Dagur - 22.09.1948, Blaðsíða 8
8
Miðvikudaginn 22. sept. 1948
Ungur Breti í hrakningum
í Ódaðahrauni
Hann fór fótgangandi frá Svartárkoti
til Grímsstaða
Nýi Ákureyrartogarinn kemur
væntanlega í febrúar
Þorst. Auðunssoii yerður skipstjóri
Útgerðarfélagið er að auka hlutafé sitt
um 700 þúsund krónur
Hingað til bæjarins er nýlega
kominn ungur, brezkur náms-
maður eftir sögulega svaðilför
um Ódáðahraun. Maður þessi
heitir George Checklin og er
nemandi við háskólann í Nott-
ingham. Erindi hans hingað til
lands var að kynna sér jurta- og
dýralíf í sumarleyfi sínu frá há-
skólanum. Ætlun hans upphaf-
lega var að ferðast um hálendið
sunnanlands, en hætti við það
og kom hingað norður. Ákvað
hann þá að fara fótgangandi yfir
Ódáðahraun norðanvert, frá
Svarftárkoti til Jökulsár. Lagði
hann upp í ferðina frá Svartár-
koti, einn síns liðs, 2. seþt. sl. — f
ljós kom á leiðinni, að hann var
allsendis ónóg búinn til slíkrar
ferðar, hafði takmarkaðar og
óhentugar vistir og of lítið af
skjólfötum. Hann hreppti þegar
hin verstu veður á leiðinni og
náði til Jökulsárbrúar eftir 5
daga ferð, mjög þrekaður. Var
lionum ágætlega tekið á Gríms-
stöðum og hlúð þar hið bezta að
honum. Checklin segist vera
ákveðinn í því að koma hingað til
lands aftur og ferðast um
óbyggðir, en reynslan hefir nú
kennt honum að það þarf góðan
útbúnað til þess að ferðast um
hálendið á íslandi á þessum árs-
tíma.
Danskir kaupsýslumenn
fá nægan gjaldeyri
Hinn fyrsta september gekk í
gildi ný reglugerð um utanlands-
ferðalög danskra kaupsýslu-
manna. Samkvæmt frásögn „Po-
litiken" fá þeir nú frjálsan að-
gang að gjaldeyri til ferðalaga
í þágu viðskiptalífsins. Skemmti-
ferðamenn fá aftur á móti engan
gjaldeyri hjá dönskum bönkum.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð,
geta kaupsýslumenn nú snúið sér
til bankanna með ósk um kaup á
gjaldeyri til ferðalaga og eiga
þeir rétt á ákveðinni upphæð pr.
dag í hverju landi. Til dæmis fá
menn 1000 belgíska franka á dag
eða 50 svissneska franka.
Ungur Þingeyingur
kominn heim frá
námsdvöl erlendis
í gær kom hingað til bæjar-
ins ungur Þingeyingur úr náms-
dvöl erlendis. Er það Jónas Bald-
ursson í Lundarbrekku í Bárðar-
dal. Stundaði hann nám við sam-
vinnuskólann brezka í vetur og
vor, en áður hafði hann dvalið
við norska samvinnuskólann.
Jónas dvaldi í sumar á ýmsum
stöðum í Bretlandi og nú síðast í
París. Hann er á heimleið og hef-
ir í hyggju að gerast bóndi
Dagur
Opnar vörusýningu
Um þessar niuudir stendur yfir
mikil brezk vörusýning í Kaup-
mannahöfn. Var hún opnu'ð um
helgina af verzlunarmálaráð-
lierra Breta, Harold Wilson. —
Mörg hundruð brezk fyrirtæki
sýna framleiðslu sína á þessari
sýningu og í sambandi við hana
hefir verið efnt til alls konar há-
tíðahalda til þess að stuðla að
auknuin viðskiptum og kynnum
Breta og Dana. M. a. keppa
frjáisíþróttamenn Breta og Dana
í Kaupinannahöfn nú í vikunni.
Brezka útvarpið skýrði frá því í
fyrradag, að íslenzkir og sænskir
íþróttainenn mundu taka þátt í
keppninni.
Óli Konráðsson
MINNING..
