Dagur - 29.10.1947, Blaðsíða 3
Vfiðvikudagur 29. október 1947
DAGUR
S
Frá Grímsey
Árið 1947 hófst með einmuna
veðurblíðu. En á útmánuðum
snjóaði nokkuð og lagði mikla
skafla fram af bökkum og hæð-
um. Vorið var umhleypingasamt
frarn um miðjan maí. Þá batn-
aði, og var hretviðralítið úr því.
Sauðburður gekk vel og fénaðar-
höld voru yfirleitt mjög sæmi-
leg.
Hrognkelsaveiði var nær engin
í vor og fiskafli lítill þar til í
júní. Þá aflaðist dável, og hefir
svo verið í sumar, þegar á sjó
hefir gefið, en gæftir í stopulla
lagi. Frystihús veitti fiskinum
móttöku.
Heyskapur hófst með júlí. —
Tíðin var góð til þeirra starfa og
spretta sú mesta, sem hér hefir
verið síðan 1929. Tún .voru tví-
slegin með mesta rnóti og úthag-
inn vafinn gfasi, svo að flatt
liggur sums staðar, þrátt fyrir
mikinn ágang búpenings.
Á hverjum bæ eru 1—3 vot-
heysgryfjur, og ávallt í þær látið
Jrverju sem viðrar um sláttinn. —
Reynist það vel til gjafar og flýt-
ir fyrir heyskapnum, því að taða
hér er þurrkvond með afbrigð-
um.
- Hey munu venju fremur góð
hér, eftir þetta hagstæða hey-
skaparsumar. Þó dregur það úr,
að víðast var nokkuð af töðunni
ofsprottið. — Sláttuvél er hér
engin, né heldur aðrar heyvinnu-
vélar, en sjósókn þá veður leyfir
og dregst slátturinn því lengur
en æskilegt er.
Kartöfluuppskeran er misjöfn,
sums staðar góð, en þar sem garð-
ar nutujddd skjóls, léku stórviðri
grasið svo illa að undirvöxtur
varð lítill eða nær enginn. Þrátt
fyrir ágæta haga og hlýtt veður-
far er sauðfé ekki vænt, og hefir
ekki verið það undanfarin ár,
hvað sem veldur.
Gestkvæmt er hér á sumrum,
þegar veiðLskip leita lags við
eyna. Ganga sjómenn þá oft á
land í stórhópum. Taka þá á
stundum höndum til meira en
þarft þykir qg er furða hvað þeir
leggja á sig við slíka sjálfboða-
vinnu .Þá er ekkert um það feng-
ist hvenær kaffitíminn er, né
heldur þrefað um hvort dag-
vinna er eða eftirvinna. En þetta
eru nú sjómenn.
Rekatrjám hafði.verið bjargað
úr aðkrepptri vík, og þau færð
alveg upp á bakka. Sá staður við
víkina var til þess valinn þar sem
bjarg .var lægst og auðveldast
uppgöngu. En komumönnum
hefir ekki fundist svo búið mega
vera, heldur höfð.u þeir flutt
trén góðan spöl og.velt þeim nið-
ur í víkina aftur þar sem hæst var
og þverhnýpt, og viðamikil og
þung hliðgrind hvarf úr sínum
stað, og fannst hún í víkinni hjá
spítunum.
Nú víkur sögunni að mannlaus-
um bæ. Þar voru allar dyr ólæstar
nema að baðstofuhúsi, er sneri
stafni fram á hlað. Þar á var stór
fjögurra rúðna gluggi. Komu-
mönnum var ekki nóg að sjá þar
inn. Þeir fundu sleðameið og
höfðu haft hann að barefli á
gluggann, brutu þannig póstinn
ojj rúðnabrotin höfðu þyrlast um
þvert gólf yfir í skiirúmsþilið
hinum-megin. En þótt inn mætti
komast í húsið eftir þessar að-
gerðir, var það samt ekki nóg.
Einnig varð að sprengja upp
hurðina.
Utihús létu gestkomuna held-
ur ekki án vitnisburðar. Þar
hafði árahlunn verið beitt á
þilstafn og hann rekinn inn úr
á nokkrum stöðum. Hjólbörum
þar voru gerð sömu sk.il.
Hver sá,. er halda vill sínö,
þarf að hafa gætur á er slíkir gest-
ir koma. Bússur, stígvél og veið-
arfæri eru ekki óhult fyrir þeim,
nema undir varðgæzlu eða örugg
um lás, Sarna er um rófugarða.
