Dagur - 22.11.1945, Blaðsíða 5

Dagur - 22.11.1945, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 22. nóvember 1945 DAGUR 5 SIGURÐUR EGGERZ Föstudagsmorguninn 16. þ. m., um stundu fyrir hádegi, urðu menn þess varir að fánar voru dregnir í hálfa stöng á nokkrum byggingum í bænum. Og brátt var fregnin á allra vörum: Sig- urður Eggerz er látinn. Innan stundar blöktu fánar í hálfa stöng um allan bæinn, svo víða, að fá dæmi munu til áður. Allur bærinn vottaði samúð sína og sorg. Fyrir fáum mánuðum kvaddi Akureyrarbær Sigurð Eggerz, að því er bezt varð vitað heilan og hressan. Nú var hann látinn. Nokkrum dögum áður hafði að vísu borzt sú frétt hing- að að tekinn hefði verið af hon- um fóturinn vegna meinsemdar, en flestir vonuðu að með þeirri aðgerð væri lífi hans bjargað um sinn. En það átti ekki að verða. „Fótmál dauðans fljótt er stig- ið“. Sigurður Pétursson Eggerz var fæddur að Borðeyri 1. marz 1875, að því er hann taldi sjálf- ur. Kirkjubækur telja liann hins vegar fæddan 28. febrúar. Voru foreldrar hans Pétur verzlunar- stjóri Friðriksson prests Eggerz, Eggertssonar prests í.Skarðsþing- um Jónssonar, og Sigríður Guð- mundsdóttir bónda að Kollsá í Hrútafirði, Jónssonar. Varð Sig- urður stúdent 1895 og kandidat í lögfræði frá Hafnarháskóla 1903. Var hann svo á næstu ár- um settur sýslumaður í nokkrum sýslum, málafíutningsmaður við landsyfirdóminn og aðstoðar- maður í stjórnarráðinu, unz hann var skipaður sýslumaður í Skaftafellssýslu vorið 1908 og gegndi því þangað til liann varð ráðherra 1914. Árið eftir, 1915, var hann skipaður sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum og settur bæjarfógeti í Reykjavík 1917, en varð það sama ár fjár- málaráðherra. Varð forsætis- og dómsmálaráðherra 1922—1924 og bankastjóri Landsbankans 1924—1980, sýslumaður í ísa- fjarðarsýslum og bæjarfógeti á ísafirði 1932—1934, og sýslumað- ur í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfó- geti á Akureyri 1934—1945 að hann fékk lausn fyrir aldurssak- ir. Hann var þingmaður Vestur- Skaftfellinga 1911 — 1916, lands- kjörinn þingmaður 1916—1926 og þingmaður Dalamanna 1927 —1931. Forseti sameinaðs Ah þingis 1922. Auk þessa starfaði hann í fjölda nefnda, gengis- nefnd, Alþingishátíðarnefnd og utanríkismálanefnd o. m. fl. Var hann nú síðast, eftir að hann fluttist til Reykjavíkur, í utan- þings- og stjórnarskrárnefnd þeirri er nú situr. Á því sem hér hefir talað verið, og þó aðeins stiklað á því stærsta, sézt berlega að Sigurður Eggerz hefir víða komið við opinbera sögu þjóðarinnar síðustu 40 ár- in, enda var liann löngu þjóð- kunnur. Hvar og hvenær sem stjórnmálasga tímabilsins frá 1904—1944 verður skrifuð, verð- ur nafn hans eitt þeirra, sem oft- ast verður nefnt. Algert sjálf- stæði íslands var honum hjart- fólgnast allra mála og fyrir því barðist hann með afburða ein- urð og drengskap, Verður þess af konungsfundi 1915 og hafði þá sett ráðherradóm sinn að veði1 fyrir framgangi sjálfstæðismáls- ins. Framkoma hans í ríkisráði skapaði þá, hjá miklum hluta þjóðarinnar, þann Ijóma um nafn Sigurðar Eggerz, sem hald- ist hefir æ síðan ,og ekki mun fyrnast. Og þó að ekki yrði hon- um kjörið að leggja opinberlega síðustu hönd á lausn sjálfstæðis- málsins 1944, mun liann þó hafa átt þar drýgri þátt, frá fyrri tíð, en nokkur annar. Það sem einkenndi stjórn- málaferil Sigurðar Eggerz, var hið sama er einkenndi hann sem privat-mann, drengskapur og einurð, samfara skilningi og góðvilja. Hann gat verið harð- skeyttur andstæðingur, enda átti hann oft hörðu að mæta. Efi aldrei minnist sá, sem þetta ritar