Dagur - 20.11.1946, Qupperneq 2
2
DAGUR
Miðvikudagur 20. nóvember 1946
Framan af tveggja ára fjár-
stjórnartímabili Péturs Magnús-
sonar kvartaði hann oft yfir fjár-
málastefnu stjórnarflokkanna og
kvað hana hljóta að leiða til
óhamingju, ef ekki væri breytt
til. Flokksmenn Péturs létu þess-
ar aðvaranir fjármálaráðherra
síns eins og vind um eyrun þjóta
og neyddu hann til að stjórna
fjármálunum að vilja stórbrask-
ara og fjárglæframanna. Þetta
varð fjármálaráðherra að láta sér
lynda, því að hann skorti karl-
mennsku til að setja hnefann í
borðið og segja: Hingað og ekki
lengra.
Nú er svo komið sögu, að Pét-
ur Magnússon lýsir yfir því við
fjárlagaumræðu, að hagur ríkis-
sjóðs sé loks með blóma. Þegar
hann lítur yfir fjármálaástandið,
blasa við augum hans „hlæjandi,
blómskrýddir vellir“. Mbl. étur
það upp eftir honum og smjattar
á þeim ummælum hans, að hag-
ur ríkissjóðs standi í blóma.
Það er ekki amalegt fyrir þjóð-
ina að hlusta á þenna boðskap
Péturs og Mbl. um blómgun fjár-
hagsins, ef hann væri sannleikan-
um samkvæmur. Þjóðin ætti því
að taka til grandgæfilegrar at-
hugunar þessa nýju Blómstur-
vallasögu Sjálfstæðifslokksins. —
Til leiðbeiningar við þá athugun
má benda á eftirfarandi stað-
reyndir:
Þau tvö ár, sem núverandi rík-
isstjórn hefir setið að völdum,
hafa tekjur ríkisins numið 340
milj. kr. eða til jafnaðar 170
milj. kr. árlega. Öllu hefir þessu
verið eytt og meira en það, því
að greiðsluhalla er spáð á yfir-
standandi ári. Hve mikill hann
reynist, verður ekki um sagt að
svo stöddu.
En hvað tekur svo við:
í fjárlagafrumvarpi Péturs
Magnússonar fyrir næsta ár gerir
hann ráð fyrir 22 milj. kr.
greiðsluhalla. Þó sleppir hann
þar stórfelldum útgjaldaupphæð-
um, svo viðbúið er að raunveru-
legur greiðsluhalli verði allt að
60 milj. kr.
Þegar fjármálaráðherra er
spurður að, hvernig hann hugsi
sér að fjár verði aflað í þessa gíf-
urlegu greiðsluhallahít, svarar
hann því einu, að þar komi ekki
mál við sig, því að hann verði
farinn fár ' f jármálastjórninni,
þegar fjárlögin fyrir árið 1947
verði afgreidd. Hann ætlar öðr-
um að botna þann kafla Blómst-
urvallasögunnar.
Þá hefir ríkisstjórnin þann
tíma, sem hún hefir verið við
völd, haft 1200 milj. kr. í erlend-
um gjaldeyri til ráðstöfunar. —
Þetta er svo mikið fé á íslenzkan
mælikvarða að flesta mundi hafa
sundlað við á árunum fyrir stríð-
ið, og aldrei áður hefir verið ann-
að eins tækifæri til glæsilegra
framfara, ef vel hefði verið á
haldið.
Á tveimur árum hefir stjórnin
haft lag'á að eyða þessum 1200
milj., þar af hefir farið til
kaupa á framleiðslutækjum, en
hitt allt, 900 milj. kr„ hefir farið
í sjóinn.
Mbl. segir, að íslenzkir nárns-
menn erlendis séu teknir að
svelta vegna gjaldeyrisskorts, en
jafnframt gumar það af blómstr-
andi fjárhag, sem sé að þakka
Sjálfstæðisflokknum og þó alveg
sérstaklega viturlegri fjármála-
stjórn Péturs Magnússonar.
