Dagur - 04.02.1948, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 4. febrúar 1948
DAGUR
3
FRÁ BÓKAMARKAÐINUM
Sven Edvin Salje. Bóka-
útgáfan Norðri 1947.
Átti að myrða Nehru líka?
í fyrra kom út á Akureyri saga
með þessu nafni, í þýðingu Kon-
ráðs Vilhjálmssonar. í sumar, eða
haust, kemu'r svo framhald sömu
sögu, sem reyndar nefnist Ríki
mannanna, en eg nefni bæði
bindin fyrrgreinda nafninu.
Ýmsir hafa lofsamlega getið
þessarar bókar, enda verðskuld-
ar hún það tvímælalaust, ættu
sem flestir hugsandi menn að lesa
hana. Virðist mér hún gædd öll-
um þeim kostum, sem skáldrit
má prýða.
Saga þessi er laus við allan
reyfarahátt og ólíkindi. Með ör-
fáum undantekningum gerast at-
burðirnir með eðlilegum hætti og
sögufólkinu er öllu sennilega lýst.
Jafnvel þó sagan gerist í Sví-
þjóð, er það samt svo, að íslenzk-
ur lesandi kannast þarna við flest
eins og úr heimahögum, aðeins sá
munur, að þarna er greint frá
kornyrkju og skógarhöggi, en
ekki sauðfjárrækt, eins og hér.
Þráður sögunnar er spunninn
með ágætum, áferðarjafn og blá-
þráðalaus. Frásagnargáfan bregzt
höfundi aldrei. Því er eins og við
sjáum fólkið við störf sín og heyr-
um það ræðast við.
Baráttan fyrir lífinu, í Móa-
hverfinu, er hörð og þar skortir
forystumenn. Þegar þægindin
koma í nábúasveitirnar, þá stend-
ur þar allt í stað. Svo fækkar
fólkinu, það lætur undan síga og
flýr. En þegar svo er komið
spyrnir Ketill fótum við og leggst
á móti straumnum, en þetta reyn-
ir á þolrifin, því að erfiðleikarnir
verða óteljandi og ekki minnstir
þeir, sem meðbræðurnir valda.
Þó sögufólkið flest sé menni-
legt og tápmikið, hefir það samt
sína galla og veiku hliðar, enda
stígur það ýms misheppnuð spor
og sum þau, er verða næsta af-
leiðingarík.
Fólkið hefir sitt heita blóð, sín-
ar ástríður, ríka geðsmuni og
stórbrotið skap. Sumir eru frið-
vana, því að Skotta fylgir þeim
næstum hvert spor. Stundum er
hún á hlið, stundum í slóðinni á
eftir, en meinlegust er hún þó,
þegar hún í hljóðleika og húmi
næturinnar leggst yfir brjóstið og
bægir svefninum frá. En reyndar
er þetta bara skugginn af eigin
vei'kum, hin vonda samvizka.
En þrátt fyrir allt: öfund,
grimmlyndi, hefnigirni og annað
seyrið, á fólkið þó, með öðrum
kostum, sáttfýsi og drenglund,
þegar því er að skipta. Og hið
befra fær yfirhöndina, svo að
Ketill vinnur ekki fyrir gýg.
Margt vantar að vísu enn í Móa-
hverfinu, en flóttinn er stöðvað-
ur. Rafmagnið er fengið, síman-
um hefir þeim verið heitið og
vegurinn er, að heita má, kominn
í samband við þjóðleiðina. Því er
mikill munur hvað ánægjulegra
er að líta nú yfir þessa litlu sveit,
„við Álftavatnið bjarta“, við
sögulokin, en var þegar sagan
hófst. Sagan lýsir heilbrigðri
hugsun, túlkar hollar skoðanir.
Málið er hreint, stíllinn gáfuleg-
ur, viðfeldinn og óþvingaður,
enda gæddur þeim blæbrigðum,
sem þurfa, til þess að gera mynd-
irnar skýrar og áhrifaríkar, fell-
ur efni og stíll ætíð vel saman.
Sem dæmi um snilld og skáldleg-
an næmleika, má benda á kaflann
um heimsókn vandafólks Birg-
ittu.
Eg er þakklátur fyrir þessa bók,
hún hefir slegið á hina beztu
strengi, veitt mér gleði og vakið
lægilegan hugblæ. Eg rita þessa
smágrein til þess að benda á þann
ógnarmun, sem er á þessari sögu
og innlendu framleiðslunni á
sessu sviði.
íslendingar hafa að vísu átt
nokkur dásamleg ljóðskáld, þó
nú sé aðeins eitt ofanjarðar. En
afburða söguskáld hafa þeir eng-
in átt og eiga þó sízt nú. Þó er ár-
lega varið allríflegri fjárhæð til
að verðlauna söguskáldin, þær
styrkveitingar eru um flest
furðulegar. En þó að til séu þeir
menn, sem dá mest þau skáldrit,
)ar sem í meginþáttum er tvinnað
saman og þrinnað, sóðalegur stíll,
alger mannfyrirlitning og hvers
konar sori, þá fer því fjarri, að
bókmenntasmekkur þjóðarinnar
í heild sé þannig.
