Dagur - 01.10.1947, Blaðsíða 10
10
DAGUR
Miðvtkudagur 1. október 1947
iiiiiHiiHiiiuimttiliiuimfÍHiiiiiuiH£
Auglýsing nr. 8r 1947
frá Skömmtunarstjóra.
Samk'væmt heimild í 3. grein reglugerðaf frá 23. septenrber
1947, um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu og
afhendingu vara, liefur Viðskiptanefndin ákveðið þessa
skammta af eftirtöldum skömmtunarvörum handa hverjum
einstaklingi, á tímabilinu frá 1. október—31. desember 1947,
og að reitir iþeir á hinum nýja skömmtunarseðli skuli á þessu
tímabili gilda sem lögleg innkaupaheimild samkvæmt því,
sem liér greinir:
Reitimir merktir A 1—A 10 (bóðir meðtaldir):
Gildir hver reitur fyrir 1 kg, af kornvörum.
Reitirnir merktir A 11—A 15 (báðir meðtaldir):
Gilda á sama hátt fyrir 1 kg. af kbrnvörum, en liver hinna
afmörkuðu hluta þessara reita fyrir 200 gr. af kornvörum.
Reitirnir merktir B 1—B 50 (bóðir meðtaldir):
Gildir hver fyrir tveggja króna verðmæti í smásölu af
skömmtuðum vefnaðarvörum (öðrum en tilbúnum ytri
ifatnaði),'og/eða skömmtuðuirg búsáhöldum eftir frjálsu
vali kaupanda.
Reitimir merktir K 1—K 9 (báðir meðtaldir):
Gildir hver fyrir i/á kg. af sykri.
Reitimir merktir M 1—M 4 (báðir meðtaldir):
Gildir hver fyrir hreinlætisvörum þannig, að gegn hverj-
um slíkum reit fáist afhent \/ kg af blautasápu eða 2 pk.
af þvottaefni eða 1 stk. af handsápu eða 1 stk. af stanga-
sápu.
Reitimir merktir J 1—J 8 (báðir meðtaldir):
Gildir hver fyrir 125 gr. af brenndu og/eða möluðu kaffi
eða 150 gr. af óbrenndu kaffi.
Stoínauki nr. 14:
Gildir fyrir 1 kg af erlendu smjöri.
Ennfrem'ur hefur Viðskiptanefndin ákveðið, að stofnauki
nr. 13 gildi fyrir tilbúinn ytri fatnað fram til ársloka 1948
þannig, að gegn þeim stofnauka fáist afhent á þessu tímabili
1 -alklæðnaður karla eða 1 yfirhöfn karla eða kvenna eða 2 ytri
kjólar kvenna eða 1 alklæðnaður og 1 yfirhöfn á börn undir
10 ára aldri.
Reykjavík, 30. september 1947.
Skömmtunarstjórinn.
iinMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinimiiiiiiiiiiiimmimiiiiiMii
1111111111 M 1111
lllll 1111111111111II lllllll 111111111111111111111111IIIIIIMIIIIII?
Auglýsing nr. 6,1947
frá Skömmtunarstjóra.
Samkvæmt heimild í 7. gr. reglugerðar frá 23 .sept .1947
um vöruskömmtun, dreifingu og afhendingu vara, er hér
ineð lagt fyrir bæjarstjórnir og hreppsnefndir, hverja í sínu
umdæmi ,að afhenda til almennings skömmtunarsseðla þá,
er þeim hafa nú verið sendir.
Með tilvísun til 6. gr. nefndrar reglugerðar, er hér með
lagt svo fyrir, að hina nýju skömmtunarseðla skuli afhenda
gegn stofni af núgildandi matvælaseðli fyrir júlí—september
1947, enda sé stofninn greinilega áritaður með nafni, heim-
ilisfangi, fæðingardegi og ári þess, er nefndan matvælaseðil á,
eins og fonn.hans segir til um.
Bæjarstjórnir og hreppsnefndir geta krafist þess, að sá,
er óskar að fá afhentan nýjan skömmtunarseðil, geri á ann-
an hátt fullnægjandi grein fyrir því, hver hann sé t. d. með
því að krafjast staðfestingar á því, hvar viðkomandi sé skráð-
ur á síðasta manntali ,og að liann jafnframt færi sönnur á að
hann hafi ekki fengið hinn nýja skönnntunarseðil afhentan
annars staðar, óski hann að fá afhentan skömmtunarseðilinn
utari þess umdæmis, þar sem hann var síðast skráður á mann-
tali, áður en afhending hins nýja skömmtunarseðils er óskað.
