Dagur - 11.06.1947, Side 8
DAGUR
S
/r- - ■ ■" - ■ = —----------
Úr bæ og byggð
i 1......— .....==t/
I.O.O.F. - 12961381/2. - Aukaf.
Messað næstk. sunnudag kl. 2 e. h.
í Lögmannshlíð.
Guðsþjónustur í Grundarþingapr-
kalli. Sunnudaginn 15. júní, Möðru-
völlum kl. 1 e. h.
Eyfirðingar. Biblíunámsflokkurinn
frá Sjónarhæð, Akureyri, heldur sam-
komu að Grund 15. þ. m. kl. 3 e. h.
Þar verður ræða flutt. og vitnisburðir,
sungið og leikið á strengjahlóöfæri.
Allir velkomnir.
Kantötukór Akureyrar og þeir
Karlakórsfélagar, sem aðstoðuðu við
flutning Strengleika. Mætið til æfing-
ar og viðtals í kapellunni vegna 17.
júní hátíðahaldsins og fteira, föstud.
13. júní kl. 8.30 e. h.
Hjúskapur. 29. maí sl. voru gefin
saman í hjónaband af sóknarprestin
um, séra Pétri Sigurgeirssyni, Helge
Johannes Heitzmann, hljómsveitar-
maður á Hótel Norðurland, og ungfrú
Elsy Erna Marie Fogh. — Þann 7.
júní gaf séra Pétur Sigurgeirsson sam-
an í hjónaband: Ungfrú Heklu Geir-
dal og Guðmund Asgeirsson, iðn-
verkamann. Heimili þeirra er að
Oddeyrargötu 22. — Ungfrú Hrefnu
Álfheiði Jónsdóttur og Erlend Snæ-
björnsson, bifvélavirkja. Heimili
þeirra er að Ránargötu 12.
Félag verzlunar- og skrifstofufólks
á Akureyri heldur aðalfund að Gilda
skála KEA næstk. föstudagskvöld kl.
9 e. h.
Mæðrastyrksnefnd biður þess get-
ið, að konur þær, sem óska eftir hvíld
á vegum nefndarinnar í sumar, eru
beðnar að gefa sig fram sem fyrst við
skrifstofu nefndarinnar, Brekkugötu
1. Opin á mánudögum og föstudögum
kl. 5—7 e. h.
Sextíu og fimm ára afmæli átti
Halldór Friðjónsson, fyrrv. ritstjóri,
síðastliðinn laugardag.
Ritstjóraskipti hafa orðið við
„Verkamanninn". Rósberg G. Snædal
lætur af því starfi, en við tekur Þórir
Daníelsson, stúdent frá Borgum.
Kveníélagið Iðutm í Hrafnagilshr.
heldur dansskemmtun í þinghúsi
hreppsins laugardaginn 14. þ. m. kl.
10 e. h. Aðeins fyrir sveitafólk. Veit-
ingar á staðnum.
Hjúskapur. Síðastliðinn laugardag
voru gefin saman í hjónaband af sókn-
arprestinum í Grundarþingum ungfrú
I-Ijördís Björnsdóttir frá Syðra-Lauga-
landi og Magnús Aðalsteinsson, bóndi
að Grund.
Árekstur. Síðastliðinn mánudag var
árekstur í milli fólksbifreiðar og
Jeppabifreiðar í Skipagötu. Fólksbif-
reiðin skemmdist nokkuð en menn
sakaði ekki.
Lá við stórslysi við
Eyjafjarðarárbrú
Síðastliðið sunnudagskvöld lá
við stórslysi við vestustu Eyja-
fjarðarárbrúna, er jeppabifreið
ók út af veginum austan megin
brúarinnar og steyptist í ána. í
bifreiðinni voru séra Þorvarður
Þormar í Laufási og frú hans,
tveir aðrir farþegar og bifreiðar-
stjóri. Bifreiðin var að koma frá
Laufási. Er 'komið var að austur-
enda vestustu brúarinnar ók bif-
reiðanstjórinn allt í einu út af
veginum við brúarendann, en
þar er beygja á veginum, og
steyptist jeppinn í ána. Stóðu aft-
urhjólin ein upp úr vatninu. —
Fólkið komst nauðuglega út úr
bifreiðinni og er mesta mildi, að
ekki skyldi verða stórslys þarna.
Frú Þormar handleggsbrotnaði
og var flutt á sjúkrahúsið en
aðra sakaði ekki, svo að teljandi
sé. Bifreiðin skemmdist mikið.
