Dagur - 09.05.1946, Blaðsíða 6
6
D A G U R
Fimmtudagur 9. maí 1946
★ Ofar stjörnum ★
Saga eftir ÚRSÚLU PARROTT
Sttttttttttttttttttöttttttttttttttttttttö
Otttttttttttttttttttttttttttttttttttttt
18. dagur
(Niðurlag).
Hún hélt ájjósmyndinni í hendinni og allt í einu fann hún viss-
una og öryggið, sem hún hafði verið að leita að. Minningunni um
brúðkaupsferð þeirra Dereks, þegar regnið buldi á bílþakinu og
hrundi af laufkrónum trjánna — skaut upp í huga hennar. „Eg vil
að aldrei verði neitt annað en sannleikur og hreinskilni okkar í
milli.“ Henni fannst, sem hún fyndi svalan vindinn frá Sussex-
hæðunum blása um vanga sinn og ljósa lokka Dereks liggja í kjöltu
sinni. Hún sá litlu, silfurlitu deplana fljúga yfir, liátt í lofti,
sígaunabarnið sofandi í kofa gömlu konunnar, loftvarnabyrgið í
kapellunni. Minningarnar svifu fyrir hugasjónum hennar, eins og
myndir á tjaldi. í síðasta sinn fann hún brennandi koss Drekes á
vörum sér. í síðasta sinn hljóp hún niður gangstíginn og í fang hans
og heyrði smellinn í klinkunni, þegar hliðið lokaðist á eftir honum.
Hún stóð á fætur og lagði einkennishnappinn, símskeytð, inn-
siglishringinn og þrjár ljósmyndir, í litla, svarta kassann á snyrti-
borðinu. Hún hélt ennþá á einni ljósmynd í hendinni.
Inni í herberginu hennar var lítill stálkassi, sem hafði að geyma
ýmsa dýrgripi og verðmæt skjöl, sem tilheyrðu henni og áttu að
verða heimanmundur hennar. Þessi kassi átti að geymast í banka og
hann mundi verða sóttur um hádegi. Klukkan var nú orðin hálf
tólf.
Gína Vale gekk út að glugganum, með ljósmyndina í hendinni,
og skoðaði ennþá einu sinni elskulegt og ástúðlegt andlit Dereks.
Hún talaði við hann og var sannfærð um, að á þessari stundu
mundi hann heyra til hennar og skilja allt.
„Eg get efnt loforð mitt, vinur minn,“ sagði hún, „eg get gleymt
og verið hamingjusöm, en með einu skilyrði þó. í tuttugu og fimm
ár skal eg standa við orð mín, vera hamingjusöm og elska eigih-
mann minn og börn — en öðruvísi en eg elskaði þig. Eg skal gera
mitt til þess að skapa þann heim, sem þig dreymdi um. En þegar eg.
verð gömul og þreytt — þá verður þú að leyfa mér að muna. Eg
mun þá segja manninum mínum, sem líka verður orðinn gamall,
og bwnabörnum rnínurn, frá enskum pilti, sem trúði á sköpun
þeirrar hamingju fyrir mannkynið, sem við þá munum lifa. Þess
vegna gleymist þú ekki, Derek, gleymist aldrei.“
Hún lét síðustu ljósmyndina ofan í litla, svarta kassanna og setti
hann síðan í stálkassann og læsti honum vendilega. Hún stóð fram-
an við snyrtiborðið og brosti framan í spegilmyndina. Faðir henn-
ar og amma komu inn í stofuna í þessum svifum og þau horfðu
undrandi á þetta bros, sem endurvarpaðist úr speglinum. Það lýsti
hamingju og innri ró. Þau voru hljóð andartak, af því að þau sáu
að Gína vissi ekki, að þau væru í herberginu.
En Gína sá ekki sína eigin mynd í speglinum. í síðasta sinn sá
hún andlit Dereks. Brosið var tileinkað honum. Það var kveðjan til
minninganna og hans.
SÖGULOK.
