Dagur - 08.09.1948, Síða 4

Dagur - 08.09.1948, Síða 4
DAGUR Miðvikudaginn 8. september 1948 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Marínó H. Pétursson Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sfmi 166 Blaðið kernur út á hverjum miðvikudegi Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí L PRENTVERK ODi)S BJORNSSONAR H.F. „Slagirnir“ og orsakir þeirra „SLAGIRNIR“ við búðardyr eru að verða sér- einkenni á íslenzku þjóðlífi. Hvar, sem leið manns liggur um hina stærri verzlunarstaði, má sjá mannþyrpingar við búðardyr einhvern tíma vik- unnar eða mánaðarins. Það, sem furðulegast er við þessa slagi er það, að þeir eru flestir háðir um skömmtunarvörur, um vöruútlát á skÖmmtunar- miða, sem ríkisvaldið hefir miðlað þegnunum. Hvergi, þar sem skömmtun er í gildi, mun þetta fyrirbæri þekkjast, nema hér á landi. í sumum löndum, þar sem skömmtun er ströng, má sjá ýmiss konar vefnaðarvörur og aðrar nauðsynjar í sýningargluggum, en enginn „slagur“ er um þessar vörur. í þessum löndum hefir þess verið gætt, að vörumagnið og skömmtunarmiðarnir væri í samræmi hvort við annað. Ástandið í verzlunarmálunum hér er hins vegar þannig, að ekkert samræmi er í milli útgefinna skömmtunar- að nokkur hluti þjóðarinn- ar hefir fengið tækifæri til þess að kaupa allt að því helmingi meira af nauðsynlegum skömmtunarvörum en hinn hlut- inn. ÞESSAR síðustu aðgerðir í verzlunarmálunum hljóta að rifja upp hátíðleg loforð stjórnar- flokkanna í stjórnarsáttmálanum um endurbætur á verzlunarfyrir- komulaginu og jafn hátíðlegar yfirlýsingar viðskiptamálaráð- herrans um „nýju reglugerðina", sem aldrei hefir séð dagsins ljós. Skömmtunarsljórinn hefir upp- lýst, að aðeins helmingur þeirrar vefnaðarvöru, sem leyft var að flytja inn á fyrri helmingi árs- ins, hafi komið til landsins í tæka tíð. Almenningur getur upplýst skömmtunarstjórann og við- skiptamálaráðherrann um þau sannindi, að ekki sinu sinni þessi helmingur áætlaðs magns, hefir komið í verzlanir eða verið fáan- legur út á skömmtunarmiða al- mennings. Spákaupmenn og spekúlantar hafa fengið leyfi til að flytja inn vefnaðarvöru á sama tíma og kaupfélögum og kaupmönnum, sem í rauninni starfrækja verzlunarbúðir fyrir almenning, hefir verið neitað um innflutning. Vefnaðarvörukvóti spekúlantanna kemur almenningi ekki að gagni. Hans njóta þeir bezt, sem mesta gagnið hafa af „nýju reglugerðinni" í innflutn- ingsmálunum, sem viðskipta- málaráðherra ,,alþýðunnar“ boð- aði í fyrra, en ekki hefir séð dags- ins ljós ennþá, þrátt fyrir marg- ar áskoranir og hátíðleg loforð. /w/œ. Fyrstu skóladagarnir FOKDREIFAR miða í sumum greinum og vöruinnflutningsins. Miklu fleiri miðar í umferð en vörur út á miðana. Af þessum ástæðum verða „slagirnir" til og þann- ig hefir skömmtunarkerfinu íslenzka tekizt það, að bregðast fyrstu skyldu sinni við þjóðina, sem helga átti alla tilveru þess: að tryggja jafna og réttláta vörudreifingu. Misræmið í milli einstakra fjölskyldna og milli einstakra verzlunarstaða er gífurlegt. Þetta er harðui' dómur um framkvæmd skömmtunarinnar hér, en hann verður ekki um- flúinn. Þrátt fyrir skrifstofubákn, fjölda starfs- manna, mikla skriffinnsku og mikinn tilkostnað, hefir framkvæmdin farið hörmulegá úr hendi það sem af er. — Það er engu líkara en skrifstofur þær, sem ríkið starfrækir til þess að annast skömmtun á vörum og skömmtun á gjald- eyri til vörukaupa, hafi ekkert samband sín á milli, heldur starfi eins og sjálfstæð ríki í ríkinu, meira að segja án diplómatísks sambands. Eða hvernig verður það öðruvísi skýrt, sem síðast hef- ir gerzt í skömmtunarmálunum hér? Skömmtun- arstjórinn sjálfur hefir upplýst það, í blaðaviðtali, að skorturinn á vefnaðarvörum út á vefnaðar- vörumiðana, sem gefnir voru út um sl. áramót, stafi einkum af því, að vöruinnflutningurinn hafi ekki numið nema rösklega helmingi þeirra leyfa, sem gefin voru út í þessu augnamiði. Það verður að