Dagur - 11.06.1947, Síða 7
Miðvikudagur 11. júní 1947
7
DAGUR
Kommúnistar viima að stöðvun
síldarverksmiðjanna.
(Framhald af 1. síðu).
ncsstjórnarmeðlim í broddi fylk-
ingar, hafa hafizt handa mn að
eyðileggja fyrirhugaða starf-
iækslu Krossanesverksmiðjunn-
ar. Komnninistar hafa í allt vor
beitt sér gegn því, að Verk t-
mannafélag Glæsibæ j arhre pps
tæki upp samninga við verk-
smiðjuna, samkvæmt ítrekuðum
tilmælum stjórnarinnar, og þeg-
ar félagið lætur loks .til síri heyra,
er það til þess að tilkynna verk-
smiðjunni, að það hafi afsalað
sér réttinum til samninga í liend-
ur nefndar á vegum Alþýðusam-
ttands Norðurlands og Alþvðu-
sambands íslands, en þessi nefnd
hefir það hlutverk helzt að
hengja sem flestar síldarverk-
smiðjur aftan í brölt kommún-
ista á Siglufirði. Á fundi í fyrra-
kvöld samþykkti svo Verka-
mannafélagið í Glæsibæjar-
hreppi, að heimila stjórninni
vinnustöðvun í Krossanesi frá
20. þ. m-Eru fingraför kommún-
ista auðsæ á þessari samþykkt,
enda mun stjórnarnefndarmað-
urinn í Krossanesi og bæjarfull-
trúinn Steingrímur Aðalsteins-
son einkum hafa beitt sér þarna
gegn hagsmunum bæjarins og
verksm iðj u nnar.
Furðulleg afstaða verkamanna.
Þessi samþykkt verkamanna í
Glæsibæjarhreppi ér furðuleg,
einkum þegar þess er gætt, að
Krossanesverksmiðja á allra
verksmiðjanna mest undir því
komið, að undirbúningar stöðv-
ist ekki, þegar tími er svo mjög
hlaupinn, sem nú er, og þar sem
vitað er, að margar aðrar síldar-
verksmiðjur hafa ýmist gert sér-
samninga, svo sem. Ðjúpavík og
Ingólfsfjörður, eða verkamenn
hafa ekki látið etja sér út í hið
pólitíska æfintýri kommúnista,
svo sem á Hjalteyri, og hafa e'kki
látið samningsréttinn í hendur
kommúnista. Þetta tilræði við.
verksmiðjuna kemttr úr. hörð-
ustu átt frá verkamönnum í
Glerárþorpi og Glæsibæjar-
breppi, sem ættu manna bezt að
skilja þá erfiðleika, sem verk-
smiðjan á í og nauðsyn þess, að
starfræksla geti hafizt á réttum
tíma. Þeirra er og hagurinn
mestur, að fyrirtækið komizt á
rekspöl í sumar. Ef kommúnistar
fá vilja sínum framgengt þarna.
er auðsætt, að rekstur Krossanes-'
verksmiðjunnar getur ek'ki orðið
í sumar ,því að ekkert vit væri í
því, að halda áfram undirbún-
ingi, ef sýnt væri, að verksmiðjan
yrði ekki tilbúin fyrr en síðla á
vertíðinni. Með þessu athæfi er
þv.í beinlínis stefnt að því að
eyðileggja fyrirtækið. Kommún-
istar hafa í því efni fengið lið-
sinni frá járniðnaðarmönnum í
Reykjavík, sem boða samúðar-
verkfall með Dagsbrún frá 16. þ.
m., en járniðnaðarmenn þaðan
vinna nú að uppsetningu tækja í
Krossanesi. Ef sú vinna fellur
niður 16. þ .m., er það einnig
rothögg á rekstursmöguleika
ver ksm ið j u nnar.
Kommúnistar villja verkfall
á síldarflotanum.
Allt ber hér að sama brunni.
Kommúnistar vilja skapa sem
mest öngþveiti og erfiðleika og
reyna að efla flokksstarfsemi sína
á grftndvelli upplausnarinnar. —
Næsta skrefið er verkfall sjó-
manna. — Kommúnistablaðið
Mjölnir í Siglufirði rekur nú
hatraman áróður fyrir því, að
sjómenn neiti að fara á síld nema
greiddar verði 50 krónur fyrir
síldarmálið. Þarna hyggjast
kommúnistarnir næst til að
leggja til atlögu.
Augljóst er að þjóðfélagið
verður að snúast til varnar gegn
þessari sókn ofbeldismannanna.
Eru því horfur á löngu verkfalli.
Fjölbreytt hátíðahöld
sjómanna um síðast*
liðna helgi
Sjómannadagurinn var hátíð-
legur haldinn hér um s. 1. helai,
en hátíðahöldum var frestað um
fyrri helgi, vegna hins börmulega
flugslyss.
Hátíðahöldin hófust á laug-
ardagskvöldið með kappróðri.
Kepptu sex sveitir karla, fjórar
sveitir kvenna og tvær drengja-
sveitir. í liði karla vairð sveit Vél-
stjórafélags Akureyrar fyrst og
reri vegalengdina, sem var 1000
metrar, á 4 mín. 15.7 sek. Vann
hún farandbikar sjómannadags-
ins. í róðri kvenna sigraði Slysa-
varnardeild Akureyrar. Veð-
banki var starfræktur, eins og
áður, og voru viðskipti allfjörug,
en nokkuð spillti það aðsókn. að
veður var kalt.
