Dagur - 17.03.1948, Page 3
Miðvikudaginn 17 marz 1948
D AGUR
3
RÓITSR OG ÚTELÍF
Skiðamót Akurcyrar.
í’yrri hluti þessa móts fór fram
í Snæhólum sl. sunnudag í
hvössu hlákuveðri og tilbrigða-
ríkum snjó. En leiðin upp eftir lá
um sumarauða vegi, aurkesjur og
loks blautar mýrar, þar sem
„bussui'" eru beztu farartækin!
Mannfjöldinn varð því eðlilega
ekki stór þarna efra, keppendur,
víst í meiri hluta, enda eru þeir
nú alltaf aðalmennirnir á þessum
samkomum. En þeir áttu nú ekki
allir „sjö daga sæla“, t. d. er þeir
voru farnir að sjá hilla undir
fyrsta verðlaunagripinn, og finna
fótunum kippt undan sér, þann-
ig að óhjákvæmilegt var að
bregða sér á magann eða
„bremsa'* með sjálfu nefinu! Mis-
rennslið var ógurlegt og bylturn-
ar sumar ljótar, en allir sluppu
þó við stórmeiðsli.
Hermann Stef. og dr. Sveinn
voru sem fyrri óþreytandi að
leggja refilstigu og gildrur, leiða
menn á kaldan klaka og heimta
þá aftur — fagnandi — úr helju.
Mótið fór því vel fram.
Urslit urðu þessi:
Brun kvenna:
1. Unnur Árnad. G. A. 48.2 sek.
2. Sigurveig Jónsd. G. A. 49.0
sek.
3. Erla Jónsd. M. A. 52.2 sek.
4. Björn Finnbogadóttir K. A.
54.4 sek.
Svig kvenna:
1. Björg Finnbogadóttir 48.6 sek.
2. Unnur Árnad. 61.6 sek.
3. Erla Jónsd. 71.4 sek.
4. Sigurveig Jónsd. 77.0 sek.
Brun karla, A-fl.:
1. Magnús Brynjólfsson K. A.
2.29 mín.
2. Guðm. Guðmundsson K. A.
2.40 mín.
3. Mikael Jóhannesson Þór 3.29
mín.
4. Jón Vilhjálmsson Þór 3.45 mín.
B-fl. (brun).
1. Baldv. Haraldss. Þór 3.03 mín.
2. Magnús Ágústsson M. A. 3.09
mín.
3. Birgir Sigurðss. Þór 3.17 mín.
C-fL:
1. Bjöi-n Halldórsson Þór 2.04
mín.
2. Þórarinn Guðmundsson M. A.
2.05 mín.
3. og 4. Hermann Ingimarsson
Þór og Kristján Jónsson Þór
2.14 mín.
5. Ólafur Sveinsson M. A. 2.18
mín.
6. Guðm. Ó. Guðmundsson K.
A. 2.19 mín.
7. og 8. Albert Þorkelsson K. A.
og Bjarki Arngrímsson Þór
2.22 mín.
9. Bragi Erlendsson M. A. 2.24
10. Haúkur Ragnars M. A. 2.33
mín.
11. og 12. Einar Einarsson K. A.
og Víkingur Björnsson Þór
2.34 mín.
13. Jón V. Tryggvason Þór 2.37
mín.
14. Óðinn Árnason K. A. 2.46
mín.
15. Páll Finnsson G. A. 2.53 mín.
16. Kristján Kristjánsson Þór 3.18
mín.
Svig karfla, C-fl.r
1. Þórarinn Guðmundsson M. A.
65 sek.
2. Björn Halldórsson Þór 67.6
sek.
3. Haukur Ragnarss. M. A. 67.8
sek.
4. Einar Einarsson K. A. 70.6
sek.
5. Ólafur Sveinss. M. A. 71 sek.
6. Jón Bernharðss. Þór 77.8 sek.
7. Páll Finnss. G. A. 80.2 sek.
8. Hermann Ingimarss. Þór 83.8
sek.
9. Kristján Jónss. Þór 85 sek.
10. Þráinn Þórhallsson G .A. 90
sek.
11. Kristján Kristjánss. Þór 91
sek.
Utan keppni fóru nokkrir þessa
braut, m. a. Magnús Brynjólfsson
á 49.2 sek. og Freyr Gestsson (15
ára) á 63.0 sek.