ætla, að magn skömmtunarmiðanna hafi verið miðað við hinn áætlaða innflutning allan. En stað hans „slást“ menn um helming hans við aðr- ar hverjar búðardyr. Fjöldi manna hefir því ekki haft tækifæri til þess að kaupa þann skammt vefn aðarvöru, sem talinn var hæfilegur hálfs árs skammtur um sl. áramót. Þrátt fyrir þessar stað- reyndir — og maður verður að ætla að skömmt- unarstjórinn haldi sér við staðreyndir þá sjaldan hann gefur upplýsingar — leyfa Fjárhagsráð og Viðskiptanefnd sér að ógilda þessa skömmtunar miða nú, er það er augljóst, að aðeins helmingur áætlaðs vefnaðarvöruinnflutnings hefir komið til landsins og mikill fjöldi landsmanna hefir ekki haft tækifæri til þess að afla sér nauðsynlegrar vefnaðarvöru út á þessa miða. Samfylking gömlu stjórnarflokkanna í Fjárhagsráði felldi þá sjálf sögðu tillögu Framsóknarmanna, að framlengja miðana. Var það þó beinlínis skylda ríkisvaldsins, að sjá um að skömmtunin stæðist þá lágmarks- kröfu að tryggja réttláta vörudreifingu. — Nú er því sjónarmiði varpað fyrir borð, því að nýju miðarnir gilda aðeins fyrir hálfvirði fyrri miðanna. Oll framkvæmd innflutningsmálanna og skömmtunarinnar hefir því farið þannig úr hendi, Taugaveiklun í kommúnistaher- búðunum. „Verkamaður" skrifar blaðinu: „ÞEIR VIRÐAST hafa verið alvarlega taugaveiklaðir, sem skrifuðu í Verkamanninn sl. föstudag. Virðist þeir sjá útsend- ara íslenzku ríkisstjórnarinnar á hverju götuhorni, og álíta að dag- ar verkalýðssamtakanna séu taldir. Það hvað vera bruggað launráð gegn verkalýðnum hér á Akureyri, á skrifstofum kaup- manna og forstjóra, og að senda eigi „stóra“ menn á Alþýðusam- bandsþingið, sennilega forstjóra, kaupmenn, fulltrúa, ráðunauta og jafnvel atvinnurekendur sjálfa, en verkamennirnir eiga hvergi að koma nærri! Það er von að aumingja fyrrverandi ritstjóri Verkamannsins verði miður sín út af öllum þessum ósköpum, enda ber grein hans, „Verkalýðs- fundir fínu mannanna“, þess vitni. í fyrrnefndi'i grein segir hr. Rósberg Q. Snædal að borgara- blöðin, en svo nefnir hann and- stöðublöð kommúnista, gefi skýr- ingu á því að þau vilji stjórnar- skipti í Alþýðusambandi íslands, en hún sé sú, að aumingja menn- irnir heiti því nafni, sem prestur- inn skírði þá. Er eg alveg sam- mála hr. Rósberg G. Snædal, að það sé heldur bágborin rök- færsla. En við verkamenn á Ak- ureyri getum gefið skýringu á því, og hún er sú: Við viljum ekki hafa þá stjórn í Alþýðusambandi íslands, sem notar verkalýðssam- 1 tökin, sem pólitískt vopn gegn hagsmunum þjóðarinnar. Við munum enn Krossanesdeiluna sl. sumar og kærum okkur ekki um að senda þá sömu menn á Al- þýðusambandsþing, sem sköðuðu bæjarfélagið um fleiri tugi þús- unda króna, sem við urðum svo að greiða aftur með hærri skött- um. Við viljum ekki þá menn í stjórn Alþýðusambands íslands, sem eru leiguþý erlends stór- veldis og meta meir hagsmuni þess en þjóðar sinnar. Eg vil skora á herra Rósberg G. Snædal að nefna nafn þess forstjóra KEA sem sagður var á verkalýðsfundi, þegar hann átti að gegna starfi sínu, svo að framkvæmdastjóri KEA geti gefið honum áminn- ingu fyrir að vanrækia starf sitt. Ef hr. Rósberg G. Snædal gerir það ekki tel eg skrif hans fleip- ur eitt frá upphafi og til enda, og sem eingöngu eru skrifuð til þess að hræða akureyrska verka- menn til að fylgja kommúnistum að málum. „Austrænt lýðræði“ í verka- mannafélaginu. AÐ LOKUM mun eg skýra frá sýnishorni á vinnubrögðum kommúnista innan verkalýðsfé- laganna, og munu þeir dyggilega, Þegar eg gekk til vinnu minnar í morgun, mætti eg heilum hópi af litlum börnum með litlar skóla- töskui' um öxl. Þau voru þvegin og greidd og glaðleg mörg hver, en í sVip flestra var eftirvænting og undrun. Þessir fyrstu dagar septembermánaðar, eru merkisdagar í hug og hjarta þessara smávöxnu og stuttstígu Akureyringa. Það eru fyrstu skóladag- arnir. Miklu máli skiptir fyrir barnið og alla þess fram- tíð sem skólabarns, að