Konráð Vilhjálmsson
er að semja Þing-
eyingaskrá
Konráð Vilhjálmsson héfur
ákveðið að gera skrá yfir alla
Suðurþingeyinga á 19. öld, og
hefur þegar liafið þetta starf'. í
skránni verður getið um allt fólk
í sýslunni á öldinni, senrleið, og
skýrt frá því, lrvar það hefur
dvalið. Slík persónusaga heils
byggðarlags hefur aldrei verið
samin fyrr hér á landi, og mun
rit þetta, er fullgert verður,
ákjósanleg héimild fyrir ætt-
fræðinga og sagnfræðinga í fram-
tíðinni.
Konráð hefur að undanförnu
dvalið í Reykjavík til þess að
viða að sér efni í skrána úr heim-
ildum á l.andsbókasafni og Þjóð-
minjasaíni, og er hann nýkom-
inn heim úr þeirri Jerð. F.r þetta
þriðja lerð lians suður í þessum
erindum.
Tapazt hefur
10 lítra aluminum-mjólkur-
flutningafata í Strandgötu
eða Haínarstræti, merkt:
G. H. K.
Finnandi vinsamlega beðinn að
gera aðvart í
VerzL Eyjafjörður hf
Saumakassar
Tnýkomnir
VÖRUHÚSIÐ h/f
Ferðamenn!
Sjómenn!
Höfum fyrirliggjandi
danska ÞURRMJÓLK.
Hentug fæða í útilegu.
Reynið eina dós.
VÖRUHÚSIÐ h.f.
Gráfíkjur
í pökkum
Rúsínur
steinlausar
Ferskjur
Áprikosur
Snlta
margar teg.
Saft
Kjötteningar
Búðingar
Þurrkað kálmeti
í pökkum
o. m. m. fl.
Vöruhúsið h/f
11 ára dreng
vil eg koma á gott sveita-
heimili í nágrenni við Ak-
ureyri í sumar. — A. v. á.
|Vil skipta
á svo til nýrri vörubifreið með sturtum i
og nýrri eða nýlegri Jeep-bifreið.
/5 =
R. v. á.
Miðvikudagur 11. júní 1947
Tilkynning til sildarsaltenda
Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld á
: þessu sumri, þurfa samkvæmt 8. grein laga nr. 74
■ j frá 1934 að sækja um leyfi til Síldarútvegsnefndar.
Saltendur þurfa að upplýsa eftirfarandi:
j; 1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða.
ji 2. Af hvaða skipum þeir fái síld til söltunar.
3. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni.
jj 4. Hve margt síldarverkunarfólk vinnur á stöð-
jj inni.
jj 5. Eigi umsækjandi tunnur og salt, þá hve mikið.
jj Þeir saltendur, sem óska að fá tómar tunnur og
jj salt frá Síldarútvegsnefnd, sendi umsóknir til skrif-
jj stofu nefndarinnar á Siglufirði fyrir 30. júní 1947.
Síldarútvegsnefnd.
• •
HATIÐAHOLD
þjóðhátíðardaginn 17. júní 1947
TILHÖGUNARSKRÁ
Kl. 2,00 e. h. Lúðrasveit Akureyrar, ldkur á Ráð-
hústorgi
— 2,15 — Skrúðganga að ^hátíðarsvœðinu, eða
til kirkju, verði óhagstætt veður.
— 2,30 — HÁTÍÐAHÖLDIN Á TÚNUNUM
SUNNAN VIÐ SUNDLAUGINA.
1. Hátíðin sett. Steinn Steinsen, bæjar-
stjóri.
2. Fánahylling, skátar.
3. Guðsþjónusta, séra Pétur Sigurgeirs-
son prédikar.
4. Lýðveldisræða, Þorsteinn M.^jónsson
forseti bæjarstjórnar.
5. Ræða, Kristján Róbertsson stúdent.
6 Þjóðsöngurinn.
— 4 30 — Iþróttasýningar og íþróttakeppni. Fim-
leikasýning kvenna (hópsýning) frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar, stjórnandi
Þórhalla Þorsteinsdóttir. Annara sýn-
inga verður getið sé staklega í götu-
auglýsingum.
Lúðrasveit Akureyrar og söngfélög
bæjarins leika og syngja milli skemmti-
atriða.
— 9,00
Ýms skemmtiatriði.
— 10,00 — Dans á palli á hátíðasvæðinu. Hljóm
sveit leikur.
—12,00 — Flugeldar.
— 2,00 e.m. Hátíðahöldunum slitið.
Ókeypis aðgangur að öllum skemmtiatriðum dagsins.
Þess er fastlega vænst að allir bæjarbúar(taki þátt í
gleði dagsins, og á þann hátt sem sæmir þroskaðri-
menningarþjóð.
Forstöðunefndin.