Þeir, sem útkjálka byggja, eða
afskekkta staði, fagna jafnan
gestkomu, ef .vænta má þess að
með friði sé farið.. En vonbrigð-
um veldur, ef gestirnir taka að
bekkjast til við heimamenn, án
sakar. '
Ofsagt væri, að telja alla að-
komusjómenn eiga hér sam-
merkt. Svo er ekki. En furðulega
eru þeir margir, sem hafa þann
hátt á, að koma fram eins og sið-
litlir séu, svo ástæða er til að
spyrja:
„Höfum við gengið til góðs,
götuna fram eftir veg?“
Kristján Eggertsson.
’NÝJA BÍÓ
Nœsta mynd:
Hjartaþjófurinn
(Heartbeat)
Amerísk kvikmynd, tekin af
Robert og Raymond Hakim.
Leikstjóri: Sam Wood.
Aðalhlutverk:
GINGER ROGERS
JEAN PIERRF. ANMONT
(Bönnuð yngri en 1(5 ára.)
„ALLIR EITT“
Munið: Næsti dansleikur er
1. nóvember n. k., á sáma
stað og tíma.
STJÓRNIN.
Stúlka
óskast á heimili í Reykjavík
til áramóta eða lengur, ef um
semst. Flugfar báðar leiðir.
A. v. á.
Vantar góða stúlku
til heimilisstarfa nú þegar.
Arni Guðmundsson lœknir.
Tilkynning
til verzlana og iðnfyrirtækja, varðandi stofnauka nr. 13.
Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að stofnauki nr.
13, gildir ekki sem innkaupaheimild í heildsölu fyrir
öðrum vörum en tilbúnum ytri fatnaði.
Þær verzlanir, sem selt hafa mtravöru, þ. e. efni og
tiilegg í ytri fatnað, sem seldur er gegn stofnauka nr.
13 og ætla að fá út á slíka metravöru, eða tillegg í heild-
sölu þurfa að skila stofnaukum nr. 13 til skömmtunar-
skrifstofu ríkisins, eða trúnaðarmanna hennar, ásarnt
sérstakri nótu með hverjum stofnauka. Á slíka nóta
skál tilfæra hvaðan metravara hefir verið afgreidd, hve
mikið af hverju, svo og sundurliðað verð, en kaupandi
skal einnig árita slíka nótu. Innkaupaleyfi fyrir metra-
vöru, verður svo veitt fyrir því verðmæti, er nóturnar
sýna.
Klæðskerar og sauinastofur, er framleiða og selja vörur
út á stofnauka nr. 13, þurfa á sama hátt að útbúa nótur
yfir það efni, sem fer til hins selda fatnaðar út á stofn-
auka nr. 13, og fá svo innkaupaleyfi fyrir samsvarandi
upphæð í metravörum hjá skömmtunarskrifstofunni.
Reykjavík, 24. okt. 1947.
SKÖMMTUNARSKRIFSTOFA RÍKISINS.
Jörðin HRAUNSHÖFÐI
í Öxnadalshreppi er til kaups og laus til ábúðar í næst-
komandi fardögum. — Áskilinn réttur til að taka eða
hafna tilboðum.
Skjaldarstöðum, 23. okt. 1947.
Jónas Jónsson.
Tilkynning
Bygginganefnd og bæjarstjórn hafa samþykkt að taka
ekki til afgreiðslu umsóknir um byggingafiamkvæmd-
ir, sem fjárfestingarleyfi þarf til, nema fjárfestingar-
leyfi sé fyrir hendi.
Bæjarstjóri.
Notið tómstundirnar til náms
í bréfaskóla S. í. S. getið þér lært:
íslenzka réttritun
Reikning
Bókfærslu
Ensku
Fundarstjórn og fundarreglur
Skipulag og starfshætti
samvinnufélaga
Þeim, sem læra undir skóla í heimahúsum,
skal bent á það, að bréfaskólinn er sérstaklega
heppilegur til undirbúnings undir próf í neðri
bekki framhaldsskólanna.
Veitum fúslega allar upplýsingar
BREFASKOLI S. I. S.
Reykjavík.
Skráning atvinnulausra
fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni dagana
3.-8. nóvember 1947, kl. 2—6 síðdegis. Til skrán-
ingar mæti allt verkafólk og iðnverkafólk, sem
ekki hefur fasta atvinnu, og gefi upp atvinnu sína
þrjá sl. mánuði, og annað það; sem krafist er við
venjulega atvinnuleysisskráningu. .
Akureyri, 27. október 1947.
Bæjarstjóri.
Nýkomið! Nýkomið!
Prjónavörur
KVENPEYSUR, hnepptar
DRENGJAPEYSUR
KARLMANNAPEYSUR
KARLMANNASOKKAR og
VETTLINGAR
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
TAÐA
100 hestar af góðri, grænni töðu, helzt
súgþurrkaðri, óskast.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA