Dagur - 30.06.1948, Síða 8
8
Miðvikudaginn 30. júní 1948
Baguk
Finnska kvartett-
inum vel fagnað
Finnski söngkvartettinn Koll-
egarna kom hingað norður um
helgina og heimsótti Mývetninga
á sunnudag og söng í Skútustaða-
kirkju við ágætar viðtökur. Þeir
félagar höfðu söngskemmtun í
Nýja-Bíó hér s. 1. mánudags-
kvöld. Var húsfyllir áheyrenda og
móttökur ágætar. Urðu þeir að
endurtaka mörg laganna og
syngja aukalög. Kvartettinn hef-
ur á að skipa ágætum röddum,
og er vel þjálfaður. Raddmagnið
er mikið og framsetning víðast á-
gæt. Sérstaka athygli vakti 2.
bassi, Kurt Lönnroos, sem hefur
í senn hljómmikla og blæfagra
rödd. Á söngskránni voru aðal-
lega norræn lög, þar af eitt ís-
lenzkt lag, Þú álfu vorrar yngsta
land, eftir Sigfús Einarsson, er
þeir fluttu prýðilega. Koma þess-
ara góðu, finnsku gesta, vai'
skemmtilegur viðburður, sem
bæjarmenn munu lengi minnast.
} Tito fallimi í ónáð |
I í Moskvu i
[ Hefur ekki reynzt i
nógu leiðitamur f
[ við Moskvuvaldið i
| Fáar fregnir liafa vakið aðra =
: eins athygli nú um langt skeið É
§ og tilliynning Kominform um f
E að kommúnistaflokkur Júgó- É
E slafíu hafi verið rekinn úr al- f
§ þjóðasambandi þessu. Jafn- É
É framt hafa kommúnistablöð í f
f Prag og víðar ráðist harkalega É
\ á Tító marskálk og aðra leið- f
= toga Júgóslafa og sakað þá um É
É fjandskap við Sovétríkin og É
f fráhvarf frá stefnu Marx og f
1 Lenins. Erlendis eru þessir É
é atburðir túlkaðir þannig, að é
E valdhöfunum í Moskvu muni É
\ ekki þykja
E Ieppstjórnin í
I Júgóslafíu
Énógu auð-
É sveipog hlýð-
E in við hinj
[ æðstu boðorð|
I Moskvuvalds!
É ins og því hafij
É verið ákveðiði
É að láta til
E skarar skríða'
(É gagnvart
1 þeim mönnum, sem taldir eru E
É hafa sýnt of mikið sjálfstæði
E fyrir hönd lands síns. Þegar E
É þess er minnzt, að Júgóslafar É
f hafa hvarvetna staðið með E
É Rússum ó vettvangi utanríkis- É
f mála, t. d. hjó Sameinuðu
É þjóðunum, skilst betur hvers é
e konar þjónusta það er, sem É
f Rússar ætlast til af leppríkj- f
É um sínum fyrst þannig cr nú \
f komið málefnum þessa lands í E
É augum þeirra. Kommúnistar
f skora nú á flokksbræður sína f
f að velta Tító og stjórn hans úr
é sessi. Tító er hermálaráð-
E herra og herinn talinn honum É
É trúr. Má því búast við að til é
f tíðinda dragi áður en Moskvu- É
É menn fá vilja sínum fram- \
f gengt.
Nýjar reglur um meðferð ullar
Stjórn Sambandsins
Frá aðalfundi S. í. S. á Akureyri. Á myndinni sjóst bessir stjómar-
meðlimir S. f. S. talið frá vinstri: Skúli Guðmundsson, Eysteinn
Jónsson, Björn Kristjánsson, Þorsteinn Jónsson, Þórður Pálmason,
Sigurður Jónsson og Jakob Frímannsson.
Ullin verður tekin óþvegin, með sérstökum
skilyrðum
Samband ísl. samvinnufélaga
er að koma upp ullarþvottarstöð
í sambandi við Gefjun og niiðar
þeim framkvæmdum vel áfram.
Þegar þeim er lokið, verður hægt
að anna þar þvotti á allri ullar-
framleiðslu landsmanna og létta
af hændum mikilli vinnu við ull-
arþvottinn.
Er þetta orðin hin mesta nauð-
syn fyi'ir sveitirnar og landbún-
aðinn. Á þessu sumri gefst bænd-
um kostur á að leggja ull sína
inn óþvegna og hafa í því sam-
bandi verið gefnar út nýjar regl-
ur um rúning og ullarmeðferð.
