Dagur - 04.08.1948, Qupperneq 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 4. ágúst 1948.
Trjágróðri á Ákureyri hætta búin
ef ekki er aðgert í tíma
Hák.oii Bjarnason skógrœktarstjóri segir það
áberandi, að tré séu svo þétt í görðum hér, að
það kippi úr vexti og jafnvel eyðileggi trén
Hákon Bjarnason skógræktaí'-
stjóri var á ferð hér um helgina.
Erindi hans var m. a. að líta eftir
trjágróðrinum í Vaglaskógi og í
öðrum skóglendum ríkisins. Frá
Vöglum komu alls um 'J 00 þúsund
plöntur til gróðursetr.ingar á sl.
vori, og fór langmestur hluti
þeirra í Þingeyjarsýslur, Akur-
eyri og Eyjafjörð og Skagafjörð.
Stendur skógræktarstarfsemin í
þessum héruðum með allmiklum
blóma um þessai' mundir. Skóg-
ræktarstjórinn kvaðst hafa skoð-
að skógargirðingu Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga hér handan við
Pollinn og sagði hann að það væri
undursamlegt, hversu skógurinn
þroskaðist vel þar. Taldi hann
engan vafa á því, að þarna í heið-
inni mundi vaxa upp ragur skóg-
ur á nokkrum áratugnm.
Garðarnir á Akureyri i hættu.
Þegar Dagur hitti skógræktar-
stjó.rann að máli, barst talið að
görðunum hér á Akureyri. Það
eru margir fallegir garðar hér,
sagði hann, og sumar trjátegundir
virðast þrífast ágætlega hér, t. d.
lerkið, svo sem sjá má víða í Inn-
bænum, en það sefn vakti mesta
athygli mína er eg gekk hér um
bæinn og skoðaði garðana, var
það, að trjágróðurinn ; fjölmörg-
um görðum er í mikilli hættu
vegna þess að ekki hefir verið
hirt um að grisja trén. Standa þau
mjög víða allt of þétt, svo þétt, að
sums staðar eru þau að verða
ónýt, annars staðar fá þau ekki
svigrúm til vaxtar og þroska.
Prófessor
A. I. Virtanen
kemur í næsto viku
Á síðastliðnum vetri var greint
frá því hér í blaðinu að Háskóli
íslands hefði boðið hinum heims-
fræga, finnska vísindamanni og
Nóbelsverðlaunahafa, prófessor
A. I. Virtanen, hingað lil lands. —
Var lengi vel efamál hvort hann
gæti komið hingað á þessu sumri,
en nýlega hefir verið tilkynnt,
að hann sé væntanlegu - til lands-
ins 7. eða 8. þessa mánaðar.
Prófessor Virtanen uppgötvaði
hina svokölluðu AIV-verkunar-
aðferð á grænfóðri. Þessi verk-
unaraðferð á heyi hefir mjög rutt
sér til rúms á Norðurlöndum og
víðar og þykir hið mesta hagræði
fyrir landbúnaðinn.
Picldes
í glösuin, 5 kr. glasið.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú
Þetta er mál, sem Akureyringar
ættu að gefa gaum. Ástandið er
víða mjög slæmt,-en þó mun það
takast í Lystigarðinum. Eg get
ekki betur séð en trén þar séu að
verða ónýt af þessum sökum.
Þyrfti að hefjast handa um grisj-
un þeirra strax og reyna ð bjarga
því, sem bjargað verður.
Það er sjálfsagt að planta
trjám þétt í upphafi, en þegar
trén vaxa upp, er nauðsynlegt að
grisja, en það virðist mér hafa
verið vanrækt mjög hér. Menn,
sem eiga lauftré, er nú eru að
vaxa á legg, og standa allt of þétt,
gætu sér að meinlausu látið ná-
granna sína eða menn, sem eru að
koma sér upp nýjum görðum,
hafa tré. Væru að því þægindi
fyrir báða aðila og ti járæktina í
bænum.
Þegar Dagur spurði skógrækt-
arstjórann að því, hvernig hon-
um litist á trjáræktina á RáShús-
torgi, þá taldi hann að trén þar
mundu eiga langa liídaga fyrir
liöndum, ef þau fengju góða að-
hlynningu. En misráðið væri að
rækta blóm meðfram þeim. Það
gerði þeim ekkert gott. Sennilega
væri gott að flytja ánega lag af
góðri mold á torgið og hækka
jarðveginn þannig að nokkru.
Mundi það auka vaxtarmöguleika
trjánna.
Þessar athuganir og ábendingar
skógræktarstjórans eru íhugun-
arefni fyrir bæjarmenn. Það væri
hörmulegt ,ef trjágróðrinum hér
á eftir að hnigna á næstu árum
fyrir vankunnáttu og hirðuleysi.
Þyrfti hver garðeigandi að litast
um hjá sér og athuga hvort þar er
þörf á grisjun.
