Dagur - 31.01.1946, Side 8
8
DAGUR
Fimmtudaginn 31. janúar 1946
tr '■ ' ; ' ......
Úr bæ og byggð
I. O. O. F. 127181/2
KIRKJAN. Messað á Akureyri kl.
2 e. h. á sunnudaginn.
Messur í Möðruvallakl.prestakalli.
AS Bægisá sunnud. 3. febr., í Glæsi-
bæ sunnud. 10. febr., á Möðruvöllum
sunnud. 17. febr. og á Bakka sunnud.
24. febr. kl. 1 e. h. — Fermingarbörn
komi til viðtals, hvert að sinni kirkju.
Sóknarprestur.
Knattsyrnufélag Akureyrar heldur
árshátið sína að Hótel Norðurland,
laugardaginn 2. febrúar kl. 9 e. h.
Áskriftarlisti liggur frammi í Bóka-
verl. Gunnl. Tr. Jónssonar til föstu-
dagskvölds. Félagar! Skrifið ykkur
sem fyrst á listann. Fjölmennið!
Skemmtinefndin.
Barnastúkan Sakleysið heldur fund
sunnudaginn 3. febrúar næstk. kl. 10
f. h. — Kosning embættismanna. —
Upplestur. — Smáleikir. — Mætið
stundvíslega.
Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1
heldur fund (systrakvöld) næstk.
þriðjudag 5 .febrúar, kl. 8.30 síðd. í
Skjaldborg. — Systurnar sjá um
fundinn og bjóða öllum bræðrum
stúkunnar alveg sérstaklega á fundinn.
Kaffidrykkja. Skemmtiatriði. Dans.
Allir á fund!
Hjúskapur. Sl. þriðjudagskvöld
voru gefin saman í hjónaband, af
sóknarprestinum, sr. Friðrik J. Rafn
ar, vígslubiskup, ungfrú Helga Bald-
vinsdóttir, Sigurðssonar bónda í Skóg-
um, og Valdemar Halldórsson, Ás-
geirssonar, sölustjóra.
Kvennadeild Slysavarnafél. Konur!
Mætið í kirkjukapellunni kl. 8.30 e.
h. mánudaginn 4. febr.
Skákþing Norðlendinga hefst í
Verzlunarmannahúsinu mánudaginn
4. næsta mán. kl. 8 e. h. Keppt verður
í þrem flokkum. Meistaraflokki og
fyrsta og öðrum flokki. Öllum skák-
mönnum úr Norðlendingafjórðungi er
heimil þátttaka í mótinu.
Kvennadeild Slysavarnafél. íslands
hefir sinri árlega fjáröflunardag
sunnudaginn 3. febr. næstk. (á sunnu-
daginn kemur). Kl. 2.30 e. h. verður
opnaður bazar í „Skjaldborg“. Kl. 3 e.
h. hefst kaffidrykkja á Gildaskála
KEA og kl. 9 um kvöldið hefst dans-
leikur á Hótel Norðurland. — Vænta
konur þess, að bæjarbúar líti inn á
þessum stöðum, sér til gagns og
skemmtunar og deildinni til hróss og
hagnaðar.
fbúð óskast
14. maí eða seinna. Fyrir-
framgreiðsla. — Þeir, sem
vilja sinna þessu, leggi
nafn sitt í lokuðu umslagi
á afgreiðsluna fyrir 10. fe-
brúar. Merkt „íbúð“.
Manilla fóg
ltt, 2 og 21/2”
fæst nú hjá
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Herbergi óskast!
Reglusaman nemanda vant-
ar herbergi í 4—5 mánuði.
Upplýsingar í síma 503 frá
klukkan 3—6 e. h.
Fataefni
Igegnir erfiðu embætti
Myndin er af LewisB.Schwellenbach,
verkamálaráðherra Bandaríkjanna.
Hann á erfitt um þessar mundir, því
að verkföll geysa í Iandinu og gengur
eríiðlega um sættir. Tala atvinnuleys-
ingja er þó 1 millj. Iægri en gert var
ráð fyrir að verða mundi um þetta
leyti.
Nokkur
kveðjuorö
til frk.
