Dagur - 25.02.1948, Page 1
Forustugreinin:
Togaraútgerðin frá Akur-
eyri og framtíðarmögu-
leikar hennar.
AGU
Fimmta síðan: ;
Átök lýðræðisaflanna og
kommúnista í Tékkósló-
vakíu og atburðirnir þar
síðustu dagana.
XXXI. árg.
Akurcyri, miðvikudaginn 25. febrúar 1948
8. tbl.
Þcssi mynd var nýlega sýnd vestanhafs á listasýningu,
sem hafði það hlutverk að vekja áhuga manna fyrir hinni
alþjóðlegu barnahjálp. Milljónir barna og mæðra í mörgum
löndum sctja nú allt sitt traust á hina alþjóðlegu hiálpar-
starfscmi. Takist hún ekki cins vel og vonir standn til, bíð-
ur það lilutskipti þessara barna, að vcslast upp, ná aldrei
fullum þroska eða bíða hungurdauða. Minnist bess að söfn-
unin slendur yfir hér á landi nú. Hefiv bú gefið binn skerf?
Undirbúin stækkun skógræktar-
stöðvarinnar að Kjarna
Frá aðalfundi Skógræktarfélags Eyfirðinga
síðastliðinn sunniidag
Þingmannanefnd vinnur að framgangi málefna
kaupstaða-ráðstefnunnar
Engin svör hafa emi borizt frá Eimskip og Fjár-
hagsráði - líidegt að gjaldeyris- og siglinga-
rnálin komi til meðferðar á Alþingi
Skógræktarfélag' Eyfirðinga
hélt aðalfund sinn sl. sunnudag.
Á fundinum fluttu þeir skýrslur
um störf félagsins, Jón Rögn-
valdsson ,form., og Ármann Dal-
mannsson, starfsmaður félagsins
á sl. sumri. Félagið hafði með
höndum stofnun skógræktar-
stöðvar sinnar í Kjarnalandi við
Akureyri. Hófst sáning og gróð-
ursetning þar á sl. vori, og í haust
var undirbúin talsverð stækkun
stöðvarinnar til næsta vors. Alls
sá félagið um gróðursetningu um
20000 plantna á sl. ári, þar af um
7000 plöntur í landi skógræktar-
stöðvarinnar, afgangurinn var
gróðursettur í skógargirðingunni
í Vaðlaheiði og í öðrum skóg-
ræktargirðingum félagsins.
Ur stjórn félagsins áttu að
ganga þeir Þorsteinn Þorsteins-
son og Jónas Þór. Þoi-steinn var
endurkjörinn og Guðmundur
Karl Pétursson yfirlæknir í stað
Jónasar Þór. Stjórnin skiptir sjálf
með sér verkum og verður Ár-
mann Dalmannsson formaður á
þessu ári. Hann mun jafnframt
verða starfsmaður félagsins við
skógræktina næsta sumar.
Félagsmenn eru nú samtals 275
og hafðijreim fjölgað um 25 á ár-
inu. Er þetta furðulega lág tala
miðað við það mikla þjóðnytja-
starf, sem félagið hefir með
höndum. Mættu bæjarmenn og
héraðsbúar vissulega sýna meiri
áhuga fyrir þessum málum en
raun ber vitni. í félaginu eru þrír
ævifélagar, og gáfu þeir kr.
2600.00 til starfsemi félagsins á
árinu og á aðalfundinum bættust
við 2 ævifélagar, og greiddi annar
500 kr. en hinn 200 kr. Þá gengu
einnig 2 ársfélagar inn á fundin-
um. Árgjald til félagsins <>-■ lágt
Ágæt sala „Kaldbaks44
Akureyrartogarinn Kaldbakur
seldi afla sinn í Bretlandi s. 1.
miðvikudag. Aflinn var 4230 kit
fiskjar og seldist fyrir 13.925
sterlingspund, sem er ágæt sala
og hæsta sala skipsins til þessa.