Uppdráttur af nýja
íþróttasvæðinu full-
gerður
íþróttabandalag Akui'eyrar hef-
ur fyrir sitt leyti samþykkt til-
högun á hinu nýja íþróttasvæöi,
sem ráðgert er að koma upp
norðan við Brekkugötu. Hafa
arkitektarnir Gísli Halldórsson
og Kjartan Sigurðsson gert upp-
di'átt af svæðinu, sem íþrótta-
mennirnir hafa fallist á. Hefur
stjórn íþróttabandalagsins ritað
bæjarstjórninni bréf um málið og
óskað þess eindregið ;.ð málinu
vei'ði hraðað eins og kostur er. Þá
hefur stjórn íþróttabandalagsins
sótt um að mega reisa hús á
svæðinu í sambandi við íþrótta-
leikvanginn og mega koma upp
tennisvelli á svæðinu milli
Brekkugötu og Hólabrautar. Á
fundi bæjarstjómarinnar í gær
vai' samþykkt að fá álit skipulags-
nefndar á uppdrættinum áður en
bæjarstjórnin afgreiddi málið
endanlega.
Kominn úr sumar-
leyfi
Það vakti mikla furðu á Vest-
ur löndum, er það varð kunnugt
að í sama mund og sérstakir er-
indrekar Vesturveldanna komu
til Moskvu til þess að ræða við
Sovétstjórnina um Berlínar-
vandamálin öðru sinni, var til-
kynnt að Molotoff utanríkisráð-
herra væri kominn '■ sumarírí.
Næst æðsti maður ráðuneytisins,
Vishinsky, var einnig fjarverandi,
á Dónárráðstefnunni í Belgrad.
Fulltrúi Bandaríkjamanna, Be-
dell Smith sendiherrn, ræddi því
við aðstoðarutanríkismálaráð-
herrann Zorin fyrst í stað. Ekki
er kunnugt hvað þeim fór í milli,
en daginn eftir var Molotoff sjálf-
ui' kominn á vettvang og mun
hann svara fulltrúum Vestur-
veldanna fyrir hönd Sovétstjórn-
arinnar. Berlínardeilan virðist
fara ískyggilega harðnandi. Blöð
kommúnista í Þýzkalandi, hvetja
nú þýzkan almenning opinber-
lega til mótþróa og óhlýðni við
hernámsyfirvöld Vesturveldanna.
10 daga frestur til að
ákveða breytingar á
nýju togurunum!
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
borizt bréf frá nefnd, er ríkis-
stjórnin hefur skipað til að und-
irbúa kaup hinna nýju
botnvörpuskipa, þar sem spurzt
er fyrir um það, hvoi't bæjar-
stjórnin, sem hefur sótt um að fá
að kaupa tvö af hinum nýju skip-
um, hafi nokkrar óskir eða til-
lögur fram að bera í sambandi við
hin nýju skip, er fælu í sér breyt-
ingar frá því, sem í aðalatriðum
var lagt til grundvallar við bygg-
ingu hinna fyrri skipa, er samið
var um smíði á 1945. Bi éf þetta er
dagsett 20. júlí, en svars er óskað
fyrir 1. ágúst. Aðilum úti á landi
er m. ö o. ætlað að hafa þessar til-
lögur tilbúnar innan 10 daga!
Bæjarstjórnin ákvað að leita um-
sagnar framkvæmdastjóra og
stjórnar Útgerðarfél. Akureyr-
inga h. f. og skipstjórnns á Kald-
bak, í trausti þess að fresturinn
til að svara bréfinu yrði fram-
lengdur.
Hjúskapur. Síðdegis í gær voru
gefin saman í hjónaband hér á
Akureyri, af biskupinum, herra
Sigurgeir Sigurðssyni, séra Pétur
Sigurgeirsson og ungfrú Sólveig
Ásgeirsdóttir, Ásgeirssonar kaup-
manns í Reykjavík.
Síldveiðihorfurnar óglæsilegar
Reknetasíldin veiðist nú fjær landinu en fyrr
Síldveiðimönnum ber yfirleitt Sildarleitaflugvelarnar töldu
saman um að mjög óglæsilegasig hafa séð allmikla síldargengd
horfi með síldveiðina.
Alla sl. viku var veiðin mjög
lítil, einstaka skip hafa náð sæmi-
legum köstum en meginhluti flot-
ans hefir lítið sem ekkert fengið.
í gær og fyrrinótt sást varla síld-
artorfa nokkurs staðar á veiði-
svæðinu og engai' fregnii' bráust
um neina veiði. Reyndir síld-
veiðiskipstjórar telja útlitið mjög
slæmt m. a. vegna þess að tæpast
getur heitið að vart vei ði við átu.
Þar að auki óttast þeir að það lít-
ið af síld, sem komið hefir hér
upp að noi'ðurströndinni, sé nú
að hverfa þaðan aftui'. Marka þeir
það m. a. af því, að rekrietaskipin,
t. d. Norðmenn, fá nú helzt veiði
djúpt undan landinu, alllangt
norður af Grímsey, en lítið sem
ekket nær landinu. Rekneta-
veiði Norðmanna var allgóð um
tíma um daginn ,en mun nú vera
orðin lítil.
