Dagur - 22.11.1945, Blaðsíða 3

Dagur - 22.11.1945, Blaðsíða 3
Fimmtudaginn 22. nóvember 1945 D AGUR 3 Lénharðiir fógeti Frumsýning Leikfélagsins bætta aðbúð í Samkomuhúsinu með viðbyggingu þeirri, sem áð- Ur er lýst hér i blaðlnu. Eru það snotur búningsherbergi og auk þess hefir aðstaðan á leiksviðinu sjálfu batnað verulega. Gerir Síðan Einar H. Kvaran ritaði Lénharð fógeta eru liðin meira en þrjátíu ár.. Mikið vatn hefir runnið til sjávar á því tímabili og margt breytt í daglegu lífi þjóðarinnar, háttum hennar og hugðarefnum frá því sem þá var. Það er til dæmis vafalaust, að söguþráðurinn í Lénharði fó- geta, ofbeldi hins erlenda valds- manns, uppreist alþýðunnar undir foryztu stórhuga og drengilegs manns, refsing Lén- íiarðs og endalok, hafi baft stór- nm meiri áhrif á alþýðu manna árið 1913, er ísland var ennþá ófrjálst, en nú á öðru ári hins endurreista lýðveldis. Menn skilja í verki skáldsins hug hans til frelsisbaráttu þjóðar sinnar og virðing hans fyrir menningu og göfgi forfeðranna, og leikur- inn mun hafa haft mikil, hvetj- andi áhrif á hugi allra þeirra er sáu jiann, líkt og sagan um Niels Ebbesen varð mikil og áhrifarík í frelsisbaráttu Dana nú á síð- ustu árum, eftir að Kaj Munk liafði blásið nýju lífi í hana og fært hana í skáldlegan búning. Þetta gildi leiksins stendur að vísu enn í dag, þótt það hafi nú önnur áhrif á þá, er sjá og.lesa, en tæplega mundi það hafa verið rétt ráðið, að endurvekja hann nú, né heldur mundi hylli leik ritsins svo mikil, ef efni þess hefði verið skorinn svo þröngur stakkur, að þar rúmaðist ekkert annað en sagan um misbeitingu hins danska valds og sjálfstæði og dug bændanna íslenzku á iindverðri 16. öld. Því að Lén- liarður fógeti glímir við önnur og stórum torveldari viðfangs- efni en réttsýni og dug Torfa í Klofa og manndáð bændanna. Lénharður er í höndum skálds- ins persónugerfingur þess sann- leika, að í mannlegum hjörtum drottnar hið illa með hinu góða, að í sál varmennisins blundar guðdómsneistinn og hann getur náð að verða að báli við snert- ingu kærleika og samúðar. Ald- ur þessa sannleika verður ekki talinn í áratugum, heldur árþús- undum og þess vegna á Lénharð- ur fógeti og öll sú leiklist, sem stuðlar að því að þroska skilning okkar á margbreytileik lífsins og eðli mannsins, erindi til okkar nú og ævinlega. Það er þess vegna engan veg- inn auðveldur hlutur, að setja Lénharð fógeta á svið á þann veg, að atburðarásin öll hnígi eðlilega að þeim ósi, að skilja eftir í huga áhorfandans varan- legt umhugsunarefni og meiri víðsýni. í því efni hvílir vita- skuld megin þunginn á herðum leikstjórans og aðalleikanda. í þetta sinn fór Jón Norðfjörð með þau hlutverk bæði. Hann sýnir okkur Lénharð, skrautbú- inn og glæsilegan — en undir förlan — hirðmann. Áhorfand- inn, sem áður hefir heyrt ljótar lýsingar á framferði hans, verður háll' undrandi yfir þvi, að á bak við þessa áferðarfallegu grímu skuli búa varmenni og fantur. ei að sannfæra hann til fulls um það, og þess vegna verða hin dramatisku áhrif í 4. og 5. þætti ekki eins sterk og ella rnundi, ef hann liefði verið harðgerðari, ill- skeyttari ' og grimmúðlegri í fyrstu þremur þáttunum. Þá liefðu tilfinningarnar risið hærra, samúð Guðnýjar liefði átt stærra hlutverk fyrir höndum og sýnin, sem skáldið opnar inn í hjarta Lénharðs og innsta eðli, hefði orðið bjartari. Engu að síð- ur tekst Jóni mætavel, að vekja samúð áhorfandans með Lén- harði undir það síðasta — þrátt fyrir allt. — Leikur hans er víðast góður, sérstaklega í 4. þætti, þar sem þau Guðný ræðast við í stof- unni. Þar nær hann að segja margt eftirminnilega. Aðra aðalpersónu leiksins og höfuðandstæðing Lénharðs, Torfa bónda og sýslumann í KlQfa, leikur Hólmgeir Pálma- son. Torfi verður í höndum hans hæverskur en þó ákveðinn, fyrirliði sem vill ekki flana að neinu og íhugar vel mála- vexti alla, áður en hann lætur tif skarar skríða. Fas hans og lát- bragð er eðlilegt og virðulegt, en nokkuð þykir mér skorta á eðli- legar áherzlur í t.alj og að geð- brigða gæti í málrómi, t. d. er hann áv^rpar bændurna fyrir ut- an kirkjuna. Helgu, konu Torfa leikur frú Sigurjóna Jakobsdótt- ir. Helga í Klofa er frá höfund- arins liendi skaprík og mikilhæf kona, sem minnir á kvenskör- unga fornsagnanna. Hún letur ekki bónda sinn, er henni þykir nauðsynlegt að hefjast handa til að verja rétt þeirra, er hún ber fyrir brjósti, og hún er staðföst og ákveðin í ályktunum. Frúin hefir oft sýnt það áður, að hún býr yfir ágætum hæfileikum og þess vegna veldur Helga nokkr- um vonbrigðum að þessu sinni. Hin blíðlynda og viðkvæma eig- inkona ber kvenskörunginn of- urliði, og Helga verður ekki eins mikil persóna í leiknum og efni annars standa til. , Ingólf bónda á Selfossi leikur Þórir Guðjónsson. Þórir er góð- ur leikari og tekst honum allvel að sýna hinn aldraða og virðu- lega bónda. Svipbrigði hans eru oft góð, t. d. þegar hann gerir upp reikningana við Lénharð,. bundinn á steininum, en stund- um kemur fyrir að hreyfingar hans á sviðinu eru óeðlilegar. Guðnýju dóttur hans leikur frú Sigiíður Schiöth. Leikur hennar er í heild viðkunnanlegur og víðast eðlilegur, en tæplega tekst henni að sýna djúptæk skap brigði á örlagaþrungnum augna blikum. T. d. virðist manni skorta eðlilega eftirvæntingu og forvitni, er Lénharður ríður fyrst í garð með hið skrautbúna lið sitt", og í stofunni á Hrauni, þar sem mest reynir á leik Guð- nýjar, verður ekki eiiis vart við hinn niðurbælda ótta og eðlilegt væri. í þeim þætti syngur frúin hin kunnu lög, sem prýða leik- inn, og gerir það sérlega vel og Einhvern veginn tekst Jóni aldr- smekklega. Magnús Ólafsson úr Skálholti leikur Sverrir Áskels- son. Honum tekst ekki að vekja samúð með hinum drengilega biskupsfóstra. Framburður hans er skýr — jafnvel um of — því að zlurnar eru ekki góðar. Ey- stein Brandsson úr Mörk leikur Elías Kristjánsson. Leikur hans er allur hinnhressilegastioggerv- ið á margan hátt gott. Honum tekst allvel að sýna svipbrigði, en er kannske full jafn-ofsafenginn allt í gegn. Það lýtir þó einkum leik hans, að hann talar of luatt og framburðurinn er ekki nægi- lega skýr. Freystein á Kotströnd leikur Björn Sigmundsson. Leik- ur hans er víða ágætur, en gervið nýtur sín tæplega eins og skyldi. Eru engan veginn nógu greini- leg skil milli Freysteins og ann- arra bænda í leiknum, sem sum ir hverjir flagga helzt til mikið með einkennum, sem Freysteini einum er ætlað að sýna. Nafn kenndustu bændurna leika þeir