Dagur - 09.06.1949, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 9. júní 1949
D A G U R
5
Allsherjar berklarannsókn á Akureyri
Eins og fyrr er frá greint er ákveðið að láta fram fara allsherjar
berklaskcðun hér í bænum. Og er skoðunin þegar hafin. Er gert ráð
fyrir að rannsóknin taki um 10 daga og 6—700 manns verði rannsak-
að daglega. — Berklarannsóknin fer fram í Gagnfræðaskólanum. —
Tilgangur rannsóknanna.
Eins og kunnugt er hafa slíkar
rannsóknir á undanförnum árum
verið framkvæmdar á ýmsum
stöðum hér á landi. Tilgangur
þeirra er að leita uppi berkla-
sjúka menn og konur, berkla-
smitbera, sem ganga um sem
heilir væru, án þess að vita um
sjúkdóm sinn. Það er mikilsvert
fyrir slíkan smitbera að fá þegar
í stað rétta meðferð, áður en
sjúkdómur hans er ólæknandi, og
mikilsvert fyrir þjóðfélagið, að
sjúkrahússvist hans verði sem
stytzt og örorka hans sem minnst.
Með því að hafa upp á slíkum
' smitbera er jafnframt komicT í veg
fyrir það, að hann nái að smita
frekar út frá sér og breiði sjúk-
dóm sinn þannig út óafvitandi.
Berklarannsóknir hér á landi.
Hér á landi hafa berklarann-
sóknir undangenginna ára fært
sönnur á, að slíkar rannsóknir
eiga fullan rétt á sér.' Árlega hafa
verið rannsakaðar þúsundir
manna, auk berklaprófa héraðs-
læknanna, sem hafa skipt þús-
undum. Hafa eigi fáir smitberar
fundizt við þessar rannsóknir og
hvað eftir annað tekizt að stemma
stigu við berklafaröldrum. í
ýmsum læknishéruðum, bæði
kaupstöðum og sveitahéruðum
hafa allsherjar berklarannsóknir
verið framkvæmdar. I mörgum
þeirra hefii: hver einasti maður
komið, sem boðaður var til rann-
sóknanna.
Á Akureyri hafa berklarann-
sóknir einnig verið framkvæmdar
í stórum stíl á undanförnum ár-
um. Berklavarnastöðin hefir
rannsakað um eitt þúsund manns
árlega, og fjölgar rannsóknum
hennar ár frá ári. Margir, sem þar
eru rannsakaðir, standa undir
beinu eftirliti stöðvarinnar vegna
berklaveiki í nánasta umhverfi
sínu, eða eru af öðrum ástæðum
sendir til rannsóknar af starfandi
læknum í bænum. Sumir koma og
óska eftir slíkri rannsókn ótil-
• kvaddir. Þá hefir verið boðaður
■ til rannsóknanna fjöldi fólks úr
einni og sömu starfsgrein, svo
. sem kennarar, skólafólk, starfslið
. Mjólkursamsölunnar og mat-
• vöruverzlana, veitingahúsa o. s.
frv.
Allsherjar rannsókn á Akureyri.
Nú hefir verið ákveðið að láta
, fara fram allsherjar rannsókn á
öllum íbúum bæjarins. Er ætlazt
til þess, að hver einasti maður
mæti til rannsóknarinnar, nema
hann sé hindraður af sjúkdóm
eða ellikröm. Áætlað er, að rann-
sóknin taki um 10 daga og 6—700
manns verði rannsakaðir daglega.
Tilhögun rannsóknarinnar.
Rannsóknin er þegar hafin með
berklaprófi á öllum börnum
kaupstaðarins. Börn, sem reynzt
hafa jákvæð við prófið, verða síð-
ar röntgenrannsökuð. Hin nei-
kvæðu verða eigi rannsökuð
frekar. Þá verða hjúkrunarkon-
ur sendar í hvert hús og hverja
íbúð og boða þær fólk til rann-
sóknanna. Jákvæðu bömunum
verður síðan stefnt til röntgen-
rannsóknar ásamt öllum full-
orðnum. Verðui' hún framkvæmd
í Gagnfræðaskólahúsinu og er
fólgin í því, að tekin verður rönt-
genmynd af lungum hvers ein-
staklings. Hafa í þessu skyni ný-
lega verið keypt mjög vönduð og
dýr röntgentæki.
