Dagur - 04.08.1948, Side 7
Miðvikudaginn 4. ágúst 1948.
D AGUR
7
ÚR BÆ OG BYGGÐ
- Stækkun Gefjunar
('Framhald af 1. síðu).
og stendur á syðri bakka Glerár,
skammt fyrir norðan gömlu verk-
smiðjuna. Vélarnar til hennar
verða allar rafknúnar, af nýjustu
gerð og þarf ekki að snerta á ull-
inni frá því að hún fer inn í
þvottavélarnar þangað til hún
kemur hrein og þurr úr þurrk-
vélunum. í milli ullarþvotta-
stöðvarinnar og göiniu verk-
smiðj-uhúsanna á nýja verksmiðj-
an að rísa. Er það geysimikill
gólfflötur og samanlagt munu
þessar byggingar á Gefjun verða
lang stærsta hús bæjarins og eitt
mesta verksmiðjumannvirki á
landinu. Jónas Þór skýrði svo frá,
að fjárfestingarleyfi hefði fengist
til þess að byggja nokkurn hluta
hins nýja verksmiðju'iúss í ár og
væri nú unnið að því eftir því sem
efni væri fyrir hendi, en tafir
hefðu orðið vegna vöntunar á
steypujárni. Vélar til þessarar
nýju verksmiðju eru fengnar
víða að, en mjög langur af-
greiðslufrestur er á öllum ullar-
vinnsluvélum nú. Veístólar eru
væntanlegir frá Svíþjóð og
spunavélar frá Sviss. Voru þær
raunar pantaðar fyrir heilu ári,
en gjaldeyrisleyfi hér fyrir fyrstu
greiðslunum til verksmiðjunnar
fékkst ekki fyrr en ári síðar en
Gefjun óskaði þess og tefst af-
greiðslan úr tveimur árum í þrjú
af þeim sökum. Erfiðlega hefir
gengur að fá tilboð í nokkrar vél-
ar, er verksmiðjan þarfnast, en
von um að hægt verði að útvega
þær í Bandaríkjunum.
Þegar verksmiðjan verður búin
að fá hinn nýja vélakost, en það
mun taka nokkur ár, og bygging-
um öllum verður lokið, verður
Gefjun orðin nýtízlcu fyrirtæki
um allan búnað og fyrirkomulag.
Ætlunin er að verksmiðjan geti
þá afkastað að vinna úr megin-
hlutanum af ullaríramleiðslu
landsmanna. Er það mjög þýð-
ingarmikið atriði fyrir þjóðarbú-
skapinn í heild, að ullin sé ekki
flutt óunnin úr landi, heldur full-
unnin hér, til notkunar á inn-
lendum markaði og iil útflutn-
ings. Framkvæmdir Sambandsins
á Gefjun eru því mjög mikilvæg-
ar fyrir endurbyggingu atvinnu-
vega landsmanna og v'yrir Akur-
eyrarbæ hafa þær að sjálfsögðu
geysilega þýðingu.
Stúlkur óskast
• til hreingerninga í Barna-
skólanura nú þegar, og í
vetur konrandi. Upplýsing-
ar hjá umsjónarmanni skól-
ans eftir kl. 6 síðdegis.
Varabjól af Jeppa
hefir tapazt á leiðinni frá Akur-
eyri að Máskoti. Skilvís finnandi
vinsamlega beðinn að gera mér
aðvart.
Vilhjáhmir Sigurðsson,
Þingvallastræti 8, Akureyri.
Svið
niðnrsoðm
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvöntdeild og útibú.
- Raforkumálin
(Framhald af 1. síðu).
aðarverði. Tekjuafgangur, sem
verða kann á rekstrinum, skal
renna í varasjóð stofnunarinnar.
Aðalágreiningsefnið mun vera
að finna í 5. grein samningsupp-
kastsins, en þar segir svo m. a.:
Eignarhlutfall Akureyrarkaup-
staðar og ríkisins í Laxárvirkjun-
inni skal' vera sem hér segir: Við
uncþrskrift samnings þessa verð-
ur Akureyrarkaupstaður eigandi
að 85 hundraðshlutum en ríkið að
15 og skal svo haldast þar til lok-
ið er næstu framhaldsvirkjun.
Þegar henni er lokið verður Ak-
ureyri eigandi 65 hundraðshluta
en ríkið 35 og skal svo haldast þar
til lokið er aukningu virkjunar-
innar upp í 20000 hestöfl alls eða
fram yfir það. Þegar þeirri aukn-
ingu er lokið verður Akureyrar-
kaupstaður eigandi 50 hundraðs-
hluta og ríkið að 50 og skal svo
haldast áfram. Ennfremur:, Ríkið
verður eigandi að mannvirkjum
þeim, sem fyrir eru í fyrirtækinu
í framangreindum hlutföllum —
-----Um stjórn fyrirtækisins er
svo sagt í samningsuppkastinu, að
hún skuli falin 5 manna nefnd og
skal bæjarstjórn Akureyrar
kjósa 3 menn á meðan Akureyri á
meira en helming fyrirtækisins,
en ríkið tvo. Þegar eignin skiptist
til helminga milli ríkis og bæjar,
skal (\.kureyri kjósá tvo menn í
stjórnina, ríkið tilnefni tvo og
hæstiréttur þann þriðjá. Bæjar-
stjórnin mun hafa rætt þessi mál
á fundi sínum í gær, en ekki var
kunnugt um afgreiðslu málsins
þar er blaðið fór í pressuna.