þess, að hafa nokkurn tíma heyrt Siguið Eggerz kasta steini að nokkrum manni eða tala illa um nokkurn mann, jafnvel þó ákveðnir og misjafnir pólitískir andstæðingar ættu í hlut. Er það sjaldgæfur mannkostur á þessurn síðustu dögum. Enda mun mað- úfinn Sigurður Eggerz fáa eða enga andstæðinga hafa átt, þó ekki gætu allir átt samleið með honum á hinum pólitíska vett- vangi. Hann var maður vin- margur og vinfastur. Sigurður Eggerz var mikill hugsjónamaður, og það svo að stundum gat maður undrast að hann skyldi velja lögfræði til nárns á yngri árum. Var hann þó vafalaust góður lögfræðingur. En fagurfræðileg efni, skáld- skapur og heimspeki, voru hon- um ekki síður hugleikin, nema fremur væri. í frístundum sín- um, sem ekki voru þó margar, svo umfangsmiklum embættum sem hann lengst ævi sinnar átti að gegna, fékkst hann allmikið við skáldskap. Strax á Hafnarár- um sínum gaf hann út ljóðabók og orti alltaf síðan meira og minna. Hafa sum kvæðihansnáð alþjóðarhylli, sem sem „Alfað- ir ræður“. Síðustu árin gaf hann sig aðallega að leikritasmíð. Eru þau helztu þeirra: Líkkistusmið- urinn, Það logar yfir jöklinum, Pála, í sortanum o. fl., sem enn hafa ekki komið fyrir almenn- ings sjónir. Sjálfur skoðaði hann sig aldrei mikið skáld. Hann „orti sér til hugar-hægðar, en hvorki sér til lofs né frægðar". En hann var vafalaust meira skáld en hann hélt sjálfur. Önn- ur störf urðu að sitja í fyrirrúmi fyrir þjónustu skáldgyðjunnar. Sigurður Eggerz var glæsi- menni, svo að hvar-vetna var eftir tekið. Hann var allra manna glaðastur og leit björtum augum á lífið. Enda var hann um flest gæfumaður. Hann sá hugsjónir sínar rætast í lifanda lífi. Á Al- þingi 1915 sat hann sem þing- maður V.-Skaftfellinga. Flutti hann þá frumvarp um byggingu Jökulsárbrúar á Sólheimasandi. Ýtti hann fast eftir í báðum deildum þingsins, en fékk lítinn byr. Var frumvarp hans fellt. En þegar fjárlögin komu í sameinað þing, tók hann frumvarpið enn lengi minnst, er hann kom heim upp, og fyígdi því þá með eftir- minnilegri ræðu og einni ákveðnustu brýningu til þing- manna sem heyrzt hefir. Brúin kom. En þessi barátta var í raun- inni táknleg fyrir Sigurð Eggerz. Hann vildi vinna að því að brúa allar Jökulsár í íslenzku þjóðlífi, sjá hér rísa sjálfstætt ríki, sem byggt væri upp af frjálsri menn- ingarþjóð, andlega og efnalega vaxandi. Og hann var óþreyt- andi að vinna að því marki. Til þess voru engar fórnir honum of dýrar. Svo sem vænta mátti hafði Sig- urði Eggerz hlotnast margs kon- ar viðurkenning fyrir unnin störf. Hafði hann verið, sæmdur fjölda innlendra og erlendra heiðuismerkja af hæstu stigum. Þeim verður nú skilað aftur við andlát hans. En óbrotgjarnan minnisvarða, sem ekki verður af honum tekinn við dauðsfall hans, hefir hann reist sér í þakk- látri minningu íslenzku þjóðar- innar og í hjörtum fjölda vina, sem ekki gleyma honum, þó hann sé horfinn af jarðneska sjónarsviðinu. Hans minning mun lengi lifa. Við hann eiga orðin: Þessi lærisveinn deyr ekki. Sigurður Eggerz var' kvæntur Sólveigu Kristjánsdóttur, dóm- stjóra, Jónssonar frá Gautlönd- um, hinni merkustu konu. Stóð hún jafnan ótrauð við hlið manns síns og studdi hann vel í hverju máli. Börn þeirra éru Pétur cand. jur., nú sendiráðs- fulltrúi í London, og Erna, bankaritari f Reykjavík. Er að þeim kveðinn þungur harmur með þessum missi. En úr því sem komið var var þó jafnvel sjálfur dauðinh gleðiefni. Vinir Sigurð- ar Eggerz eiga bágt með að hugsa sér þetta lífsglaða og stayfsfúsa glæsimenni berjast við þunga elli sem örkumlamann. Og við trúum því að heimkom- an hafi verið honum