Hina nýju skömmtunarseðla má ekk'i afhenda í stað þeirra
sem sagðir eru glataðir eða ónýttir, nema fullgildar sánn-
anir séu fyrir því, að rétt sé skýrt frá í því efni. Rísi ágrein-
ingur út af afhendingarsynjun á skömmtunarseðii, má leita
úrskurðar skömmtunarstjóra um slíkan ágreining, og er úr-
skurður hans fullnaðarúrskurður.
Reykjavík, 25. sept. 1947.
Skömmtunarstjórinn.
1
b
Auglýsing nr. 7 19- 17
frá Skömmtunarstjóra.
. .Samkvœmt heimild í 3. grein reglugerðar frd 23. septem-
ber 1947 um sölu og afhendingu bensins og takmörkun d
akstri bifreiða ,1/efur Viðskiptanefndin dkveðið eftirfarandi:
Á Címabilinu frá 1. október til 31. desember 1947 skal rnán-
aðar bensínskammtur bifreiða vera sem hér segir í þefm flokk-
um er að neðan greinir:
A-1 Strætisvagnar 1800 lítrar
A-2 Aðrar sérleyfisbifreiðar svo og
mj ólkurfl u tningabi freiðar 900 lítrar
A-3 Leigubifreiðar til mannflutninga,
5-7 manna 400 lítrar
A-4 EinkabLfreiðar, 5-7 manna 60 lítrar
A-5 Einkabifreiðar, 2-4 manna 45 litrar
A-6 Bifhjól 15 lítrar
B-1 Vörubifreiðar yfir 5 tonn 600 lítfar
B-2 Vörubifi'eiðar 4-5 tonna 500 lítrar
B-3 Vörubifreiðar 3-4 tonna' 400 lítrar
B-4 Vörubifreiðar 2-3 tonna 350 lítrar
B-5 Vörubifreiðar 1-2 tonna 200 lítrar
B-6 Vörubifreiðar \/-l tonn 100 lítrar
B-7 Vörubitreiðar (sendiferðabifreiðar)
minni en l/2 tonn 45 lítrar
Úthluta skal til bifreiða, sem taldar eru í A-folkki, bensín-
skammti fyrir 3 mánuði í einu, þ. e. til 31. desember 1947,
en til bifreiða, serit taldar eru í B-flokki (vörubifreiðanna)
til aðeins 1 mánaðar í einu.
Rey.kjavík, 30. september 1947.
Skömmtunarstjórinn.
^############################^> <^4^^^#vy#########################</ i
Auglýsing nr. 3 1947
frá Sköramtunarstjóra.
Samkvæmt heimid í 15. gr. reglugerðar frá 23. sept 1947
um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, drefingu og afhend-
ingu vara, er hér með lagt fyrir alla þá, er hafa undir hendi
skömmtunarvörur þær, sem tilgreindar eru í auglýsingu
nr. 2/1927 frá skömmtunarstjóra, dags. í dag, að framkvæma
hinn 30. þ. m. birgðakönnun á skömmtunarvörum, áður en
viðskipti hefjast liinn 1. október n. k.
Utan Reykjavíkur hefur ölum bæjarstjórum og oddvitum
verið sent eyðublöð undir birgðaskýrslu, þar sem tilfært er,
auk heitis varanna, tilvísanir í 'tollskrána (kafli og nr.), til
leiðbeiningar fyrir hlutaðeigendur, og geta þeir fengið eyðu-
blað þetta afhent hjá nefndum aðilum.
í Reykjavík ber öllum aðilum, sem ekki hafa þegar fengið
eyðublaðið sent í pósti, að snúa sér til skömmtunarskrifstofu
ríkisins og fá afhent eyðublað.
Útfylla ber eyðublaðið rétt og nákvæmlega, eins og form
þess segir til um, þannig að magnið sé tilfært í þeim eining-
um, er eyðublaðið tilgreinir, en heildarverðmæti hverrar vöru
sé tilfært með smásöluverði, eins og það er hinn 1. október
1947.
Eftir að eyðublaðið hefur verið útfyllt að öllu leyti eftir
því, sem við á, ber eiganda vörubirgðanna að undirrita það,
Og afhenda viðkomandi bæjarstjóra eða oddvita eigi síðar en
fyrir kl. 12 á hádegi hinn 2. október n. k.
í Reykjavík ber að afhenda birgðatalninguna til skömmt-
unarskrifstofu ríkisins.
Athygli skal vakin á því, að samkvæmt 18. gr. nefndrar
reglugerðar er heimilt að leggja við 20—200 króna dagsektir
vegna vanrækslu á að gefa umrædda skýrslu á tilsettum tíma.
