Dagur - 15.08.1946, Side 8
8
D AG U R
Fimmtudaginn 15. ágúst 1946
Úr bæ og byggð
k-...r= =====&
Mööruvallaklaustursprestakall. —
Messað á Bægisá sunnud. 25. ágúst
kl. 1 e. h.
Gamalmermaheimilið í Skjaldarvík.
Fyrst um sinn verða sætaferðir frá
BSA á hverjum sunnudegi kl. 13.30
og stanzað eina klukkustund.
Stefán Jónsson.
Hjánaband. Ungfrú Kristjana Egg-
ertsdóttir, Kristjánssonar stórkaup-
manns í Reykjavík og Magnús Ingi-
mundarson, Árnasonar fulltrúa hjá
KEA.
Silíurbrúðkaup áttu í fyrradag frú
Sigríður Benjamínsdóttir og Ármann
ísleifsson, Aðalstræti 2.
Sextugur varð í fyrradag Pálmi
Þórðarson, bóndi og oddviti í Núpu-
felli.
Fimmtugur varð í gær Helgi Páls-
son, erindreki, Spítalaveg 8.
Gjöf til sjúkrahússins frá S. H. og
G. B. kr. 200.00. — Með þökkum
móttekið. — G. Karl Pétursson.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam-
an af sóknarprestinum, sr. Friðrik J.
Rafnar, vígslubiskupi, ungfrú Aðal-
heiður Bjarnadóttir, Jónssonar, skip-
stjc'-j á Lagarfossi, og Jónas J. Rafn-
ar, lögfræðingur, Kristnesi.
Látinn er að heimili sínu, Spítala-
veg 9 hér í bæ, Tómas Gunnarsson,
Vestfirðingur að uppruna, en hafði átt
heima hér nokkur sl. ár, orðinn aldr-
aður. Þá lózt nú eftir helgina í Sjúkra-
húsi Akureyrar, Árni Sigurðsson frá
Þyrnum í Glæsibæjarhreppi, hniginn
á efri ár.
Leiðréttíng. í kvæðinu „Norður-
sýsla“ — í 38. tölubl. Dags þ. á. —
hefir 7. Ijóðlína 4. erindis ruglast í
prentun. Rétt er hún þannig:
„Dumbshaf, gjörðin nyrztu landa“.
Vinnustofusjóði Kristneshælis hafa
borizt þessar gjafir: Þingeyskur bóndi
kr. 150.00, Fyrrverandi sjúklingur kr.
1000.00. Frá Jónasi Kristjánssyni,
Espigrund, og börnum hans, til minn-
ingar um mæðgurnar Rannveigu
Sveinsdóttur og Nikólínu Jónsdóttur,
sem bóðar dóu á Kristneshæli, kr.
1500.00..— Beztu þakkir. J. Rafnar.
Bílaskortur í heiminum.
(Framh. af 1. síðu).
inn, en 450 til útflutnings. Bíla-
verðið hefir nýlega hækkað, t. d.
kostar Riley-vagn nú 675 pund
að viðbættum 188 punda skatti.
í stríðsbyrjun voru meira en
2 milljónir bíla í notkun í Bret-
landi og þá voru skráðir 7(i0 nýir
bílar á dag að meðaltali. Af þess-
um 2 millj. eru ennþá 1,5 millj.
í ökufæru ástandi og- um hverja
helgi er mikil umferð á öllum
vegum. Má þá sjá margan bílinn,
sem ekki mundi notaður, ef
lramleiðslan hefði náð í skottið á
eftirspurninni. En á virkum dög-
um er umferðin minni, því að
benzín er ennþá skammtað í
Bretlandi. Einnig þar er svarti
markaðurinn starfandi og hægt
mun vera að fá nóg benzín ef
hátt verð er í boði.