Kristjönu Pétursdóttur
frú Gautlöndum, skólastýru Hús-
mæðráskólans á Laugum.
Þú varst eins og ljós um lífsins stig
er lýsa öllum vildi,
því enga þekkti eg eins og þig,
sem öllum veitti svo glæsilig
af mætti ástar og mildi.
Eg fylgi þér hljóð í hinsta sinn,
minn hugur af trega grætur,
og ber til þín vináttu blómvöndinn,
sem blæljúf fléttar minningin
er hjúfrar við hjartarætur.
J. S.
í faðmi einnar af friðsælustu
og fegurstu sveita þessa lands,
varst þú borin og barnfædd. Þar
var þeim frækornum sáð, sem
síðar náðu þeim þroska, að gera
þig að einni af mestu og beztu
konum þessa lands, eins og þær
minningargreinar sýna, er þegar
ritaðar hafa verið um þig.
Eg átti því láni að fagna, að
teljast til vina þinna. Og í ná-
vist þinni varð eg fyrir þeim
áhrifum, sem og allir aðrir, að
n^ér fannst eg verða að meiri og
betri manneskjú.
Hvað geta þá námsmeyjar þín-
ar og aðrir sagt, sem báru gæfu
til að njóta áhrifa þinna yfir
lengri tíma? Stofnanir þær, sem
þú sérstaklega helgaðir krafta
þína, minnast síns mikla leið-
toga með lotningu um aldir og
æfi. Námsmeyjar þínar munu
halda merki þínu hátt á lofti,
sér og óbornum til ævarandi
blessunar.
Sú mákla tign og ró, sem hvíldi
yfir öllu, er Jrú varst kvödd í
hinsta sinni, af fjölda vanda-
nranna og vina, sýndi, að þeir
voru ekki einungis að kveðja
hjartfólgna vinkonu, stoð og
styttu þingeyskrar æsku, heldur
líka stoð og styttu æsku Jressa
lands.
Mildur sunnanblær og sólroð-
in fjöllin jrín helguðu þér líka
minningu sína. .
Guð blessi minningu Jrína. —
Hjartans Jrakkir fyrir samveruna.
Helga Jónsdóttir
Kosningarnar lí kaupstöðum
og kauptúnum.
(Framhald af 1. síðu).
Sjálfstæðisflokkur 121 atkv. 2 ftr.
Sósíalistar 109 atkv. 2 fulltr.
I Olafsfirði fóru bæjarstjórnarkosn-
ingar fyrst fram í jan. 1944 og urðu
úrslit þá þessi: Framsóknarfl. 76 at-
kv. 2 fulltr. — Sjálfstæðisfl. 139 at-
kv. 3 fulltr. — Sósíalistar 111 atkv.
2 fulltr. — Framsóknarflokkurinn er
því orðinn stærsti flokkurinn þar, en
Sjálfstæðisflokkurinn hefir tapað 1
fulltrúa.
ÚRSLIT í KAUPTÚNUM.
Dalvík.
Óháðir borgarar 156 atkv. 3 fulltr.
Verklýðsfélagið 141 atkv. 2 fulltr.
Óháðir (bændalisti) 42 atkv. eng-
inn fuíltr.
Eskifjörður.
Alþýðuflokkur 76 atkv. 2 fulltr.
Framsóknarflokkur 60 atkv. 1 ftr.
Sósíalistar 95 atkv. 2 ftr.
Sjálfstæðisflokkur 93 atkv. 2 ftr.
Húsavík.
Alþýðufl., Framsóknarfl. og Sjálf-
stæðisfl., sameiginl. listi, 349 atkv. 5
fulltr.
Sósíalistar 202 atkv. 2 fulltr.
Hvammstangi.
Alþýðuflokkur 35 atkv. 1 fulltr.
Framsóknarflokkur 33 atkv. 1 ftr.
Sjálfstæðisflokkur 32 atkv. enginn
ftr.
Verkamenn 41 atkv. 1 fulltr.
Blönduós.
Alþýðufl., Framsókn og Sjálfstæð-
isfl., sameiginl. listi, 175 atkv. 5 fulltr.
Sósíalistar 30 atkv. enginn fulltr.
Sauðárkrókur.
Alþýðuflokkur 142 atkv. 2 fulltr.
