Dagur - 26.03.1947, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 26. marz 1947
DAGUR
5
LUNDÚNABRÉF TIL »DAGS«
Frá Victor Stankovich
Rússar vilja fresta umræðum um Austurríki, til þess
að Rauði herinn geti dvalið lengur í Dónárhéruðunum
Grikkland verður að fá aðstoð til þess að verjast erlend-
run íhlutunum, segja Bretar og Ameríkumenn
Það ei' vitað, að Marshall, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
muni ekki £ús á að veita neinar
upplýsingar um áhrifasvæði
Bandaríkjanna, þó að Molotov
muni reyna að fá slíkt upp á
Moskvuráðstefnunni. Utanríkis-
ráðuneytum Bretlands og Banda-
ríkjanna hafa borizt fréttir um,
að þetta muni vera aðaláhuga-
efni Rússa á ráðstefnunni í því
skyni að koma upp ágreiningi,
jafnvel byggðan á fölskum stað-
reyndum, á milli þessara þriggja
stórvelda, sem öll í augnablikinu
eru ófær að hefja styrjöld.
Utanríkisráðuneyti Bretlands
og Bandaríkjanna eru þeirrar
skoðunar, að Molotov muni
knýja þetta fram á ráðstefnunni,
sem einu „raunhæfu“ lausnina á
ýmsum mikilsverðum ágreinings-
atriðum, og að hann muni í þess-
um tilgangi vitna í þann hluta
Yaltasamþykktarinnar, sem fjall-
ar um Austur-Evrópu og einnig
í Teheransamþykktina, þar sem
áhrifasvæði voru viðurkennd
bæði af Roosevelt og Churchill.
Ástæðan fyrir því að Molotov
vill koma þessu á dagskrá nú, er
sú, að Rússland er fastráðið í að
slá á frest umræðunum um mál-
eíni Austurríkis, til þess að
Rauði herinn geti dvalið lengur
i Dónárhéruðunum. Bæði Bevin
og Marshall hafa látið orð að
þessu liggja. Og ef þeir minnast
á það nú, er búizt við að svar
Molotovs verði á þá lund, að
þetta komi ekki málunum við,
þar sem Austur-Evrópa sé rúss-
neskt yfirráðasvæði, og að Rússar
hafi á hinn bóginn, á Yalta-ráð-
stefnunni, viðurkennt áhrifa-
svæði Vesturveldanna á öðrum
slóðum.
Fyrst þessara tilslakana Rússa
var myndun pólsku stjórnarinn-
ar, sem átti að koma á frjálsum
og löglegum kosningum. Er
sennilegt að Molotov vilji halda
því fram að þannig hafi þær ver-
ið!
Önnur var samsteypa Júgo-
slavnesku útlagastjórnarinnar
undir stjóm dr. Shubashitch og
stjórnar Titos, sem lauk með
Tito-Shubashitch „samþykkt-
inni“. En eins og vitað er endaði
þetta á þann veg, að Shubashitch
og aðrir sannir ættjarðarvinir sáu
sér ekki fært að starfa í sam-
steypustjóm þessari, sökum rúss-
neskrar íhlutunar.
Vegna óstjórnarinnar, sem af
þessu leiddi, var reynt að mynda
samsteypustjórn á nýjan leik.
Slóvanar, Serbar og Króatar neit-
uðu allir samvinnu, nema á þeim
grundvelli að fram færu frjálsar
kosningar.
Til Belgrad hafa borizt þær
fréttir frá Moskvu, að öllum and-
stæðingum Titos hafi verið boð-
ið að hafa 8 fulltrúa í stjórninni,
og af því má sjá, að landið muni
í framtíðinni verða jafnlokað fyr-
ii vestrænum áhrifum sem hing-
að til, enda muni allar valdastöð-
ur verða í höndum kommúnista.
Dr. Grisogono, sem var einn af
méðlimum útlagastjórnarinnar í
andstöðu við Tito, þar sem
Mihailovitch var hermálaráð-
herra, mun brátt snúa aftur til
Blegrad, og hefir hann lýst yfir
því áformi sínu, að endurreisa
hinn óháða lýðræðisflokk sinn,
en hann hefir fengið hvatningu
til þess heiman frá, og hvetur
hann nú aðra útlaga til að fylgja
sér.
