Dagur - 14.02.1946, Side 3

Dagur - 14.02.1946, Side 3
Fimmtudaginn 14. febrúar 1946 DAGUR 3 Kommúnistar segja Sjálfstœðismenn „landráðahyski" sem æfli að svikja „nýsköpunina"og selja landið Bandarikjunum þeirra við Breta, — og þeir vita Ofriðvænlegt á stjórnarheimilinu eftir að sósíaiútaflokkimnn er ein að- kosningarnar Hvaða flokkur yfirgefur fyrst hið sökkvandi skip stjórnarsamstarfsins og fjárglæfranna? Landsmönnum er kunnugt hvernig sambúðin var á stjórnarheimilinu fyrir kosningarnar. Morgunbl. lýsti því dag eftir dag hvernig kommúnistar væru viljalaus verkfæri í hendi erlendra vaklhafa, forystumenn þeirra hæfileikasnauðir braskarar, sem í engu máli væri treyst- andi og allur flokkurinn gegnsýrður af taumlausri einræðishneigð og valdagræðgi. Kommúnistar gáfu að sínu leyti ófagra lýsingu á peningalýðnum í Sjálfstæðisflokknum, sem sæti á svikráðum við frelsi þjóðarinn- ar, féfletti alþýðuna o. s. frv. Flestir líta á þetta sem mark- lausan kosningaþyt, því að í rík- isstjórninni sjálfri var allt kyrrt á yfirborðinu. En nú bendir margt til þess að til tíðinda dragi. Eftir kosningarnar er sízt frið- vænlegra á stjórnarheimilinu. — Verður ekki annað séð af skrif- um „Þjóðviljans" en að flokk- urinn sé að undirbúa samvinnu- slit í ríkisstjórninni og upphaf harðvítugrar baráttu gegn Sjálf- stæðisflokknum fyrir að sitja á svikráðunf við sjálfa „nýsköpun- ina“ og svo auðvitað sjálfstæði lands og þjóðar. í grein, sem tekur mestan hluta forsíðunnar í blaðinu 2. þ. m., segir undir fimm dálka fyrir- sögn, að „afturhaldið sé farið að sýna tennurnar og heimti slit stjórnarsamvinnunnar og ný- sköpunina drepna!“ Síðan segir blaðið: „Afturhaldið var ekki lengi að kasta grímunni eftir kosningarn- ar og sýna hver tilgangur þess var með níðinu í kosningabar- áttunni um Sósíalistaflokkinn og sérstaklega um Sovétríkin. Heildsalablaðið Vísir krefst þess í nafni 11000 kjósenda Sjálf- stæðisflokksins að stjórnarsam- vinnunni sé tafarlaust slitið og þar með nýsköpunin eyðilögð og árás hafin á alþýðu landsins. Og lætur blaðið nú allófriðlega og kveður menn ekki rnúnu una því í Sjálfstæðisflokknum, ef ekki sé nú tafarlaust látið að kröfum þessum. Fyrirskipar blaðið Al- þýðuflokknum að fara tafarlaust úr ríkisstjórninni og gerir það svo röggsamlega sem húsbóndi væri að skipa lntndi að snauta út. — Það er eftir að sjá hvort hann hlýðir. Það er engum blöðum um það að fletta hvað hér er að gerast: I-Íeildsalahyskið — sem ekki hefir látið sér nægja að arðræna þjóðina vægðarlaust undanfarin ár, heldur hefir stolið af henni þar að auki, — hyggst nú að hefja allsherjar árás á lífskjör fólksins og stöðva nýsköpunina, sem þet-ta liyski hatar eins og pestina. Þessi forríka, he iínska*gróðasté11 hefir að dænii annarra lélegra yfir- stétta ofmtetnast nú svo af varn- arsigri sínum, að hún hyggur stundina kornna til þessaðbrjóta verkalýðshreyfinguna á bak aft- ur í eitt skipti fyrir öll, — eins og Vísir hefir heimtað undanfarið. Þessir huglausu vesalingar, sem voru nteð hjartað í buxunum og kölluðu upp þremur dögum fyrir kosningar: — „Úrslitin geta oltið á einu atkvæði“, — hafa nú drukkið í sig kjark hýenunnar, — en aðgæta jrað bara ekki að Jteir eru ekki staddir í neinunt val, heldur gagnvart harðsnúnu liði: verklýðsstétt Jressa lands. Nú sést það gegn hverju var stefnt með sovétníðinu og lát- lausum lygum fasistalýðsins við Vísi og Morgunblaðið unt Sósíal- istaflokkinn. Það var stelnt gegn stjórnar- samstarfinu, nýsköpuninni, hinu markvissa starfi að bættum kjör- um alþýðunnar. Hver lýgi Morgunblaðsins og Vísis um Sovétríkin var rýtingur, rekinn í markvisst endurbóta- starf Jrjóðliollustu kraftanna á íslandi. Hvert ókvæðisorð um Sósíal- istaflokkinn var ætlað til þess að rífa stein úr þeim grunni, sem