Dönsk fyrirtæki munu gera
tilboð.
Á fundi rafveituneíndar í sl.
mánuði skýrði Indriði Helgason
bæjarfulltrúi frá för sinni til
Danmerkur á fund Sambands
norrænna rafveita. í þessari för
hafði hann átt viðræður við dönsk
firmu um byggingaframkvæmdir
við Laxá f. h. rafveitunefndar.
Skýrði hann frá því að þrjú dönsk
fyrirtæki hefðu áhug'a fyrir að
gera tilboð í byggingu aflstöðvar-
Kristjana í Garði
sjötug.
Fólkið þroskast ljóst og leynt,
— lífið menntun geftir —
sjötug kona séð og reynt
sitt af hverju hefur.
Marga sá hún sólskinsstund
og sumarblóm í haga,
líka sára og opna und
oft um sína daga.
Deila kjörum skin og skúr
— skiptin sérhvefn varðar, —
botninn dettui' ann’s úr
öllu lífi jarðar.
Sumum það er lánið léð
lífs í ölduróti,
að gildið vex og getan með,
'er golan blæs á móM.
Hefur þú í þraut og raun
þroskast mörgum fcetur.
Bezt þau eru ellilaun
Eftir kaldan vetur.
Ung og hress, þó sjötug sért
og sólsKin stundum brysti;
hárin grána, en enn þú ert
eins og fugl á kvisti.
Fyrir unnin afrek hér
við allra heilla óskum þér,
— eg það hiklaust segi —
öil, á þessum degi.
i-órólfur Jónasson.
/
innar, þ. á. m. Hójgaard &
Schultz. Þá skýrði hann ennfrem-
ur frá því, að líklegt mætti telja
að hægt væri að fá lán í Dan-
mörku til innkaupa á erlendu efni
til virkjunarinnar.
jólkurduf!
N ým jól Jui rduft
Undan rennuduft
aforeiðura vér í heildsölu
O
og smásölu.
Kaupfélag Eyfirðinga
□ Rún.: 594885.
Fundur fellur niður.
Kirkjan. Messað í Lögmanns-
hlíð næstk. sunnudag kl. 2 e. h.
Akureyri kl. 5 e. h. (F. J. R.).
Rottueitrun. Fengist hefir
rottueitur hingað frá Danmörku
og hefir heilbrigðisnefnd ákveðið
að láta fara fram rottueitrun í
bænum nú í þessum mánuði. —
Mun ekki vanþörf á því. Rottu-
plágan er orðin mikil og fer
versnandi.
Heilbrigðisnefndin hefir skorað
á hafnarnefnd bæjarins að láía
fara frain hreinsun á skipa-
kvínni rnilli Torfunefsbryggj-
anna og koma upp sæmilegum
SandgöngupöJlum innan skipa-
lcvíarinnar og sunnan á bryggj-
unni. Fjöldi ferðamanna stígur
þarna á íand, t. d. úr sjóflugvél-
unum. Sömuleiðis munu er-
lendir skemmtiferðamenn stíga
þarna á land, er skemmtiferða-
skip taka að venja komur sínar
liingað. Eru úrbætur á þessum
stað nauðsynlegar.
Sjónarhæð. Samkoma á sunnu-
daginn kl. 5 e. h. Allir velkomnir.
Iiúðrasveit Akureyrar leikur á
Ráðhústorgi föstudaginn 6. ágúst
kl. 8 e. h., ef veður leyfir.
Kvenfélag Akureyrarkirkju
heldur fund mánudaginn 9. ágúst
kl. 5 e. h. í kirkjukapellunni.
Byggingarsjóði Svalbarðskirkju
hafa á þessu ári borizt eftirfar-
andi gjafir: Frá Jóhannesi Bene-
diktssyni kr. 500. — Frá Indíönu
Kristjánsdóttur kr. 40. — Frá
Kvenfélagi Svalbarðsstrandar kr.
1000. — Frá Önnu Halldórsdóttur
kr. 200. — Frá Sigmai'i Jóhannes-
syni kr. 2000. — Frá Þóroddi
Magnússyni kr. 200. — Frá Helga
Guðmundssyni kr. 200. ■—■ Frá
Sæunni Jónsdóttur kr. 500. —
Með beztu þökkum meðtekið. —
J. A.
Sírandgatan. Hafnarnefnd bæj -
arins hefir nú svarað bréfi hús-
ráðenda við Strandgötu, er greint
var frá í síðasta blaði. Segir í
fundargerð nefndarinnar, að ekki
verði hægt að fylla upp bátakvína
á meðan ekki sé fullgengið frá
skipulagi þessa svæðis. Þá segir
nefndin, að ekki sé fært að flytja
burtu þá báta, sem veiði stunda
frá bænum. Þá segir ennfremur,
að suðurbrún St.randgötu sé
óhlaðin á kafla vegna ágreinings
í milli nefndarinnar og inanna. er
eigi lóðir að StrandgÖtu.