Austin-verksmiðjurnar fram-
leiða nú 2000 bíla á viku og þær
munu geta hækkað þá tölu í
-1000, en þá eru meðtaldir vöru-
bílar, sem eru í mikilli eftir-
spurn. Morris-verksmiðjurnar
munu geta aukið framleiðslu
sína um a .m. k. 50% á næstu
mánuðum.
Brezki bílaiðnaðurinn er
skuldbundinn til þess að flytja
út um það bil helming fram-
leiðslunnar og ennjjá hefir sam-
keppni af amerískri hálfu ekki
verið ntikii. Veldur því hvort
tveggja, dollaraskortur flestra
þjóða og tafir á framleiðslunni í
Bandaríkjunum. Á fyrstu fimm
mánuðum þessa árs smíðuðu
amerísku verksmiðjurnar sam-
tals 800.000 bíla, en árið 1941
var framleiðslan á santa tímabili
2.100.000 bílar. Ennþá flytja
Bandaríkjamenn ekki út riema
fi% framleiðslunnar, því að áður
en veruleg útflutningsverzlun
hefst, ætla þeir sér að fullnægja
að mestu leyti hinni miklu eltir-
spurn innanlands. Af þessum
ástæðum fyrst og fremst er það
sem Frakkar selja Citroeen og
Renault-bíla, Svíai; Volvo, Ítalía
Fíat og Lancia og Tékkar Tatra-
ln'la, jafnótt og þessar þjóðir geta
framleitt.
Arið 1949 eða 1950 mun korna
að þ\ í, að menn geta snúið sér
lteint til bílasalans, skoðað bíl-
inn og sagt: „Eg ætla að fá þenn-
an,“ og ekið á burt í nýja bíln-
um. Fyrr verður það ekki. F.ins
og útlitið er nú, verður kapp-
hlaup um hvern einasta bíl, a. m.
k. til ársloka 1948.
Hornsteirininn að nýja sjúkra-
húsinu lagður.
(Framhald af 1. síðu).
norður á túniri og þar hefjist þ:'t
úfihátíð. Verður þar völ á ails
konar skemmtunum og dægra-
styttingum, dansað á palli, þjóð-
dansar sýndir, leikfimi o. m. fl.
Kalffisala fer fram í Gagnfræða-
skólahúsinu, en ýmiss konar aðr-
ar veitingar fást á hátíðasvæðinu
sjálfu. Þá rnunti konurnar efna
til bazars í Gagnfræðaskólahús-
inu. Verða þar seldir alls koriar
munir, er konurnar sjálfar hafa
unnið ,til ágóða fyrir sjúkrahúss-
málið. Merki verða seldbáðadag-
ana. Hátíðinni iýkur á sunnu-
dagskvöldið með flugeldasýn-
ingu.
Verði góðviðri um næstu helgi
er ekki að efa að bæjarbúar
munu verða fjolmennir á hátíða-
svæðinu. Hátíðin í fyrra fór fram
með miklum myndarbrag og
málefni það, sem konurnar helga
nú krafta sína, vilja allir góðir
borgarar styrkja af fremstu getu.
Kvensokkar
úr ísgarni,
sérstaklega sterkir
en ódýrir,
nýkomnir
Brauns Verzlun
Páll .SigurgeirssoTi
Tannsmíðanemi
óskast á tannlækningastofu
Gunnars Hallgrímssonar.
Vandaðar, enskar
barnakerrur
nýkomnar.
Brynjólfur Sveinsson, h.f.
Sími 129.
Að gefnu tilefni
skai það upplýst, að enginn
utan SVEINN BJARMAN,
umboðsmaður vor fyrir
Norður- og Austur-ísland,
heilir fengið píanó frá OSS
á þessu ári.
Hornung Sc Möller a/s '
Kgl. Hof-Pianofabrik.
Knud Möller, Axel Möller.
Bíll lil sölu
Austin, Model 1946, með vél-
sturtum. Keyrður ca. 5000 km.
