Dagur - 11.06.1947, Blaðsíða 6
6
DAGUR
Miðvikudagur 11. júní 1947
STEÁN SIGURÐSSON
Fcecldur 29. janúar 1918. — Dáinn 29. mai 1941.
Hví skjálfct sorgarstrengir, — hví syrtir dag á vori,
er sólin hellir geisla-blessun yfir sæ og láð,
og lífið brosir við oss með blóm í hverju spori
og boðár öllum nýjan dag af sinni ungu náð?
Vér eigum allt of fáa með æskuþrek og vilja
að efla' í fúsu starfi lands vors nýja gæfudag.
því veitist oss svo erfitt að átta oss — og skilja
slíkt örlaganna sviplega og þunga reiðarslag.
Minn hugur drúpir hryggur, og harmsár elfur flæðir
um hjartans gróðurlendur og sefans innstu torg,
og yfir dimmum djúpunum napur vindur næðir,
og nóttin þögul byrgir mína hafdjúpu sorg.
Eg hugsa til þín hljóður, því trega-klökk er tunga,
— og tjáning finnur þögnin ein um hjartans dýpstu svið~
Og rödd vor harmsár hljóðnar, er hverfa sjáum unga
í hóp — á lífsins sigling um vorsins glæsi-mið.
*
Eg veit við sjáumst síðar, er lýkur leiðum mínum,
þá liggja spor vor saman um starfsins svið á ný. —
En þungbært er að morgni að sjá þig hverfa sýnum, —
og sorgljúf æ mér fylgir þín minning björt og hlý!
Helgi Valtýsson.
Sorgarathöfnin í kirkju og kirkjugarði
Séra Pétur Sigurgeirsson flytur minningarræðu í Akureyrarkirkju
sl.’ föstudag, er þeir, er fórust í flugslysinu, voru jarðsettir frá Akur-
eyrarkirkju, Kórinn var fagurlega skreyttur. Skátar stóðu heiðursvörð
við Idsturnar.
Eiginmaður minn og faðir
Sigtryggur Helgason,
er andaðist 6. júni síðastl., verður jarðsunginn laugardaginn
14. júní, og hefst athöfnin kl. 1 e. h. frá heimili hins látna,
Gránufélagsgötu 28. — Blóm og kransar afbeðið.
Sigrún Sigurðardóttir.
Hallfreð Sigtryggsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
Gunnars Hallgrímssonar,
tannlæknis.
Vandamenn.
Þakkarávarp
Hafi Flugfélag íslands h.f., Reykjavík, kærar þakkir fyrir
þess dásamlegu framkomu við andlát og jarðarför
Þórðar sonar míns.
Sömuleiðis hafi allir aðrir innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hluttekningu. — Guð launi ykkur öllum.
Fyrir mína hönd og aðstandenda,
Arnaldur Guttormsson.
ÞÖKKUM INNILEGA öllum þeim, sem auðsýndu samúð
við andlát og jarðarför dóttur minnar,
Sigurrósar Jónsdóttur,
og systur okkar
Rannveigar Kristjánsdóttur.
Matthea Kristjánsdóttir. Ingólfur Kristjánsson
Erlingur Kristjánsson. Sigurður Kristjánsson.
INNILEGAR HJARTANS ÞAKKIR fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við hið sviplega fráfall og jarðarför ástkærrar dóttur
okkar og systur.
Brynju Hlíðar,
lyfjafræðings.
Guð blessi ykkur öll.
Foreldrar og bræður.
HJARTANS ÞAKKIR til allra þeirra, er sýndu okkur samúð
við fráfall og jarðarför dóttur okkar og systur,
Júlíönu Arnórsdóttur,
og litla drengsins hennar,
Árna Jónssonar.
F. h. systkina og annarra vandamanna,
Þórá Sigurðardóttir,
Amór Björnsson, Upsum.
Öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu
við andlát og jarðarför
Steíáns Sigurðssonar.
deildarstjóra.
vottum við hjartans þakkir.
Vandamenn.
HJARTANS ÞAKKIR fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns og fósturföður okkar,
Árna Sigurðssonar.
Guðrún Sigurgeirsdóttir. Svava Friðjónsdóttir.
Jónína Skaftadóttir. Ágúst Nilsson.
Nokkrar stúlkur
óskast í hreinlega vinnu. Upplýsingar í verksmiðjunni í
hjá verksmiðjustóra (ekki í síma).
í Akureyrarkirkjugarði sl. föstudag, áður en jarðsett var. Prestamir
þrír á myndinni eru séra Pétur Sigurgeirsson, séra Benjamín Krist-
jánsson og séra Sigurður Stefánsson.
Niðursuðuverksmiðjan Síld h.f.
IMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMIIIinMMMMMMMMMMIUMMMMMMMMMMMMMMMMMMM;
2 stúlkur
geta fengið atvinnu í Hress-
ingarskálanum. Gott kaup.
Upplýsingar í síma 431.
Sólrík stofa
itil leigu í nýju húsi. A. v. á.
Frestað verður
að draga í happdrætti Verka-
kvennafélagsins „Eining“ til
1. júlí næstkomandi.
Kýr til sölu
nýlega borin, með hárri nyt
og af góðu kyni.
Þorsteinn Simonarson,
Norðurgötu 33.
Get leigt
til sumardvalar 2 herbergi,
með aðgangi að eldhúsi, í Mið-
gérði, Höfðahverfi.
Friðbjörn Guðnason,
Grenivík.
Aðalfundur
Félag verzlunar- og
skrifstofufólks
á Akureyri
heldur aðalfund sinn að Gilda-
skála K. E. A. föstudaginn 13.
þ. m., kl. 9 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Áríðandi að félagar mæti vel
og stundvíslega.
STJÓRNIN.
Trillubátur
✓
vélarlaus, til sölu.
A. v. á.
Jeppa-bifreið
. yfirbyggð, með nýrri vél, til
sölu, ef samið er strax. A. v. á.
Minnispeningur
á silfurfesti fundinn í Hrafna-
gilsstræti. — Geymdur á af-
greiðslu Dags.
Orgel
til sölu. Uplýsingar í Grund-
argötu 4.
Góður fataskápur
óskast keyptur. — Upplýsingar
í sírna 504.
Vörubíll,
tveggja tonna, Chevrolet,
model ’34, með nýjum mót-
or, í ágætu lagi, með sann-
gjörnu verði, er til sölu nú
þegar. Upplýsingar í benzín
afgreiðslu KEA eða Geisla-
götu 37.