta á kórinn að þessu sinni, þar eð söngstjórinn er á förum til Reykja- víkur vegna uppfærslu Tónlistarfé- lagsins þar á Oratoríuverkinu Friður á jörðu. Barnastúkan Sakleysið heldur fund næstk. sunnudag kl. 10 f. h. Fundar- efni: Leikur upplestrar. Fundur verður haldinn í félaginu „Berklavörn" næstk. þriðjudag 20. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Verzlunarmanna- húsinu. Stefán Guðnason læknir flyt- ur erindi. Ennfremur verður rætt um kaffikvöld o. fl. Stjórn „Berklavarn- ar“ vonar að þeir fyrrverandi berkla- sjúklingar hér á Akureyri, sem enn hafa ekki gengið í félagið, láti skrá sig þar hið allra fyrsta. Zíon. Næstkomandi sunnudag kl- 11.30 f. h. barnasamkoma. Kl. 8.30 e. h. almenn samkoma. Allir velkomnir. Frá Bridéefélaéi Akureyrar. — í meistarakeppninni er staðan þannig eftir 3 umferðir: Sveit Jóns Stein- grímssonar með 3 vinninga. Sveit Stefáns Árnasonar með 2. Sveit Þórð- ar Sveinssonar með 2. Sveit Jóns G. Sólnes með 1. Sveit Tómasar Stein- grímssonar með 1. Sveit Jóhanns Snorrasonar með engan. — 4. umferð fer fram næstkomandi sunnudag á sama stað og áður. Þá keppa sveitir þeirra Jóns Steingrímssonar og Stef- áns Árnasonar, sveitir þeirra Þórðar Sveinssonar og Jóns G. Sólnes, sveitir þeirra Jóhanns Snorrasonar og Tóm- asar Steingrímssonar. Stefán Árnason, framkv.stj., sem á sæti í Spítalanefnd kaupstaðarins af hálfu Framsóknarflokksins, mun svara aðdróttunum „Verkam." í sam- bandi við sjúkrahússmálið, í næsta tbl. Dags, N Y J A - B I 0 sýniir í kvölcl kl, 9: Random Harvest Föstudaginn kl. 9: Riddari hefndarinnar Laugardag kl. 6: Sjá götuauglýsingar Laugardaginn kl. 9: Random Harvest Sunnudaginn kl. 3: Sjá götuauglýsingar Sunnudaginn kl. 9: Riddari hefndarinnar SAMTAL VIÐ BERNARÐ STEFÁNSSON (Framhald af 1. síðú). og nú standa sakir er ekki útlit fyrir að verði eyrisafgangnr þótt milljóna sé aflað með nýjum sköttum. Ekki verður séð, að fjárþörf ríkisins verði minni næsta ár en nú, líklega heldur meiri. Hlýtur því svo að fara, að stjórnin gefist upp við annað hvort, nýsköpunina eða dýrtíðar- og hækkunarstefnuna, sem hún fylgir í fjármálum." — Og hvað tekur Jrá við? ,,Eg get ekki séð, að nei-tt ann- að liggi fyrir en sú stefna, sem Eramsóknarmenn hafa barist fyrir, — stöðvun og síðan lækkun dýrtíðarinnar með réttlátri Jrátt- töku allra stétta. Þá fyrst er hugs- anlegt að koma fjármálum ríkis- ins á réttan kjöl og hefja alls- herjar viðreisn í atvinnumálum landsins.“ — Og nú ætlar stjórnin að sigla sinn sjó, óáreitt af þinginu til 1. október, er Joað ekki? „Svo er að sjá, þótt eg skilji ekki, hvernig hún ætlar að kom- ast hjá því, að þingið ráði fram úr þegar ný landbúnaðarvísitala tekur gildi 15. september. Eg hefi áldrei skilið þá ráðstöfun, að kalla þingið saman hálfum mánuði á eftir að Jrau tíðindi gerast, hvað sem undir kann að búa. Mér sýnist blátt áfram óhjá- kvæmilegt, að þing komi saman snemma í september og taki af- stöðu til málanna. En reynslan sker úr því, hvernig því máli er í rauninni háttað". — Að lokum, — hvað viltu segja okkur um „stríðsmálið" svokallaða? „Um það er raunar ekkert að segja enn nema Jrað sem er á allra vitorði. Þingið ræddi á lok- uðum fundum afstöðu íslands til ófriðarþjóðanna. Eg hefi ástæðu til að ætla, að gögn í því nráli verði birt innan skamms og verð.ur þá að bíða þess. Verða J>au mál vafalaust rædd í blöð- um og á mannfundum er Jrar að kemur.