Rannsóknin fer fram daglega
frá kl. 10—22. Gert er ráð fyrir,
að rannsakaðir verði um 100
manns á klukkustund hverri. Til
þess að koma í veg fyrir óþarfa
bið er fólki stefnt þannig, að um
40—50 manns komi á hverjum
hálftíma. Ætti þá lengsta bið
aldrei að nema meiru en 15—20
mínútum. Þetta er þó því aðeins
hægt, að fólk komi stundvíslega.
Hver og einn getur fengið að
ákveða, hvenær hann vill mæta á
áðurgreindum tíma, þ. e. hann
getur valið um þann hálftíma,
sem bezt hentar honum á tímabil-
inu frá kl. 10—22. En þess verð-
ur þá vænzt, að hann mæti á hin-
um 'ákveðna tíma. Mun stundvísi
almennings auðvelda rannsókn-
ina mjög.
Undirbúningur rannsóknanna.
Undirbúningur þessarar rann-
sóknar hefur tekið alllangan
tíma. Orðugt hefur reynzt að fá
allt, er til hennar þarfnast, tæki,
filmur, efni til berldaprófa o. s.
frv. Röntgentækin hafa verið
keypt sérstaklega með það fyrir
augum að framkvæma berkla-
rannsóknir í stærstu kaupstöðum
landsins. Húsrúm það, sem notað
er, er að ýmsu leyti ekki hentugt.
En þess er vænzt, að íbúar þessa
bæjar geri sér ljósa örðugleika
þá, sem hér er við að etja og taki
eigi hart á þeim óþægindum, sem
af slíku kunna að hljótast, hejdur
sýni vilja sinn í því, að koma til
rannsóknanna á hinum tilskilda
tíma.
Treyst á skilning bæjarbúa.
Af framanskráðu er ljóst, að
við ýmsa óvænta örðugleika get-
ur verið að etja. Enn fremur vita
allir, sem að rannsókninni standa,
að hún verður vart framkvæmd
á sómasamlegan hátt án vilja í-
búanna sjálfra. Fyrstu ár berkla-
rannsóknanna hér á landi varð
þess eigi sjaldan vart, að fólk
fyrirvarð sig fyrir að mæta til
rannsóknar. Nú er slíkt löngu
horfið, og margir eru þeir, sem
hafa látið í ljós þá ósk, að árlega
væri hægt að framkvæma berkla-
rannsókn í byggðarlagi sínu.
í þessu efni er treyst á skilning
og vilja bæjarbúa. Með því að
sýna áhuga sinn á rannsókninni
og koma þegar í stað er kallið
kemur, auðvelda þeir starfið
mjög. Þeir verða að hafa það
hugfast, að rannsóknin er fram-
kvæmd fyrir þá sjálfa og alþjóð-
ar heill, en eigi starfsliðið, er að
henni stendur. Hér er um eitt
velferðarmál þjóðarinnar að
ræða, því fáar munu þær fjöl-
skyldur á þessu landi, sem
berklaveikin hefur ekki höggvið
skarð í á undanfarandi áratugum.
Þótt núgildandi berklavarnarlög
veiti víðtæka heimild til að
skylda fólk til rannsóknarinnar,
ætti aldrei að þurfa að beita slík-
um Jagafyrirmælum.
Hver einasti maöur á að mæta
við fyrstu kvaðningu, ef nokk-
ur tök eru á. Því aðeins er til-
gangi rannsóknarinar náð, að
sérhver einstaklingur geri
skyldu sína í þessu efni og láti
rannsaka sig. Þetta varðar
hvern einasta bæjarbúa.
Bólusetning gegn berklaveiki.
Þá hefur verið ákveðið að gefa
íbúum Akureyrar á aldrinum 13
—30 ára kost á því að láta bólu-
setja sig gegn berklaveiki..Hefur
þessi bólusetning verið fram-
kvæmd víða um lönd með mjög
góðum árangri og er af öllum tal-
in hættulaus. Eftir bólusetning-
una kemur oft nokkur bólguvott-
ur á bólusetningarstaðinn, en
smáhjaðnar og eyðist. Þess eru
engin dæmi, að fólk hafi veikzt af
völdum bólusetningarinnar.
