Dagur


Dagur - 06.12.1945, Qupperneq 6

Dagur - 06.12.1945, Qupperneq 6
6 DAGUR Fimmtudaginn 6. desember 1945 r#"wwww#wwww~w"ww#w#www#w"wwj' Lagt á borð fyrir þr já Saga eftir Virginia Douglas Dawson CHKHWHKHKHKHKHKHKHKBKH5 íKHKHKHKHKHKHKHKBKHKH (Framhald). Eg veit ekki hvað það var, sem hún ætlaði sér. Eg hefi þó brotið heilann um það aftur og aftur. Eg get þó ekki sagt, að eg hafi orðið undrandi þegar Waller læknir opnaði skúffuna í náttborðinu liennar og fann þar nokkrar pillur, senr hún hafði falið þar. Hann taldi líklegast, að hún hefði stungið einni pillu undan við hverja inntöku og safnað þeim þangað til hún þóttist viss um, að nóg væri. En hvers vegna hafði luin tekið þær sjálf? Eg minntist þess, hvernig hún hafði einu sinni sagt við okkur Davíð: ,,Eg skal aldrei láta ykkur í friði. Aldrei!" Það brann hatur úr augum hennar í Jrað sinn. Líklega hefir hún reiknað með því, að mér mundi verða kennt um hvernig fór. Og raunar varð eg að svara mörgum spurningum áður en eg gat sannað sakleysi mitt. Eg veit ekki hvort foreldrar hennar sannfæiðust nokkurn tíma um það, að eg væri saklaus. Þau neituðu að kveðja mig, þegar eg fór. Eg tel víst að frú Arden hafi talið, að eg hafi á einn eða annan hátt orðið orsök í dauða Celíu. Hún hafði séð okkur Davíð á ganginum og hefir líklega ályktað út frá því. Eg reyndi að gleyma þessum liörmulegu dögum, eins og þeir væru ljótur draumur. Eg reyndi að telja mér trú um, að Davíð væri horfinn út úr lífi mínu ogfeg mundi aldrei sjá hann framar. Nokkr- um dögum seinna kom hann heim til mín. Læknirinn hlýtur að hafa sagt honum hvar eg átti heima. Eg fór sjálf til dyfanna, þegar hringt var,’ og þá stóð hann þar, eins og lítill drengur, sem hefir villst og veit ekki livað hann á af sér að gera. Eg vissi ekkert um hagi hans, um það hafði aldrei verið talað; eg vissi ekki hvort hann átti foreldra og ættingja á lífi eða hvort hann var einn og yfirgefinn í lífinu eins og eg sjálf. Eg sagði ekkert. Hann gekk inn í anddyrið með hattinn sinn í hendinni og lokaði dyrunum á eftir sér. Hann tók í hendina á mér, og dró mig til sín og kyssti mig'. Það var heitur og innilegur koss, eins og við hefðum lengi verið gift og sæumst nú aftur, eftir langa fjarveru. Hvorugt okkar sagði það, sem var efst í huga okkar beggja. Eg vissi, að við gætum aldrei orðið hamingjusöm saman. Þótt mér fyndist eg loksins komin í örugga höfn i örmum hans fékk sú hugs un mér trega en ekki hamingju. Celía var í milli okkar og mundi ævinlega verða það. Augu okkar mættust og hann hlýtur að hafa lesið það í augna- ráði mínu, sem eg hugsaði, og fundið þar svarið Við spurningun- um, sem brunnu á vörum hans. Hann slepþti mér og gekk hægt til dyranna aftur. Eg horfði á eftir honum. Þessi stóri og herðabreiði maður 'var lotinn, eins og fyrsta daginn sem eg sá hann við rúm Celíu.“ Eldurinn á arni gömlu frú Gregory logaði glatt. Rödd ungu stúlkunnar þagnaði og gamla frúin hrökk við, eins og upp úr draumi. Hún hallaði sér fram á stáfprikið sitt og lagði lófann injúklega á handlegg ungu stúlkunnar. „Vina mín,“ sagði hún. „Eg veit ekki hvað eg á að segja. En þetta er allt liðið, búið, er það ekki?“ Unga stúlkan leit flóttalega í kringum sig. „Jú, það er búið, en en eg er alltaf hrædd, eg veit ekki af hverju.“ Frú Gregory leit hvasst á hana. „Þér lítið út eins og þéf eigið.von á því, að sjá eitthvað," sagði hún. „Eij kæra mín, þér hafið ekkert að hræðast annað en yðar eigin hugsanir. Þetta allt hefir fengið mikið á yður. Mér er næst að halda, að hótanir Celíu hafi haft svo mikil áhrif á yður, að þær hafi vakið falska sektartilfinningu í brjósti yðar. Ef til vill vitið þér þetta ekki sjálfar. En þó gæti það brotist um í undirvitundinni. Eg held að þér sjálfar óttist, að á ein- hvern hátt sé hægt að kenna yður um dauða Celíu. Af því sem þér hafið sagt mér, þykist eg geta ráðið, að þér hafið ekkert rangt gert, þvert á móti reynt af fremsta megni að standa vel í stöðu yðar. Celía var á leið til glötunar og endalok hennar hefðu vissulega (Niðurlag næst). Jóla borðrenningar serviettur pappír, 0.30 örkin ^ bögglamerkimiðar bögglaumbönd — o. fl. þess háttar Bókaverzlun Þorst. Thorlacius Hugheilar þakkir til vina og vandamanna fjær og nær, fyrir stórgjafir, árnaðaróskir og vinar- / kveðjur á sjötíu ára afmæli mínu. Heimsókn ykkar og hlýhugur verður mér ógleymanlegt. Gæfa og blessun fylgi ykkur öllum. EINAR ÁRNASON. ALÚÐAR KVEÐJUR OG INNILEGAR ÞAKKIR sendi eg öllum þeim, er heimsóttu mig, særndu mig gjöfum, sendu mér hejllaóskir eða sýndu mér á annan hátt hlýhug og vin- áttuvott á sjötugsafmæli mínu 15. þ. m. Guð blessi ykkur öll. JÓNÍNA G. JÓNSDÖTTIR, Uppsölum. Náttkjólar Undirföt Nærföt Bómullar sokkar Kaupfélag Eyfirðinga V ef naðar vörudeild. III|| 1111111111IIlllIII111111111 llllialll|||||MIIIIMMH,•imiMim, ,|. Þrjár röskar stúlkur geta fengið atvinnu við iðnað. Aðeins stúlkur, sem i vilja ráða sig til lengri tíma, koma til greina. Eiginhandar umsóknir, með upplýsingum um ald- I ur-, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu Dags, I Akureyri, merktar „Iðnaður“. I £m,mi„imm„mm,mmmmimimmi„mmmmimm„„m,m,,m„mim„mmm,mimmi„mm„mmm„imMi„„mimm,mi„mmmim„im„„„„i | Afmælisdagabókin með stjörnuspám j selst svo ört, að hún er bráðlega á þroturn hjá- forlaginu. Tryggið yður þessa sérstæðu bók i til gjafa og eignar, áður en það er um seinan. h í umboðssölu og smásölu i Bókaverzlun Þ. Thorlacius j • •,MIMMMiMMIIMIIMMM||imM|||MMI|lll|l|l|,,I,H,II,HlllllllimillllllllHIIIIIIUIIIIIUIIIIIMMMMMudi, 1,111,11,|,||,ll||||||||||||||||> Notið flóru oo Gula bandiS! Tóskaparskóli, sem kenn- ir listiðnað, hefst eftir áramótin Tóskaparskóli byrjar að öllu forfallálusu þann 15. jan n.k. á Svalbarði á Svalbarðsströnd og stendur til 1. maí 1946. Hlutverk þessa fyrirhugaða skóla eru tvenns konar: í fyrsta lagi að viðhalda kunn- áttu í hinum ágæta, íslenzka list* ullariðnaðar: Verkun ullar, þvotti, litun, kembingu, prjóni, vefnaði og hannyrðiun með ís- lenzkum gerðum og úr ullar- efni. Það hefir mikla þjóðmenning- arlega þýðingu, að hinn ís- lenzki listtóskapur týnizt ekki með öllu eða falli í gleymsku með þeirri kynslóð, sem nú er miðaldra og eldri. I öðru lagi mun skólinn leggja allt kapp á að afla sér jreirra áhalda og verkfæra, sem létta og flýta fyrir 'ullarvinnu heimil- anna og kenna meðferð þeirra. Það vill svo vel til, að nú fæst til leigu hentugt húsnæði fyrir skól- ann á ágætum stað hér norðan- lands, þar sem samgöngur eru greiðar bæði á sjó og landi. Stað- urinn er Svalbarð á Svalbarðs- strönd.^Þar eru húsakynni mikil síðan á dögum Björns heitins Líndal, sem ábúandi jarðarinn- ar notar ekki nema að nokkru leyti, og vill lána með vægu verði. Til Svalbarðsstrandar verður á þessu hausti veitt raforku frá Laxárfossum, og er þegar undir- búin hitun hússins með rafork- unni (næturhitun), eins og hún verður að sjálfsögðu notuð til suðu, Ijósa og véla. 8—10 nemendur fá skólavist. Skólinn hefir tryggt sér ágæta starfskrafta: Sigurbjörg Bene- diktsdóttir á Amarvatni í Mý- vatnssveit, alvön tóskap, kennir tóskapinn og vefnaðinn. Hús- móðit verður Rannveig Líndal, og aðstoðarkenanrar verða fengnir eftir þörfum. Margir líta svo á, að enginn haf i tírna til að vinna að sein- legri ullarvinnu á þessum tím- um. En það má benda á það í því sambandi, að mikill tími fer í alls konar fínar hannyrðir og telur það enginn eftir, en finnst það sjálfsagt. íslenzkur listullariðnaður er meira virði fyrir okkar þjóð en allar útlendar hannyrðir. Það ætti að vera okkur metnaðarmál, íslendingum, að viðhalda hon- um, svo sérstæður er hann, svo fjölbreyttur og svo fagur. Eg hefi haft sýningar á ís- lenzkum listtóskap í öllurn stærstu borgum Norðurlanda og Lundúnaborg (auk 50 sýninga hjá löndum vestan hafs) og alls staðar hefir verið lokið hinu mesta lofsorði á vinnubrögðin. — Sérfræðingar í þessum efnum liafa látið svo um mælt, að við íslendingar hefðum beztu ullina og" kynnum bezt að fara með hana. Nýbyggingarráð afgreiddi málið með hinum ágætustu með- mælum til Menntamálaráðherra og lagði eindregið til, að ríkis- stjórnin léði því fylgi sitt. Halldóra Bjarnadóttir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.