Þorl. Marteinsson.
Út iiiii hvippinn
og hvappinn
Bing er tekjuhæstur.
Fjórða árið í röð er Bing Cros-
by tekjuhæsti kvikmyndaleikar-
inn í Bandaríkjunum, að því er
ameríska blaðið Motion Picture
Herald upplýsir. Næst á eftir
Bing eru þessir leikarar, í þeirri
röð, sem þeir eru taldir: Betty
Grable, Ingrid Bergman, Cary
Cooper, Humphrey Bogart, Bob
Hope, Clark Gable, Gregory
Peck, Claudette Colbert og Alan
Ladd.
★
Réttvísin í Rússíá.
Útvarpið í Moskvu hefir skýrt
frá því, að verkstjóri nokkur við
flutningakerfi landsins hafi hlot-
ið tveggja ára fangelsisdóm fyrir
að hafa látið flutningavagna
standa ónotaða í 13815 „vagn-
tíma“. Starfsmaður við Tomsk-
járnbrautina hlaut þriggja ára
fangelsi fyrir það, að tafir þóttu
hafa orðið á flutningavögnum á
járnbraut þessari.
★
Fátt um skildinginn í St. Moritz.
Það er alkunna að íslenzku
skíðamennirnir, sem taka þátt í
vetrarolympíuleikjunum í St.
Moritz fengu fjármuni af skorn-
um skammti til fararinnar, vegna
gjaldeyrisvandræðanna. Var auk
heldur ætlunin að senda fleiri
skíðamenn, en ekki fékkst gjald-
eyrir til þess. En fleiri þjóðir hafa
átt við erfiðleika að etja af þess-
um sökum en við. Norsk blöð
skýra frá því, að Olympíufararnir
norsku, en þeir urðu 17 talsins,
hafi ekki fengið nema nokkurn
hluta af þeim gjaldeyri, sem þeir
báðu um, og hafi tala þátttakenda
verið mjög takmörkuð of þess-
um sökum. Eru blöðin óánægð
yfir þessu.
Dánarminning
4. des. sl. andaðist að heimili
sínu, Æsustöðum í Langadal, frú
Þóra Jónsdóttir, ekkja séra Stef-
áns M. Jónssonar á Auðkúlu. Var
hún seinni kona hans. Hún var
fædd að Auðkúlu 15. júní 1872.
Foreldrar hennar voru hjónin
séra Jón Þórðarson prófastur á
Auðkúlu og Sigríður Eiríksdótt-
ir Sverrisson.
Föður sinn missti hún er hún
var um fermingaraldur og fluttist
þá með móður sinni að Litladal í
sömu sveit og dvaldist þar með
henni til fullorðinsára. í heima-
húsum hlaut frú Þóra ágætt upp-
eldi og staðgóða menntun eftir
því sem um var að ræða á þeim
tímum, bæði til munns og handa,
enda gædd námfýsi, stálminni og
góðri greind. Á kvennaskólanum
á Syðri-Ey dvaldi hún í 2 vetur
og naut þar fræðslu hjá hinni
mikilhæfu frændkonu sinni Elínu
Briem. Einn vetur dvaldi hún
suður í Reykjavík og naut þá
húsmæðrafræðslu hjá annarri
merkri frændkonu sinni, Hólm-
fríði Gísladóttur frá Reynivöll-
um.
Um nokkurra ára skeið stjórn-
aði hún eftir það búi hjá bróður
sínum, séra Theodór Jónssyni á
Bægisá. Var hún því vel undir
það búin að taka við stjórn og
húsmóðurstörfum á heimili
manns síns, er hún giftist honum
laust fyrir sl. aldamót og fluttist
aftur til æskustöðva sinna á Auð-
kúlu.
Mann sinn, séra Stefán, missti
frú Þóra árið 1930 og dvaldi eftir
það til dauðadags hjá einkadóttur
sinni, frú Sigríði Stefánssdóttur,
og manni hennar, séra Gunnari
Árnasyni á Æsustöðum.
Frú Þóra var mikilhæf og merk
hefðarkona og bar það augljós-
lega með sér, enda stóðu að henni
góðir stofnar, bæði í föður- og
móðurætt, þótt ekki verði það
rakið hér.
Hún var trygglynd og vinföst
og vönd að virðingu sinni. Var
hún ein þeirra mörgu íslenzku
sveitakvenna, sem skipaði sinn
sess með sæmd og prýði og sjón-
arsviftir er að.
Frú Þóra var jarðsungin við
hlið manns síns að Auðkúlu, þar
sem hún hafði dvalið svo lengi og
þar sem henni fannst hún alltaf
eiga heima á stöðvunum sem hún
unni hugástum framar öllum öðr-
um stöðvum. — Margt gamalla
sveitunga og vina fylgdi henni til
grafar. Ræður fluttu séra Björn
Stefánsson prófastur að Auðkúlu
og séra Gunnar Árnason á Æsu-
stöðum.
Kunnugur.