Það er fyllsta ástæða til þess, að
þjóðin geri þá kröfu, að fram
fari ýtarleg rannsókn á öllu fjár-
bruðli stjórnarinnar. Hvað halda
menn, að Mbl. og Islendingur
hefðu sagt, ef EySteinn Jónsson
hefði á tveimur árum komið fyr-
ir kattarnef 340 milj. kr. ríkis-
tekjum og 1200 milj. kr. í erlend-
um gjaldeyri? Efalaust hefðu
jæssi málgögn krafizt þess misk-
unnarlaust, að Eysteinn yrði lát-
inn sæta ábyrgð fyrir verk sín.
En af því að Pétur Magnússon og
Sjálfstæðisflokkurinn eiga héx
hlut að máli, þá er allt með
himnalagi, og ástæða til að skrifa
Blómsturvallasögu um fjárstjórn
Péturs og flokks hans.
Hér er fyrir hendi hámark
pólitískrar spillingar.
Pétur Magnússon og Mbl.
halda því fram, að í engu landi
hafi verið kreppa í stjórnartíð
Eysteins Jónssonar, nema á ís-
landi, vilja þau gefa í skyn, að
Eysteinn hafi búið til kreppu
liér með óviturlegri fjármála-
stjórn. En hvernig stóð þá á því,
að t. d. í Bandaríkjunum gengu
12 rnillj. manna atvinnlausar á
þessum árum, el engin kreppa
var þar? Allir, sem komnir eru til
vits og ára, vita, að þetta kreppu-
leysi í heiminum yfirleitt á ár-
unum 1934—38 er tilbúinn
heimaiðnaður Péturs og Mbl.
Að* öðru leyti verður saman-
burður á fjármálastjórn Péturs
Magnússonar og Eysteins Jóns-
sonar á Jressa leið:
F.ysteini tókst, þrátt fyrir lok-
un Spánarmarkaðsins, sem or-
sakaði gífurlega fjárhagsörðug-
leika, að halda ríkisrekstrinum
hallalausum frá byrjun til loka
fjármálastjórnar sinnar.
Meðaltekjur ríkisins á þessum
árum voru aðeins rúmlega 17
milj. kr. eða 1/10 af tekjunum í
stjórnartíð Péturs.
Eysteini tókst að hafa hagstæð-
an verzlunarjöfnuð við útlönd,
þó að meðalútflutningstekjur
væru þá ekki nema rúmlega 50
milj. kr. eða aðeins 1/12 af því,
sem Pétur Magnússon hefur haft
úr að moða.
Á þessum kreppuárum var
fiutt inn meira af vélum og efni
til framkvæmda en nokkru sinni
fyrr.
Á þessum árum voru reist 25
frystihús í landinu og afköst síld-
arverksmiðjanna aukin um all-
miklu meira en helming.
Með þessum framkvæmdum
var lagður grundvöllur að
nokkrum hluta af gróða stríðs-
áranna.
Pétur Magnússon fékk í fang
sér - veltiár og 10—12 sinnurn
meira fjármagn en Eysteinn.
Þrátt fyrir þessa glæsilegu að-
stöðu blasir nú við tuga miljóna
kr. greiðsluhalli á ríkisreikn-
ingnum og gjaldeyrisskortur svo
magnaður, að íslenzkir náms-
menn erlendis svelta. Þetta stafar
at því að gjaldeyrinum hefur
verið varið til glingurinnflutn-
ings, skrauthalla ,,stórhöfðingpa“
Sjálfstæðisflokksins, ferðaflakks
þúsunda manna út urn heiminn,
o. s. frv.
Hér við bætist svo sívaxandi
dýrtíð, er hefur Jrær afleiðingar,
,.að fallöxi þverrandi getu ríkis-
sjóðs og einstaklinga og vaxandi
örðugleika á öllum sviðum at-
vinnulífsins skilur bol frá höfði“,
eins og Ólafur Thors orðaði Jrað
áður en hann gerði stjórnar-
samninginn við kommúnista.