Svigbraut karla taldist 550 m.
löng, fallið 160 m. og hliðin 22, —
Brunbraut karla í A- og B-fl.:
Lengd 2.5 km., fall 500 m. — C-fl.
blaut: Lengd 2 km„ fall 400 m. —
Brunbraut kvenna: Lengd 500 m„
fall 150 m.
★
Árbók íþróttamanna 1946 og 1947,
ei' komin út og hefir nú borizt
Degi. í eftirmála segir ritstj., Jó-
hann Bernharð: „Fyrst var ætl-
unin, að Árbókin 1946 (um :árið
1945) kæmi út sumarið 1946, en
vegna anna við útgáfu nauðsyn-
legra leikreglna og skorts á
mótaskýrslum var ákveðið, að ár-
bækurnar 1946 og 1947 skyldu
koma út saman í einu lagi, helzt
snemina á ári 1947.“ — Dróst svo
útgáfan enn af svipuðum ástæð-
um — aðallega vegna ei'fiðleika
við að fá til prentunar móta-
skýrslur víðs vegar að af landinu.
En nú er bókin út komin og hefir
mikinn og fjölbreyttan fróðleik
að bjóða um íþróttir innan lands
og utan, íþróttasögu og íþrótta-
kappa, bæði þessara síðustu ára
— 1945 og 1946 — og þá frá fyrri
tímum. Kaflarnir eru þessir: 1.
Frjálsar íþróttir. — 2. Knatt-
spyrna. — 3. Sund. — 4. Glíma, —
5. Golf. — 6. Handknattleikur. —
7. Hnefaleikar. — 8. Skíðaíþrótt-
in. — Myndir bæði margar og
góðar, prýða bókina. Sagt er frá
öllum helztu mótum þessara ára
hérlendis og auk þess þeim mót-
um erlendis, sem fslendingar
tóku þátt í.
Þá fylgja og metskrár ýmiss
konar um ísl. met og met annárra
þjóða.
Bók þessari mun vel tekið af
mörgum áhugamönnum íþrótta-
mála. Fljótt á að líta virðist frá-
gangur góður og bókin eiguleg.
íbúð óskast
til kaups eða leigu 1. maí
Bjarni F. Finnbogason,
Norðurgötu 36.
Nýr, amerískur
Eldhúsvaski
til sölu. Til sýnis í A-ðal-
stræti 20. — Upplýsingar í
síma 535 og 347.
- Vetrarvertíðin í Hvalfirði
(Framhald af 1. síðu).
síld hafi alla.tíð gengið meira og
minna í Hvalfjörð. Nafnið bendir
til þess, sömuleiðis sögusagnirnar
um hinn „hreyfanlega botn“
fjarðarins, fuglager þar á haustin
og veturnar o. m. fl. Mér þykir
dví líklegast, að vænta mætti
síldai'innar þangað að öllum að-
stæðum óbreyttum.“
Hvað áttu við með því?
„Mér virðist margt benda til
ness að síldin sæki á þessi mið, af,
jví að þar hafi verið griðland
fyrir hana. Hvað hún hefir verið
að flýja, veit maður ekki. En eft-
irtektarvert er það, að maður
varð ekki var við neitt líf í Hval-
firðinum nema síldina og ofurlít-
ið af smákola. Engan þyrskling
eða annan fisk. Ogrynni af síld
gekk í fjörðinn. Veiðin varð á 2.
millj. mála. Hitt veit maður ekki,
hve mikið fór forgöi'ðum, drapst
og sökk í botninn, en eg hygg að
rað sé eins mikið magn og e. t. v.
meira en í land kom. í þessu tel
eg fólgna mikla hættu fyrir
áframhald veiðanna og eg á við
>essa hættu, þegar eg segi, að
mér þyki líklegt að síldin sæki á
miðin framvegis að óbreyttum
aðstæðum. Það er vitað, að
órgynni af síld drapst í Kollafirði
í fyrra. Síðustu togbátarnir, sem
?ar fóru um, fengu 2—3 poka af
úldinni síld úr botninum. Það er
staðreynd, að síldin leítaði lítið 1
Kollafjörð í vetur.Verðurreynsl-
an hin í sama í Hvalfirði næsta
vetur? Eg veit það að sjálfsögðu
ekki, en mér finnst þarna vera
veruleg hætta á ferðum. Það eru
ógrynni af síld, sem fór í botninn
í Hvalfirði. Ef hið tiltölulega litla
veiðisvæði þar á eftii' að verða
ýldupollur, á borð við Kollafjörð,
þá eru aðstæður breyttar, og
slíkt kann að hafa alvarlegar af-
leiðingar.“
Eru engin ráð til þess að fyrir-
byggja svo mikinn niðurburð á
miðunum?
