Dagur - 09.05.1946, Side 10
10
DAGUR
Fimmtudagur 9. maí 1946
%
Barnaskólanum slítið
703 börn stunduðu nám þar í vetur
Barnaskólanum á Akureyri var
slitið 4. maí sl. að viðstödd-
um tveimur elztu árgöngum
barnanna, kennurum og fjölda
foreldra. Flutti skófastjóri við
það tækifæri yfírlitsskýrslu um
störf skólans á skólaárinu og
margs konar athuganir í sami
bandi við það og var þeirn hluta
ræðu hans einkum beint til for-
eldra og annarra aðstandenda
barna í bænum.
í skólann settust 703 börn á sl.
hausti, og voru af því 118 nýnem-
ar. Frá námi og prófi nú forföll-
uðust 18 börn, en 3 fluttu burtu
á skólaárinu. Undanþágu frá
námi fengu 4 börir. Ársprófi
luku nú 570 börn, en fullnaðar-
prófi með lögmætum aldri 90
börn og 14 með aldursleyfi.
Hæsta einkunn í fullnaðarpróf-
inu var 9,44. Burtfararskírteini
fengu 2 börn, og kom annað
þeirra aðvífandi rétt fyrir prófið.
18 fullnaðarprófsbörn eiga eftir
að ljúka sundprófi, en 12 börn
hafa vottorð frá lækni um, að
þau megi ekki synda.
Matreiðslunám í skólanum
hafa stundað 95 stúlkur úr 6. og
7. bekk, og luku 51 þeirra prófi.
Skólinn á nú 140 lesbóka-
flokka með 5800 bindum alls, og
lesstofusafnið á um 400 bindi
bóka, og vantar alveg húsrúm til
þess að þessi söfn komi að þeim
notum, sem ætlað er.
Sþarisjóðsstarfsemi skólans hef-
ir mikið dregist saman í peninga-
flóði síðustu ára. Áður spöruðu
börnin og söfnuðu talsverðri
upphæð til fermingaráksins, er
oft virtist koma sér vel, en af
uppeldislegum ástæðum var
þessi starfsemi hafin fyrir 14 ár-
um. Taldi skólastjóri líklegt að
síðar myndi koma í ljós, að ekki
væri rétt að leggja slíka viðleitni
niður, þótt hún hefði lítinn byr
í bráðina.
Lýsi hafa öll börn fengið, sem
vildu og eyddust um 280 lítrar.
Fengu þau með lýsinu hráar gul-
rófur og að síðustu rúgbrauð, er
rófurnar þrutu, því að mjólk
fékkst ekki vegna pélaflöskuleys-
is.
Skýrslur lækna og hjúkrunar-
konu sýna að heilsufar í skólan-
um var í meðallagi yfirleitt.
Tannskemmdirnar eru alvarleg-
asti þáttur þessara skýrslna. Með
óvirka berkla reyndust 9 börn,
og einu þeirra varð að banna
nám. Óþrifakvilla höfðu 52 börn
í haust, en 25 í vor, kokeitlaauka
70 börn og sjóngalla 38. Ekkert
barn dáið.
Handiðjusýningu hafði skólinn
1. maí, og sýndi hún að börnin
vinna geysimikið af alls konar
munum, og sauma og prjóna
margvíslega hluti og flíkur.
Skólinn lagði í vetur sérstaka
rækt við að útskýra umferðaregl-
ur og aðra framkomtt á almanna-
færi fyrir börnunum.
Kristilegt starf í sunnudaga-
skólaformi höfðu nokkrir kenn-
arar með allmörgum deildunr
skólans undir stjórn skólastjór-
ans. Voru samkomur annan
hvorn sunnudag frá því í nóvem-
ber til marzloka.
Inn í skólann voru nú skráð
102 börn, en nokkur ókomin.
Að lokinm skýrslu um skóla-
haldið og ávarpi til aðstandenda
barnanna flutti skólastjóri
kveðjuorð til hinna brautsFráðu
barna. Nefndi hann þau börn
allsnægtanna og benti þeim á þá
miklu hamingju, er það gæti
haft í för með sér, en jafnframt
þá hættu, er í því felst.
Fundirnir í Þingeyjar-
sýslu
Undanfarna dága liafa alþing-
ismennirnir EySteinn Jónsson og
Jónas Jónsson mætt á flokks-
fundum Framsóknarmanna í
Suður-Þingeyjarsýslu og rætt um
ágreiningsmál, sem uppi eru
meðal flokksinanna þar. Fund-
irnir voru að Skógum í Fnjóska-
dal, Laugum og Húsavík. Auk
jress hafði Eysteinn Jónsson fund
í Höfðahverfi. Fundirnir voru
allir mjög fjölsóttir og fóru vel
fram. Auk alþingismannanna og
Steingríms Steinþórssonar, bún-
aðarmálastjóra, sem rnætti á sum-
um fundanna, töluðu margir
innanhéraðsmenn.
Andstæðingar Framsóknar-
manna breiða nú út alls konar
sögur um fundina. M. a. segir
Alþýðumaðurinn í fyrradag, að
„legið hafi við róstum“. Þessi
söguburður blaðsins er ósannur
með öllu og svo er um fleiri sög-
ur af svipuðum toga, sem breidd-
ar eru út meðal almennings víða
um landið.
Jarðræktarfél. Akureyrar
minnist 50 ára afmælis
Jarðræktarfélag Akureyrar varð
hálfrar aldar gamalt sl. sunnu-
dag, svo sem greint var frá í síð-
asta blaði. Afmælisins var minnst
með hófi að Hótel KEA. Aðeins
einn stofnendanna lifði afmælið.