Heilsuverndarstöðin í Reykja-
vík hefur þegar bólusett á þenn-
an hátt nokkur þúsund manns,
einkum börn og unglinga frá
berklaheimilum.
Nú stendur fyrir dyrum að
hefja víðtækari framkvæmdir á
þessu sviði víðsvegar á landinu.
Er bólusetningin á Akureyri einn
liður í þeim.
Bólusetningunni verður hagað
á þann veg, að allir á ofangreind-
um aldri verða fyrst berklapróf-
aðir á vanalegan hátt. Verður
það gert um leið og þeir koma til
röntgenrannsóknarinnar. Að
berklaprófinu afloknu verða þeir,
er neikvæðir reynast, bólusettir.
Fer berklabólusetningin fram í
gagnfræðaskólanum. Séu ein-
hverjir andvígir því, að þeir verði
bólusettir, eru þeir beðnir að
gera aðvart í tæka tíð.
Bcrkladauði ört lækkandi.
Á undanförnum árum hefur
mikið unnizt á í berklavörnum
þessa lands. Berkladánartalan
hefur fallið örar en dæmi eru til
í nokkru öðru landi. Við berkla-
rannsóknina í Reykjavík náðist
til um 99 af hundraði af öllum í-
búum bæjarins. Hér eru allar að-
stæður þannig, að samskonar
rannsókn á að takast, ef allir
leggjast á eitt. Hví þá eigi að gera
slíka tilraun?
Það er ósk allra, að tilraunin
megi takast. Þeir sem að rann-
sókninni starfa leggja sig fram
til þess, að hún verði sem þezt af
hendi leyst, í þeirri trú, að allir
bæjarbúar sýni þann skilning og
þegnskap, sem slíku máli er sam-
boðinn.
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
lengra upp á skaptið á öðrum
sviðum, t. d. á vettvangi félags-
málanna. Sé það orðið vafamál,
hvort langir kjólar eða stuttir séu
henni betur að skapi, þá er það að
aftur á móti alveg vafalaust, að
menningarfyrirbrigði á borð við
verkföll og verkbönn hafa t. d.
verið mjög í tízku nú um sinn, og
sífellt fleiri stéttir og einstakling-
ar reyna eftir beztu getu að sýna
drottningunni trúnað sinn og
hollustu á þann hátt. Það er
gömul saga og ný, að verkamenn
geri verkfall, og engin nýlunda er
slíkt heldur um óbreytta sjó-
menn. En nú hafa útgerðarmenn
tekið upp sama gæfuþráðinn, iðn-
aðarmenn gera verkföll, bílstjór-
ar „stræka“, og mætti svo lengi
telja og næstum því óendanlega.
Hitt er miklu skrýtnara og ennþá
nýtízkulegra, er ríkisrekstrar-
menn „demonstrera11 gegn ríkis-
rekstri, einræðissinnar gegn ein-
ræði, en lýðhyggjumenn gegn
lýðræðinu. Þá má það og til tíð-
inda teljast (en þó engan veginn
flunkunýrra) að forsvarsmenn og
flokkar einstaklingshyggjunnar
gangi af öllu einkaframtaki
dauðu, menn hinnar „frjálsu
verzlunar" standi manna fastast
með (og græði manna mest á)
hvers konar verzlunarhöftum,
„kvótum" og svartamarkaðs-
prangi, — spákaupmenn þeir og
atvinnurekendur, er annars vilja
þó teljast í hópi yfirlýstra and-
stæðinga hvers konar félags-
rekstrar og samvinnuskipulags,
breyta sjálfum sér í hlutafélög og
jafnvel samvinnufélög! Og loks
þykjast gömuloggróinsamvinnu-
félög til þess neydd að bjarga því,
sem bjargað verður, undan
„skattfrelsi samvinnufélaganna"
með því að breyta fleiri eða færri
starfsgreinum sínum í hlutafélög,
til þess að komast þannig undir
sams konar „skattpíningu11 eins
og stórgróðamenn, sem orðnir eru
persónulegt (eða fjölskyldulegt)
hlutafélag, njóta svo góðs af og
kvarta líka svo sáran yfir.
