Dagur - 09.05.1946, Síða 8
8
D A G U R
Fimmtudagur 9. maí 1946
tr 1
Úr bæ og byggð
I. O. O. F. — 1285108V2 —
KIRKJAN. Messað á Akureyri n.k.
sunnudag kl. 11 f. h._(60 ára-minning
unglingareglunnar á Islandi).
Fermingarmessur í MöðruvallakL-
prestakalli: Á Bægisá sunnud. 19.
maí, á Bakka sunnud. 26. maí, á
Möðruvöllum Uppstigningardag, 30.
maí, og í Glæsibæ sunnud. 2. júní.
Messurnar hefjast allar kl. 1 e. h. og
verða með altarisgöngu.
Messað verður á Möðruvöllum í
Hörgárdal næstkomandi sunnudag,
12. þ. m., kl. 11 f. h. Kristniboðsfélag
kvenna á Akureyri heimsækir staðinn
og séra Sigurður Guðmúndsson á
Grenjaðarstað prédikar.
Zíon. Sunnudaginn 12. þ. m.; Sunnu-
dagaskólinn kl. 10.30 f. h. — Almenn
samkoma kl. 8.3 Oe. h. a— Allir vel-
komnir. (Ólafur Ólafsson, kristniboði,
talar á samkomunni á sunnudaginn
kl. 8.30 e. h.).
Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu hefir
verið haldinn hér í bænum þessa viku.
Verður væntanlega lokið í kvöld.
Brezka skipið RAMAVA losar her
þessa dagana 800 lestir af sementi, á
vegum SÍS og KEA.
Barnastúkurnar á Akureyri minn-
ast 60 ára afmælis Unglingareglunnar
á íslandi næstkomandi sunnudag, 12.
maí, eins og hér segir:
Kl. 10 árd. mæta félagar barna-
stúknanna og aðrir templarar við
Skjaldborg og ganga í hópgöngu um
nokkrar götur bæjarins að kirkju. —
Kl. 2 síðd. verður hátíðafundur í
Ráðhúsi bæjarins. Fundarefni: Stutt
ávörp. Leiksýning. Telpnakór syngur.
Upplestur. Sýnd kvikmynd frá bama-
skóla Akureyrar (Litlu jólin). Skraut-
sýning.
Þess er eindregið óskað, að sem
allra flestir félagar barnastúknanna
mæti bæði við skrúðgönguna, guðs-
þjónustuna og á hátíðafundinum, svo
og aðrir templarar á staðnum — og'
mæti stundvíslega. Félagar úr barna-
stúkunni Von í Glerárþorpi eru vel-
komnir á fundinn.
Stúkan Ísafold-F jallkonan nr. 1
heldur fund í Skjaldborg næstk.
þriðjudag, 14. maí, kl. 8.30 síðdegis.
Fundarefni: Venjuleg fundarstörf..—
Skýrsla embættismanna. — Mælt
með umboðsmanni Stórtemplars,
fræðslustjóra, gæzlumanni löggjafar-
, starfs og gæzlumanni ungtemplara. —
Kosnir fulltrúar á Stórstúkuþing o. fl.
Til skemmtunar: Sjónleikurinn Inn-
brotsþjófurinn o. fl. Nýir félagar vel-
komnir. Félagar fjölmennið.
Áheit á Strandarkh^ju: Kr. 10.00
frá N. N.
Leiðrétting. í upphafi frásagnar-
innar um aðalfund Kf. Þingeyinga, í
síðasta tbl., misprentaðist að þetta
væri 60. fundurinn, rétt er 65. aðal-
fundur félagsins.
Tvær nýjar bækur frá Máli og
Menningu eru komnar norður. Eru
það skáldsagan „Salamöndrustríðið"
og 1. hefti Tímaritsins. Félagsmenn
vitji bókanna í bókaverzl. Pálma H.
Jónssonar.
Sextugur verður á morgun Sigurgeir
Jónsson, skipasmiður, frá Vík, til
heimilis í Fróðasundi 6 hér í bænum.
Húsmæðraskólafélaé Akureyrar
heldur aðalfund að Hótel Akureyri
mánud. 13. þ. m. Verður rætt um
heimavist við skólann, flutt skýrsla
um starf félagsins sl. ár, og birtir
reikningar. Kaffi á staðnum.
Knattspyrnu- og handknattleiksæf-
ingar íþróttafélagsins Þórs eru að
hefjast. Nánar auglýst í blaðinu í dag.
Dansskemmtun og hlutavelta verð-
ur í þinghúsi Öngulsstaðahrepps, að
Þverá, næstk. laugardagskvöld, að til-
hlutun Kvenfél. Aldan. Hefst kl. 9.30
e. h. Veitingar.__________________
VIL SELJA
FÓLKSBIFREIÐINA A-33,
Studebaker ’36. Bifreiðin er
í ágætu lagi, með nýupp-
gerðri vél.
Upplýsingar gefur
STEINÞÓR HELGASON,
Sími 253.
Ársþing íþróttabandalags
Akureyrar.
(Framhald af 1. síðu).
lega að málinu, en frestaði
ákvörðun og kaus nefnd til frek-
ari athugana á málinu. í henni
eiga sæti þessir menn: Tryggvi
Þorsteinsson, íþróttakennari,
Hermann Stefánsson, íþrótta-
kennari og Ármann Dalmanns-
son, form. IBA.
íþróttamót.
Gerð var áætlun um íþrótta-
mót hér í sumar. Þessi verða
helzt: 25. maí: Knattspyrnumót
3. fl. og 1. fl. 6.-7. júní: Afmælis-
mót Þórs. 10. júní: Hvítasunnu-
hlaup. 16. júní: Meistaramót í
knattspyrnu. 17. júní: 2. fl. mót
í knattspyrnu. 22.-23. júní:
Handknattleiksmót Akureyrar.
Óskað eftir íslandsmóti í hand-
knattleiksmóti kvenna. 3.-4.
ágúst: Handknattleiksmót Norð-
urlands. 16. og 18. júlí: Frjáls-
íþróttamót drenga. 24.-25.
ágúst: Sundmót Akureyrar. í
september hefjast síðan haust-
mótin í knattspyrnu í öllum
flokkum.
Líklegt má telja, að tvö kapp-
lið á vegum ÍBA fari á íslands-
mótið í knattspyrnu í þessum
mánuði, í Reykjavík. Þá er og
gert ráð>fyrir að ísfirzkir íþrótta-
menn heimsæki bæinn í iúní.
Þingið ræddi og gerði ályktan-
ir í íþróttavallarmálunum, um
íþróttahúsið o. fl.
Stjórn bandalagsins skipa: Ár-
mann Dalmannsson, form.,
Bjarni Halldórsson, Hermann
Stefánsson, Tryggvi Þorsteinsson
og Árni Sigurðsson.
Ungur Norðlendingur í
heimsfrægri hljómsveit.
(Framhald af 1. síðu).
andi yrði lánaður hljómsveitinni
til þátttöku í fyrirhugaðri
hljómleikaferð. Skólinn út-
nefndi Egil til fararinnar. Er
þetta mikil viðurkenning á hæfi-
leikum Egils og dýrmæt reynsla
fyrir hann á listamannsbraut-
inni.
------ ■ ■ ■ ""-i
SÍTRÓNUR
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.
Skipakaup Sambandsins.
(Framhald af 1. síðu).
samvinnufélaganna: vöruflutn-
ingar með eigin skipum. Víst má
telja, að hið nýja, glæsilega skip,
verði aðeins upphaf þeirrar starf-
semi og að samvinnufélögin
muni brátt verða áhrifamikill
aðili um flutningamál landsins
til ómetanlegs gagns fyrir þjóð-
ina í heild og þó sérstaklega fólk-
ið úti um byggðir landsins. Sigl-
ingáleysið undanfarin ár og fyr-
irkomulag hefir verið fjötur um
fót öllu athafnalífi landsmanna.
Viðreisnin, sem koma þarf, verð-
ur ekki framkvæmd nema með
sameiginlegu átaki. Skipakaup
Sambandsins mun verða fyrsti og
þýðingarmesti þátturinn í því
starfi.