Jón Ingimarsson, Tryggvi Krist- jánsson og Júlíus Oddsson. Eru það allt lítil hlutverk, og gefa ekki tilefni til mikilla umræðna að öðru leyti. Þó held eg að það sé misskilningur að gera Ólaf í Vatnagarði að spaugilegri fí u. Hans er rödd alvörunnar, sem vill gera upp við samvizkti og sannfæringu áður en í stór ræðin er ráðist. Bjarni á Hellum að vera sýnishorn hinna dug- miklu, stórgerðu og höfðinglegu rænda, sem til hafa verið á ís landi á öllum ölcfum. Ekki kann eg við að hann skuli ,,tina“, þótt aldraður sé orðinn, og sarna má segja um Ingiríði í Hvammi, sent leikin er af Jónínu Þor- steinsdóttur. Snjólaugu Hvamnti leikur Matthildur Ol- geirsdóttir, mjög snoturlega, og Hólm Lénharðsmann, lítið hlut verk, leikur Ingólfur Kristins- son. Þá et u að auki sveinar Lén- harðs og menn Torfa, sem ekki hafa veríð nefndir hér. Búningar voru yfirleitt mjög skrautlegir, sums staðar um of Má þar nefna búning Guðnýjar á Selfossi og gerir það leikinn óeðlilegan á köflum. Þá eru Lén harðsmenn allir mjög vel búnir en ekki getur sveitin þó talizt hermennskuleg né líkleg til stór ræða. Mætti leikstjórinn gjarnan leggja meiri áherzlu á að gera þá upplitsdjarfari og meiri fyrir sér á sviðinu. Sögurnar um of beldi og ribbaldahátt af hálfu þessa liðs verða næsta spaugileg ar þegar maður virðir það fyrir sér á leiksviðinu. Þá finnst mér hinni hópsýningunni á sviðinu er fólkið kemur úr kirkjunni einnig vera talsvert ábótavant Of mikil áherzja virðist þar lögð í það að gera hvern einstakling skringilegan og óviðfelldið er að þeir; skuli ekki hlýða með óskiptri athygli á sýslumann sinn og fyrirliða, heldur stinga saman nefjum, tvístiga og aka sér meðan ræða hans stendur. En t. v. er hér til of mikils mælst þar sem leikendurnir í hópsýn ingunni eru flestir nýliðar. Leikfélagið hefir nú fengið retta sýningarnar hraðari og er rað ntikil bót frá því sem áður var. Aðsókn að leiknum var sæmilega góð í þetta sinn og óhætt er að hvetja bæjarbúa til Jtess að sækja leiksýningarnar. Þótt að ýmsu megi finna er vissulega betur farið en heima setið. Góður skilningur bæjar- búa mun og verða til þess að efla leikfélagið til glímu við stærri og rneiri viðfangsefni. H. Sn. Jón Jónsson bóndi á Skjaldarstöðum 60 ára Þann 24. okt. sl. átti Jón Jóns- son, bóndi á Skjaldarstöðum í Öxnadal 60 ára afmæli. Hefði eg verið í grendinni þann dag, mundi eg hafa heimsótt þennan gamla æskuvin minn til að árna honum heilla, en úr því þess var ekki kostur, verð eg að láta nokkrar línur nægja og koma tær þó síður skyldi. Jón var rétt um fermingu er. i’aðir hans andaðist frá konu og 5 börnum. Var Jón elztur barn- anna, en hin voru í ómegð. Við ráfall föðursins bættist svo það, að bróðir Jóns missti heilsuna um lengri tíma og varð að dvelj- ast lengi á sjúkrahúsi. Þau hjón töfðu verið fátæk og hygg eg að flestum ekkjum í sporum Önnu Vfagnúsdóttir, móður Jóns, tefði orðið það eitt fyrir í því- íkum kringumstæðum, að leita i náðir svetiarinnar. Það gerði Anna þó ekki, heldur bjargaðist áfram með börntun sínum og varð því liinn ungi fermingar- drengur að taka á sig störf og ábyrgð fullorðins manns, sem yrirvinna móður sinnar. Það fórst honurn beinlínis með ágæt- um, syo að allt bjargaðist vel af. Muif