Þeir eru áreiðanlega margir,
sem minnast Óla Konráðs með
hlýhug og þakklæti og er eg ein
af þeim.
Hversu oft var það ekki til
uppörfunar og hugarléttis að
mæta honum, með sitt glaða og
hlýja bros, sem alltaf sá eitthvað
gott í öllum erfiðleikum og ætíð
boðinn og búinn, eftir getu, til að
rétta hjálparhönd þeim, sem þess
þurfti með ,enda átti hann til
þeirra að telja, sem voru hinir
valinkunnu foreldrar hans, Guð-
laug Ólafsdóttir og Konráð Sig-
urðsson. — Starf hans hér var
víðtækt og eflaust erfitt, þar sem
hann varð fyrst og fremst að bera
ábyrgð á öllum gan'gi fyrirtækis-
ins og síðan að eiga það undir
hollustu og þegnskap viðskipta-
vina sinna hvernig afkoman yrði.
Honum var ekki gjarnt að ræða
um störf sín á einu eða öðru
sviði og eg held að hann hafi
aldrei ætlað neinum illt og sér-
staklega orðvar, um það sem
miður mátti vera í annarra garð.
Það er skaði mikill þegar goður
drengur og athafnamaður fellur
frá á miðju æviskeiði en huggun-
arríkt fyrir ástvini og aðra sem
þekktu hann, að minningin um
hann verður ætíð hugljúf og
sterk.
Það skein líka í heiðríkju him-
inblámans þegar hann kvaddi
heimili sitt í hinnsta sinn.
Helga Jónsdóttir frá Oxl.
Starfsstúlkur
vantar í heimavist Mennta-
skólans. — Upplýsingar gei-
ur ráðskonan. S'ími 43fi.
Eins og kunngut er ákvað Út-
gerðarfélag Altureyringa á aðal-
fundi sínum í maímánuði s. 1. að
auka hlutafé sitt um rösklega
700.000 krónur, eða í kr. 1,500.00
og sækja jafnframt um að kaupa
togara þann, sem Akureyrarbær
á í pöntun í Bretlandi. Á fundi
bæjarstjórnar í júní var ákveðið
að framselja byggingarsamning
togarans til Útgerðarfélagsins,
enda fengi bærinn tækifæri til
þess að eignast allt að 50% af
hlutafjáraukningunni. Á fundi
bæjarráðs fyrir nokkru var til
umræðu bréf frá Útgerðarfélag-
inu, þar sem spurst var fyrir um,
hvort bærinn hyggðist notfæra
sér þetta skilyrði. Bæjarráð sam-
þykkti að Útgerðarfélaginu væri
heimilt að selja það, sem það gæti
af hlutabréfum án hluttöku bæj-
arins, en bæjarstjórnin sjálf féllst
ekki á þetta, heldur samþykkti
að halda við hið fyrra skilyrði.
Mun bærinn því væntanlega
kaupa allt að 50% af hlutafjár-
aukningunni, en afgangurinn, um
350.000 kr., er til sölu fyrir bæj-
armenn. Hefur útgerðarfélagið
auglýst hlutabréfasöluna fyrir
nokkru og stendur hún enn yfir.
Nokkuð hefur þegar selzt af
bréfum, en allmikið er óselt. Er
þess eindregið vænzt að bæjar-
búar gerist almennt kaupendur
að hlutabréfum og að upphæð sú,
sem ákveðið er að selja, gangi öll
út nú á næstunni. Reynsla sú,
sem þegar er fengin af útgerð
Kaldbaks hefur sýnt, að togara-
útgerð héðan er arðvænleg.
Rekstur félagsins hefur farið
mjög vel úr hendi og má eindreg-
ið vænta þess að aukin togara-
útgerð héðan geti orðið mikil
lyftistöng fyrir atvinnulíf bæjar-
manna og fjárhagsafkomu bæjar-
félagsins 'í heild.
Nýja skipið kemur væntánlega
í febrúar.
