Dagur - 15.09.1948, Page 6

Dagur - 15.09.1948, Page 6
G DAGUB Miðvikudaginn 15. september 1948 » MAGGIE LANE Saga eftir Frances Wees 43. DAGUIt. Díana horíði til skiptis á Miggie og Karl. Loksins rauf hún þögnina. „Eg trúi ekki einu orði af því, sem þú hefir sagt. Þú vilt bara ná í hann sjálf. Þú ætlar að taka hann frá mér.“ Karl sneri sér að henni. „Nei, góða mín,“ sagði hann. „Því er ekki þannig farið. Maggie hefir alltaf haft augastað á stærri fisk- um en mér.“ Það var auðséð, að það var að renna upp fyrir Díönu, að Karl vildi ekki þræta algjörlega fyrir það, sem Maggie hafði sagt. „Jæja, Díana,“ sagði Maggie. „Nú skulum við koma.“ Það var barið að dyrum. Paley horfði spurnaraugum á Karl, sem opnaði síðan, varlega. Anthony stóð í dyragættinni. Hann var í kjólbúningi, rólegur og ákveðinn í fasi eins og ævinlega. „Mér þykir leitt að eg kem svo seint,“ sagði hann, „en það tók mig svo langan tíma að koma bílnum fyrir.“ Hann sneri sér að Maggie. „Eg ákvað nefnilega að veita þér eftirför." Karl Gulick horfði undrandi á Anthony. Vonleysi skein úr svip hans. Hann sá nú, að taflið var tapað. Anthony hélt áfram, í rólegum, kurteislegum tón. „Hvað lengi hefir systir mín verið hér?“ spurði hann. . „Um það bil klukkutíma,“ svar- aði Karl með nokkrum erfiðis- munum. „Er það rétt, Díana?“ Hún kinkaði kolli. „Þú hefir ekki verið hér í allan dag?“ „Neí,“ sVaraði Karl. Honum var mikið niðri fyrir. „Við ókum til Penfield. Eg get sannað það. Við komum hingað fyrir klukku- tíma.“ „Það er gott fyrir þig, karlinn," sagði Anthony. Maggie gekk hvatlega inn í næsta herbergi og kom þaðan að vörmu spori aftur með kápu Dí- önu, hatt hennar og tösku. Hún fékk Anthony kápuna. Hann gekk til systur sinnar, tók glasið af henni og hjálpaði henni í káp- una. „Það var gott að Maggie vissi hvar þér áttuð heima,“ sagði Anthöny, um leið og hann gekk á eftir systur sinni út úr herberg- inu. Frú Carver heyrði er þau komu heim. Hún liljóp á móti þeim og brast í grát, þegar hún sá að Dí- ana var með þeim. Allur virðu- leikinn var nú af henni. Maggie sá hana í fyrsta sinn eins og hún var í rauninni, venjuleg móðir, sem er hrædd um barn sitt. Frú Carver faðmaði dóttur sína að sér um leið og hún lét hverja spurninguna reka aðra. Díana svaraði engri þeirra. Hún var þreytuleg og virtist áhugalaus fyrir öllu, sem gerðist í kringum hana. En allt í einu rann það upp fyr- ir frú Carver, að hún mætti ekki láta tengdadóttur sína sjá sig svona og hún rétti úr sér og þurrkaði tárin af vöngunum. Hún horfði hvasst á Maggie. „Það er auðséð, að það ert þú, sem hefir komið þessu til leiðar,“ sagði hún. „Eg hefi þolað þér margt hingað til, en nú er nóg komið. Viltu gjöra svo vel að skýra mér frá því hvað hefir gerzt. Eftir það vil eg að þú farir héðan, tafarlaust. Eg mun ekki þola nærveru þína hér í húsinu stundinni lengur." Þögn. Anthony ræskti sig. „Eg held að þú misskiljir það, sem gerzt hefir, mamma," sagði hann. „Það er Maggie að þakka, að Dí- ana er komin heim. Við eigum henni mikið að þakka.“ (Framhald). Vil selja 4 ungar kýr. Pdll Vigjússon, Syðri-Varðgjá. Tek að mér i'lutning á rauðmöl úr Mý- vatnssveit, Bjarni Tryggvason, Y triV arðgjá. Fjármark mitt er: Tvístýft aftan hægra, sýlt og gat vinstra. Brennimark: J. V. S. Hallandsnesi, 13. sept. 1948. Jón Sigfússon. Eldri kona óskast í vetur á fámennt heimili, rétt við bæinn. — Sérherbergi. Afgr. vísar á. Vil kaupa góða Kolaeldavél Gunnar Árnason, Sími 580. iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiMiimmiiiiiiiiiiiiiiiiimiHiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiii GEFJUNAR iiimmmim i'A ULLARDÚKAR, margar gerðir, i KAMGARNSBAND, margir litir, j LOPI, margir litir, í venjulega fyrirliggjandi í öllum kaupfélögum landsins. i I Ullarverksmiðjan GEFJUN | riiliiiimiiiimiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiimiimmiiiiiiiiimimiiiiimmiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiimmmi* ! Við önnumst vöruflutningana | j Bifreiðastöðin Stefnir s.f. I § Sími 218 — Akureyri. | 'hIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIiIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍ «mmmmm