Dagur - 20.11.1946, Page 6

Dagur - 20.11.1946, Page 6
6 D AGUR Miðvikudagur 20. nóvember 1946 CLAUDlA SAGA HJÓNABANDS EFTIR ROSE FRANKEN i’---- 1 ■ ======= 25. dagur ====== • =y (Framháld). ir niðri, þótt liann virtist vera mesta gufa á yfirborðinu. Kannske Emrna væri eitthvað svipað innréttuð? Claudía dró andann djúpt að sér og byrjaði á nýjan leik. „Hvar búa Morrishjónin?“ „1 Flatbush." __ „Ó.“ Claudía fann að hún hafði orðið fyrir vonbrigðum. Flatbush var vitasku'ld eins góður bær og hver annar og vel gat verið að Morrishjónin væri yndislegt fólk, en einhvern veginn fannst henni samt þetta allt minna á mörg börn og bréfservíettur. Ekki svo að skilja, að nokkuð væri við það að athuga, en Claudía hafði hálfpartinn gert ráð fyrir, að láta skammta á diskana og bera þá fram einn í eihu, svona til þess að sýna Júlíu, að þau væri engir aumingjar, er hún kæmi við hjá þeim næst þegar lnin færi til Bost- on. Einhvern veginn gat hún ekki hugsað sér Emmu í því embætti. Það var undarlegt, að umhugsunin um Júlíu komu af stað ógur- legum samkeppnisáhuga í brjósti hennar, í hvert sinn er henni datt hún í hug. Davíð hafði sagt, að hann skildi ekki upp né niður í sam- bandi þeiiTa, en Claudía hafði reynt að gera honum skiljanlegt, að- þannig væri það oft með tengdafólk, eitt vildi alltaf sýnast meira en hitt, og þetta þyrfti á engan hátt að sýna lélega skapgerð. „Sýnist þér umhverfið ekki ólíkt Flatbush,“ spurði Claudía, og benti á bændabýlin, um leið og þær óku fram hjá. En Emma svar- aði þessu engu og Claudía var farin að halda, að hún væri eitthvað biluð innvortis. Þegar þær nálguðust húsið, fann Claudía, að hún gat ékki frestað því lengur, að spyrja um mikilvægt málefni, sem hafði legið henni þungt á hjarta síðan hún réði Emmu til sín. „Eg vona, að vinnumiðlunin hafi nefnt þvotta við þig,“ sagði hún, blátt áfram, eins og það væri sjálfsagðasti hlutur í heimi: „Þeir töluðu um létta þvotta,“ svaraði rauðsprettan, og var nú að heyra mun ákveðnari en áður. Claudía velti því fyrir sér, hvort hinir sífelldu þvottar á fötum drengsins — hrein eins og þau voru eða hitt þó heldur — gætu heitið „léttur þvottur“. Hún leit á stúlkuna, en sá að engin svipbrigði voru á henni, það mundi þurfa eitthvað meira til. Kannske mundi Emrna reynast ágætasta barnfóstra, eins og Berta, og ef hún reyndist þannig, þá væri vandalaust að strika yfir smá- galla. „Þetta eru nú mest rnegnis barnaföt," lrélt hún áfram. „Hef- urðu gaman af börnum?“ „Nokkuð svo,“ svaraði Emma, alveg áhugalaust. Claudíu létti. Henni fannst þó „nokkuð“ gaman að börnum, og það var meira en hægt var að segja um Önnu, stýlkuna, sem hafði verið hjá henni áður, og Soffíu, sem hafði verið á undan Önnu. Líklegast mundi Emrna reynast ágætlega eftir allt saman. Að vísu var hún ekki tiltakanlega dugnaðarleg að sjá hana, en það þyrfti ekki að vera neitt verra, að minnsta kotsi ef dugnaður- inn við að komast að heiman á kvöldin yrði jrá í stíl við hin verkin. Þess konar dugnaður fór í taugarnar á Claudíu. Það hafði einmitt verið þetta, sem olli