Leikhúsinál: Nýtt hefti
Nýlega er komið út nýtt hefti
af Leikhúsmálum, hinu myndar-
lega tímariti, er Haraldur Björns-
son gefur út. Þetta hefti flytur m.
a. ýtarlega grein um Hallgrím
Valdimarsson, hinn landskunna
áhugamann leiklistarmála. Ingi-
mar Eydal ritar greinina. í heft-
inu eru ennfremur greinar um
innleúda leikhúsastarfsemi, ís-
lenzka leikára fyrr og síðar og
margar myndir af leikfólki og
leikhúsum.
Fjölgar í kaupstöðum.
Árið 1947 fjölgaði um 112.000
manns í bæjum og borgum Sví-
þjóðar.
Sá atburður, sem mesta athygli
og mest umtal hefir vakið nú um
langan aldur, er hið óhugnan-
lega morð á Ilindúaleiðtoganum
Mahatma Gandhi sl. föstudag, er
hann var á leið til bæna að kvöldi.
Morðinginn er
úr flokki of-
s t æ k i sfullra
Brah matrúar-
m a n n a, sem
vilja gera Mú-
hammeðstrúar
m e n n útlæga
úr ríkinu og al-
ræði síns trú-
arflokks. Hinn
a 1 d n i leiðtogi
hafði um lang-
an aldur prédikað frið og bræðra-
lag í milli allra stétta landsins. —
Bálför Gandhis fór fram þegar
daginn eftir og
voru hundruð
jús. manna
viðstaddir. Af-
leiðingar þessa
atburðar fyrir
sambúð hinna
nýju ríkja, Pa-
kistan ogHind-
ústan, eru enn-
)á að verulegu
leyti óséðar, og
óttast-- margir
alvarlcga . árekstra . í milli trú-
flokkanna, .. Efth' að;- rannsókn
málsins hófst, hefir ýmislegt
komið í ljósj-sem bendir til þess,
að ætlunin hafi verið að myrða
einnig Nehru forsætisráðherra
Vatnskassalok
hefur tapazt af Bedforcl-
vörubifreið. Skilist, ■ gegn
fundarlaunimr, á N. B. S.
Skemmtisamkoma
verður haldin að Hrafnagili
sunnudaginn 8. febrúar. —
Til skemmtunar: „A ferð
og flugi“, gamanleikur í
iþrem þáttum, Dans á eftir.
Veitingar á staðnum.
Hindústan og fleiri ráðamenn
ríkisins. Hefir stjórnin nú bann-
að ofstækisflokk þennan og
nokkra aðra ,sem prédikuðu of-
beldi og óeirðir í skiptum lands-
manna.
Skjaldborgar-Bíó................."f
1 Nœsta mynd: [
I .London Town4 |
| Ensk músíkmynd í eðlileg- \
[ um litum. Fögur og hríf- i
| andi. I
''’lllíllllllllllllllllllllllllllllUIIIIIIIHIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIII?
NÝJA BÍÓ.........................,
Næsta rnynd: I
Þegar hveitibrauðs- |
dögunum lýkur
[ (From this Day Forward) \
i Amerísk kvikmynd. i
i Aðalhlutverkin leika: i
1 JOAN FONTAINE \
MARK STEVENS
.........miiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimikiniiiinmiiiii*
•miiin iii mmimmi iiiimiiiiiiiiii u iitn m mmmmiiiM
|Ensk jakkaföt I
á drengi, nýkomin. \
i ATH. Selcl gegn i/á stofn- \
[ auka 13.
I Braons verzlun|
i Páll Sigurgeirsson. i
riiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiiMiiimmimiiM7
Vinnustofusjóði Kristneshælis
hafa borizt þessar gjafir: Framlag
Akureyrarkaupstaðar 1947 kr.
5000,00. Framlag frá sýslunefnd
Eyjafjarðarsýslu 1947 kr. 3000,00.
Áheit fi-á gömlum sjúklingi kr.
100,00. Til minningar um Ragn-
heiði Brynjólfsdóttur, Krossanesi,
frá starfssystkinum hennar á sím-
stöðinni á Akureyri kr. 500,00. —
Beztu þakkir. Jónas Rafnar.
U. M. F. Framtíð.
ÞAKKARÁVARP
Ég undirritaður þakka af hrœrðum huga þá hugar-
hlýju og vináttu, sern börnin min sendu mér og aðrir
vinir og starfsmenn með heimsóknum, gjöfurn og skeyt-
um og hlýjum kveðjum á sjötugsafmœli mínu, þann
30. janúar. — Guð blessi ykkur öll.
JÓNAS TÓMASSON,
Hafnarstræti 33, Akureyri.
ÍíhKhKbKbKhkhKbKhKhKbKhKhKhkhKbKhKbKhkhKhKhkhkhKh;
Öskudagsfagnaður
Hcstamannafélagið Létlir „slær köttinn úr tunn-
unni“ sunnudaginn 15. febrúar n. k„ ef veður
leyfir, á Gleráreyrum. Hestamenn safnast saman
við Höepfner kk 1 e. h. og halda þaðan í gegnum
bæinn á Eyrarnar. — Þátttakendur beðnir mæta
í Bifröst i kvöld, kl. 8.30 e. h.
Skemmtinendin.