Upplýsingar í
Benzínafgr. KEA eða Geislag. 37
Sænsku
smiðjurnar
komnar aftur
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
| Verkafólk j
x er unnið hefir á sláturhúsi voru undanfarið og ætl’ar
S sér að gera hið sama í haust, þarif að láta skrá sig hið 2
S fyrsta. — Skráningin fer fram á skrifstofum verksmiðj- &
5 anna. 5
| KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA. 5
CH5<KH!H><H!H><H><H5<H5<H5<H><H!H5<H><H5<H5<H5<H5-<H5<H><H5<H''<H><H5<H5<H5<HCHCH><
Innilega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hluttekningu við andlát og jarðarför
JÓSEFS LILJENDALS SIGURÐSSONAR, Torfufelli.
Bjarney Sigurðardóttir. Sigrtin Sigurðardóttir.
Torfliildur Jósefsdóttir. Sigurður Jósefsson.
Hjöi var Hjálmansson. Sigfríður H. Liljendal.
Systur og fósturbróðir.
Innilega þakka eg öllum þeim, sein sýndu mér hluttekn-
ingu með blómum og peningagjöfum til mín og barnanna
ntinna og veittu okkur ýmsa aðstoð vegna andláts unnusta
rnrns
'L
BJARNA G. ARNASONAR.
Ósk Arnadóttir.
Þökkum inmilega öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð
vegna andláts
BJARNA G. ÁRNASONAR
og heiðruðu minnirigu hans.
Vandamenn.
Faðir minn,
TÓMAS GUNNARSSON,
fyrrv. fiskimatsmaður, andaðist 10. þ. m. — Jarðarförin fer
fram laugardaginn 17. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili
inínu, Spítalaveg 9, kl. 1.30 eftir hádegi.
Fyrir ntína hönd og annarra vandamanna.
Theódóra Tómasdóttir.
<h?<H5<h5<íikh><h><h5<h5<h><h3<h5<h5<hkh><h}<h><h><h><h><hkh><h><KH><h><h><h
.-8.
<pB>
HORNUNG & M0LLER
KGL. HOF-PIANOFABRIK
Eitt píanó fyrirliggjandi á staðnum
Einkaumboð fyrir Norður- og Austurland;
Sveinii Bjarman
6 Akureyri — Sími 369.
, 0<H5<H3<H3 <B5<H3<<<H3<H5<H5<H3<H5<H5<H5<H5<H3<H5<H5<H3<H5<H3<H5<H3<H3<H5<H3<HH
BIRO-penninn
| (knlupenninn) er kominn aftur!
Undrnpí'.mnnn, sem engin skrifstofa ætti að vera án X
og er öllumrseni kynnzt hafa honum, hið mesta gleði- %
efni. —
f Vinsumlegast vitjið sern jyrst pdntaðra penna.
Bókaverzlun Þorst, Thorlacius
^$><S>^><^xí>^^>^><$>^>^<S^Í>^$>«><M>4>«>4><$«í>4>4>4>4>^>«>««®^><í>^><í>«><S><$>4>^^
H5<H5<H5<H5<H5<H5<H5<H5<H3<H3<H5<H3<H5<H5<H3<H3<H5<H5<H><H5<H5<H5<H5<H5l5<B5<H5.
Tilboð óskast
í setbekki með bólstruðum setum eða gúmmísetum í
stóra sal Samkomuhúss Akureyrarbæjar.
Filhoðum sé skilað á skrifstofu hæjarstjóra fyrir 15.
september næstkomandi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu minni.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 12. ágúst 1946.
Steinn Steinsen.
CH5<H5<H5<H5<H5<KHKH5<H5<H5<H5<H5<H5<H5<H5<H3<H5<H5<H5<H5<H3<H5<H5<H5<H5CK5<
NOTIÐ SJAFNAR-VORUR
Í555555555555555555555555555555555555555if55555955Í55555555555555555555%555Öt*t5