„Sjálfsagt væri hægt að finna
einhver ráð til þess. En ef á að
vinna að því, þarf að haga veið-
unum öðruvísi en nú var gert.
Mörg skip höfðu svo léleg veið-
arfæri, að þau rifnuðu í nær því
hverju kasti. Mikið af síld drapst
og sökk af þeim sökum. Leiðin til
að fyrirbyggja það er að ekki
verði borin önnur veiðarfæri í
sjó, en þau, sem haldgóð eru. —
Mörg skip fengu svo stór köst, að
ein skipshöfn gat ekki ráðið við
þau. Stundum fóru þessi köst
forgörðum og sjálfsagt hefir
mjög mikið af þeirri síld drepist.
Leiðin til þess að bæta úr þessu
er að samvinna sé í milli veiði-
skipanna og þau hjálpi hvert
öðru. í vetur hugsaði hver um
sig og enginn hjálpaði náungan-
um. Stundum fengu skipin svo
stór köst, að þau gátu ekki tekið
alla síldina, þótt nótin' héldi, og
urðu að hleypa afganginum nið-
ur. Enginn mátti vera að því að
hirða leyfarnar. Einnig þetta
þyrfti að breytast með samvinnu
veiðiskipanna. Ef slíkar endur-
bætui' væru komnar í fram-
kvæmd, væri sjálfsagt hægt að
forða því, að geysilegt magn af
síld væri borið í botninn, eins og
nú var. Það var farið að bera
mjög mikið á því síðustu dagana,
að maður fengi slatta af úldinni
síld í nótina. Það boðar ekkert
gott að mínum dómi og er þess
vert, að því sé gaumur gefinn."
Hvað segja " sjómennirnir um
síldveiðina framvegis og flutn-
ingaerfiðleikana til verksmiðj-
anna?
„Eg held að álit manna sé yfir-
leitt, að nauðsynlegt sé að koma
upp vinnslustöð syðra, ef takast á
að hagnýta þessa gullnámu eins
og vera ber í framtíðinni. Annars
þarf eg ekki að kvarta undan
löndunarerfiðleikum syðra. Þeir
voru að mestu hjá liðnir, þegar
við hófum veiðarnar. En kostiiað-
urinn allur mun hafa verið gífur-
legur, én þó mun þjóðarbúið í
heild hafa hlotið góða uppskeru
úr Hvalfirði. Og það er fyrir
mestu.
Hvað hyggist þið nú fyrir á
Snæfellinu?
„Eg veit það ekki ennþá Talað
er um togveiðar eða ísfisksigl-
ingar, en hvort úr því verður er
óráðið.“
Ráðlierra heimilar
ráðningu sr. Péturs Sig-
urgejrss. lil 1. marz n.k.
Sérá Friðrik J. Rafnar hefir
beðið blaðið fyrir eftirfarandi til-
kynningu til safnaða Akureyrar-
prestakalls:
Þar eð fyrirsjáanlegt er, að
frumvárp það er þingmaður Ak-
ureyrar lagði fýrir Alþingi, um
skiptingu prestakallsins, nær
ekki afgreiðslu að þessu sinni,
hefir kirkjumálaráðherra, samkv.
ósk minni og sóknarnefndar Ak-
ureyrar, heimilað að framlengja
ráðningu séra Péturs Sigurgeirs-
sonar, sem aðstoðarprests í Ak-
ureyrarprestakalli um eitt ár, frá
1. marz að telja.
Um þjónustu prestakallsins,
messugerðir ög annað, fer eftir
nánara samkomulagi okkar séra
Péturs. Aukaverk önnumst við
báðir, eftir því sem- verkþegar
kjósa. Þó skal á það bent, að
kirkjubækurnar eru hjá mér. Er
því vottorð úr kirkjubókum að
sækja þangað. Og, að gefnu til-
efni, skal athygli vakin á því, að
öll dauðsföll innan prestakallsins,
ber að tilkynna til skrásetningar
í kirkjubók hér, enda þótt hinn
látni eigi að greftrast annars
staðar, og hafi ekki verið skráður
heimilisfastur hér.
Barnakerra og
barnavagn
óskast. Jóhann Guðmundsson
og Þórður Gunnarsson, póst-
húsinu.