Framsóknarflokkur 95 atkv. 1 ftr.
Sósíalistar 55 atkv. 1 fulltr.
Sjálfstæðisflokkur 162 atkv. 3 ftr.
Stykkishólmur.
Alþýðuflokkur 70 atkv. 1 fulltr.
Framsóknarflokkur 76 atkv. 2 tfr.
Sós.alistar 33 atkv. enginn ftr.
Sjálfstæðisflokkur 173 atkv. 4 ftr.
Borgarnes.
Sjálfstæðisflokkur 165 atkv. 4 ftr.
Framsóknarflokkur 99 atkv. 2 ftr.
Sósíalistar 61 atkv. 1 ftr.
Alþýðuflokkur 28 atkv. enginn ftr.
Bolungarvík.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur 110 atkv. 2 fulltr.
Sósíalistar 46 atkv. 1 fulltr.
Sjálfstæðisflokkur 159 atkv. 4 ftr.
Fáskrúðsfjörður.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur 139 atkv. 4 fulltr.
Óháðir 48 atkv. 1 fulltr.
Sósíalistar 73 atkv. 2 fulltr.
Eyrarbakki.
Alþýðuflokkur 172 atkv. 4 fulltr.
Sjálfstæðisflokkur 82 atkv. 2 fulltr.
Sósíalistar 27 atkv. enginn fulltr.
Keflavík.
Alþýðuflokkur 323 atkv. 3 fulltr.
Framsóknarflokkur 112 atkv. 1 ftr.
Sósíalistar 87 atkv. enginn fulltr.
Sjálfstæðisflokkur 323 atkv. 3 ftr.
Patreksfjörður.
Sjálfstæðisflokkur 227 atkv. 5 ftr.
Vinstrimenn og óh. 111 atkv. 2 ftr.
Stokkseyri.
Verkalýðsfél. 127 atkv. 3 fulltr.
Framsóknarflökkur 43 atkv. 1 ftr.
Sjálfstæðisflokkur 155 atkv. 3 ftr.
Suðureyri.
Alþýðuflokkur 61 atkv. 1 fulltr.
Framsóknarflokkur 69 atkv. 2 ftr.
Sjálfstæðisflokkur 70 atkv. 2 tfr.
1 ýmsum öðrum kauptúnum
voru ekki flokksframboð heldur
listar ,,óháðra“ o. s. frv. og ekki
gott að átta sig á hvaða pólitískar
línur liggja þar á bak við.
Bridgekeppni
í fyrsta flokki hefst næstkomatidi þriðjudagskvöld 5.
febrúar, kl. 8 e. h. á Gildaskála KEA. Keppendur eru
beðnir að snúa sér til formanns um upplýsingar við-
víkjandi keppninni fyrir Jrann tíma. Meðlimir B. A.,
Joeir, er greitt hafa árgjöld hafa ókeypis aðgang. Að-
gangur seldur utanfélagsmönnum eftir Jtví, sem við
verður komið.
Stjórn og keppnisnefnd B. A.
1 /ííííí
ItlliÍIIIIIIISIIIIIIIIlllllllllfltllllllllllllllllltltllllllllllltllllllllllSlllllllliailSIICIIISIflllllllltlltlllllltltllltllllllllllllBIAIIIIICIIIIi
■ iiniia^
GÚMMÍ
til að líma ofan á stígvél,
höfum við nýlega fengið.
Sendum gegn póstkröfu.
Skóbúð KEA j
: imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiii,,;
•II
KOSNINGIN Á AKUREYRI
(Framhald af 1. síðu).
Varamenn:
Jón Ingimarsson 703 19/22.
Tryggvi Emilsson 671 5/22.
D-listi. Aðalmenn:
1. Svavar Guðmundsson 722
19/22.
2. Jón G. Sólnes 710 12/22.
3. Indriði Helgason 710
10/22.
Varamenn:
Helgi Pálsson 703.
Guðm. Guðmundsson 641
4/22.
DAGUR
fæst keyptur í
Veril. Baldurshaga,
Bókabúð Akureyrar
Bókaverzl. Eddu og
Verzl. Hrísey
skilið eftir í Skódeild KEA.