Dagur - 14.03.1946, Qupperneq 3
Fimmtudagur 14. marz 1946
3
— Erlend tíðindi
(Framhald af 2. síðu).
Ólafur ekki fylgismaður and-
amerísku stefnunnar!
Daginn áður, eða 25. febr.,
hafði blaðamaðurinn lýst því í
blaði sínu, að Ólafur Thors
væri ekki „liðsmaður and-amer-
ísku stefnunnar, sem komrnún-
istar reka. 1 sérstöku samtali lét
hann í ljósi mikla vinsemd í garð
Bandaríkjanna og trú sína á því,
að Bandaríkin mundu vernda ís-
land. En þegar hann var spurður
að því, hvort hægt mundi að
framlengja herverndarsáttmál-
ann í eitt ár, svaraði hann: „Það
er hin óleysta gáta“.“
Lykill varnarkerlis.
Enn segir blaðamaðurinn:
„Her- og flotasérfræðingar
Bandaríkjanna hér eru allir á
einu rnáli unr það, að Island sé
mjög mikilsverður staður í
radar-, loft-, sjó-, eldflauga- og
atómsprengjuvarnarkerfi. Þeir
halda því fram, að því aðeins eigi
að flytja herinn brott, að aðrar
Jrjóðir afskrái her sinn jafn hratt
og Bandaríkin og Bretland.“
Hve íjölmennt er starfslið
Sovét-sendiráðsins?
Blaðamaðurinn rekur síðan
hvernig viðskipti Bandaríkjanna
og Islands jukust á stríðsárunum
og segir síðan: „Rússland hefir
engin viðskipti, sem máli skipta,
við ísland. Eigi að síður hefir
Rússland, síðan stríðinu lauk,
fjölgað starfsliði sínu á Islandi
langt fram yfir Jrað, sem nauð-
synlegt er vegna starfsins. Sem
stendur eru þeir fjölmennari en
okkar sendisveit og starfslið okk-
ar er 18 talsins.
Verða Bretar kyrrir?
Blaðamaðunrinn ræðir fregn-
ina um að Bretar séu að yfirgefa
flugvöllinn í Reykajvík, og telur
hana ekki rétta. Segir síðan: „í
jstað jress að hverfa á brott verða
nokkur hundruð hermenn, bæði
í einkennisbúningi og borgara-
legum klæðum, kyrrir, en komm-
únistar hafa kosið að láta sem
þeir viti ekkert um þessa stað-
reynd, en snúa geiri sínum að
Bandaríkjunum. Erling Elling-
sen, flugmálastjóri, var augsýni-
lega hálf órólegur, Jregar eg
heimsótti hann og spurðist fyrir
um hina orðurn auknu fregn um
brotthvarf Bretanna. Hann ját-
aði að fregnin væri ekki rétt, og
sagði: „íslendingar ætla að reka
Reykjavíkurllugvöllinn og eru
líka undir það búnir að taka við
Keflavíkurflugvellinum. En
Bretar munu hafa hér æfingalið,
nokkur hundruð menn, til Jjess
að kenna íslendingum flugvall-
arreksturinn. Við gerum einnig
ráð fyrir að fá brezka menn til
jtess að starla hér að þessum mál-
um í eitt ár eða tvö.“ 'Hann hélt
Jr\'í fram, að hann sæi enga
ástæðu til að Ameríkumenn
yrðu kyrrir í Keflavxk, þrátt fyrir
Jxá staðreynd, að flugvöllurinn
þar er miklu stærri og erfiðari í
rekstri en Reykjavíkurvöllurinn.
Keflavíkuiflugvöllurinn er eini
völlur landsins, sem getur af-
greitt stórar spiengjuflugvélar,
af þeii'ri gerð, sem hægt væri að
nota til árása á borgir Norður-
Ameríku. Völlurinn kostaði 22
rnillj. dollaia og er langsamlega
mikilsverðasta stöð Bandaríkj-
anna á íslandi.“
Það, sem hér hefir verið rakið
úr Jxessum hugleiðingum blaða-
mannsins er lauslega jxýtt. —
Greinar hans eru miklu lengri,
m. a. rekur hann allýtarlega orð-
bragð Þjóðviljans, er hann var
að lýsa innræti samstarfsmanna
sinna í ríkisstjórninni 2. febr. sl.
og birtir langt samtal við Ólaf
Thois, þar sem forsætisráðherr-
ann lætur í ljósi von sína um
vinsamleg samskipti Bandaríkj-
anna og íslendinga í framtíðinni.
Það er ánægja á heimilinu þegar
sýnd eru skilríkin fyrir því, að
allt sé tryggt, sem tryggt verður.
TRYGGIÐ EIGUR YÐAR,
og veitið heimilinu ánægju og öryggi.
Talið við
Vátryggingadeild
DAGUR
Árni Friðriksson
lyrrunr bóndi á Skáldalæk, vax’
borinn til grafar frá Akureyrar-
drkju sl. föstudag, því nær 84
ára ' að - aldri (f. 3. júní 1862).