björt. Dags- verkið var orðið inikið og gott. Nú bíða launin hans. Og vega- nestið yfir um eru þakkir og hlý- hugur fjöldans sem hann vann fyrir, þjóðarinnar sem hann unni. Drottinn gefi dánum ró, hin um líkn sem lifa. Friðrik J. Rafnar. — Fokdreifar (Framhald af 4. síðu). um, að fjölmörg af okkur, — foreldr um í þessum bæ, gangi steinsofandi í þessu efni og höfum sofið bæði fast og lengi. Og hætt er við, að einhver vakni upp við vondan draum, þegar farið verður að reka hina fyrirhuguðu stofnun fyrir vandræðabörn og draga í þann dilk. Fáir munu vilja vita barn sitt vandræðabarn. Og þau, sem nafn- ið hljóta, eiga örðugt með að losna við það aftur, enda þótt þau reynist að lokum ekki lélegri þjóðfélagsþegn- ar en margir þeir, sem aldrei hafa hlotið slíka nafngift. t*G TEK ÞAÐ skýrt fram, að eg er ekki að áfellast þessa uppástungu um vinnuheimili fyrir þessi svoköll- uðu vandræðabörn, úr því svona illa er komið, — og það er sjálfsagt óvé- fengjanleg staðreynd, að svo sé, — kennararnir ættu að vita bezt um það, — þá er þessi stofnun ekki aðeins nauðsynleg, heldur sjálfsögð. Og því fyrr sem hún tekur til starfa, því betra. En samt sem áður mun engin móð- ir, sem út í þetta hugsar, óska þessari stofnun vaxandi gengis eða mikils verksviðs, — svo mikill metnaður er, vonandi, í okkur. Mér sýnist, að ástandið í þessum málum, sem snerta börnin okkar, sé nannig, að það sé óhjákvæmilegt, að allir foreldrar i bænum bindist sam- tökum og reyni af alefli að draga úr iessu gönuskeiði, sem börnin eru á. Eg veit, að þetta, sem eg er að myndast við að segja er gömul saga. Margir, serrí eg jafnast ekki við í neinu, hafa talað úm þetta. Kennarar hafa haldið fundi með foreldrum, og mikið er ritað og rætt um vandamál barnauppeldisins, og margt mjög gott. En það er eitt, sem mér finnst mjög undarlegt, og það er það, hvað sá að- ilinn í þessu máli gleymist oft, sem áreiðanlega gæti þó haft lang-beztu og voldugustu áhrifin, ef vel væri á haldið. Þessi aðili er kirkjan. Eg skil ekkert í því, hvað sjaldgæft iað er að heyra raddir frá konum um áhrif kirkjunnar á uppeldismál. Eg er alveg handviss um það, að bætt sam- starf heirr.ilt og skóla við kirkjuna mundi hafa ómetanleg áhrif, ef það samstarf væri vel skipulagt. ■^IÐ FORELDRARNIR ættum að fara þess á leit við sóknarprest- inn, að hann helgaði börnunum sér- staklega eina guðsþjónustu í mánuði yfir skólatímann. Efstu bekkir Barna- skólans ættu að annast sönginn við íessar guðsþjónustur, en kennarar í hverjum bekk að benda börnunum á iá sálma, er sungnir yrðu við næstu kirkjuathöfn, og sjá um, að þau lærðu jafnóðum sálmana, svo að allur söfn- uðurinn gæti sungið og þar með tekið betri þátt í athöfninni. Kennarar Dyrftu að brýna fyrir börnunum nauðsyn þess, að þau sæktu þessar guðsþjónustur, og styðja að því á alla lund, að þau tækju þetta mál með festu og alvöru. Og þá kemur að okkar þætti. Við gætum mikið gert fyrir börnin á þessu sviði, ef við viljum. Við höfum sjálfsagt flest orðið fyrir áhrifum í kirkju einhvern tíma á bernskuárun- um, sem ekki hafa gleymst og ekki svikið okkur, og þess er gott að minn- ast. Ef við fengjum þessar guðsþjón- ustur fyrir börnin fyndist mér mikið unnið. En það væri þó mest á okkar valdi, hvort þetta starf bæri árangur eða ekki. Við þyrftum að fara með börnunum í kirkjuna, hjálpa þeim til þess að koma hæversklega fram á al- an hátt, syngja með þæm og hlusta með þeim. Eg hefi trú á pví, að reglu- bundnar guðsþjónustur, miðaðar við hæfi barnanna, hefðu mjög bætandi áhrif. Ahrif, sem mundu vara lengur en rétt þá stund, sem setið er í