vandræðunum með Kötu, sem var hjá h'enni á undan Soffíu. Bíllinn ók upp að snotru húsi, sem allt í einu kom í Ijós við bugðu á veginum. Claudíu fannst jrað alltaf erfitt, að muna eftir því, að þetta væri sama húsið og gamla skriflið, sern þau höfðu far- ið að skoða í kuldanum í marz fyrir tæpu ári síðan. Já, Davíð og Roger höfðu haft á réttu að standa eftr iallt. saman. ■ Þetta gamla hús átti fegurð og virðuleik í ríkum mæli, þegar að var gáð, en hvernig í ósköpunum var hægt að ætlast til þess að óupplýstar manneskjur kæmu auga á það fyrirvaralaust? Það hafði svei mér verið heppilegt, að hún var þó enginn aukvisi, því að það hefði eícki verið að allra færi að standa í erfiðleikunum, sem voru sam- fara vtðgerðinni og endurbótum á húsinu. Ljóta mæðan það allt saman. Trésmiðirnir höfðu ekki látið sjá sig nema annan og þriðja hvern dag, miðstöðvarlagningarmennirnir höfðu farið á pólitísk- an fund í bænum einmitt þegar verst gegndi og múrararnir höfðu víst áreiðanlega eytt meiri tíma í bjórdrykkju á veitingakránni við veginn, en heima við húsið. Claudíu fannst. þá, að hún væri að verða gráhærð af áhyggjum, en Davíð hafði fullvissað hana um það, að jrað mundi ekki bæta hag þeirra nokkurn skapaðan hlut. Hann tók öllu með heimspekilegri þolinmæði. „Þetta er Nýja-Eng- land“, var viðkvæðið hjá honum, þegar verst gekk. En loksins kom að því, mörgum vikurn eftir tilskilinn tíma, að smiðirnir og múrararnir tíndu saman dótið sitt og hurfu á brott, og skildu Naughtonhjónin eftir tii þess að njóta ein friðsældarinnar og kyrrðarinnar í sveitinni. Claudía saknaði þeirra hálfpartinn. „Manni bregður við, eins og þegar maður hættir að hafa tannpínu, {(Framhald). J'arðarför KRISTJÁNS TRYGGVASONAR, er andaðist 12. þ. m., fer fram föstudaginn 22. þ. m. og hefst með bæn að heimili hins látna, Viðarholti, Glerárjxnpi, kl. 1 e. h. Aðstandendur. Hjartans þakkir til allra, nær og fjær, sem sýndu okkur sam- úð og hjálp við andlát og jarð'arför móður okkar, JÓHÖNNU ÞORKELSDÓTTÚR, Ási. Fyrir hönd barna og fósturbarns hinnar látnu. Soffía Sigurjónsdóttir. ^xs><sx®xs><®>3xsx3>s>sx®x®>3x®><®xí><®x®xsx®xe><s><®><s><íxíx®>3xsxsx®x£<®x®x®x^x®>sxs><sx®xs><íx£<sx$x®x^£ HUGHEILAR ÞAKKIR til sveitunga minna og allra ann- arra, nær og íjær„ iyrir heimsókn, gjaíir og árnaöaróskir í til- eíni af sjötíu ára afmæli mínu 2. nóv. sl. Guö blessi ykkur öll. EIÐUR SIGTR YGGSSON, Steinkirkju. XS^x$^xí><$>^><S^xS>^>«xíx$><S>^><í><S>«x$>^><^<^x$xS^xí>^x$xíxíx$>^x$>^<Sx$><$><íx$><Sx$xSx» HJARTANS ÞAKKIR til allra þeirra, sem heiðruðu okk- ur með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á tuttugu og fimm ára hjúskaparafmæli okkar og gerðu okkur daginn ógleymarúegan. Soffía Jóhannesdóttir. Kristján Jakobsson. <«, X £x®x®x®x®x®x3xSxSx$x$x®x®x$x$x®x$x®xíx®x®x®x®x®xSxSx®x®xSx®x$x$x$x$^xSx$xex®KSxSx$xSx®x®xSx®x®x®xSx®x®x — Fokdreifar (Framhald af 4 .síðu). um, þar sem enginn annars átti neinn- ar hættu von. En hvernig er þá um okkar eigin túnjaðra? Hér í Eyjafirði dvaldi fjölmennt setulið árum saman. Öllum hér mega vera í fersku