stjórnarsamstarfið og nýsköpun- in byggist á. Og hver er tilgangur Jressara þokkapilta, sem þarna eru að verki, — afdankaðra nazista- agenta, sem ekki geta þjónað Hitler lengur, af því völd nazism- ans eru Jrrotin? Tilgangurinn er auðsær: Landráðalýðurinn við Vísi og Morgunblaðið, sem alltaf hefir verið reiðubúinn til J>ess að sel ja landið J>ví stórveldi, sem hann í svipinn hefir bezt treyst til J>ess að níðast á íslenzkri aljtýðu, vill nú frjálsar hendur til að geta svikið ísland í hendur Banda- ríkjanna. Og hann heldur að tírninn sé kominn, fyrst íhaldið beið ekki algeran ósigur f bæjarstjórnar- kosningunum í Reykjavík: Þessi heildsalalýður hatar Sós- íalistaflokkinn af því hann hefir alhindranin gegn því að land- ráðafyrirætlanir }>eirra um að svíkja ísland í hendur Bandav :kj- anna geti tekizt. Þeir usu úr skálum þessa hat- urs síns fyrir kosningar og J>eir halda því áfrarn nú, því lygaher- ferð þeirra var gerð í ákveðnum tilgangi, sem þeir nú hafa birt: þeim að eyðileggja stjórnarsam- starfið og stjórnarstefnuna. Það er eftirtektarvert að Al- j>ýðublaðið tekur þegjandi þeirn fyrirskipunum, sem Vísir gefur því í gær um að hypja sig úr rík- isstjórninni. Al]>ýðublaðsklíkan hefir eins og menn vita alltaf verið fjandsamleg nýsköpuninni og ríkisstjórn hennar og dreymir unj þjóðstjórnarsvívirðinguna, J>egar J>essi hatursfulli hópur geti aftur fengið að svala sjúk- legri lund sinni. Það er ekki síður eftirtektar- vert, hve greinilega Morgunblað- ið samþykkir með áframhald- andi níði og lygum um Sósíal- istaflokkinn, þá stefnu, sem Vís- isafturhaldið nú fyrirskipar. — Morgunblaðið mótmælir ekki með einu orði því að kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafi með at- kvæðum sínum krafist sam- vinnuslita og J>ess að nýsköpun- in væri drepin. Það er talandi tákn J>ess hve ájneifanlega fas- istaskríllinn, — hinir gömlu hakakrössmerktu ritstjórar naz- istamálgagnsi'ns „lslands“, — hafa tekið forustuna fyrir þessu heildsalablaði nr. 2. íslendingar! Verið á verði! Peningaskríll Reykjavíkur, sem hyggst að selja landið Banda- ríkjunum, lætur nú leigusveina sína við máltaól sín, Morgun- blaðið og Vísi, undirbúa land- ráðin af fullum krafti! Ef þjóðin ekki tafarlaust tek- ur í taumana, er nýfengnu frelsi voru hætta búin. Ljáið landráðalýðnum ekki meiri tök en hann J>egar liefir fengið. . . .“ * Þetta voru orð „Þjóðviljans" um samstarfsflokka kommúnista í ríkisstjórninni. Þeir kunna að koma orði fyrir sig, piltarnir þeir. En hver er svo tilgangurinn með þessum ofboðslegu skrifum? í síðasta blaði var greint frá skoðunum ýmsra Alþýðuflokks- manna um J>að, að stjórnarsam- starfið væri á fallandi fæti vegna J>ess, að stjórnin væri búin að draga dýrtíðar- og fjármálavand- ræðin saman í hnút, sem ekki yrði leystur af núverandi stjórn- arflokkum. Kommúnistum er ekki síður kunnugt um þetta en öðrum stjórnarsinnum. Þeir sjá fram á að stjórnarsamstarfið muni rofna innan skamms, blátt áfram af J>ví, að stjórnin getux ekki leyst þau vandræði, sem stjórnarstefnan er búin að koma þjóðarbúskapnum í. Þeir búast vítugu flokkabaráttu, sem nú hefir staðið látlaust — í blöðun- um — síðan í haust. Kommúnist- ar eru „praktiskir" menn og ]>eir gera sínar ráðstafanir í tírna. — Þeir ætla ekki að taka á sig ábyrgðina af skipbroti „nýsköp- unarinnar", heldur ætla J>eir að græða á því — flokkslega. — Það á að kenna Sjálfstæðis- flokknum (o'g Alþýðufl.) um ófarirnar — hann hefir svikið „nýsköpunina" og til þess að tryggja framkvæmd stjórnarsátt- málans frá því í fyrra, verða kjós- endurnir því að styðja kommún- ista! . Þetta er kjarninn í Þjóð- viljagreininni hér að framan. Kommúnistar vita að stjórn- arskútan er að sökkva. Þeir eru þegar „komnir í bátana“ og bú- ast til ]>ess að róa lífróður frá