Kaldbakur er væntanlegur
hingað frá Bretlandi í dag.
BARNAHJÁLPIN:
Stórgjöf frá aldraðri
konu
í gær barst afgreiðslu Dags stór
gjöf til barnahjálparinnar frá
aldraðri konu í Saurbæjarhreppi.
Sendi hún ellistyrk sinn til þessa
mannúðarmálefnis, samtals kr.
2200,00 Þessi fórnarlund og höfð-
ingsskapur mætti verða öðrum til
fyrirmyndar.
Kolkrabbi
í Eyjafirði?
í vikunni, sem leið, rak kol-
krabba (smokkfisk) í Dalvík. —
Vakti þetta mikla furðu, því að
kolkrabba verður ekki vart hér
nema á haustin. Ymsir telja þetta
benda til þess, að kolkrabbi sé
hér í firðinum nú og má vera að
reynt verði að athuga það nánar
frá Dalvík.
Ekkert umiið
í stjórnarskrár-
nefnd
Ennþá miðar hægt að undir-
búningi nýrrar stjórnarskrár fyr-
ir lýðveldið. Búiza hafði verið við
því, að stjórnarskrárnefndin
mundi hefja störf fyrir alvöru um
nýjárið, en ennþá hefir ekkert
verið gert. Hefir nefndin aðeins
haldið einn fund. Bjarni Bene-
diktsson, utanríkisráðherra, er
formaður nefndarinnar og ber
honum að kalla hana saman. Það
hlýtur að vekja furðu lands-
manna, hversu erfiðlega gengur
að fá nefndir þær, sem skipaðar
eru til þess að undirbúa stjórn-
arskrármálið, til að starfa.
Atómsýning hér
í næstu viku
Atómsýningin, sem haldin hefir
verið í Reykjavík að undanförnu,
verður opnuð í Gildaskála KEA
um helgina og verður sennilega
opin næstu viku. — Það er Jör-
undur Pálsson teiknari í Reykja-
vík, sem hefir komið sýningu
þessari á stofn. Hefir hún, svo og
kvikmyndasýningar í sambandi
við hana, vakið mikla athygli í
höfuðstaðnum að undanförnu.
Þegar kaupstaðaráðstefnunni
um gjakleyris- og siglingamál
lauk í Reykjavík í sl. viku, varð
nefnd kjörin af ráðstefnunni eftir
í höfuðborginni til þess.að fylgj-
ast ineð framgangi þeirra álykt-
ana, er ráðstefnan hafði gert og
veita viðtöku svörum frá Fjár-
hagsráði, Yiðskiptanefnd og Eim-
skipafélagi íslands við málaleit-
unum ráðstefnunnar.
Þegar blaðið átti tal við
Reykjavík í gær ,voru engin svör
komin frá Fjárhagsráði eða Eim-
skipafélagi íslands, en ófullnægj-
andi svar frá Viðskiptanefnd. Til
þess að stuðla að framgangi
þeirra málefna, er ráðstefnan
hafði á dagskrá sinni, sneri
nefndin sér til þingmanna utan af
landi úr öllum stjórnmálaflokk-
unum og leitaði samstarfs við þá
um leiðréttingar á ríkjandi skipu-
lagi gjaldeyris- og siglingamál-
anna. Var kjörin 8 manna þing-
mannanefnd í þessu skyni og
mun hún vinna að málunum nú,
er fulltrúarnir á kaupstaðaráð-
stefnunni hverfa heim. Mun þessi
þingmannanefnd flytja málið á
Alþingi, fáist ekki viðunandi úr-
lausn frá hinum opinberu stofn-
unum, sem leitað hefir verið til.
Ályktanir ráðstefnunnar.
Fundur fulltrúa frá verzlunar-
stöðum vestan-, norðan- og aust-
anlands telur núverandi tilhög-
un á veitingu innflutnings- og
gjaldeyrisleyfa óviðunandi fyrir
allflest byggðarlög utan Reykja-
víkur.