Þannig endar Blómsturvalla-
saga forráðamanna Sjálfstæðis-
flokksins.
UM VÍÐA VERÖLD
Póststjómin ameríska heíir nýlega
lækkað fluépóstéjald fyrir almenn
bréf i 5 cent, fyrir venjuleéa þynéd,
á leiðum yfir 300 km. Er búizt við
stórauknum fluépóstsendinéum veéna
þessara ráðstafana.
Bretar hafa nýleéa lokið 'smíði
skips, sem notar éastúrbínukraft í stað
venjuleés vélakrafts. Er þetta fyrsta
skipið, sem fer á flot með þessum út-
búnaði. Gastúrbínan tekur miklu
minna pláss en venjuleéar vélar, oé
hefir skip þetta því stórum meira rúm
fyrir vörur oé farþeéa, en vcnjuieg
skip svipaðrar stærðar. Reynsluför
þessa nýja skips verður farin eftir nýj-
ár oé mun vekja mikla athyéli.
'—,
Stórskipið Normandi, sem brann í
New York-höfn á striðsárunum, hefir
nú verið selt til niðurrifs, fyrir sem
svarar 18 dollurum á smálestina! —
Kaupverðið er alls 161,680 dollarar.
Alls munu fást 42,500 smálestir af
járni úr skipinu.
'—.
Norska stjórnin íhuéar um þessar
mundir tillöéu um 625000 króna fjár-
veitinéu til þess að kosta vísindaleið-
anéur til Suðurheimskautslandanna.
Ætlunin mun vera, að Svíar oé Ené-
lendinéar taki þátt i leiðanérinum oé
leéé' fram fé, en Norðmenn hafi for-
yztuna. Leiðanéurinn á að stunda
jökla-, loftslaés-, -veður- oé náttúru-
fræðileéar rannsóknir.
Kaupum
hállllðskur
Stjörnu Apótek
ÍI$S$$$S$$$Í$SS$$$$S$$S$$$$$$S$$$$$4SS$$S$$SSS$4S$*SSS$$$SSSS$$S4S$$$$S»ÍS^
FRÁ BÓKAMARKAÐINUM
&$4S$$$S$$$4$$$$$$$$$$$$$$$S
fSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍÍ
Þóroddur Guðmundsson
frá Sandi: VILLEFLUG.
Þóroddur frá Sandi er, svo sem
alkunnugt er, af mikilli skálda-
a'tt kominn, þar sem segja má, að
f jölda ættmenna hans leiki orð á
tungu og Ijóð á vör. Sjálfur er
Þóroddur sízt aukvisi ættar sinn-
ai að þessu leyti. Smásagnasafn
hans, Skýjadans, sem út kom fyr-
ir fáum árum, bar orðlist hans
og skáldgáfur ónekt vitni, enda
hlaut sú bók góða dóma ritskýr-
enda og vinsældir lesenda. Nú
sendir bókaútgáfa Pálma H.
Jónssonar á Akureyri fyrstu
ljóðabók Þórodds á markaðinn í
vandaðri og smekklegri útgáfu
með fagurri kápumynd eftir Ás-
grím Jónsson listmálara á titil-
síðu hlífðarkápunnar.
*
Villiflug heitir hún, Ijóðabók-
in nýja, og gæti nafnið raunar
verið betur til fundið, þótt lag-
legt sé það og hreimfagurt. Þór-
oddur frá Sandi stendur of föst-
um fótum á jörð feðra sinna —
bæði sem skáld og maður — til
þess að för hans um tilveru og
hugarheima minni fyrst og
fremst á flug villtra fugla. Þetta
er sízt sagt honum til lasts, og
víst er það kostur — en ekki löst-
ur — að efni ljóðanna er fyrst og
fremst sótt til mannabyggða í
samtíð og sögu. Og það dylst
ekki, að góður drengur er þar á
forð, heill og sterkur í samúð
sinni og andúð, öruggur í trún-
aði sínum við hinar „fornu
dyggðir" mannlífsins og erfðir
íslenzks máls og menningar. Hitt
kann svo að orka fremur tvímæl-
is, hvort Jrað getur talizt til kosta,
að hið unga skáld fetar gjarnan
ruddar slóðir um efnisval, form,
bragarhætti og tungutak. Hag-
mælska Þórodds er ótvíræð, en
Ijóðrænn smekkur hans naumast
alls staðar jaln óskeikull, og verð-
ur þó raunar jafnan um slíka
hluti deilt án markverðar niður-
stöðu. Bezt þykja mér kvæðin,
þar sem tóntegundin er lágvær,
kliðmjúk og innileg, orðavalið
látlaust og samfellt efni ljóðsins
og geðblæ. En til eru þau kvæði
í bókinni, Jrar sem mér finnst
mælska höfundar gerast full há-
vær, orðmörg og tilhaldssöm án
tilsvarandi undirstraums efnis og
tilfinningaþunga.
