Dagur - 30.04.1947, Síða 6
DAGUR
Miðvikudagur 30. apríl 1947
CLAUDÍA
SAGA HJÓNABANDS
EFTIR
— ROSE FRANKEN j
43. dagur
(Frarahald).
öllum líkindum hér. Konan aldrei heima, alltaf á eilífu flakki.“
„Það er þó ekki að íurða þótt hann sé einstæðingslegur.“
„Já, hann er einstæðingur, hræddur og áhyggjufullur einstæðing-
ur. Læknirinn sagði honum í morgun að hann væri með snert af
inagasári.“
Claudíu leizt ekki á þetta. Það mundi þýða meiri ábyrgð og
vinnu fyrir Davíð. „Menn eru alltaf að leggja sér til einhverja sjúk-
dóma,“ sagði Claudía. „Elsku Davíð, þú mátt ekki gera það .Mundu
það.“
„Allt í lagi,“ sagði Davíð, ofurlítið óþolinmóður yfir þessu rausi.
„Það er satt, að læknar og grafarar hafa nóg að starfa þessa dagana.
En sleppum því. Hvernig lízt þér á, að við borðum í borginni og
förum eitthvað út og skemmtum okkur á eftir?"
„Þú meinar það ekki, Davíð?“ hrópaði hún himinlifandi, en átt-
aði sig íijótt og var rétt komin að því að segja: En við höfum ekki
eíni á því. En hún hætti við það og sagði í staðinn: „Það er auðvitað
ekki alveg nauðsynlegt, en gaman væri að því. Og heima átti bara
að borða leifar."
„Ágætt,“ sagði Davíð. „Þarf eg að láta raka mig?“
„Nei, þú lítur ljómandi vel út. En er eg nógu fín?“
„Þú ert ágæt, — það er bara stór blettur framan á kjólnum þín-
um.“
„Ó, ó, það eru tómatarnir hennar mömmu. Eg skaf hafa hendina
yfir blettinum við borðið. Svona. Hvernig er það?“
„Dónalegt," svaraði Davíð.
Þau fóru að hlæja, alveg eins og kreppan væri ekki til. Davíð, sem
hafði verið tekinn og þreytulegur varð allt í einu kátur og hress.
„Ef fólk gæti bara hlegið," sagði Claudía með sannfæringarkrafti,
„þá mundi það gera þeim meira gagn en sitja og núa saman hönd-
unum í örvætningu."
„Það er ekki alltaf svo auðvelt að hlæja,“ sagði Davíð. „Eða held-
urðu að þér yrði hlátur í hug ef eg hefði ekkert starf og sex börn
biðu heima?"
„Eg gæti alltaf reynt það. Það er að segja, ef þú vildir hlæja með
mér. Mundum við ekki vera gáfuleg, að hlæja á meðan sultuimn
syrfi að?“
„Heldur betur. En það væri vissulega gott að geta hlegið, jafnvel
þótt illa gengi.“
„Við skulum vona, að allt gangi vel fyrir okkur," svaraði Claudía.
„Jæja, hvaða leikrit langar þig til að sjá?“
„Eitthvað skemmtilegt, eg á við að það má ekki vera sögulegt —
ekki Shakespear."
Þau gengu á tánum í gegnum skrifstofu Rogers. Hann lá út af og
hafði teppi yfir sér.
„Við ætlum í leikhúsið, ef við getum fengið miða. Viltu ekki
koma með?“ spurði Claudía.
Roger var ákaflega þakklátur, en sagðist ekki treysta sér. Heil'san
væri ekki upp á það bezta. „Þið megið til með að sjá Hamlet," kall-
aði hann á eftir þeim.
Þegar þau vora komin út á ganginn, sagði Davíð: „Það var hug
ulsamt af þér að bjóða honum. En hvemig væri nú að bjóða
mömmu þinni að slást í hópinn?"
„Það væri hugulsamt að gera það. En þú athugar, að það er ekki
(Framhald).
ASalfundur
Flugféfags íslands h.f.
verður haldinn í Ooddfellow-húsinu (uppi) í
Reykjavík, föstudaginn 30. maí, 1947, kl. 2
eftir hádegi.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf
Afhending aðgöngumiða og atkvæðamiða fer
fram á skrifstofu félagsins í Lækjargötu 4,
Reykjavík, dagana 28. og 29. maí næstk.
STJÓRNIN.
Útför móður minnar,
ÓLAFAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
sem andaðist að heimili mínu, Oddeyrargötu 13, hinn 25.
apríl síðastl., fer fram frá Akureyrarkirkju Iföstudaginn 2.
maí næstk. og hefst kl. 1 e. h.
Elín Einarsdóttir.
■sa
Mínar innileguscu og beztu þakkir till alha, sem veittu
mér hjálp og 'aðstoð í veikindum og við jarðarför móður
minnar, SIGÞRÚÐAR PÉTURSDÓTTUR, Bjarmastíg 6,
Akureyri.
Sólveig Jónsdóttir.
Ibúð
vantar mig til leigu sem fyrst. Fyrirframgreiðsla eftir I
samkomulagi. Tilboð óskast send í pósthólf 74.
