Dagur - 08.09.1948, Side 2

Dagur - 08.09.1948, Side 2
2 D AGUR Miðvikudaginn 8. september 1948 „islendingur" kallar það níð um Ólaf Thors að segja sannleikann um sfjórn hans j* w r\ W/ Einn vinur vorsms enn. « Á þeim rúmum tveimur árum, sem stjórn Olafs Thors sat að völdum ,eyddi hún 1000 milljón- um króna fyrir utan þær 300 miilj kr., sem hún varði til endur- nýjunar atvinnutækja eða „ný- sköpunar", eins og hún kallaði það. Þegar stjórn Ólafs Thors flosn- aði upp, var arfur hennar til framtíðarinnar og viðtakandi stjórnar tæmdir gjaldeyrissjóðir, févana ríkissjóður, miklar lausa- skuldir og þungbær dýrtíð, og þetta allt þrátt fyrir góðæri og hátt útflutningsverð. Þetta hefir andstöðuflokkur fyrrverandi stjórnar kallað illa stjórn á málefnum þjóðarinnar og haldið því hikláust fram, að eyðsla og sóun fjármuna á stjórn- artímabili Ólafsstjórnarinnar hafi átt sér stað, og af því verði þjóð- in nú að súpa seyðið í margs kon- ar erfiðleikum og þrengingum. Það er nú orðið á almennings- vitorði, að fjársóunin á árunum 3944—1946 hefir verið gífurleg, og að hægt hefði verið, ef ofurlítilli gætni og hyggindum hefði verið beitt, að spara stórfé, sem gott hefði verið að grípa til, þegar að þrengdi. Blöð Framsóknarflokksins hafa lýst fjáreyðslu Ólafsstjórnarinnar og gagnrýnt hana. Ailir vita, að sú lýsing er rétt, og að gagnrýnin hafði við gild rök að styðjast. All- ir vita, að hinn mikli gjaldeyrii- var uppétinn við stjórnarskiptin, og að lausaskuldir höfðu safnast. Og sök Ólafsstjórnarinnar verður enn þyngri fyrir það, að hún reyndi að dylja hið raunverulega ástand löngu eftir að henni hlaut að vera kunnugt um, hversu al- varlegt það var orðið. Blöð Sjálfstæðisflokksins reyna enn að halda uppi vörn fyrir hönd Ólafsstjórnarinnar. Siðasti „ís- lendingur“ tekur m. a. það ráð, að kalla ádeilugreinar Framsókn- arblaðanna á fyrrverandi stjórn „níðgreinar um Ólaf Thors“. Samkvæmt röksemdafærslu ísl. er það níð um Ólaf Thors að skýra satt og rétt frá fjáreyðslu stjórnar hans og lýsa afleiðingum hennar. Tilgangur ritstjóra ísl. er sýnilega sá að halda hltfiskildi yf- ir Ólafi, en um varnarskrif hans má segja, að höggur sá, er hlífa skyldi. Ekki getur það verið sök Framsóknarblaðanna. þó að rétt og sönn lýsing þeirra á stjórn Ólafs Thors reynist níð um hann. Það skal fúslega viðurkennt, að Ólafur átti ekki einn sök á taum- lausu fjárbruðli stjórnar hans. Kommúnistar hjálpuðu honum dyggilega við það verk. Enda þykist Morgunblaðið aldrei geta lýst því nógu átakanlega og hrak- yrt þá hæfilega fyriv það, hve óhæfir' þeir séu til að koma ná- lægt stjórnarstörfum, þar sem allt grotni niður í höndum þeirra. Það er engin furða, þó að komm- únistum þyki þetta litlar þakkir fyrir yfirlýsingar þeirra fyrir síð- ustu kosningar um það, að Ólafur Thors væri „vitrasti stjórnmála- maður“ á íslandi. Þann dóm munu kommúnistar hafa byggt á því, að Ólafur hafi reynzt þeim þægt verkfæri í fjáreyðslusukki og dýratítðarþennslunni á árun- um 1944—-‘46. Síðasti „íslendingur“ kveður það ekki vera á færi Framsókn- armanna að dæma Ólaí Thors úr leik í íslenzku stjórnmálalífi. Þar til er því að svara, að Framsókn- armenn -bera enga ábyrgð