Hann var fæddur í Tjarnar-
garðshorni í Svarf'aðardal (nú
Laugahlíð) en ólst að mestu upp
Brekkukoti, Jxar sem foreldrar
xans bjuggu urn langt skeið, og
xar var Sigurbjörn bióðir lians
æddur, sem einnig var hér til
grafar borinn fyrir fáum vikurn.
Mun nú aðeins eitt af hinum
stóra systkinahóp á lífi, Anna, er
dvelur hjá syni sínum á Hver-
xóli í Svárfaðardal.
Foi'eldrar systkina þessara
oru Friðrik Jónsson, annálaður
dugnaðannaður og harðjaxl, og
Guðrún Björnsdóttir, greind
kona, fíngerð og listhneigð, og
lifði hún fram um sl. aldamót.
Öll voru Jxessi systkin frá
Brekkukoti miklir dugnaðai-
örkar, vel gefin og viljasterk, og
xinir ágætustu Jxegnar. Þó hefir
Árni sennilega skarað fram úr að
öri og lífsgleði, er aldiei skildi
við. hann. Mátti með sanni segja
að hvert verk léki í hendi hans.
Og hjálpsemi lians og greiðvikni
var viðbrugðið, enda var oft leit-
að til hans er skjótra aðgerða var
xörf, því liann var bæði óvenju-
lega skjótráður og þá ekki síður
hitt, að liann var slíkur garpur
lil ferðalága, að íxieð eindæmum
xótti, og var hverju erindi ágæt-
lega borgið í höndum lians.
Hann mun og eigi sjaldan hafa
fengið að kenna á því mikla
trausti, er menn báru til hans, og
kunna þeir einir að meta slíkt,
sem allar þær aðstæður Jxekktu
og vita hvers virði slíkir menn
voru Jxá því samfélagi, er Jxeir
lifðu í. Enda mún það sannast
sagna um Árna Friðriksson, að
hann hafi fórnað miklu af sinni
geysilegti lífsorku til þess að lið-
sinna öðrum, og verður varla á
betra eftirmæli kosið. Hann var
og hinn nxesti drengskapaimað-
ur í hvívetna, vandaður og vin-
sæll. Árni var kvæntur Ingigerði
Zophóníasdóttur frá Bakka,
ágætri dugnaðarkonu og lifir
hún mann sinn. Þeim varð átta
barna auðið og lifa fimm af
Jxeim hóp, fjórir synir og ein
dó ! ir.
Sn. S.
Rafmagn frá Laxárvirkjuninni
um allt Norðurland!
Þingsályktunartill. frá 9 þingm. Norðlendinga
Níu þingmenn Norðlendinga flytja Jxingsályktunartillögu
í sameinuðu þingi um rafveitu Norðui'lands. Er tillagan þess
efnis að fela ríkisstjórninni að hiaða áætlunum um virkjun
Laxár. er nxiðist við að lullnægja ralorkujxörf Norðurlands.
Ennfrémur aðalla tilboða í háspennulínur um Þingeyjarsýsl-
ur báðar og síðan vestur á bóginn, allt til Húnavatnssýslna.
Þessi tillaga kemur Akureyringum, sem Jxekkja núverandi
Laxárvirkjun og trullanir Jxær, sem ekki erxi ótíðar af völd-
um vatnsskorts í ánni og al ýnxsunx öðrum ástæðum, m. a.
vegna hinnar löngu háspennulínu yfir heiðar — uixdarlega
lynir sjónir. Eigi að síður er Jxess að vænta að rannsókn sér-
fræðinga á þessuixx nxálunx fari fram og úr því fáist skorið,
lxvort möguleikar séu þarna fyrir hendi til stórfelldrar virkj-
unar fyrir allt Norðurland. — Þrátt fyrir Jxessa tillögu sýnist
sjálfsagt að hraða þeim undirbúningi, sem Akureyrarbær lxef-
ir Jxegar hafið til Jxess að auka virkjun sína við Laxá, einkum
með þarfir bæjarfélagsins í lxuga.
S$<hKh><h>x>&x>xxxsx>xsxkhSxKh><h>x>)>x><h><h>x><h>^^
Innilega þakka eg ykkur öllum, sem heimsóttuð mig,
íserðuð mér éjaíir, og senduð mér skeyti, eða glödduð mig á
annan hátt á 70 ára aímæli mínu, 8. þessa mánaðar.
Veigastöðum 11. marz 1946.
KRISTJANA HALLDÓRSDÓTTIR.
með 2 kveikjum
kr. 35.00.
OLÍUOFNAR
kr. 44.00.
OLÍULAMPAR
kr.4.50-8.75.
BÓNKÚSTAR
nýkomnir.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Fyrir dömur:
NÁTTKJÓLAR
. UNDIRFÖT
NÆRFÖT, ull, bómull og silki
BRJÓSTAHALDARAR
SOKKABÖND
SOKKAR, silki, ísgarn og bómull
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
V ef naðar vörudeild
Chw>x>x>x>x>x>x>x>xkhkh>x>x>x><h>x>x>x>w><h>x><h>x>x^^