Það kann að vera, að menn hafi
gaman af að heyra þá frétt, sem
okkur barst nýlega. Þegar brezk-
ur liðsforingi, sem barðist með
Tito í styrjöldinni og varð hon-
um persónulega kunnugur, til-
kynnti honum, að hann væri
væntanlegur til Belgrad á vegum
brezku stjórnarinnar, varaði Tito
hann við að koma. Voru send sér-
stök skilaboð til þess að láta í
ljósi ánægju yfir væntanlegri
heimsókn, en þess jafnframt get-
ið, að sökum pólitískra vanda-
inála innanlands, mundi ekki
eins handhægt fyrir Tito að sinna
persónulegum óskum vinar síns
eins og á dögum styrjaldarinnar.
Erá áreiðaniegum heimildum er
líka vitað, að hin særða hégóma-
girnd Titos muni knýja hann til
að forðast að mæta erlendum
stjórnmálamönnum. En Trotsky-
sinnar hafa verið ,,fjarlægðir“
áður.
Eins og menn muna, hins veg-
ar, hafa Júgoslavar orðið að láta
í minni pokann og undirrita
ílalska samninginn, vegna skip-
unar frá Moskva á síðustu
stundu, eftir að Kardelj hafði
gengið út af Parísarráðstefnunni
með þeim ummælum, að þjóð
sín mundi alls ekki skrifa undir.
Júgoslavía hefir einnig orðið að
ganga að Triestesamkomulaginu.
Ennfremur hafa Slóvanar o£
fleiri, sem hafa haft með sér frels
issamtök, verið neyddir til að
leysa þau upp og Slóvönum, sem
cnn eru í ítalíu og Trieste, verið
ráðlagt að ganga í hið and-
íasistiska bandalag Itala og Slóv-
ana.
Júgoslavar krefjast Kárnten
af Austurríkismönnum og eru í
því studdir af Rússum — ein;
þeir voru á sínum tíma, þegar
Triestevandamálin voru efst á
baugi. En, fyrir meira en ári síð-
an, fékk Renner, forseti Austur-
ríkis, persónulega tilkynningu í
nafni Stalins, að Rússland mundi
ábyrgjast landamæri Austurríkis
frá 1938.
Grikkland. Marshall, sem og
öðrum stjórnmálamönnum, er
iað ljóst, að nokkur tilslökun við
Rússa í Grikklandi, muni hafa í
för með sér, að þeir nái smám
saman öllum Balkanskaganum
undir sín yfirráð. Þangað til
Marshall hefir því fengið stuðn-
ing heiman frá um loforð um
aæði fjárhagslegan og, ef nauð-
svn krefur, hernaðarlegan stuðn-
ing Grikkjum til handa, mun
hann ekki fallast á neitt. Hann
veit sem er, að einmitt nú eru
Rússar komnir á fremsta hlunn
með að ná Grikklandi undir y£-
irráð sín. 1 þessu sambandi má
benda á, að gríski herinn er að-
eins 130 þúsundir.
Franskur stjórnmálamaður lét
svo ummælt í Aþenu fyrir fáum
dögum, að ef Grikkland félli fyr-
ir Rússum, mundi bæði ítalíu og
k rakklandi hætta búin. Ameríski
fulltrúinn í ellefu manna nefnd
UNO lét svipaða skoðun í ljós.
| Bætir hann við, að ef Grikkland
verði Rússum að bráð mundi þar
af leiða að Rússar næðu yfirráð-
um yfir Krít, Tyrkland yrði þeim
óhjákvæmilega háð, Dardanella-
sundinu yrði hætta búin og gatan
greið í austur.