Hringrásin fullkomnuð.
NÆST FRÉTTUM við líklega,
að fjölmenn félög breyti sjálfum
sér af sömu eða svipuðum ástæð-
um í einstaklinga og hefji einka-
rekstur — í félagi! Og loks rekur
sennilega að því, að þaulreyndar
sjálfstæðishetjur og aðrir leiðtog-
ar einkaframtaksins geri verkfall
og neiti vendingum kommúnista,
þegar þeir bjóða þeim vinnu við
pólitísk skemmdaverk gegn fullu
takstakaupi og réttreiknaðri vísi-
tölu í þokkabót — allt auðvitað
umreiknað í atkvæðum, „steikt-
um gæsum“ eða öðrum pólitísk-
um stundarhagnaði — og svo
rekur sjálfsagt sú sanna furðu-
fregn lestina, að kommúnistar
geri kröfur til sjálfra sín, en
hvorug hin síðasttöldu tíðindi
hafa áður gerzt í sögunni, svo vit-
að sé, og eru þá einsdæmi orðin
bezt, en hinar fréttirnar verstar,
sem hversdagslegastar eru og al-
gengastar. Má þá segja, að hin
eilífa hringrás sé fullkomnuð,
einnig að þessu leyti, — duftið,
sem hófst til skýjanna, horfið aft-
ur til moldarinnar, klappir
íhaldsundirstöðunnar orðnar að
efstu og fokgjörnustu þakhellum
skýjaborganna, en steinninn, sem
byggingamennirnir burtköstuðu,
sé orðinn að hyrningarsteini, allt
að sjálfsögðu í hinni nýju, lang-
tízkulegu og grannholdlegu
merkingu nútímatízkunnar, en
ekki í hinni gömlu, stuttklæddu
og fullgildu merkingu dæmisögu
fornaldarfólksins.
„Og þú líka, bamið mitt Brútus“
— í verkfalli og vei'kbanni.
OG TIL ÞESS að ritningar
byltingarspámanna megi rætast,
hefir vorið sjálft gert íslending-
um öllum harðvítugt verkfall og
samtímis sett blákalt verkbann á
Fegrunarfélagið, sem og öll önn-
ur félög og einstaklinga, er ætl-
uðu sér þó annars að taka virkan
þátt í voryrkjum þeirra hjóna-
leysanna, þróunarinnar og gró-
andans — sem verkfallsbrjótar og
óvaldir félagsskítir, ef vinnufrið-
ur fengist ekki á annan og frið-
samlegri hátt. — Og loks setur
penninn minn á mig velkomið
verkbann með bleklausu þurra-
drambi hins uppgefna iðjuleys-
ingja, en eg geri honum aftur á
móti og í launaskyni fyrir hvíld-
ina hér með verkfall í „Degi“ í
í kvöld kl. 9:
| George sigrar í
\ („Trouble Brewing“) i
\ Spennandi og sprenghlægi- i
í leg ensk söngva- og gaman- i
I mynd frá A. T. P. Produc- i
I tion, Ealing Studios, eftir |
Í Angus MacPliail og \
Michael Hoganr \
\ Leikstjóri: \
\ Anthony Kimmins.
Í Aðalhlutverk:
| GEORGE FORMBY f
Í Googie Withers \
| Gus McNaughtón
\ Garry Marsh. \
............
| SKJALDBORGAR [
B í Ó I
| Topper á ferðalagi f
Allir þurfa að sjA \
\ Topper. [
i Fer i vikulohin. i
;M«IIIIIIIIIIUIIIIIlM(HIIIIIIIIIIIIIIII»*lllll«IHIIMtlllHMMS
Býli
x nágrenni bæjarins er til
sölu.
Skipti á íbúð í bænum geta
konxið til greina.
Afgr. vísar á.
Útvarpsborð
á kr. 123.15
Eldhúskollar
á kr. 44.55
Járn- og glervörudeild.