kirkj- unni, og gefa framkomu og umgengni barna og unglinga mýkri og ákjósan legri blæ, þegar fram í sækir. Og þá er víst, að vandræðabörnunum mundi fækka en ekki fjölga. pF EG VÆRI spurð núna, á meðan eg er að skrifa Þessar línur, hvers eg óskaði mér helzt, þá myndi eg segja: Eg óska þess, að allir foreldrar á Akureyri bindist samtökum um það að glæða trúarlöngun barna sinna og stuðla af alefli að auknu og bættu samstarfi kirkju, heimila og skóla. Eg óska þess, að kirkjan og skólinn sjái börnum fyrir einni góðri guðs- þjónustu í mánuði, er sniðin væri við þeirra hæfi. Eg óska þess, að núverandi vand- ræðabörn megi sem fyrst fá góða bót meina sinna, og að okkar fámenni en yndislegi bær megi hrinda af sér með fullum sóma því orði, að hann þurfi að halda uppi stofnUn fyrir vand- ræðabörn. Þetta vilja sjálfsagt margir fleiri, en það er ekki nóg að vilja, maður þarf líka að geta. Og eg er viss um, að við getum mikið x þessu efni, ef við aðeins viljum. K, Lýðræðið er siguisælt. Ritstjórnargrein í New York Times. » Þótt þrumuský ósamkomulags og tprtryggni séu ennþá víða á lofti á himni alþjóðamálanna, má þó greina ýms góðviðris- merki, sem vekja vonir uni ajartari tíð. Mest þeirra er sókn og sigursæld lýðræðisins. í um- róti því, sem skapaðist upp úr fyrri heimsstyrjöldinni og náði hámarki í hinni síðari, héldu forvígismenn tveggja aðalbylt- ingastefna þessarar aldar því i'ram, að framtíðin tilheyrði nazi-fasismanum eða kommún- ismanum, og hið gamla, svifa- seina lýðræði mundi 'farast í átökunum milli þessara tveggja byltingastefna. Og þegar þýzki nazisminn og ítalski fasisminn voru í staðinn gjörsigraðir af rerjum lýðræðis- og kommún- istaþjóðanna sameiginlega, léldu æstustu vinstrimennirnir rví fram, að hin rauða stefna mundi leggja undir sig heiminn. Nú eru jarðhræringar þær, sem síðari heimsstyrjöldin skap- aði, óðum að fjara út og þjóð- irnar eru að skapa sér grundvöll friðsamlegra samskipta. í þessu uppbyggingarstarfi er augljóst, að hið vestræna lýðræði hefir ekki aðeins staðist prófið, heldur er það sterkara en nokkru sinni :yrr og á jjleiri fylgismenn en nokkrun tíma áður. Hvar- vetna, þar sem leyfa nazi-fasism- ans ennþá gætir í stjórnmálum, svo sym á Spáni, Argentínu og Japan, er lýðræðið í sókn. Ein- ræðisstjórn Argentínu er þegar á undanhaldi, Franco er farinn að tala um að draga sig í hlé, og dagar japanska einræðisins eru þegar taldir. Þess verður ekki langt að bíða, að þessi síðustu virki fasismans verði þurrkuð burt af jörðunni. En lýðræðið er sömuleiðis vopn fólksins gegn öðrum ein- í'æðiskenningum, þar með talinn kommúnisminn. Á vesturhveli jarðar hefir lýðræðið ævinlega verið styrkasta þjóðmálakenning og einræðissinnarnir, til hægri og vinstri, hafa oftast nær orðið að dylja takmörk sín og stefnu- mið, er þeir hafa sótzt til valda. Nú gerast sömu atburðir í Ev- rópu og Asíu. Hvarvetna, þar sem kosningar hafa verið háðar, hefir lýðræðið sigrað og komm- únistarnir, þótt þeir hafi haft vald og styrkleika Sovét-Rúss- lands á bak við sig, hafa hvergi náð hreinum meirihluta. Sums staðar hafa þeir unnið nokkuð á, af því að þeir hafa óttast um eig- in styrkleika og gengið í félag við meira og minna ófrjálsar samfylkingar þeirra flokka, er standa lengst til vinstri í þjóðfé- lögunum. En þó eru þeir víðast hvar minni hluta flokkur. í kosn- ingunum í Finnlandi, þar sem rússneskt útvarp og blöð lögðu hönd á plóginn með kommún- istaflokknum, hlaut samfylking sú, er kommúnistar stofnuðu til, ekki nema einn fjórða hluta (Framhald á 6. slðu),

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.