Hvort sem þetta reynist svona
eða ekki, er þegar vitað, að gríska
hernum hefir ekki tekizt að
halda í skefjum óaldarflokkum
og bæla niður smáskæruhernað í
landinu. Þetta hefir leitt til þess
að brezki stjórnmálamaðurinn,
Dr. Dalton, hefir látið það álit
sitt í ljós, að Bretar verði að
liverfa frá fyrri áformum sínum
um að taka allan her sinn burtu
úr Grikklandi á þessu ári og um
að hætta öllum fjárhagslegum
stuðningi frá þessum mánuði að
telja. Bretar hafa hvað eftir ann-
að lagt þessi mál fyrir stjórn-
málamenn í Washington og hefir
nú loksins borizt svar við þeim
með ræðu Trumans hinn 12. þ.
m. Má af henni sjá, hverjum aug-
um Bandaríkjamenn líta á þetta
vandamál. Brezkir og amerískir
stjórnmálamenn álíta, sem kann
að vera hættuleg bjartsýni, að
tækist UNO að koma á laggirnar
alþjóða landamæragæzlu, myndi
gríska hernum takast að bæla nið-
ur skæruhernaðinnmeðvorinuog
varna því að uppreisnarseggirnir
fái utanaðkomandi hjálp. En
fjárhagslegur stuðningur til
Grikkja nú þegar, væri þó hið
æskilegasta. En þó má ekki
gleyma þeirri dapurlegu stað-
reynd, að innbyrðis sundurlyndi
og ótti í Grikklandi hefir leitt til
þess, að þrátt fyrir andúð mikils
meirihluta þjóðarinnar á skæru-
hernaði, muni allan fjöldann e. t.
v. skorta kjark til þess að styðja
opinberlega lögmæta stjórn.
Ennfremur er það álit þeirra, að
alþjóða landmæragæzla UNO
rnundi geta stöðvað allar ólögleg-
ar vopnasendingar. Hlutleysis-
stefnan í Spánarmálunum, á
sinni tíð, ætti að vera mönnum
lærdómsrík. Það mundi taka o£
langan tíma að koma slíkri al-
Jrjóða landamæragæzlu á laggirn-
ar, með því að til þess þyrfti sam-
þykki Öryggisráðsins, þar sem
það mundi að sjálfsögðu mæu
mikilli andstöðu Rússa. Þar að
auki mund u ólöglegar vopna-
sendingar með fallhlífum einnig
mögulegar.
Bréf nr hðfnðsfaðnu
Ræktunarsjóður
Islands.
Á þingi í fyrra var flutt frv. um
breytingu á lögum um ræktun-
arsjóð og síðar á því sama þingi
kom fram annað frv. sama efnis,
sem samið var af nýbyggingar-
ráði. Bæði þessi frv. dagaði þó
uppi. Snemma á þessu þingi var
málið tekið upp að nýju af land-
búnaðarnefnd n.d., en það var
fyrst eftir stjórnarskiptin í vet-
ur, að skriður komst á málið í
Jringinu. Með frv. er stefnt að
Jiví að efla ræktunarsjóð að fjár-
magni frá því sem verið hefur,
svo að hann verði fær um að full-
nægja lánaþörf bænda vegna jarð
‘ktunar og annarra fram-
kvæmda við landbúnað. Láns-
tíminn skal vera 5-25 ár, eftir því
til hvers lánað er og vextir eigi
hærri en 2,5%. Það getur ekki
leikið á tveim tungum, að þetta
mál er hið nauðsynlegasta og
mikilsverður þáttur til stuðnings
þeim miklu framkvæmdum og
vélakaupum, sem nú eiga sér stað
í sveitum.
Búnaðarmála-
sjóður.
Lögin um búnaðarmálasjóð
hafa verið eitt hið mesta deilu-
efni á tveim undanförnum þing-
um„ Þeirri deilu lauk þá svo, að
sú skipun var ákveðin um yfir-
stjórn sjóðsins, að Búnaðarbank-
inn skyldi hafa reikningahald
hans, en fénu skipt milli búnað-
arsambandanna á þann hátt, að
hvert þeirra skyldi fá það fé, sem
af því sama svæði væri runnið.