Það er ullarmatsstjórinn, sem
reglurnar setur, og er lagt ríkt á
við bændur að fylgja þeim í hví-
vetna. í reglunum segir, að rýja
skuli sauðfé aðeins í þurru veðri
þegar ullin er þurr, og þá rýja á
þurrum og hreinum stað, t. d. á
grasbala eða trépalli, svo að mor
og sandur fari ekki í ullina. Áður
en rúið er skal klippa úr reyfun-
um alla klepra, saursnepla og
önnur óhreinindi og aðskilja
þetta frá ullinni. Klippa skal ull-
ina af kindinni, en ekki rífa hana,
og á ullarreifið að vera í heilu
lagi að rúningi loknum. Haga-
lögðum og slitrum skal halda
sérstökum, í sérstökum pokum.
Að rúningslokum skal hrista úr
Engin síld eiio
Flest síldveiðiskipin hér um
slóðir eru nú farin á veiðar eða
um það bil að leggja úr höfn.
Nokkur skipanna hafa verið á
miðunum í röskva viku, en næsta
lítið séð nema smásíld og síli.
Sjómenn gera sér yfirleitt vonir
um að síldin muni koma með
næsta stórstreymi, nú upp úr
mánaðarmótunum. Verksmiðj-
urnar eru nú tilbúnar að taka á
móLi síld.
60 ára
hjúskaparafmæli eiga í dag
Ragnheiður Jakobsdóttir og Árni
Hólm Magnússon, Norðurgötu
11, Akureyri.
ullinni mold og sand og þurrka
reyfin svo vel, að engin hætta sé
á að ullin skemmist við langa
geymslu. Þegar reyfið er orðið
vel þurrt, skal vefja því saman í
vöíidul og binda saman á toginu,
áður en sekkjað er. Ullarlitum
skal halda vel aðgreindum og
mega engin mislit hár blandast
hvítu ullinni. Sundúrgreina skal
í eftii'farandi litarflokka: Hvít ull,
grá ull, mórauð ull, svört ull og
mislit ull. Með mislitri ull telst
ull af liöttóttu og mislitu fé.
Ovandvirkni um meðferð ullar-
innar verður þess valdandi, að
verðlækka hana og rýra gildi
hennar, segir ullarmatsstjóri að
lokum í greinargerð sinni.
Aðalfuiidur SÍS
(Framhald af 1. síðu).
í fundarlok fóru fram kosning-
ar. Sigurður Kristinsson, fyrrv.
fórstjóri, var kjörinn formaður, til
þriggja ára, í stað Einars Árna-
sonar á Eyrarlandi, sem lézt á sl.
hausti. Þeir Þórður Pálmason
kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og
Sigurður Jónsson á Arnarvatni
voru báðir endurkjörnir í stjórn-
ina. Eysteinn Jónsson ráðherra
var endurkjörinn varaformaður
og Ólafur Jóhannesson prófessor
endurskoðandi.
Að fundi loknum bauð stjórn
SÍS til kvöldverðar að Hótel Brú-
arlundi í Vaglaskógi. Var hóf
það hið ánægjulegasta. Sátu það
auk fulltrúa og gesta, skipsmenn
á Hvassafelli. Voru þeir sérstak-
lega hylltir af fundarmönnum.
Margar ræður voru fluttar undir
borðum.
Á fimmtudaginn dreifðust full-
trúar héðan með bílum og flug-
vélum. Hafði veðui' verið mjög
ánægjulegt alla fundardaga og
dvölin hér því skemmtileg. Ágæt-
ur andi samheldni og samvinnu
ríkti á fundinum. Má því með
sanni segja, að þessi aðalfundur
hafi orðið til þess að styrkja sam-
tökin.
Gjaldeyris- og fjárfeslingar-
leyfi fyrir sjálfvirku síma-
sföðinni ófengin enn
Uíiíiið að lageingu jarðsíma austur yfir
Vaðlalieiði
Guðmundur Hlíðdal, póst- og
símamálastjóri, var hér á ferð
fyrir helgina. Aðalerindi hans
hingað að þessu sinni var að líta
eftir sæsímalögn hér yfir Odd-
eyrarál. Þessi sæsímalögn er
fyrsti áfangi jarðsímalínu, sem
ákveðið er að leggja yfir Vaðla-
heiði, allt austur í Breiðumýri. —
í sumar er ætlunin að koma jarð-
símanum í Skóga í Fnjóskadal.