Á sunnudaginn hófust hátíða-
höldin með hópgöngu sjómanna
kí. 10 f. h.
Kl. 11 var hlýtt á messu í kirkj-
unni. Séra Pétur Sigurgeirsson
prédikaði.
Kl. 4 síðdegis hófst útiskemmt-
un við sundlaugina og á leik-
vangirium sunnan hennar. Keppt
var í stakkasundi (30 metrar),
björgunarsundi (30 metrar), reip-
drœtti, tunnu- og pokahlaupi.
Fyrstur í stakkasundi varð Hilm-
ir Ásgrimsson á 10.09 sekv í
björgunarsuridi Jón Andrésson,
m.s. Rifsnes, á 37.2 sek. Atla-
stöngin, sem gefin er af Vél-
smiðjunni Atla fyrir hæstu sam-
anlagða stigatölu í íþróttum
dagsins, hlaut Alfreð Finnboga-
son með 44 stigum. í reipdrætti
sigraði Skipstjórafélag Norðlend-
inga og hlaut farandbikar KEA.
í reipdrætti kvenna sigraði sveit
ú,r Slysavarnadeldinni konur úr
Glerárþorpi.
Hátíðahöldunum lauk með
dansleik í Samkomuhúsinu og tð
Hótel Norðurlandi, og var þar
litbýtt verðlaunum.
Rauðkúfótt mertryppi
með rauða skellu í nára, hefir
tapazt. Tryppið er ómarkað,
tveggja vetra gamalt. Sást síð-
ast á Þrastarhóli. Þá, sem
kynnu að verða varir við
tryppið,.bið ég góðfúslega að
láta mig vita strax.
Helgi Pálsson,
Akureyri.
Skápgrammofónn
til sölu með tækifærisverði.
A. v. á.
V átryggingardeild^Þ►
+—~
Tilkynning
Það tilkynnist hér með heiðruðum viðskiptavinum mínum,
að frá 1. júní sl. hefi ég selt Guðrúnu ísberg hárgreiðslustofu
mína, Bylgju.
Jafnframt því að þakka góð. viðskipti, vona ég, að þér látið
hinn nýja eiganda Bylgju njóta viðskipta yðar framvegis.
Vdrðingarfyllst,
S-teingerður Árnadóttir.
Samkvæmt ofanskráðu hefi óg undirritúð keypt hár-
greiðslustofuna Bylgju. Mun ég leggja áherzlu á fljóta og
góða afgreiðslu. Vona ég, að stofan njóti framvegis sömu
viðskipta og í tíð fyrri eiganda.
Virðingarfyllst,
Guðrún ísberg.
=NYJA BI0=D
sýnir í kvöld:
Hetja í heljarklóm
(„Captain Eddie“)
Áhrifamikil og atburðarík
kvikmynd frá 20th Century
Fox.
Aðalhlutverk:
Fred Mc Murray
Lynn Ban
Lloyd Nolan
Thomas Mitchell
Tilky
nnin
Fiá og með deginum í dag hætti ég undirrituð rekstri
Hótel Akureyri, og um leiðog ég |iakka undanfarin viðskipti,
vænti égað hótelið megi, í framtíðinni, njóta sömu velvildar
og hingað til.
Akureyri, 2. júní 1947.
Virðingarfyllst,
Vigdis fíjarnadóltir.
Samkv'æmt ofanrituðu hef ég undirritaður tekið Hótel Ak-
ureyri á leigti, og mun kappkosta að gera viðskiptavini á-
nægða, jafnfrann sem ég vænti þess að hótelið rnegi njóta
sömu velvildar eftirleiðis, sem hingað til.
Akureyri, 2. júní 1947.
• Virðingarfyllst,
Ed luard Frederiksen.
Aðalmynd vikunnar:
Sesar og Kleópatra
Stórfengleg myrid í eðlilegujn
litum.
Aðalhlutverk:
Claude Rains
Vivien Leigh
Stewart Granger
Hœkkað verð.
Vic
Tjöld,
2ja og -Ira mantia,
hvit. og grcen
! Verkamannafélag
I Akureyrarkaupstaðar
I heldur fund í Verklýðshúsinu miðvikudaginn 11. júní ri. k.,
| kl. 8.30 e. h. '
j Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Ráðstafanir félagsins í sambandi við vinnustöðvun
Dagsbrúnar.
j 3. Önnur mál.
I Stjómin. j
• ll|MMMMIIIMMII,M,MMMMIMMIt,MM,,MMMMMMIMMMMM,,,M,IIIIMM,IMMIM,MMMMM,MMIMM,IIIMMM|llll,IMIII,,M|MIMM,M,M,,í
Tjaldbotnar
Svefnpokar
Sportvöru- og
hljóðfæraverzlunin
Ráðhústorgi 5.
Sírni 510.
Tapaði svipu
á leiðinni frá Akureyri að
Grund. Merkt E. Einarsson.
Skilist á afgreiðslu Dasjs.
Renedikt Kristjátvsson.
Hæð í húsi til leigu.
Lysthafendur leggi nöfn sín
í lokuðu umslagi merktu
„hæð“, inn á afgreiðslu
blaðsins. Fyrirframgreiðsla
æskileg.