á Ólafi Thors og stjórnmálaaxarsköftum hans. Sú ábyrgð hvílir á Sjálf- stæðisflokknum. Honum ber því skylda til að dæma formann sinn úr leik. Það má nú benda ritstjóra ísl. á, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir þegar innt þessa skyldu sína af hendi að nokkru leyti. Það gerði hann við síðustu stjórnar- skipti, er Ólafur Thors fékk ekki að vera í ríkisstjórn, þó að stjórn hans að sjálfs hans dómi hefði verið svo afbragðs góð, að aldrei hefði verið eins bjart framundan eins og þá. En þetta grobb hans nægði þó ekki. Hann var þá dæmdur úr leik að því er til stjórnarstarfa kom. En ennþá er Ólafur Tliors tal- inn formaður Sjálfstæðisílokksins af misskildum brjóstgæðum. •••111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111'; T^AGUR er liðinn að kveldi, og komið fram í 23. viku sumars. — Haust og rigning. Sólskins- sumar að kveðja — þegar saga þessi gerðisí. Maður kemur til mín, þar sem ég er við vinnu mína, heilsar mér og segir: „Það er eitt, sem mér finnst, að ég hafi svildð. Ég hef alltaf ætlað mér að gefa þér fáein- ar krónur til íþróttahússins, en aldrei orðið neitt úr framkvæmd- um. En a£ því að ég hítti þig nú, skal ég láta vcrða af efndum.“ Og um leið tekur liann upp úr vasa sínum fimmtíu krónur, réttir mér þær og segir um leið: „Svo hehl- ur þú kjafti.“ Hann hlær við og veifar til mín hendinni, síðan snarast hann burt með svo skjótri svipan, að ég fékk eigi svigrúm til að svara honum neinu eða þakka Honuin gjöfina í það sinn. Ég glotti með sjálfum mér, því að suinu leyti þótti mér áminningin góð, en hugsaði þó Samband Nautgriparæktarfé- laga Eyjafjarðar (S. N. E.) var> stofnað árið 1930 og hefir nú inn- an vébanda sinna 11 sjálfstæð fé- lög í hreppum Eyjafjarðar. Markmið S. N. E. er að efla nautgriparækt héraðsins fyrst og fremst með skipulögðum kyn- bótum kúastofnsins. Nýjasta skrefið í þá átt var stigið 1946 með stofnun sæðing- arstöðvar fyrir nautgripi að Grísabóli við Akureyri, þar sem nú eru aðalbækistöðvar S. N. E. í þjónustu sambandsins er ráðunautur, sem meðal annars hefir eftirlit með skýrsluhaldi meðlimanna og vinnur úr þeim eftir hver áramót. Á síðastliðnu vori voru haldn- ar kúasýningar í 9 hreppum sam- bandsins. Á sýningunum mætti Páll Zóphoníasson ráðunautur Búnaðarfélags íslands og dæmdi hann gripina. Hér fara á eftir nokkrar niður- stöður úr skýrslum S. N. E. I. Nautgriparæktarfélag Svalbarðsstrandar. í því eru 23 kúabú með 211 kúm og mjólkandi kvígum (árið Rafmagnseldavél Sá, sem getur útvega'ð mér íbitð, 1—2 lierbergi og eld- bús, getur fengið keypta rafmagnseldavél. O Afgr. vísar á. þessum vini mínum þegjandi þörfina, þótt síðar yrði, og skal ég nú vissulega segja ykkur, hver þessi vinur vorsins er. Hann er enginn annar en Jón Svein- björnsson, hyggingaverkamaður hjá KEA, Eiðsvallagötu 3 hér í bæ. Hvað skyldu þeir annars vera margir, sem einhvern tíma hefur flogið það í hug að styrkja höll æskunnar mcð fáeinum •krónuni, en aldrei komið því í verk? Vildu þeir nú ekki fara að ráði nafna míns, Jóns Sveinbjörnssonar, og þeirra annarra, er slíkt hafa gjört, og láta verða af framkvæmdum? Vinir vorsins, gamlir og nýir! Ég færi yður innilegar þakkir og kveðju frá höil æskunnar á Ak- ureyri, og hún spyr um leið: Hverjir verða nú næstir í leik með sól og sunnanvindi? Höfuðdag 1948. Jón Benediktsson, prenteri. 