Bréf:
1
Reykjavík, 25. sept. 1947.
Skömmtunarstjórinn.
»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»#########»»##}
„Hverju reiddust goðin. . . .?“
AÐ KVÖLDI þess 25. sept. hlustaði
eg á fréttir brezka útvarpsins.
Fréttir frá London mundi ríkisútvarp--
ið kalla það. Þetta kvöld var birt orð-
sending brezku ríkisstjómarinnar tit
Búlgara vegna aftöku stjómmálafor-
ingjans Petkoff. Bretastjórn hélt því
fram, að ekkert hefði sannast á Pet-
koff af því, sem borið var á hann,
nema það, að hann hefði verið á móti
ríkisstjóm kommúnista. Þó hefðu
dómendur allir verið kommúnsitar og
lögfræðingar, er að málinu fengu að
koma. Lögfræðingar þeir, sem Pet-
koff hafði fengið til þess að verja mál
sitt, voru handteknir skömmu áður en
réttarhöldin hófust og þeim ekki
sleppt fyrr en þeim var lokiðogdauða-
dóminum fullnægt. Brezka stjómin
lýsti viðbjóði sinum á þessu fram-
ferði, minnti á, að það væri brot á
friðarsamningum stórveldanna við
Búlgaríu og sýndi ljóslega, að komm-
únistastjómin svifist einkis til þess að
bæla niður gagnrýni og heilbrigða
stjómarandstöðu í landinu. Eitthvað
á þessa leið var orðsending Breta,
efnislega mun þetta rétt, en dtðalagið
kann að hafa verið eitthvað annað.
Menn skyldu halda, að hér væri um
verulegar fréttir að ræða. Ríkisstjóm
eins ríkis ber aðra rökstuddum ásök-
unum um réttarmorð og kúgun þegn-
anna. Og þetta sama land státar af
„austrænu lýðræði“ og hefir leppa út
um allar jarðir til þess að syngja því
lof og dýrð. En í þessu máli brást ís-
lenzka ríkisútvarpið undarlega við,
þrátt fyrir „fréttir frá London“, sem
það svo kallar. Eg hlustaði eftir því
hvemig hin íslenzka frásögn af þess-
ari orðsendingu Bretastjómar mundi
verða. En eg héyrði hana aldrei. Mér
er næst að halda, að hún hafi aldrei
verið flutt. A. m. k. er víst, að það
hefur ekki verið gert eins mikið veður
út af henni og þegar Pravda skrifar
eitthvað um ágæti hins austræna lýð-
ræðis og spillingu og stríðsæsingar
Vesturveldanna. Þá er lexían þulin,
ekki einu sinni, heldur oft. Nú er mór
spum: Hvers vegna gerði íslenzka rík-
isútvarpið svona lítið úr þessari frétt,
ef það þá stakk henni ekki algerlega
undir stól? Sum dagblaðanna birtu
hana undir stómm fyrirsögnum. Öll
heimsblöðin, sem frjáls eru, gerðu hið
sama. Það er að segja, öll, nema
kommúnistablöðin. Þau gættu þess
vandlega að þegja um þetta. Þjóðvilj-
inn eins og önnur kommúnistablöð.
Var það af sömu ástæðunni, sem
fréttamenn útvarpsins vildu ekkiaðís-
lenzkur almenningur fengi að kynn-
ast éliti brezku stjómarinnar á fram-
ferði kommúnista í Búlgaríu. O.
Leiðrétting. Á 1. d. annarar síðu í
þessu blaði hafa fallið úr í prentun
eða misprentast hin leturbreyttu orð
hér á eftir:
Jafnhliða því, sem útflutningsverð-
mæti saltfiskjarins minnkaði, tók
Framsóknarflokkurinn, sem á þessum
émm réð stjómarstefnunni, samhliða
irmílutningshöftunum forustuna fyrir
nýbreytni í útflutningi sjávarafurða og
öflunar markaða fyrir þær.
Ennfremur á 1. d. sömu síðu: afköst
þeirra aukin um 15%, átti að vera
150%.
í þessari sömu grein em nokkrar
fleiri prentvillur, en sem hægt er að
lesa í málið.
Tómar flöskur
Kaupi 3ja pela flöskur næsta
hálfan mánuð, á 40 aura stk.
Móttaka 1 flugskýlinu við
Hafnarstræti, frá kl. 6—8 á
kvöldin.
Ari Jóhannesson. Sími 382.
Fimmtuéur varð< Karl Ásgeirsson,
símritari hér í bænum, sl. mánudag,
vinsæll og velmetinn borgari, sem
hefir gegnt trúnaðarstörfum fyrir sím-
ann um áratugi.