Með núverandi fyrirkomulagi
er bersýnilega að því stefnt, að
mestöll verzlun landsmanna
verði í Reykjavík, eins og var á
styrjaldarárunum. Er þegar svo
komið, að fjöldi manna í öllum
byggðarlögum verður að leita til
smásala í Reykjavík um kaup á
margs konar nauðsynjavöru, sök-
um vöruskorts hjá verzlunum á
öðrum verzlunarstöðum.
Af framangreindum ástæuðm
krefst fundurinn þess, að Fjár-
hagsráð komi nú þegar á þeim
breytingum á úthlutun inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfa, sem
hér fara á eftir.
Fáist ekki ótvíræð yfirlýsing
Fjárhagsráðs hér að lútandi,
skorar fundurinn á Alþingi að
breyta lögunum um Fjárhagsráð,
innflutningsverzlun og verðlags-
eftirlits, frá 5. júní 1947 í sam-
ræmi við eftirfarandi tillögur:
a) Heildarinnflutningi til lands-
ins á skömmtunarvörum og öðr-
um venjulegum verzlunarvörum,
öðrum en þeim, sem taldar eru
hér á eftir, verði skipt niður á
landsfjórðunga eftir nánar til-
teknum mörkum, í hlutfalli við
íbúatölu og þarfir hvers verzlun-
arsvæðis. Leyfunum sé úthlutað
til verzlana og fyrirtækja bú-
settra innan hvers verzlunar-
svæðis.
b) Heildarinnflutningi til lands-
ins á byggingarvörum, verði
skipt niður á sömu fjórðungs-
svæði í fullu samræmi við fjár-
festingarleyfi Fjárhagsráðs og
syeitai-stjórna á hverju svæði.
c) Heildarinnflutningi á út-
gerðarvörum skal úthlutað til
fjórðungssvæðanna í hlutfalli við
skipastól og útgerðarrekstur
hvers svæðis.
d) Heildarinnflutningi á efni-
vörum til iðnaðar skal skipt nið-
ur á fjórðungssvæðin og úthlutað
til verksmiðju- og iðnaðarfyrir-
tækja í hlutfalli við verksmiðju-
og iðnaðarrekstur á fjórðungs-
svæðunum. Þó skal tekið tillit til
afkastagetu og möguleika fyrir-
tækjanna til hagkvæmrar og
ódýrrar framleiðslu.
Skulu iðnfyrirtækin skipta
framleiðslu sinni milli landshluta
eftir fyrirmælum Viðskipta-
nefndar, hlutfallslega eftir þörf-
um hvers svæðis.
Ályktana ráðstefnunnar um
gjaldeyris- og siglingamál verður
síðar getið.
iMuoið bamahjálpina! \
Söfnun til hinnar alþjóðlcgu \
barnahjálpar er fyrir nokkru I
hafin hér í bænum. Er fégjöf- 2
um vcitt móttaka hjá blöðun- $
um og á skrifstofum Kaupfé- J
Iags Eyfirðinga. Hefir þegar 2
safnast nokkuð fé, en þó ekki '
nenia brot af því, sein vænta >
má að safnist hér í bænum s
og héraðinu. Þeir, scm ætla að 2
Ieggja eitthvað af mörkum t
ættu að koma gjöfum sínum i
scm fyrst á framfæri. Fatn- ;
aðargjafir eru cinnig vel þegn- ;
ar. Fötin þurfa að vera hrein
og hcil. Er þeim veitt móttaka ;
í vefnaðarvörudeild KEÁ. Að-
alstöfnunardagurinn er 29. fe-
brúar. Verður þá farið fram á I;
að menn gefi scm svarar dag- !
kaupi sínu til þcssa mikla
mannúðarmálefnis. Væntan-
lega ver'ður þá einnig ýmislegt 2
gert til þess að hvetja menn til 2
þcss að leggja fram sinn skerf. 2