1946 voru þær 185). Meðalnyt fullmjólka kúa var 3153 kg. + 3.75% fita = 11824 fituein. (Árið 1946 3247 + 362 = 11758 fitúein.). Yfir 14.000 fituein. mjólkuðu 19 kýr eða 15% fullmjólka kúa. Á sýningunni í vor fengu þess- ar kýr I. verðlaun: 1. Leista 13, Leifshúsum, fædd 1934. Faðir Búi. Meðalnyt 1946 og 1947 3479 + 3.90 = 13567 fitu- ein. 2. Skrauta 9, Veigastöðum,' f. 1936. Faðir Kroppur. Meðalnyt 1947 4032 + 3.59 = 14475 fituein. 3. Skrauta 21, E.-Dálksstöðum, f. 1937. Faðir Búi. Meðalnyt 1946 og 1947 4683 + 3.93 = 18400. 4. Lukka 6, Sveinbjarnargerði, f. 1938. Faðir Logi. Meðalnyt 1946 5005 + 3.91 = 19570. 5. Kolbrún 31, Svalbarði, f. 1939. Faðir Búi. Meðalnyt 1946 og 1947 3076 + 3.99 = 12248 fituein. 6. Sóley 32, Svalbarði, f. 1939. Faðir Logi. Meðalnyt 1946 og 1947 3615 + 3.93 = 14215. 7. Grána 25, N.-Dálksstöðumf f. 1937. Faðir Sómi. Meðalnyt 1946 og 1947 4179 + 3.83 = 16018. 8. Gríma 37, Svalbarði, f. 1940. Faðir Torfi. Meðalnyt 1946 og 1947 3297 + 4.27 = 14073 fituein. 9. Reyður 9, N.-Dálksstöðum, f. 1939. Faðir Búi. Meðalnyt 1945 4718 + 3.77 = 17787 fituein. 10. Stjarna 34, Svalbarði, f. 1940. Faðir Logi. Meðalnyt 1946 og 1947 3580 + 3.94 = 14125 fitu- ein. (Framhald á 7. síðu). Hráolíuofnar, stærri gerðin, væntanlegir næstu daga. — Þeir, o o o sem átt liafa hjá okkur pantanir, eru vinsamlega i beðnir að tala við okkur strax, annars verða ofnarnir seldir öðrum. Verzlunin Eyjafjörður h.f. ■ 1111 ■ 111 ■ 11 ■ 1111 ■ 111 ■ ■ • ■ i ■ 11 ■ 11 ■ 111 ■ ■ ■■ ■ 1111 ■ ■ ■ i ■ i ■ ■ ■ i ■ ■ i ■ ■ ■ 111 ■ i ■ ■ 111 •■ ■ ■ ■ ■ i ■ • i ■ ■ i ■ ■ ■ ■ i ■ 111 ■ ■ 111M11 ■ 11 ■ i ■• ■ i ■ ■ iiiriiiimiiiiiinii • i ■ i ■ ■ ■ ■ i n ■ ■ 11 ■ i 111 ■ i ■ 11 ■ 1111 ■ 11111 ■ i ■ i ■ i ■ ■ 1111 ■ 111 ■ i ■ 11 ■ 11 ■ 11 ■ 11 ■ ■ ■ 11 ■ 11 ■ 111 ■ i iiimiiiiiimnip HÚTEL AKUREYR Hafnarstræti 98. — Sími 271. Frá Landssímastöðinni Stúlka verður tekin tii náms við Landssímastöðina hér frá 1. október n. k. F.iginhandar-umsókriir, þar sem getið er aldurs og mennt- unar, sendist undirrituðum fyrir 20. þ. m. Símastjórinn, Akureyri, 7. sept. 1948. G. SC.RAM. Sendisveina vantar á símastöðina á Ak- ureyri frá 15. þ. m. — Upp- lýsingar á skriístofu síma- stjóráns kl. 11 — 12 og 13—14 daglega. Þvottaefni Flik-Flak, Tip-Top Stangasápa Gólfbón W. C.-pappír Yöruhúsið h/f iimimmimmiimii Sjóstígvél Sjóstakkar gúrnmi og oliub. Regnkápur, cJrengja, margar stcerðir Vöruliúsið h/f Rúmgóð íbúð, 3 herbergi, eldliús, ásamt geymslu, aðg, að vaskhúsi, klósett og handlaug á sömu hæð. — Nánari upplýsingar hjá HARALDI GUÐNASYNI, Hafnarstræti 18 P>. Reiðbuxur Reiðjakkar Sportsokkar Enskar húfur j frd kr. 8.30 \ Treflar, ull j | Ilramis verzlnn| Páll Sigurgeirsson. j •i*i ii i iiiiiuiiMiiiiiiiiimi ii ■iiiimiiimii n iiiiiiiiiiimiiii7 mmiimimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmiuiiiiiiiiiM"iii|l. Kvenpeysur Kvenpils Barnapeysur Barnateppi í Brauns verzlunj Páll Sigurgeirsson. \ Landbúnaðurinn í Eyjafirði: árangur

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.