á Húnaflóa í sl. viku, og leitaði
veiðiflotinn þá þangað, en ekkert
varð úi' véiði þar. Sáu skipin litla
sem enga síld. Þótt hovfurnar séu
þannig allt annað en glæsilegai',
binda menn samt nokkrar vonir
við næstu dagana, allt fram undir
miðjan mánuðinn. Rætist ekki
verulega úr á því tímabili, er
hætt við að síldarvertiðinni ljúki
að þessu sinni hér með eindæma
lítilli veiði. Engum getum þarf að
því að leiða, hvert áfall það yrði
fyrir þjóðarbúskapinn.
HVAR VORU
FLUGVÉLASPRENG J URNAR?
Sunnanblöðin greina frá því, að
lögreglumaður úr Reykjavík hafi
nýlega komið hingað t:l bæjarins
til að eyðileggja tvær flugvéla-
sprengjur uppi í „fjalli“. Voru
báðar sprengjurnar sagðar virkar.
Menn hér kannast ekki við þess-
ar sprengingar.
Vitamálaskrifstofunni falin efnisút-
vegun til Torfunefsbryggju
Bæjaryfirvöldin hafa falið vita-
málaskrifstofunni að útvega allt
nauðsynlegt efni til Torfunefs-
bryggjunnar, samkvæmt þeim
uppdráttum af stækkun og við-
gerð bryggjunnar, sem fyrir
liggja. Enn mun ekki hafa tekizt
að útvega lán til þessara fram-
kvæmda, en þess mun fastlega
vænzt, að úr þeim málum greiðist
í tæka tíð. Vitamálaskrifstofan
hefir annast teikningarnar og lagt
fram sundurliðaða skrá yfir efni.
Magnús Konráðsson verkfræð,-
ingur sat fundi hafnarnefndar er
fjölluðu um þetta mál. Þá hefir
vitamálaskrifstofan ennfremur
gert teikningar af fyrirkomulagi
dráttarbrautanna norðan á Odd-
eyri. Hefir hafnarnefnd falið vita-
málaskrifstofunni að reyna að
útvega allt að 900 metrum af
járnteinum til dráttarbrautarinn-
ar.
Tæplega 2000 mál hafa
komið til Krosaness
síðastliðna viku
Krossanesverksmiðjan hóf aft-
ur bræðslu á mánudaginn og var
unnið úr þeirri síltl, er borizt
hafði í sl. viku og fram til dagsins
í gær. Alls fékk verksiniðjan 1973
mál frá því sl. miðvikudag þangað
til í gær. Þessi skip iogðu upp í
Krossanesi á þessu tímabili:
Kristján 127 mál, Straumey 146
mál, Auður 506 mál, Ingólfur 94
mál, Pólstjarnan 410 inál, Snæfell
512 mál og Sigríður 168 mál.
Söltim á öilti laedinu aðeins 6925 tn.
-var 25213 tunniir í fyrra
Bræðslusíldaraflinn ekki nema 1/8 liluti aflans í fyrra.
Samkvæmt skýrslu Fiskifélags
íslands var heildarsíldaraflinn á
öllu landinu á miðnætt.i 31. júlí sl.
samtals 139.307 hl. í bræðslu og
6925 tunnur í salt. í fyrra nam
bræðslusíldaraflinn á sama tíma
1.056.784 hl. og búíð áð salta í
25.213 tunnur. Nemur aflinn nú
ekki nerna rösklega 1/8 hluta af
aflanum í fyrra, sem þá þótti
mjög rýr. Samkvæmt skýrslunni
var afli eyfirzku skipanna, er hafa
500 mál og meira, sem hér segir:
Auður, Ak. 1100 mál og. tunnur,
Bjarmi, Dalvík 623, Einar Þveræ-
ingur, Ólafsf. 689, Eldey, Hrísey
1024, Eyfirðingur, Ak., 571, Garð-
ar Rauðuvík 1384, Gylfi Rauðu-
vík 1898, Hannes Hafstein, Dalvík
613, Narfi, Hrísey 1881, Njörður,
Ak. 1060, Pólstjaman, Dalvík
1207, Snæfell, Ak., 1604 (kom
með rösklega 500 mál til viðbótar
ífyrrinótt), Stígandi, Ólafsf. 1158,
Straumey, Ak. 747, Súlan, Ak.'
1195, Sædís, Ak. 675, Sævaldur,
Ólafsf. 875, Vörður Grenivík 598,
Þorsteinn, Dalvík 556.
Hæsta skip samkv. skýrslunni
var Helga úr Rvík með 2092 mál.
Bálför Steingríms
Matthíassonar fór
fram í.gær
Bálför Steingríms Matthíasson-
ar læknis fór fram frá hinni nýju
kapellu í Fossvogskirkjugarði i
Reykjavík í gær. Fánar voru
dregnir í hálfa stöng víðs vegar
hér í bænum í gær í tilefni at-
hafnarinnar.