Snemma á þessu þingi fluttu
forráðamenn Búnaðarfélags ís-
lands frv. þar sem lagt var til að
tekjur sjóðsins skiptust að jöfnu
milli Búnaðarfélags íslands og
Stéttarsambands bænda. Því frv.
var mætt með slíkum ofstopa í
n.d., að því var vísað frá með
rökstuddri dagskrá.
Þegar svo var komið fluttu 3
þingmenn í e.d. frv., sem mælir
svo fyrir, að tekjur sjóðsins skulu
ár hvert skiptast að jöfnu á milli
búnaðarsambandanna annars
vegar og Stéttarsambands bænda
hins vegar, er hvort um sig ráð-
stafi síðan sínum hluta til nauð-
synjamála bændastéttarinnar
\egna þeirra verkefna, er þau
hafa með höndum. Búnaðarþing
skal skipta milli búnaðarsam-
bandanna því fé sjóðsins, er fell-
ur í hlut þeirra. Reynir nú enn á
skilning þingmanna á þessu máli
bændastéttarinnar.
Jarðræktar-
styrkurinn.
Það hefur verið eitt af baráttu-
málum Framsóknarflokksins á
undanförnum árum að fá jarð-
ræktarstyrkinn hækkaðan til
framkvæmda á þeim býlum, sem
hafa ekki 600 hesta heyskap á
vélfæru landi. Þessu nauðsynja-
máli hefur hvað eftir annað ver-
ið drepið á dreif. Fyrir Alþingi
liggur enn frv. sama efnis, sem
núverandi landbúnaðarráðherra
er fyrsti flutningsmaður. Verð-
ur að vænta þess, að Alþingi sýni
þá víðsýni að samþykkja þetta
mál, þar sem nauðsyn ber til að
aukinn stunðningur með hækk-
uðum styrk til jarðræktar fylgi í
kjölfar laganna um ræktunarsam-
þykktir og framkvæmdir þeirra.
Dýralæknar.
Fjórir þingmenn sem sæti eiga
í n.d., flytja frv, um að fjölga
dýralæknum úr sex í átta. Af
þeirri breytingu mundi leiða, að
Skagafjarðarsýsla ásamt Húna-
vatnssýslum yrði sérstakt dýra-
læknisumdæmi og í annan stað
Snæfellsnes ásamt héruðunum
við Breiðafjörð.
Eftirlit með verzlun með
fóðurvörum.
Landbúnaðarnefnd n.d. hefur
fiutt frv, um eftirlit með verzlun
með fóðurvörur. Er það samið
eftir óskum frá Búnaðarfélagi ís-
ands og landbúnaðardeildar At-
vinnudeildar háskólans. Sam
kvæmt því á tilraunastöð búfjár-
ræktar að hafa á hendi eftirlit
með verzlun með fóðurvörur.
Landbúnaðardeild atvinnudeild-
arinnar skal annast allar efna-
rannsóknir í sambandi við eftir-
htið. En svo er fyrir mælt, að eft-
ir gildistöku laganna megi eng-
inn framleiða til sölu eða flytja
inn fóðurblöndur, nema að
fengnu leyfi landbúnaðarráð-
herra, sem veitt er að fengnum
tillögum tilraunaráðs búfjárrækt-
ai. Hér er vissulega um þarft ný-
mæli að ræða, þar sem margir
bændur munu hafa þá sögu að
segja, að fóðurbætir sá, sem þeir
hafa fengið frá verzlunum, hafi
ekki reynzt fyrsta flokks vara.
Menntun kennara.
Eitt af frumvörpum þeim, sem
milliþinganefnd í skólamálum
hefir samið, er um menntun
kennara. Það hefir nú nýlega
verið afgreitt sem lög frá Alþingi.
Þar eru felld saman í einn laga-
bálk eldri lög um Kennaraskóla
íslands, íþróttakennaraskóla og
húsmæðrakennaraskóla.Auk þess
eru þar ákvæði um Handíða-
kennaraskola íslands, um
kennslustofnun í uppeldismálum
við háskólann og um æfinga- og
tilraunaskóla. Þar er svo fyrir
mælt að setja skuli á fót heim-
spekideild Háskóla íslands. Hlut-
(Framhald á bls. 8).