Akureyringar fara til Italíu.
Tveir Akureyringar eru þegar
farnir héðan áleiðis til ítalíu til
þess að vera við niðursetningu
véla og síðasta frágang hins nýja
skips. Eru það þeir Sverrir Þór,
skipstjóri, og Ásgeir Árnason,
vélstjóri.
Sx$xSx$x$xíxS>3><MxS>«*®*M*S*S>«><í*SxS><S><í^^
| Teppahreinsararnir
sænsku eru komnir.
iBÓNKÚSTAR
væntanlegir, tekið á
móti pöntunum.
IÁSBYRGI, Skipagötu
fjg Söluturninn HAMARST.
<S>3*M^*$>3^3>3x$x$x3xSxJxJ>^3>^<$x$x^>^>4>
N
KKHKBKHKBKBKBKh:tíBKBSttíBÍÍHÍtt
^BOLTAR,
RELLUR,
FLUGVÉLAR,
HRINGLUR
Éo.fl. handa börnunum.
[ÁSBYRGI, Skipagötu
>g Söluturninn HAMARST.
WKHWW>mKH«KHKH><HKm<H«HKHÍÍ
TILKYNNING
Þeir rafmagnsnotendur, sem
hafa bústaðaskipti 14. maí,
eru beðnir að tilkynna það á
skrifstofu rafveitunnar.
Nýkomið
Þvottavindur
Gormaklemmur
VeFat
ve
N,
ÚÚÚÍHKBKHKHKBKHKBKBKBKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKBKBKBKBKK
Knattleikaæfingar Pors
verða fynst um sinn, sem hér segir:
Mánud., miðvikud., föstud.: Handknattleikur kl. 7.30, I,—II.
fl. kvenna, kl. 8.30 III. fl. kvenna, kl. 9 I. fl. karla.
Þriðjud., fimmtud.: Knattspyrna kl. 7.30, III. fl., kl. 8.30, I.—
II. fl. Á laugard.: Knattspyrna, kl. 5, III. fl., kl. 6, I—II. fl.
Kennari er Grímar Jónsson.
íÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR.
KBKHKHKHKHKHKBKHKHKBKHKHKHKHKBKHKHKBKBKBKHKHKBKHKHKK
m<HKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK«BKBKt*
Aðvörun
Að gefnu tilefni eru menn minntir á, að eggjataka í
hólmunum og landi bæjarins, er stranglega bönnuð,
sbr. 6. gr. lögreglusamþykktar kaupstaðarins. Ennfrem-
ur er allt bæjarlandið og Pollurinn friðað fyrir skotum.
Akureyri, 8. maí 1946.
BÆJARSTJÓRI.
ÓtKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBK
Nýbyggingarráð út-
hlutar Akureyri
einum togara
Fyrir nokkru úthlutaði Ný-
byggingarráð 20 togurum af
þeim 30 skipum, sem ríkisstjóm-
in samdi um smíði á í Bretlandi.
Úthlutunin er þannig, að
Reykjavík og Hafnarfjörður (bæ-
irnir og einstakl.) hlutu 19 skip,
en Akureyrarbær 1 skip. Aðrir
staðir komu ekki til greina. Ak-
ureyrarbær hafði sótt um tvö
skip. Um afdrif síðara skipsins er
því óvíst ennþá, en þessi eini tog-
ari á að afhendast 28. febr. 1947.
Ungir Framsóknarmenn
stofna blaðaklúbb
Á fundi í félagi ungra Fram-
sóknarmanna nú nýlega, var
ákveðið að stofna blaðaklúbb. —
Fyrsti fundur klúbbsins er í
Rotarysal Hótel KEA n.k. mánu-
dagskvöld, kl. 8.30 síðd. — Þar
munu liggja framrni flest íslenzk
blöð og tímarit og auk þess
brezk-, amerísk- og Norðurlanda-
blöð. Umræður verða á eftir. —
AUir félagsmenn, og nýjir félag-
ar, velkomnir.
Jafnvel húsbóndinn
er liðtækur við matreiðsluna,
þegar þér notið
Gula bondiS og Flóru!
Gula bandið steikir bezt —
brúnar bezt