ÍNNILEGUSTU ÞAKKIR tlyt eg öllum, sem heiðruðu
mig með heimsóknum, gjöíum og heillaskeytum á 60 ára aí-
mæli minu, þann 29. apríl sðastliðirm. — Liiið heil.
ÓLAFUR TRYGGVASON, Dagverðartungu.
ttJttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttí
Uppboð
Eftir kröfu skiptaráðandans á Akureyri verður m.s. Edda
E.A. 744 eign þrotabús Ferdinand Eyfeld, útgerðarmanns
á Akureyri, seld við opinbert uppboð, er fram fer um borð
í skipinu, þar sem það liggur við Ægisgarð í Reykjavíkur-
höfn, laugardaginn 18. þ. m. kl. 2 síðd.
Söluskilmálar, veðbókarvottorð og önnur skjöl snertandi
söluna verða til sýnis hér í skrifstofunni.
Jarðariör mannsins míns,
Gunnars Larsens,
framkvæmdastjóra, fer fram föstudaginn 10. þessa mánaðar frá
Akureyrarkirkju, og heíst kl. 1.30 eftir hádegi.
Hólmfríður Larsen.
HJARTANS ÞAKKIR til allra, er sýndu samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför Aðalheiðar Baldvinsdóttur frá Kjarna.
Guð blessi ykkur öll!
Helgi Valdemarsson og börn.
Hjhtttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttt
Höfum fengið nokkur stykki af
sérstaklega léttum og góðum
Barnavögnum
Verðið er aðeins kr. 270.00 og 360.00.
Einnig Barnarkerrur og Barnaþríhjól.
VERZLUNIN VÍSIR, Skipagötu 12. —
Qttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttatttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttt<
ttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttí
Höfum nýlega fengið
Strigaskó
með gúmmísólum,
nr. 24—33.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Skódeild
HBJtt^BJttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttJOttttttttttttÖttttttttttOtttttttttt^
Úflendi aburðurinn
er kominn. — Þeir, sem pantað
hafa vitji hans sem fyrst.
Kaupfélag EyfirÖinga
CHjvtttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttt>KBJtttttttttttttt<
NÝKOMIÐ:
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
6. maí 1946
Kristján Kristjánsson.
NOTIÐ SJAFNAR-VORUR
HANDKLÆÐI, hvít
REKKJUVOÐIR
KODDAVER
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild.
rVo^vwVVVVVVVVVOiOA'VVWVWVVWVWWVWVWVVVVVfWWVVfVrvruwvvvVMVVVi
Píanóhengsli
Fatasnagar
Skáphúnai
„ margar tegundir
Skáplokur
Skúffuhandföng
margar tegundir
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Bambusstangir
15 feta
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild
AUGI.ÝSING
Þessi númer hlutu vinninga í
happdrætti U. M. F. „Gaman og
alvara“:
Nr. 383 Fjögra manna tjald og
svefnpoki. — Nr. 878 Göngu-
skíði með bindingum. — Nr.
1132 Verk Einars Kvaran í
bandi. — Nr. 1300 Tveir stólar.
— Nr. 1375 Flugferð milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur og til baka.
Vinninganna skal vitja til
Baldvins Baldurssonar, Ófeigs-
stöðum, S.-Þing, fyrir 1. júlí
1946.
STJÓRNIN.
Mandlige og kvindelige
Plejeelever
i Alderen 20—28 Aar kan
antages.
Lön i Elevaaret Kr. 100.00
—105.00.
Skema til Ansögning kan
rekvireres paa Hospitalet.
Sindssygehospitalet i Nyköbing,
Sjælland, Danmark.
MUNIÐ:
MIKIÐ ÚRVAL AF
ALLS KONAR
SNYRTIVÖRUM
Stiörnu Apótek
GULLARMBAND
hefir tapast á leiðinni frá Gud-
mannsverzlun að Hafnarstræti
33. — Finnandi vinsamlega
skili í Gudmannsverzlun gegn
fundarlaunum.