þetta fágætt þrekvirki af jafn ungum dreng og reyndar engu síður af móður hans. Mér er ekki vel ljóst hvenær Jón tók beinlínis við búinu á Skjaldarstöðum, enda varð ekki mikil breyting á við það. Anna móðir hans varð þá ráðskona hans og hún dvelur enn hjá hon- um háöldruð, en systir hans hef- ir nú tekið við ráðskonustörfj; um. Jón er ókvæntur og barn- laus. Skjaldarstaðir eru ekki stór jörð og Jón hefir ekki haft stórt bú, en þó búið myndarlega og bætt jörð sína mikið. Eg á margar góðar endur- minningar um Skjaldarstaða- heimilið, bæði frá æskuárum og síðar á æfinni. Segi eg það alveg hiklaust, að eg hefi hvergi mætt meiri né sannari gestrisni en hjá Jóni á Skjaldarstöðum og Önnu móður hans. Jón tók mikinn þátt í ung- mennafélagsskapnum í sveit sinni á yngri árum og var mörg ár í stjórn U. M. F. Ö. íþróttirn- ar voru aðal áhugamál hans af því, sem ungmennafélögin höfðu með höndum. Glímumað- ur var hann ágætur og þó hann væri tveggja manna maki að burðum, lét hann þó ekki kenna aflsmunar í glímu, heldur glímdi liðlega og drengilega. Lýsir þetta skaplyndi mannsins nokkuð. Á síðari árum hefir Jón ekki tekið ntikinn þátt í almennum málum, en fylgist þó með þeim af áhuga. Hann er nú farinn að gerast þreytulegur og reyndar fyrir ald- ur fram, enda er einyrkjabúskap- urinn erfiður og Jón hefir ekki legið á Jiði sínu. Við sveitungar hans þökkurn honum liðin ár og árnum hon- unt allra heilla í framtíðinni. Bemh. Stefánsson. RITFREGNIR Glóðafeykir. Svo nefnist nýútkom- in bók í bókaflokknum, Skagfirzk fræði, sem Sögufélag Skagfirðinga gefur út, og er þetta 6. bindið, sem út kemui nú. Kennir þarua margra góðra og girnilegra grasa. Jón Sigurðsson, al- þingismaður á Reynistað. ritar minn- ingargrein um Margeir á Ögmundar- stöðum. Þá er þarna bráðskemmtileg grein eftir Guðmund Hannesson, pró- fessor, sem hann nefnir: Endurminn- ingar úr Skagafirði. Næst kemur þátt- ur Gísla Konráðssonar af Grafar-Jóni og Staðarmönnum, fróðlegur og skemmtilegur í senn. Þarna er enn- fremur fyrsta sýslusamþykkt i land- inu um lartdbúnaðarmál. Er þar skýrt frá fundi, sem Skagfirðingar héldu við Vallnalaug, til þess að ræða um „skaðvænlega hesta, beit og göngu í búfjárhögum“. Einnig er þarna fyrsta kjörskrá í Skagafirði. Er það merki- legt plagg og fróðlegt. Loks er þarna þáttur af séra Sveini Jónssyni á Barði. Brynleifur Tobiasson, menntaskóla- kennari, sá um útgáfu bókarinnar og ritar fyrir henni stuttan formála. Bók þessi er góð viðbót við það, sem áður er út komið af Skagfirzkum fræðum, og enginn Skagfirðingur ætti að láta hana vanta í bókaskáp sinn. Þeir, sem kynnu að vilja gerast áskrifendur að ' bókum Sögufélags Skagfirðinga, eða kaupa rit þetta sér- staklega, geta fengið það hjá undir- rituðum. Haimes J. Magnússon. Til athugunar Þeir heiðraðir viðskiptavinir, sem þurfa að láta harðstífa i | skyrtur, flibba og dömubrjóst fyrir jólin, eru vinsamlega | i beðnir að koma því í þvottahúsið, sem allra fyrst. — Einnig I I hvítum slaufum og vestum. — Þetta ofantalda verðnr ekki \ | hægt að taka frá 10. des. til 2. jan. ÞVOTTAHÚSIÐ „MJÖLL“. | 5 •• mumiimimmmiuimmmtitmiiiiinttmmmimmmiimiu»mmnmnmmtuiuuutiuimmmmmuutumimutmi»m1

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.