Heilbrigðisfulltrúi hefir tjáð
blaðinu að lokið sé fyrstu um-
ferð rotíueitrunarinnar. Notað
hefir verið ratin-eitur. Þcss er
óskað ,að mcnn láti hann vita,
eí hús þeirra eða lóðir hafa fall-
ið úr í þessari urnferð. Næsta
umferð mun verða hafin bráð-
lega.
Hjálpræðisherinn. Sunnud. 8.
ágúst. Kl. 11 f. h.: Helgunarsam-
koma. — Kl. 8.30 e. h.: Hjálpræð-
issamkoma. Allir velkomnir!
Hestámannafélagið Léttir fer
skemmtiferð í Leyningshóla
laugardaginn 7. ágúst næstk. Lagt
verður upp frá skeiðvellinum í
Stekkjarhólma kl. 1 c. h. Þátt-
takendur gefi sag fram við Þorl.
Þorleifsson ekki síðar en á
föstudagskvöld.
Rafmagnseftirlit ríkisins hefir
óskað eftir tilboði frá Rafveitu
Akureyrar um eftirlit með hús-
iögnum og innanbæjarkerfum hjá
almenningsrafveitum við Eyja-
fjörð og í S.-Þingeyjarsýslu. —
Mun hér átt við rafveitur Húsa-
víkur, Staðarsveitar, Svalbarðs-
str., Hríseyjar og Dalvíkur, auk
rafveitu Akureyrar. Rafveitan
hér hefir boðist til að taka þetta
að sér fyrir kr. 2000,00 á mánuði
að viðbættum ferða- og dvalar-
kostnaði eftirlitsmanns.
Lokun sölubúða. Á bæjarráðs-
fundi 29. júlí var samþykkt að
fresta að taka ákvörðun um
breytingu á lokunartíma sölu-
búða, samkv. erindi Fél. verzlun-
ar- og skrifstofufólks, þangað til
viðræður hefðu farið íram í milli
forráðamanna félagsins og for-
ráðamanna Verzlunarmannafél.
Akureyrar og KEA. Segir meiri-
hluti bæjarráðs að engar við-
ræður hafi farið fram um málið í
milli þessara aðila og telur því
heppilegast að fresta ákvörðun í
málinu þangað til séð verður
hvort ekki næst samkomulag í
milli þessar aaðila.
Alþýðuhús sunnan íþróttasvæð-
isins. Fulltrúaráð verkalýðsféiag-
anna hefir sótt um lóð undir fyr-
irhugað alþýðuhús sunnan hins
fyrirhugaða íþróttasvæðis við
Brekkugötu, við Smáragötu, í
milli Laxagötu og Geislagötu. Fór
fulltrúaráðið • frarn á að bærinn
kaupi lóð Sverris Ragnars austan
Laxagötu í þessu skyni. Bæjar-
ráð samþykkti 29. f. m. að ætla
þessu húsi stað þarna, svo fram-
arlega sem lóð sú, er kaupa þarf,
fæst með sæmilegum kjörum.
Glíman við freistarann
(Framhald af 5. síðu).
virtist, sem blaðamönnum Akur-
eyrar þætti flest annað merkara
þá daga en hún.
Reykjavík, 12. júií 1948.“
ATHS.
ÞAÐ FER naumast hjá því, að
mönnum þyki búnaðarmálastjór-
inn hafa stokkið upp á nef sér af
litlu tilefni. Bréf það, er Dagur
birti, fjallaði um fyrii'komulag
hópferða almennt. Var þar á eng-
an hátt verið að gera lítið úr ferð
þeirra Kjalnesinga eða gestrisni
Mývetninga og Héraðsbúa, eins
og búnaðarmálastjórinn lætui'
liggja að í þessari athugasemd
sinni. Dagur telur sjáifsagt að Ijá
þessu skrifi búnaðarmólastjórans
rúm, þótt tilefnislítið sé það,. —
Hinn fyrri bréfritari fær þá að
sjálfsögðu rúm fyrir athuga-
semdir, ef hann óskar, enda þótt
blaðið óski ekki að lengja þessar
umræður. í sambandi við um-
mæli búnaðarmálastjórans unj
afskiptaleysi blaðanna á Akur-
eyri, er rétt að benda á, að þau
eru ómakleg hvað Degí viðkem-
ur. Blaðið gat ýtarlegá um
bændaförina, er hópurinn fór hér
um austur yfir. — Ritstj.
Nýlen d uvörudeild
iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiimmmi
H ATTA
±-:d
O'
"1.
»«i
- 23
oV
V:.
ÉSÉPG jllL™.
tmW,
»1
Kaupfélag Eyfirðinga
V ef naðarvör udeild
^iiIiiiiiiiiiiiiiiiii