flakinu. Þeir ætla ekki að bjarga skipbrotsmönnum Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksins, heldur sigla hraðbyri til lands, kenna sam- starfsmönnum um lekann og bjóðast til ]>ess að stjórna nýrri „nýsköpunarskútu" eftir næstu kosningar. Hvað lengi -ætla kjósendur stjórnarflokkanna að láta flokks- forsprakkana í Reykjavík hafa sig að ginningarfíflum? Húsavíkurbréf Við hréppsnefndarkosningar þær, sem hér fóru fram 27. jan. sl„ komu fram tveir listar. studdu þrír pólitísku flokkarnir A-listann, en kommúnistar B- listann. Jafnframt fór fram kosning á einum manni í sýslunefnd og tveimur í skólanefnd. Úrslit hreppsnefndarkosninganna urðu þáu að A-listinn fékk 349 atkv. og fimm, menn kjörna, J>á Karl Kristjánsson, Einar J. Reynis, Ingólf Helgason, Jón Gunnars- son og Júlíus Havsteen. B-listinn fékk 202 atkv. og tvo menn kjörna, þá Ásgeir Kristjánsson og Þór Pétursson. Við sýslunefndarkosninguna fékk A-listinn 330 atkv. og einn mann kjörinn, Karl Kristjáns- son. Við skólanefndarkosning- una fékk A-listinn 330 atkv. og tvo me'nn kjörna, þá séra Friðrik A. Friðriksson og Sigurjón Ár- mannsson. B-listinn fékk 160 at- kv. og engan niann kjörinn. Nokkru fyrir kosningarnar hófust umræður milli allra flokka um sameiginlegan lista og eina stefnuskrá, sem hrepps- nefnd skyldi öll vinna fyrir næsta kjörtímabil. Samkomulag náðist stra>omeð tölu fulltrúa frá liverjum; flokki á listann. Skyldu kommúnistar hafa þrjá, Fram- sóknarmenn tvo, Sjálfstæðis- menn einn og jafnaðarmenn einn. Um flest virtist gott sam- konnilag, og útlil fyrir að engar kosningar færu hér fram. En Adam var ekki lengi í Para- dís. Á síðustu stundu rufu konnn- únistar J>etta samkomulag og báru fram sinn lista. Má vel vera að }>eir hafi aldrei meint neitt með þessu, en gengið bara til ]>essara samninga á refaklóm. Daginn fyrir kosningarnar létu kommúnistar blað sitt „Þingey“ koma út og gáfu hverj- um sem hafa vildi. Af yfirlögðu ráði var blaðið láta koma svona seint til kjósendanna, svo að eng- inn gæti borið hönd fyrir höfuð sér, hvað þungum sökum sem hann væri þar borinn. Minnir þessi aðferð komrnún- istanna hér vel á vinnubrögð kvenkápubraskarans frá Siglu- lirði, J>egar liann notaði ræðu- tímja sinn í útvarpinu sl. haust til að ráðast með svívirðingum á menn sem enga aðstöðu höfðu til að svara þar fyrir sig. Blað þetta, sem kommúnistar báru hér út og gáfu laugardag- inn 26. jan. var hvort tveggja í senn ógeðslegt áróðursplagg og eitt stórt neyðaróp til kjósend- anna að duga nú vel á morgun. Og allstór hópur kjósenda fór og kaus eins og „Þingey“ sagði fyrir. Úrslit kosninganna hér kom öllum á óvart. Kommúnistar töldu sér meirihlutann vísan, en allir hugsandi menn töldu aftur á móti að A-listinn mundi fá 4 menn en B-listinn 3. Sennilega hefir þetta blað af „Þingey“ átt drjúgan ]>átt í }>ví að gera sigur A-listans jafn glæsilegan og raun varð á. Á mánudagsmorguninn 28. jan., þegar landssíminn var opn- aður, barst A-listanum í Húsavík eftirfarandi símskeyti frá merk- uin bónda: „Hryntu heimsvanda hetjur slyngar. Njótið heilir handa, Húsvíkingar!" 1. febrúar 1946. Sjónaukar Skipsklukkur Skriðmælar (logq) og margt fleira til skipa Kaupfélag Eyfirðinga Járn- og glervörudeild. XH><H!H!H!H!H!H!H><HJHÍHIH!HÍH><H!H!H3<H!H!HCH CHKB>mH><H><H><HKH><HKHKH><H><H>mKHS<HS<H><HKHKH><B><H><H><H!HK«HWH: Húsmæðraskóli Akureyrar áður fyrr aflijúpað- þjónustu ,því við áframhaldi þeirrar harð- heldur skemmtikvöld að Flótel Norðurland sunnudag- inn 17. }>. m„ kl. 8.30 e. h„ til ágóða fyrir ferðasjóð skólans. — Aðgöngumiðar seldir á staðnum sama dag, frá kl. 3—5 e. h. og við innganginn. KKHK1<HKHKHKBKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKH3<HKHKHKHKHKHKHS<HKK

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.