foreldrarnir fylgist vel og af alhug með þessum fyrstu skóladögum. Að vísu eru dagarnir á undan engu síður mikilvægir, allur und- irbúningurinn undir það sem koma skal, bæði beinn undirbúningur við að kaupa ýmis áhöld og bækur, og einnig hinn andlegi undirbúningur, umtalið um skólann og hið væntanlega nám þar. Fullorðnu fólki, sem ekki hefir haft meiri eða minni afskipti af börnum, hættir til að gleyma því að setja sig í hugarheim barnsins þegar jafn merki- 'legur atburður í lífi þess á sér stað og fyrsta skóla- gangan. Foreldrarnir þurfa að sýna áhuga og skilning á öllu því, er að náminu og skólanum lýtur og tala um stofnunina og starf það, er framundan er með virð- í því, stæla húsbændui sína í jngU) svo ag gu afstaða barnsins verði jákvæð þegar austri. Sl. sunnudag var haldinn félagsfundur í Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar. Á fundin- um s’óttu allmargir um inngöngu í félagið. En svo einkennilega brá við, að tveim verkamönnum var neitað um inngöngu í félagið, á þeim forsendum, að annar þeirra hefði aldrei unnið verkamanna- vinnu og að hinn væri iðnnemi. Eftir nánari vitneskju um þessa menn, þá hefir annar þeirra stundað verkamannavinnu lengri eða skemmri tíma undanfarin ár, og nú sl. 5 mánuði unnið við byggingarvinnu og geta vinnu- skýrslur atvinnurekandans sýnt og sannað það. Hinn maðurinn hefir unnið sem verkamaður í nokkur ár á bifreiðaverkstæði hér í bænum og hefir aldrei verið skráður sem iðnnemi né verið í iðnskóla. Finnst mönnum þetta harla einkennileg afgreiðsla hjá þeim meiri hluta, sem greiddi at- kvæði gegn því að þessir menn fengju inngöngu í félagið, en það voru allt kommúnistar, sem at- kvæði greiddu gegn því. Verkamaður.“ Nýjasta bókin: FÆREYJAR BÓK Hafnarstræti 81 — Sími 444 Blómadagamir 10.—11 SEPTEMBER. Hjálpræðisherinn selur blóm þessa daga til þess að geta haldið áfram andlegri og þjóð- félagslegri hjálparstarfsemi. — Gjörið svo vel að kaupa blóm! í upphafi. Allir góðir skólar kappkosta að taka vel á móti nemendum sínum, þegar þeir fyrst koma í skólann. Fyrsti dagurinn, eða jafnvel fyrstu augnablikin í skólanum og áhrif þeirra á lítið barn, geta verið mjög mikilvæg og það skiptir ekki svo litlu máli að áhrifin verði jákvæð og góð. Það er því auðsætt, að allir aðiljar, bæði heimilin o gskólarnir, þurfa að vinna saman hér eins og víða annars staðar, ef góðs árangurs á að vera hægt að vænta. Og fyrstu skóladagarnir ættu að vera eitt þeirra atriða, sem áherzla væri lögð á að vel tækist. HEILHVEITISKORTURINN. Húsmóðir ein kom að máli við mig á dögunum, og sagðist ekkert skilja í því, að ekki væri hægt að fá heilhveiti, meðan nóg er til af hvítu hveiti og ýms- um öðrum korntegundum. Þetta kemur sér afar illa fyrir marga, sem sam- kvæmt læknisráði eiga að borða heilhveiti í brauð, einkanlega og í sjálfu sér er það mjög óhagstætt fyrir alla, sem komizt hafa upp á það að nota heil- hveiti í stað hvíta hveitisins að verulegu leyti, því að heilhveitið er sem kunnugt er miklu hollara og betra fyrir mannslíkamann. Nú hefir frétzt að heilhveitið sé komið aftur og muni verða á markaðnum, áður en langt líður. Von- andi eru birgðir miklar og að áframhald verði á út- vegun þessarar vöru, svo að neytendurnir geti valið þá vöruna, sem þeir álíta bezta. GOTT RAÐ. Agúrkur geymast bezt, ef þær eru smurðar að utan með matarolíu. Olían varnar því, að mikil út- gufun eigi sér stað og gúrkan verður öll mýkri og betri. HEIMAGERÐAR SÚKKULAÐISTENGUR. Það er hægt að gera ágætar súkkulaðistengur heima á eftirfarandi hátt: Hart franskbrauð er skor- ið í fingurstórar ræmur. Súkkulaðiduft eða kakó er hrært út i heitri mjólk og þar í settur sykur eftir smekk. Brauðræmunum er velt upp úr þessu og síðan eru þær látnar á plötu og þurrkaðar í ofni við mjög hægan hita, þar til þær verða þurrar vel og harðar. Þetta þykir flestum börnum hið mesta sæl- gæti.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.