Fljótandi gólfbón
Skilvindu-olía
Saumavéla-olía
Leðurfeiti
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörlitleildin og útibú
30 þíis. kr. söfnuðust
í Húsavík
Frá fréttaritara blaðsins.
Fjársöfnun til Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna í Húsavík
og í austurhluta Þingeyjarsýslu
nam alls um 50 þús. kr. í pening-
um auk fatnaðar, sem virtur er á
5—6 þús. kr.
Undanfai'ið hefir sjónleikurinn
„Syndir annarra", eftir Einar H.
Kvaran, verið sýndur hér við
mikla aðsókn og góða dóma
áhorfenda.
Síðastl. mánudag var til mold-
ar borinn hér Maríus Benedikts-
son, sjómaður, að viðstöddu
miklu fjölmenni.
BARNAHJÁLPIN:
45.000 kr. söfnuðust
á afgreiðslu Dags
Til viðbótar áður birtum fram-
lögum, liafa Degi borizt þessar
upphæðir til barnahjálparinnar:
Frá Hauk litla kr. 50,00, Ólafur
Hallsson 100,00, Kristján Jónsson.
200,00, Hjalti Einarsson 100,00,
Þorst. Jónasson Hraukbæ 50,00,
Gunnar Jónasson s. st. 25.00,
Steinunn Jónsdóttir 50,00, Einar
Kristjánsson 50,00, S. D. J. 30,00,
Jón og Ragna 100,00, Steinmóður
Þorst. 100,00, St. G. 50,00, Svava
100,00, N. N. 100,00, Valgerður
Benediktsdóttir 200,00, N. N.
30,00, Aðalsteinn Bergdal 100,00,
Garðar Halldórsson Rifkelsst.
100,00, N. N. 50,00, Magnús
Tryggvason Gullbr. 50,00, Lilja
Jóhannesd. Gilsá 50,00, N. N.
30,00, frá Stellu og Ingu Jaðri
100,00, Þ. og Ása 100,00, Kr. Ól-
afsson 50,00, N. N. 100,00, Lovísa
og Jón 200,00, Guðrún E. Ara-
dóttir 50,00, Guðl. Ketilsson
100;00, Halldóra Jónsd. Grímsey
50,00, R. M. M. 100,00, N. N.
100,00, Bindindisfél. Vakandi,
ágóði af samkomu 500,00, N. N.
50,00, Ilallfr. Rósantsd. 50,00,
áheit frá J. K. 50,00, Gísli Eyland
50,00, Jóhann Frímannss. Garðsá
200,00, B. 100,00, Halldór Jónsson
100,00, safnað af Sveinafél. járn-
iðnaðarmanna á Ak. 5170,00,
(Oddi h.f. 2066,00, BSA-verkst.
1545,00, Atla h.f. 300,00, Marz
samein. verkst. 350,00, Jóhannes
Kristj. h.f. 350,00, einstaklingar
565,00), Gunnar H. Jakobsson
100,00, ágóði af 2 skemmtunum í
þinghúsi Glæsibæjarhr. 1460,00,
Stefán á Blómusturvöllum og' frú
150,00, Sigfús á Einarsst. og fjöl-
skylda 100,00, Guðný s. st. 100,00,
Sigfreð í Lögmannshlíð 100,00,
Guðmundur í Glæsibæ 100,00,
Gunnþór í Steinkoti'50,00, Ingi-
mundur Dvergast. 50,00, Anna
Sólborgarhóli 50,00, Árni s. st.
50,00, synir Helga í Skjaldarvík
50,00, Helga í Kollugerði 40,00,
Guðmundur Höfða 40,00, heimil-
isfólkið í Hraukbæjarkoti 80,00,
gömul kona 50,00, Kvenfél. Bald-
ursbrá í Glæsibæjarhr. 1000,00,
GrímUr Sigurðsson 50,00, Jóhann
Jósefsson Hömrum 100,00, Jónína
Jónsd. 50,00, G. A. F. 100,00,
skipshöfnin m.b. Garðari 1000,00,
Þórir Bjömsson 100,00, Þorbjörn
Kaprasíusson 50’00. Áður birt kr.
31.510.80. Samtals safnað hjá Degi.
kr. 45.365.80. Söfnuninni er lokið.
Ef einhverjir óska enn að koma
framlögum á framfæri, geta þeir
snúið sér til aðalskrifstofu KEA,