Þorleifur Thorlacius,
Ráðhústorg 3. \
IIIMIIMMIMMMMMMIIHMMMIIMMIMIMMIMIIMMIIIHMIIIMIMIIIMIIIMMMIIMmmMMIMHIIMMMMHHMMMMIIMIMIIIIIIMMMÍ
Nær 12000 kr. söfnuðust
í sumardagheimilissjóð
Kvenfélagið Hlíf þakkar bæjar-
búum.
Blaðinu hefir borizt eftirfar-
andi frá Kvenfélaginu Hlíf:
Háttvirtu bæjarbúar! Kvenfé-
lagið „Hlíf“ þakkar yður ágætan
stuðning við fjáröflunina á sum-
ardagiinn fyrsta, með því að þér
sóttuð vel þá staði, er félagið
hafði sér til tekna — kaffisöluna,
bazarinn og kvöldskemmtunina,
sem og góðar undirtektir við
merkjasöluna. Margur lagði
fram ríflegan skerf, og kunnum
vér yður öllum þakkir fyrir. Sér-
staklega vill „Hlíf“ þakka Klæða-
gerðinni Amaro h.f., sem gaf kr.
i0.000.00 í sumardagheimilissjóð
félagsins, og ennfremur hr. prent-
meistara Sigurði O. Björnssyni
hans miklu höfðingslundogskiln-
ing á starfsemi félagsins, þar sem
hann (og einnig faðir hans heit-
inn) hafa frá því fyrsta ætíð gefið
Hlífarfélaginu helming alls
prentkostnaðar við auglýsingar,
og eru þær orðnar margar öll ár-
in. í þetca sinn gaf hann allan
kostnaðinn. Sömuleiðis þakkar
félagið hr. Erik Kondrup hótel-
stjóra örlæti hans og velvild, er
hann lánaði Hótel Norðurland
frá kl. 10—19, með hljómsveit í
tvo tíma, ásamtöllum áhöldum —
endurgjaldslaust. Einnig lék
hljómsveitin í sínum tíma án
nokkurrar þóknunar, og vill
„Hlíf“ hér með færa hinum er-
lendu listamönnum kærar þakk-
ir. „Hlíf“ þakkar og öllum þeim,
sem komu fram á kvöldskemmt-
un félagsins í Samkomuhúsi bæj-
arins og skemmtu þar með söng,
undirleik, upplestri og listræn-
um harmonikuleik — allt án end-
urgjalds.
Fjársöfnun barnadagsins nam
að þessu sinni kr. 11.942.11, og er
það meiri fjársjóður en Kvenfé-
lagið „H'líf" hefir áður séð á ein-
um degi. Sumardagheimilissjóð-
ur „Hlífar" er nú að upphæð kr.
75.700.00.
Heill yður, Akureyringar, í nú-
tíð og framtíð!
Kvenfél. Hlíf.
UM VÍÐA VERÖLD.
Danir hafa keypt rafmagnsaflvéla-
samstæSu frá SkodaverksmiBjunum í
Tékkóslóvakíu. Arósar fá nú á næst-
unni 28000 kílówatta lágþrýstiguiu-
túrbínu frá þessum verksmiðjum.
Það lítur út fyrir að þeir dr. Sigurð-
ur Þórðarson og Steinþór Sigurðsson
hafi orðið frægir um Noruðrlönd fyrir
að ganga upp á Heklu á dögunum og
kíkka ofan í gígina. Dönsk blöð birta
fregnina um ferð þeirra félaga undir
niargföldum fyrirsögnum á fyrstu síðu
og heitir hún þar m. a.: To Islændinge
kravler ned i Kratere paa Hekla. Dr.
Sigurður hefir sjálfur lýst ferðinni í
grein í Stokkhólmsblaðinu Dagens
Nyheter og segja blöðin að ferðin hafi
verið „enestaaende Sportpræstation"
og að vísindalegur árangur hafi þar að
auki verið geysimikilt.
Til sölu
10 hestar stör, ágætt kúafóður.
Sigfús Hallgrimsson.
Ytra-Hóli.
Atvinna
Reglusamur og laghentur
maður getur fengið árs-
atvinnu á smurstöð vorri.
B. S. A.-verkstæði h.f.
Kr. Kristjánsson.
Járnrúm
Trárúm
Beddar
Kaupfélag Eyfirðinga
Jám- og Glervörudeild
Tii hreingerninga
Kvillajabörkur
Vim ræstiduft
Mubluáburður
margar tegxmdir
Fægilögur
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörud. og útibú.
Grape Fruit safi
Tómatsafi
Cítrónusafi
Eplasulta
Flómusulta
Sveskjusulta
Marmelade
margar tegundir
Þurrkuð Epli
Rúsínur
með steinum, 2 teg.
Rúsínur
steinlausar
Kaupf. Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.
Golfkylfur
nokkur stykki
óseld
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Skjalaskúffur
fyrir spjaldskrár,
3 stærðir,
fyrirliggjandi
Skjalaskápar
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervarudeild.