Dagur - 04.02.1948, Blaðsíða 1
F orustugreinin:
Málþóf Sjálfstæðisfl. í sam-
bandi við nauðsynlegar end-
urbætur á fyrirkomulagi
innflutningsverzlunarinnar.
Finnnta síðan:
Ekkert stríð 1948, segir
stjörnuspámaður, sem at-
hygli vekur um þessar
mundir!
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 4. febrúar 1948
tb!„
Vinnuheimilið að Reykjalundi
betta er stórhýsi SÍBS að Reykjalundi, sem nú er í sm/ðum og vænt-
anlega vcrður tekið í notkun á bessu ári. Sjá viðtal við bórð Bene-
diktsson, framkvæmdastjóra sambandsins í blaðinu í dag.
Fullfrúar verzlonarsfaðanna fyrir
norðan og ausfan koma saman til
fundar í Reykjavík 10. þ.
Samtök kaupstaðanna uin að knýja fram leið-
réttingar í gjaldeyris- og siglingamálum
Sjornenn hrundu skemmdaráformum kommúnista
*Dagsbrúnarstjörnin varð að afturkalla nætur-
vinnubannið við síldveiðiskipin
Um miðja s. 1. viku lét hin kommúnistíska stjórn Verkaniannafc-
Iagsins Dagsbrúnar í Reykjavík stöðva vinnu við lestun síldar í m„
s. Hvassafell, er hefjast átti um kl. 8 síðdegis. Tilkynnti stjórnin
jafnframt, að næturvinna við lestun síklartökuskipanna yrði bönnuð'
framvegis.
Vei"ulcgur skriður er nú kom-
inn á samvinnufyrirætlanir verzl-
unarstaðanna fyrir norðan og
austan, er hafa það markmið að
knýja fram nauðsynlcgar réttar-
bætur í siglinga- og verzlunar-
málunum.
Þessi mál voru tekin upp hér í
bæjarstjórninni í desemberbyrj-
un og ritaði bæjarstjórnin síðan
öllum bæjarstjórnum og hrepps-
nefndum verzlunarstaðanna fyrir
norðan og austan og leitaði sam-
vinnu við þær um ráðstafanir til
þess að koma fram leiðréttingum.
Undirtektir hafa hvarvetna verið
ágætar, og er nú fullvíst, að full-
trúar allra bæjarstjórna og lang-
flestra- hreppsnefnda verzlunar-
staðanna koma saman til fundar í
Reykjavík 10. þ. m. Verður þar
undirbúin sameiginleg sókn þess-
ara aðila á hendur ríkisvaldinu
og þeim stofnunum, sem hafa það
á valdi sínu, að innleiða sanngirni
og réttlæti í siglingamálum og
gjaldeyrisúthlutun, í stað þess
ófremdarástands, sem nú ríkir í
þeim efnum.
Ályktun Akureyrarnefndarinnar.
Af hálfu bæjarstjórnar Akur-
eyrar voru kjörnir 4 menn til far-
arinnar. Nefndina skipa: Jakob
Frímannsson, framkvæmdastj óri,
formaður, Svavar Guðmundsson,
bankastjóri, ritari, Erlingur Frið-
jónsson og Tryggvi Helgason. —
Þessi nefnd kom nýlega saman á
fund og gerði þar ályktun um
verkefni fundar þess, sem nú hef-
ir verið kvaddur saman syðra. í
nefndarálitinu, sem samþykkt
var samhljóða, segir m. a., að
vinna beri að því, að innflutningi
á venjulegum verzlunarvörum
verði skipt í milli verzlunarsvæða
í réttu hlutafalli við íbúatölu.
Ollum innflutningi til hvers
verzlunarsvæðis verði síðan út-
hlutað til Verzlana búsettra innan
svæðisins. Innflutningsleyfum
fyrir hráefnum til iðnaðar telur
nefndin ennfremur að skipta beri
í milli verzlunarsvæða í réttu
hlutfalli við þarfir og afkastagetu
iðnfyrirtækjanna á hvérjum stað.
Sama regla verði látin gilda um
úthlutun á innflutningi til sjávar-
útvegsins.
Gjaldeyrisráðstafanir bankanna.
Nefndin telur að Fjárhagsráð
beri, að sjá um, að útbúum bank-
anna utan Reykjavíkur verði séð
fyrir nægum gjaldeyri til að ann-
ast yfirfærslur á þeim innflutn-
ingi, sem hverju verzlunarsvæði
er ætlaður, enda fái bankaútibú-
in fullt sjálfræði til að afgreiða
yfirfærslubeiðnir innan síns við-
skiptasvæðis.
Til þess að tryggja eðlilega þró-
un í viðskiptum og framleiðslu
byggðarlaga utan Reykjavíkur,
(Fjamhald á 5. síðu).
Árshátíð Fram-
sóknarmanna
verðor 14 febr.
Árshátíð Framsóknarfélaganna
hér í bænum verður haldin að
Hótel KEA laugardagskvöldið 14.
febrúar næstk. Tilhögun verður
auglýst í næstu viku. Er þess
vænzt að Framsóknarmenn fjöl-
menni á hátíðina.
„Við eigum engin
orð til að þakka
íslenzku þjóðinni66
Skipbrotsmenn af
,,Dhoon“ segja frá
Brezka fiskveiðablaðið Fishing
News hefur birt allýtarlega frá-
sögn af björgun skipbrotsmann-
anna við Látrabjarg á dögunum,
eftir frásögn þeirra sjálfra, er
þeir komu heim. Er þar greint frá
hreysti og fórnarlund hinna ís-
lenzku björgunarmanna. Segir
einn skipbrotsmanna að lokum I
viðtalinu við blaðið: Við eigum
engin orð til þess að þakka ís-
lenzku þjóðinni nógsamlega.
f sama eintaki Fishing News er
þakkargrein frá ritstjórninni til
Slysavarnafélags íslands, fyrir
starf þess fyrr og síðar við björg-
un fiskimanna í sjávarháska. Er
þar farið mörgum, fögrum viður-
kenningarorðum um starf félags-
ins og afrek björgunarsveita þess
á ýmsum tímum.
Um þessar mundir er unnið að
ýmsum endurbótum á Krossanes-
verksmiðjunni, að því er Hall-
gTÍmur Björnsson verksiniðjustj.
skýrði blaðinu frá í gær. Vinna
nú um 10 menn að þessum endur-
bótum. Hin veigamesta þeirra er
á þróm verksmiðjunnar. Er verið
að byggja ný skilrúm í þær, lag-
færa færibönd og endurbyggja
allt blóðvatnskerfi þrónna. Vcrki
þessu verður Iokið í vor.
Af öðrum endurbótum, sem
unnið er að, má nefna breytingu á
rekstri verksmiðjunnar frá kola-
kyndingu til olíukyndingar.
Gerði verksmiðjustjórinn sér von
um að því verki yrði lokið fyrir
sumarið. Verksmiðjan á 2500 lesta
lýsistank í pöntun, og er ætlunin
að nota gamla tankinn fyrir olíu.
Þá á verksmiðjan 3—4 nýjar skil-
vindur í pöntun og væntanlegar
fyrir sumarið. Loks er unnið að
endurbyggingu annars þurrkofns
verksmiðjunnar. Þegar öllum
þessum endurbótum er lokið, má
telja verksmiðjuna í mun full-
komnara ástandi en áður var.
Oll skuldabréfin seld.
Verksmiðjustjórnin bauð út
600 þúsund króna skuldabréfalán
á sl. ári til þess að afla verk-
smiðjunni nægilegs fjármagns. —
Bæjarbúar og stofnanir í bænum
tóku þessu útboði vel og eru öll
Þessar einræðiskenndu ráðstaf-
anir kommúnistafoi-sprakkanna
vöktu þegar furðu um allt land
og megna gremju bæði sjómanna
og verkamanna í Reykjavík.
Kunnugt var, að á miklu valt fyr-
ir síldveiðarnar og þjóðarbúskap-
inn að lestunarvinnan í Reykja-
vík gengi sem greiðlegast og var
búið að koma málunum í það
horf, að lestun skipa á næturnar
gekk nær því eins fljótt og á dag-
inn. Alveg er óvíst hve lengi síld-
veiðin í Hvalfirði stendur yfir,
og aflamagnið og gjaldeyrisöflun
þjóðarinnar fer að verulegu leyti
eftir því, hversu fljótt og vel
tekst að snúa veiðiskipunum við
í Reykjavíkurhöfn, losa þau og
koma þeim á veiðar aftur. Þessar
aðgerðir geta því ekki skoðast
skuldabréfin nú seld. Um afkomu
verksmiðjunnar í sumar vildi
verksmiðjustjórinn ekki segja
neitt að svo stöddu, þar sem
reikningum er ekki lokið. Ennþá
liggur verksmiðjan með 300 smá-
lestir lýsis, en von er um að það
fari bráðlega. Talsvert af lýsi frá
sl. surari er ennþá óútflutt í verk-
smiðjum hér nyrðra.
1855 Akureyringar
félagsmenn í KEÁ
Aðalfundur Akureyrardeildar
KEA var haldinn sl. föstudags-
kvöld. í skýrslu sinni um hag og
störf deildarinnar upplýsti deild-
arstjórinn, Sigtr. Þorsteinsson,
að félagsmenn í deildinni hefðu
verið 1855 um áramótin. Bættust
168 nýir félagsmenn við á sl. ári,
en 73 gengu úr deildinni, dánir og
burtfluttir. í stjórn deildarinnar
fyrir þetta ár voru kosnir séra
Friðrik J. Rafnar vígslubiskup,
Þorsteinn Þorsteinsson afgrm. og
Ármann Dalmannsson kennari. —
Þá fór fram kosning 92 fulltrúa á
aðalfund kaupfélagsins. Nokkrar
fyrirspurnir um félagsmál komu
fram á fundinum og svaraði Jak-
ob Frímannsson framkvæmdastj.
þeim.
annað en skemmdaverk komm-
únista við einn höfuðbjargræðis-
veg þjóðarinnar og afkomu sjó-
manna og verkamanna.
Sjómenn rísa upp gegn komm-
únistum.
En hér höfðu kommúnistar
ráðist í verk, sem var þeim um,
megn. Sjómenn risu upp sem einn
maður til þess að hrinda þessum
áformum þeirra. Lýstu þeir yfir
því, að ekkert skip mundi láta úr
höfn til síldveiða meðan bann
kommúnista væri í gildi, og var
vinnu við losun jafnframt hætt.
Á sameiginlegum fundi sjó-
manna, fulltrúa síldarverksmiðja
ríkisins og stjórnar Dagsbrúnar,
urðu kommúnistar að beygja sig,
afturkalla bannið og leyfa nætur-
vinnu á ný. Eina takmörkunin,
sem í gildi er á næturvinnu
verkamanna er sú, að verkamað-
ur, sem unnið hefur í sólarhring
samfleytt, skuli ekki tekinn í
vinnu á ný fyrr en eftir 24 stunda
hvíld.
„Áætlun M“.
Þessar aðfarir kommúnista
gagnvart síldveiðunum benda ó-
neitanlega til þess, að hin fræga
„áætlun M", sem uppvíst varð
um í Þýzkalandi fyrir skemmstu,
nái til allra vestrænna landa, og
að kommúnistaflokkarnir hvar-
vetna á Vesturlöndum hafi það
hlutverk með höndum nú, að
spilla fyrir framleiðslu þjóðanna
og draga úr mætti þeirra til end-
urreisnar á grundvelli hins vest-
ræna lýðræðisskipulags. Þótt
þessi tilraun til að draga úr síld-
veiðunum færi út um þúfur, er
þó líklegast að kommúnistar
muni brátt þreifa fyrir sér á öðr-
um sviðum atvinnulífsins og
reyna að koma spillingaráform-
um sínum í framkvæmd þar. Það
er fróðlegt að minnast þess,
hvernig farið er með mál þeirra
manna í Rússlandi, sem uppvísir
eru að því að tefja fyrir fram-
leiðslustörfum þjóðarinnar. —
Moskvuútvarpið sagði nýlega frá
fangelsisdómum, sem voru
kveðnir upp yfir starfsmönnum.
sem höfðu orðið valdir að töfum
á samgöngukerfi landsins. Menn
geta því gert sér í hugarlund,
hvernig tekið mundi á skipulögð-
um skemmdaverkum, eins og
þeim, er kommúnistar hér efndu
til, í þessu fyrirmyndarlandi
kommúnista.
Unnið @ð endurbótum Krossaness-
verksmiðjunnar
011 skuldabréf verksmiðjitnnar eru seld