Sæsíminn liggur frá Oddeyrar-
tanga, noi'ðan við Skipasmíðastöð
Kr. Nóa Kristjánssonar og í
Hafnarvíkina hinum megin við
álinn, en þaðan mun verða farið
sem beinasta leið í Skóga. — Um
jarðsímalögnina frá Reykjavík og
hingað, sagði póst- og símamála-
stjóri, að strengurinn væri kom-
inn í Hrútafjörð og mundi ekki
komast lengra á þessu ári. Þarf
að byggja hús fyrir ýmiss tæki
tilheyrandi þessu símakerfi, en
leyfi til þeirrar byggingar er enn
ófengið. Auk þess skortir símann
nú efnivörur til áframhalds á
þessum framkvæmdum. í sam-
bandi við þessi mál upplýsti
símamálastjói'i, að hraðsamtala-
farganið hér, á línunni Akureyri
—Reykjavík, mundi vart breytast
fyrr en jarðsímalögninni væri
lokið hingað. í strengnum eru lín-
ur fyrir 33 samtöl samtímis og þó
mun mega vænta þess að land-
símasamtöl verði afgreid d bið-
tímalaust.
Leyfi til sjálfvirku stöðvarinnar
ófengin.
S. 1. sumar hefur verið unnið
að því að leggja símakerfið hér
innanbæjar í jörðu og verður því
verki haldið áfram í sumar. Er
þetta undirbúningui' fyrir sjálf-
virka símakerfið, sem koma á.
t
Stöðin sjálf var pöntuð fyrir
tveimur árum í Svíþjóð og mun
hún verða nú tilbúinn til af-
greiðslu innan skamms. Síma-
stjóri upplýsti að Landsímanum
hefði ekki tekist að útvega gjald-
eyris- og innflutningsleyfi fyrir
stöðinni, né heldur fjárfestingar-
leyfi frá Fjárhagsráði. Meðan
Viðskiptaráð og Fjárhagsráð
störfuðu, vísaði livort ráðið um
sig málinu frá sér og taldi það
verkefni hins ráðsins að veita
ieyfi. Útkoman varð sú að ekk-
ert leyfi fékkst! Eftir að Við-
skiptanefnd og Fjárhagsráð tóku
við þessum málum, hefur verið
rætt við þessar stofnanir um leyf-
isveitingar, en án árangurs, enn
sem komið er. Hins vegar taldi
símamálastjóri að úr þessu mundi
rætast í tæka tíð og að leyfin
mundu fást bráðlega. Það mun
taka um það bil eitt ár að setja
tækin upp og ganga frá þeim að
öllu leyti hér. Þótt engar tafir
verði og hafist verði handa strax
og tækin eru tilbúin, mun ekki
mega vænta þess að stöðin geti
tekið til starfa fyrr en haustið
1949.
Aðrar framkvæmdir.
Símamálastjóri skýrði frá því,
að Landsíminn væii að láta leggja
jarðstreng héðan út á Mold-
haugnaháls og mundi strengur-
inn kvíslast þar í tveir álmur,
önnur mundi liggja vestur og
suður, en hin út með firðinum, til
Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar. Óvíst væri þó að þessar
framkvæmdir munu hefjast að
verulegu ráði fyrr en næsta sum-
ai' vegna efnisskoi'ts símans og
takmaikaðra fjárráða til nýrra
framkvæmda. Yfirleitt skortir
símann mjög efnivörur til nýrra
framkvæmda, vegna takmarkaðra
gjaldeyrisveitinga.
37% sveitabæja í símasambandi.
Um símaframkvæmdir í sveit-
um ,sagði símamálastjóri, að lítið
mundi verða um nýjar línui' í ár
vegna efnisskortsins, en veru-
lega hefði miðað áfram síðustu
árin. Væri nú svo komið að 37%
af öllum sveitabæjum landsins
væru í símasambandi og væri
þessi hlutfallstala hærri en í flest-
um öðrum löndum. Hins vegai'
lagði hann áherzlu á nauðsyn þess
að halda áfram að tengja sveit-
irnar við símakerfið. Siminn væri
nú orðinn ómissandi fyrir bændur
vegna fólksfæðar og breyttra að-
stæðna á margan hátt. Væri því
að vænta þess, að tillit yrði tekið
tii þessara þarfa bændastéttar-
innar og þjóðai'innar íheild og
gert kleyft að halda áfram síma-
lagningu um margar sveitir, sem
nú bíða símans með óþreyju.
Símamálastjóri taldi að bezt
mundi ganga að leysa þessi mál
með því að taka fyrir heilar sýsl-
ur og Ijúka verkinu og halda svo
áfram hringinn í kring um land.
En vegna stjórnmálaástæðna,
hefði þessi leið ekki verið valin.
Þingmenn hefðu tekið þann kost-
in að peðra framkvæmdunum um
marga staði í senn. Þetta væri ó-
hentugra og dýrara í reyndinni.
Pétur Magníisson
látinn
Pétur Magnússon bankastjóri
og fyrrv. ráðherra andaðist á
sjúkrahúsi í Boston I Bandaríkj-
unum sl. laugardag. — Hann varð
rúmlega sextugur að aldri.