Var það Ólafur Jónatansson,
járnsmíðameistari, og var hann
heiðursgestur félagsins í afmæl-
ishófinu. Stjórn félagsins skipa,:
Ármann Dalmannsson. Þor-
steinn Davíðsson og Jón G. Guð-
mann.
Garðleigjendur
hjá Akureyrarbæ!
Ný garðlönd í Kotárgörðum
verða afhent mánudaginn 13.
maí kl. 5—7 e. h.
Þeir garðleigjendur, sem eiga
lnisdýraáburð í hlössum, í görð-
unum á Oddeyri, ættu að hreyta
honum sem fyrst, því að plægt
verður þar næstu daga.
F. h. ræktunarráðunauts.
f 0 f
Bjarni J. Finnbogason,
Til viðtals í Skipagötu 1,
kl. 1—2, sími 497.
Til athugunar
Líkur éru til að jarðepli gangi til þurrðar
mjög bráðlega. Viðskiptamenn vorir ættu
því að birgja sig eftir því sem ástæður leyfa.
Höfum nú bæði úrvals- og fyrsta flokks
jarðepli. Sendum út um land ef óskað er.
Kjötbúð KEA
KhkbkhkbkhkhkhkbkhkhkhKhkhkhkhkhkhkhkhkhkbkhkhkbkhkh;
fil framleiðenda á félagssvæði KEA
Veitum eigi móttöku eggjum, smjöri
né kjöti á laugardögum.
KjötbúÖ
. Jí ú j n t n
Fimratudagskvöld kl. 9:
Líkn með þraut
Föstudagskvöld kl. 9:
Bófaborgin
í síðasta sinn
Laugardaginn kl. 6:
Tarzan og
skjaldmeyjarnar
Laugardaginn kl. 9:
Innrásin á Guadalcanal
í síðasta sinn
Sunnudaginn kl. 3 og 5:
Tarzan og
skjaldmeyjarnar
Sunnudagskvöidið kl. 9:
Stríðsfangar
1 Síðasta sinn
Góð harmonika
til sölu. Upplýs. hjá
KARLI ADOLFSSYNI,
Krabbastíg 4,
eftir kl. 6 á daginn.
Sokkaviðgerðarvél
til sölu. Afgr. vís,tr á.
Bókaskápar til sölu.
Stór, vandaður eikarspón-
lagður skápur, 10 mtr. hillu-
lengd. Lokaðir undirskápar.
Stór * hornskápur úr íuru.
10 mtr. hillulengd.
Afgr. vtísar á.
AÐALFUNDUR
HÚSMÆÐRASKÓLAFÉLAGS
AKUREYRAR
verður haldinn að Hótel
Akureyri mánudaginn 13.
þ. m. kl. 8.30 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Oólfteppi
3,75x2,80, nýtt, til sölu.
Upplýsingar í
Kaffibrennslu Akureyrar.
8TULKU
vantar okkur á Polyfotostof-
una. — Framtíðaratvinna.
JÓN & ^IGFÚS.
Bíll til sölu
Chervrolet-vörubifreið 2'/2 tonn,
ntodel 1941, í ágætu standi, til
sölu nú þegar.
Uppl. í benzínafgr. KEA.
DAGUR
Höfurn fengið
fóðurvörur frá
Mjólkurfélaginu
KÚAFÓÐURBLÖNDU
IIESTAFÓÐURBLÖNDU
HÆNSNAFÓÐUR, margar teg.
Tryggið yður Jieáar viður-
kendu fóðurvörur sem fyrst.
PÖNTUNARFÉLAG
VERK ALÝÐSIN S,
Akureyri.
PÍANÓ
til sölu og sýnis í húsgagna-
vinnustofu
Þórðar A. Jóhannssonar &: Co.
í kvöld og annað kvöld
milli kl. 8 og 9.
Súkkulaði,
í kössum, 1 kg., Yz kg. og
kg. — Mikið úrval af
sælgæti í pokum.
GUÐRÚN FUNCH
RASMUSSEN.
Auglýsing
Það tilkynnist hér með að
strangt bann er lagt við því, að
flytja inn í Saurbæjarhrepp —
án samþykkis dýralæknis og
hreppsnefndar — kýr, eða ann-
an búfénað, úr þeim sveitum
sem garnaveiki hefur geysað,
eða grunur leikur á, að hún geti
verið komin til.
HREPPSN EFN D
SAURBÆJARHREPPS
fæst keyptur í
Verzl. Baldursbaga,
Bókabúð Akureyrar
Bókaverzl. Eddu og
Verzl. Hrísey
Friðun bæjarlandsins. Talsvert hef-
ir éorið á þvx undanfarið, að skot-
menn úr bílum hafi rofið friðun bæj-
arlandsins, sérstaklega í nágrenni
Eyjafjarðarár, meðfram veginum. —
Endur voru farnar að setjast að við
ána og kílana, en eru nú fældar burt.
Auk þess að vera brot á bæjarreglu-
gerðinni, er þessi hernaður brot á
landslöéum, því að andategundir þær,
sem þarna hafast við, eru alfriðaðar
frá 15. apríl ár hvert. — Bæjarmenn
ættu að taka höndum saman til þess
að halda friðuninni í heiðri og kæra
umsvifalaust þá, sem staðnir eru að
verki. Hafa ýmsir sjálfboðaliðar þeg-
ar lofað að hafa eftirlit með þessu,