Mér þykir, að öllu saman-
lögðu líklegt, að Þórodds frá
Sandi muni bíða það hlutskipti
„að eiga orðastað við seinni
tíma“, eins og hann kemst sjálfur
að orði — ekki þó um sjálfan sig
— í kvæði um föður sinn látinn.
Og ljóðelskir samtíðarmenn
munu einnig leggja eyrun við,
er hann kveður sér næst hljóðs á
skáldaþingi.
J.Fr.
Bandaríkin sendu nær 5oo.ooo bíla og
14.5oo flugvélar til Rússlands stríðsárin
Láns- og leiguvörur sendar til Evrópu og Asíu
fyrir 49 milljarða dollara
Um svipað leyti og aðalritari
kommúnistaflokksins í Moskvu, ‘
Zhadanov, galf út dagskipun til
kommúnista um heim allan, í til-
efni af 29 ára afmæli byltingar-
innar, Jiar sem skýrt var frá því,
að sovét-skipulagið liefði sýnt
mikla yfirburði yfir „auðvalds-
skipulagið“ á stríðsárunum, var
birt í Washington skýrsla um
láns- og leiguvöruafgreiðslu
Bandaríkjanna til Evrópulanda
og Asíu á stríðsárunum.
Sýnir hún að Bandaríkjamenn
hafa látið af hendi hernaðarvör-
ur fyrir 49 milljarða dollara, og
þar af verulegan hluta til Sovét-
ríkjanna.
í Associated Press fregn frá
Washingtomsegir svo:
Samkvæmt skýrslu, sem for-
stöðumaður láns- og leiguvið-
skipta Bandaríkjastjórnar hefir
lagt fram, létu Bandaríkjamenn
bandamenn sína í stríðinu fá
44.810 flugvélar, 33.349 skrið-
dreka, skotfæri fyrir 4.086.686.-
000 dollara og 916.183 bifreiðar.
Þessar tölur sýna hið risavaxna
framlag hergagnaiðnaðarins í
Bandaríkjunum til sigursins. —
Samkvæmt skýrslunni fengu Sov-
étríkin 14.505 orustuflugvélar,
eins og tveggja hreyfla sprengju-
flugvélar og flutningaflugvélar.
Næst mest af flugvélum fengu
Bretar, eða 10.658. Til Kína fóru
1158 flugvélar, Indlands 4364,
Ástralíu 2741, Egyptalands 3493,
Suður-Afríku 1266, Canada 2070
og Suður-Ameríku 2131.
Af skotfærum og stórskotaliðs-
vopnurn fengu Bretar mest, eða
fyrir 1.953.291.000 dollara, Sovét
Rússland fékk næst mest, fyrir
814.472.000 dollara Bretar fengu
einnig flesta skriðdreka, eða 12.-
755, en Rússar 7537. — Rússar
fengu bróðurpartinn af bifreið-
unum, eða 478.899, eða meira en
helminginn af því, sem Banda-
ríkjamenn fluttu út. Allt þetta
var afgreitt með láns- og leigu-
kjörurn.
Staffsstúlkur
vantar á Sjúkrahús Akureyr-
ar nú Jægar. — Upplýsingar
i síma 107.