minni skotæfingar þess á Glerárdal og víðar hér nærlendis. Augljóst er nú, af þess- um hryggilegu atburðum eystra, að gálauslega hefir verið farið með með sprengjur og skotfæri á skotæfinga- svæðum, og má því ætla, að hættur geti leynst við hvert fótmál hér á Glerárdalnum og víðar. Sjálfsagt er að bæjar- og sýsluyfirvöld láti gera gangskör að því næsta sumar, að rannsaka fornar skotæfingðastöðvar hér um slóðir og hreinsa burt allar leyfar. En á meðan slík rannsókn hef- ir ekki farið fram, er mikil og rík ástæða fyrir alla, að gæta þess vand- lega,’ að hreyfa ekki við annarlegum hlutum er kynnu að verða á leið þeirra á þessum slóðum, og helzt að láta ekki börn og unglinga vera þar á ferð. Athugun á skotæfingasvæðum hersins þyrfti nauðsynlega að fara fram, áður en skíðfaeriðr barna og unglinga á Glerárdal hefjast, sjálfsagt er ástæða til að afmarka sérstaklega þau svæði, þar sem skotæfingar fóru aðallega fram, ef einhverjir bæjar- manna muna nókvæmlega, hvar setu- liðið einkum hélt sig á slíkum æfing- um. flíirspuío iil Eyiiröifloa. B><B><B!B><H!B!B!B!H><B!H><HÍB!B>-0<B!H!H!H>0<H><H!H!rtH!H!H><H!H>0<H!B!B><B!B><B!B><B!H> Sldðaskór á börn og unglinga Yatnsleður skór á börn og unglinga • Skóbúð KEA * H><H!H!H><H><H!H><H!H>)><H!H><H><H><H>í!H!H!H>í><H!H!H><H!H>í><H!H><H>í!H>í><H><H!H>í!H!tÖ Olíuvélar eins, tveggja og þriggja hólfa, fást ennþá hjá Verzlunin EyjafjÖrður h/f ^<B>O<H!í<H><H!H!H>)!H><H><H>0<H><H!H!H>)><H!H><H><H!H!H><H><hÍh>)!H!H!H!H!H!H!H>)!H><h!h Fataskápur með skrifborðsinnréttingu, til sölu. Hentugur einhíeypum. Til sýnis í Holtagötu 10 (neðri liæð). Kvenarmbandsúr hefir tapazt á leiðinni frá brauðbúð KEA í Hafnarstræti að Þingvallastræti 2. Skilist á afgreiðslu Dags. Tek að mér ♦ vélritun og fjölritun Guðbjörg Bjarnadóttir, Holtagötu 7 — Sími 456 Galvaniseraður pappasaumur fyrirliggjandi. Kaupfélag Eyfirðinga, Járn- og glervörudeild. í desember 1916 sendi sýslu- maðurinn í Eyjafjarðarsýslu Þjóðminjasafninu mannsbein og nokkra forngripi frá heiðni, en ekki fylgdu neinar upplýsingar um, hvaðan þetta vaéri. Gripirnir eru: tvær stórar, kúptar skrautnælur úr kopar, all- ar með gröfnu verki, kopar- prjónn með ln ing í öðrum end- anum, snældusnúður úr blýi og ryðgaðir járnmolar. Man ekki einhver Eyfirðingur, hvar og hvernig þessir gripir fundust? Ef svo væri, kynni eg honum þökk, ef hann vildi gjöra slvo vel að veita mér um það vitineskju. Kristján Eldjárn, Kjartansgötu 8, Reykjavík. . (einhneppt) á háan og grann- an mann, til sölu. — A. v. á. emailleruð, fæst keypt í Brekkugötu 25. Kvefl-arflibandsiir með leðuról, tapaðist í mið- bænum föstudaginn 8. þ. m. Finnandi vinsamlega beð- inn að skila því gegn fund- arlaunum á skrifstofu Flug- félags íslands h.f. Aðalfendur Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldinn miðvikudag- inn 20. þ. m. k'l. 8.30 e. h. að Hótel Norðurland. — Auk venjulegra aðalfnndarstarfa liggja fyrir fundinum mjög áríðandi mál, er því nauð- synlegt að hann verði fjöl- sóttur. STJÓRNIN,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.