ii iii mmmmmimi .... | AUGLÝSING | frá Viðskiptanefnd | Viðskiptanefndin vísar til auglýsingar, dags. 20. í í ágúst urn innköllun dollaraleyfa, og vill hér með endur- i 1 taka það, sent segir í umræddri auglýsingu, að óheimilt i | er bönkum og toHafgreiðslum að greiða eða tollafgreiða = = vörur gegn gjaldeyris- og innflutningsleyfum útgefnum i 1 í dollurum, nema þau hafi verið skrásett og stimpluð af i Í Viðskiptanefnd. | Reykjavík, 7. september 1948. Viðskiptanefndin. j •iifiimiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiimiiiiimpiiiiiimiiiiiiiliiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimmi? «iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|iiiijiiiiii|iiliiiiiimiimiiiiiiiil"* 1 Tvær stúlkur óskast til vinnu í Kristneshæli 1. október eða fyrr. I Ennfremur kemur til mála að ráða karlmann til 1 hreingerninga á gólíum. Góð kjör. Upplýsingar í gefur yfirhjúkrunarkonan, sími 119 og skrifstof- I j an, sínti 292. 7n immmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmimimmmmmmmmm* ÁualÝsið í „DÉGI" Fræg skáldsaga um Eftir GARLAND ROARK MYNDASAGA DAGS — 14 ævintýri og hetjudáðir Myndir eftir F. R. Gruger Ralls var drukkinn. Hann hélt á svipu. Kjölfar Ráuða drekans „Eg sver, að eg skal hefna mín,“ sagði Sidneye við Ralls. ÞEGAR SIDNEYE hafði sagt mér, hvemig það bar að, að hann gerði Ralls að skipstjóra á Rauða drekanum, var sögu hans lokið. Eg vissi allt, sem síðan hafði gerzt, um örlög Rauða drekans og gullfarmsins. Sidneye horfði spurnaraugum á mig. „Eg hefi sagt Ralls, að sviksemi við mig muni verða grimmilega hefnt,“ sagði hann. Eg skildi nú, hvað undir bjó í viðskiptum þessara manna. Eg varð að taka ákvörðun. Hann var að bjóða mér grið og að gerast sinn maður. Hann var ennþá Sidneye, forstjóri Batjak Ltd., gamall maður í hjólastól, en samt einvaldur voldugs fyrirtækis. Hann var sterkur maður, þrátt fyrir allt, raunar hvergi veikur fyrir hema þegar fullhugar töluðu um ævintýri og hetjudáðir, þá hreifzt hann með. Ralls hafði kunnað þau tök á honum. Eg sá nú atburðina í nýju ljósi. En eg gat ekki stillt mig um að spyrjast frekar fyrir um Angelique „Hún var dásamleg eiginkona og móðir,“ sagði Sidneye. „Hún lézt þegar hún gaf mér þriðja barnið. Ef hún hefði lifað, hefði „Varstu búin að gleyma aðvörun minni,“ sagði eg við Teleia. eg kannske látið mál okkar Ralls niður falla nú.“ Sidneye beið eftir svari mínu. Mundi eg skilja við Ralls og koma yfir um til hans? Það dró nærri dögun, og eg vissi að við sólarupprás mundi Ralls koma, eins og við höfðum talað um, nema eg væri kominn til skips áður. „Þú verður að taka ákvörðun,“ sagði Sidneye. „Ertu með okkur eða með Ralls?“ „Hvað hefi eg langan frest?“ „Til sólarlags. Ekki lengur.“ Eg var í þungum þönkum á leiðinni til skipsins. Eg gat ekki tekið ákvörðun mína nema gera fyrst upp sak- irnar við Ralls, hreint og ærlega. Þegar eg var komin nhálfa leið til skipsins, mundi eg eftir því að Ralls hafði verið drukkinn kvöldið áður og eg þekkti hann svo mikið, að hann mundi undir þeim kringumstæðum ekki hafa haldið kyrru fyrir í skipinu. Hver skyldi hafa orðið fyrir barðinu á honum í þetta sinn? Allt í einu flaug mér Teleia í hug. Eg hraðaði mér aftur til hússins, milli vonar og ótta. En eg varð rólegur þegar eg sá Teleiu í garðinum. Hún brosti glaðlega þegar eg nálgaðist. „Sást þú Ralls í gærkveldi?" spurði eg strax. „Já,“ svaraði hún. „Eg sá hann um ellefu leytið.“ Eg þreif um úlnlið hennar. „Varstu búin að gleyma aðvörun minni?“ spurði eg. „Mijnheer,“ sagði hún. „Skiptir það þig nokkru máli?“ Hún sá að mér rann í skap og hætti að stríða mér. Eg varð æfareiður er hún sagði mér að Ralls hefði komið um borð í snekkjuna Flores, er hún var ein þar fyrir. Hann var drukkinn og hélt á svipu í hendinni. „Hann var ægilegur ásýndum," sagði hún, „þegar hann kom inn í káetuna með svipu í hendinni. Eg reyndi að brosa og láta ekki á bera á ótta mínum, en í rauninni var eg viti mínu fjær af'hræðslu.“ (Framhald í næsta blaði).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.