“ Dansleikur verður haldinn að Hrafnagili næstk. laugardagskvöld kl. 10 e. h. Góð músik, SAMTAL VIÐ SNORRA SIGFÚSSON (Framhald af 1. síðu). eina hreppa um slíkar skóla- byggingar. En fámenni sumra hreppa er svo mikið, að samein- ing er nauðsynleg, ef von á að vera um raunhæfar úrbætur í skólamálum þeirra. Surnir hreppar hafa svo fá börn, að ekki er nóg starf fyrir kennara, og ætla má, að hér eftir verði kenn- arar taldið það dýrir starfsmenn, að ekki Jryki hagkvæmt að láta þá sitja yfir fáum börnum allan veturinn, [oegar önnur úrræði eru fyrir hendi. Það er eitt af verkefnum náms- stjóranna, að leiðbeina um slíka sameiningu og aðstoða við val skólastaða. Sums staðar er þegar hafinn undirbúningur að sam- vinnti hreppa og skólabygginga. — Telur þú heimavistarskóla beztu lausnina á barnafræðslu sveitanna? Eg tel tvímælalaust eina úr- ræðið til viðunandi úrbóta, að^ reist séu skólaheimili á tiltekn- um stöðum í sveitunum. Börn í nágrenni skólanna gangi til þeirra daglega, en jrau, sem fjær búa, fái jrar heimavist. Eg er sannfærður um, að Jretta er eina lausnin, sem framtíðin getur sætt sig við. — En hvað er að segja um skólamál þorpanna? Gegnir þar ekki öðru máli? Vitaskuld er aðstaða þeirra önnur. En mörg þeirra eru þó il'la á vegi stcidd með skóla sína. Skólahúsin víða orðin gömul, úr- ek og allt of lítil. Auk þess tæp- ast búin þeim Jrægindum, sem nauðsynleg eru. Mikill hugur er hins vegar fyrir byggingu góðra skólahúsa strax og aðstæður leyfa. — Hvað fleira gerizt í ferðum námsstjóranna? Þegar eg heimsæki skólahverfi, byrja eg á því, að láta börnin lesa, skoða skrift þeirra og at- huga annan árangur kennslunn- ar, sem sjáanlegur er. Ennfrem- ur læt eg þau skrifa stuttan stíl og leysa úr nokkrum reiknings- dæmum. Verkefnin ern alls stað- ar hin sömu. Þá rannsaka eg hvað-þau kunna af Ijóðum og lögum, hvaða íslenzkar bækur þau hafa lesið og hvað þau vita um íslenzk skáld, rithöfunda og listamenn. Höfuðáherzlan er lögð á móðurmálið og reikning- inn. Þá athuga eg nám í kristn- um fræðum og lýk venjulega heimsókn minni í skólana með Jrví að segja börnunum fallega sögu, kristilegs og siðlegs efnis. Þegar heim kemur vinn eg úr þessnm gögnum, athnga hvernig börnin hafa leyst Jran verkefni, sem eg lagði fyrir þau og skrila skólanefndunum síðan ýtarlega skýrslu um árangurinn og bendi á það, sem eg tel að þurfi helzt lagfæringar við, Jafnframt drep eg þá á framtíðartilhögun í skól- unum, ef tilefni er. Kennararnir fá jafnan afrit af þessnnr skýrsl- um. Á Jrennan hátt tel eg, að all mikið vinnist til lagfæringar, enda er samvinnan \ ið kennar- ana og skólanefndirnar hin ákjósanlegasta. Auk þessa helcl eg oft fundi með skólanefndunum eða ræði við formenn þeirra. Jafnframt hefi eg flutt erindi fyrir foreldra og hafa skólanefndirnar þá boð- að til þeirra funda, svo var t. d. á Sauðárkróki og Blönduósi í Jressari ferð. — Hvernig geðjast þér að þessu starfi? Þetta starf á að mörgu leyti vel við mig. þótt ferðirnar séu NYKOMIÐ: könnur og glös (sett) VÖRUHÚSIÐ h.f. stundum ærið erfiðar. En Jrað gleymist, því að það er gott að heimsækja fólkið úti á landi. — Gestrisni Jress og vinsemd er mikil. Eg hefi kynnst mörgu fólki í Jressum ferðum og það helir verið mér mikil gleði. Eg hefi vfða komið og stimar heim- sóknir eru mér sérstaklega minnisstæðar. Eg get ekki stillt mig um að nefna heimsókn mína í Kvennaskólann á Blönduósi. Eg flutti þar erindi fyrir náms- meyjarnar og gesti. Mér Jrótti sérstaklega gaman að koma í þann skóla. Eg hygg, að skóla- stjóranum, Sólveigu Benedjkts- dóttuir frá Húsavík, farizt starf sitt ágætlega. Syndist mér stjórn hennar föst og farsæl. Eg sá mik- ið af hannyrðum námsmeyjanna og dáðist.að J>eim menningar- brag er þar var á öllu. Eg vildi mega nota þetta tæki- færi til þess að biðja Dag að koma Jjakklæti mínu til allra þeirra hér norðanlands, er hafa sýnt mér margs konar vinsemd og rausn í þessum ferðum mín- um.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.