Dagur leitaði frétta af smíði
hins nýja togara hjá forstjóra Út-
gerðarfélagsins, Guðm. Guð-
myndssyni. Sagði hann að stjórn
útgerðarfélagsins vonaði að skip-
ið yrði tilbúið í febrúar. Er það
nokkru seinna en upphaflega var
í'áðgert. Ekki er þó hægt að full-
yrða neitt um afgreiðslutímann
að svo stöddu. Útgerðarfélagið
hefur þegar ráðið nokkuð af
skipshöfn hins nýja skips. Skip-
stjóri verður Þorsteinn Auðuns-
son, sem verið hefur 1. stýrimað-
ur á Kaldbak. Þorsteinn er bróð-
ir Sæmundar skipstjóra á Kald-
bak. Þorsteinn er fyrir nokkru
farinn af Kaldbak, en í sæti hans
þar kom Auðunn Auðunsson,
þriðji bróðirinn. Fyrsti vélstjóri
á skipinu verður Bergur Páll
Sveinsson, sem nú er 1. vélstjóri
á Kaldbak, en í sæti hans á Kald-
bak kemur Hallur Helgason vél-
stjóri.
Akureyri úthlutað
1 kílówatti á útvarps-
ráðstefnunni
Ætlar útvarpið að
byggja endurvarpsstöð
hér?
Á útvarpsráðstefnunni, sem
nýlokið er í Kaupmannahöfn,
gerðist það m. a. að Akureyri var
úthlutað bylgjulengd á mið-
bylgjusvæðinu fyrir 1 kílówatts
orku útvarpsfetöð. Leyfisveiting
þessi hlýtur að vera gerð fyrir
beiðni forráðamanna útvarpsins
hér og þá væntanlega að merkja
það, að í ráði sé að reisa 1 kíló-
watts endurvarpsstöð hér ein-
hvern tíman á næstu árum. Þetta
er sama orka og Eiðastöðin hefir
nú, en leyft var að auka orku
hennar í 5 kílówött á sömu ráð-
stefnu. En þótt þessi frétt bendi
til þess að útvarpið hér hafi í
hyggju að reisa hér endurvarps-
stöð, hafa forráðamenn ekkert
tilkynnt um slíkar fyrirætlanir
ennþá. Endurvarpsstöð hér yrði
að sjálfsögðu mikil endurbót fyr-
ii' Akureyri og nálægar sýslur og
ber því að fagna þessum fyrir-
ætlunum. En endurvarpsstöð er
ekki nóg. Hér þarf líka að koma
útvarpssalur og aðstaða til þess
að útvarpa sjálfstæðum dag-
skrárliðum, sem felldir væru inn
í allsherjardagskrá Ríkisútvarps-
ins.
Norðlenzkur bátur
hlutarhæstur
á síldarvertíðinni
Mótorbáturinn Gylfi úr
Rauðuvík mun vera hlutarhæsti
bátui'inn í síldarflotanum á þessu
ári. Báturinn er aðeins tæp 35
tonn að stærð, en aflaði í sumar
rétt um 4000 mál og mun háseta-
hlutur (10 menn) vera um 8000
kr. Þessi bátur var aflahæstur af
norðlenzku bátunum á Hval-
fjarðarvertíðinni í fyrra, aflaði þá
14,500 mál og varð hásetahlutur
þá rétt um 18000 krónur. Há-
setahlutur á bátnum, frá því í
nóvember í fyrra til síldarvertíð-
arloka nú er því um 26000 krón-
ur. Skipstjóri á Gylfa er Bjarni
Jóhannesson frá Flatey, ungur
maður, (á 35 ára afmæli í dag).
Eigandi bátsins er Valtýr Þor-
steinsson útgerðarmaður frá
Rauðuvik.
i ■ 111 ■ ■ ■ ■ 111111111 ■ 11 n 11
iiiiiiiiiimiiiiiin
Aðal-safnaðarfundur
verður haldinn í Kirkjukapellunni sunnu-
daginn 26. þ. m. að aflökinni guðsþjónustu.
DAGSKRÁ:
1. Lesnir reikningar kirkjunnar fyrir síðastliðið ár.
2. Kosnir tveir menn í sóknarnefnd.
3. Onnur mál.
Sóknarnefndin.
r
Happdrætti Háskóla Islands
Endurnýjun til 10. flokks liefst 25. þ. m.
Endurnýið i tima!
Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f.
Unglingspilíur,
14—15 ára, getur fengið atvinnu nú þegar.
Smjörlíkisgerð KEA.