Dagur - 28.10.1949, Side 8
8
Föstudaginn 28. október 1949
Þjóðleikhúsið mun faka fil starfa
í byrjun febrúar
Gengið hefir verið frá ráðningu fastra leikara
og annarra starfsmanna stofnunarinnar
Innréttingu Þjóðleikhússins miðar nú vel áfram, og
standa vonir til, að búið verði að ganga frá leiksviðs- og
ljósabúnaði hússins um nýár. Eftir það er gert ráð fyrir,
að einn mánuður fari í það að reyna tæki hússins, og það
geti síðan hafið starfsemi sína í byrjun febrúar. Nýlega
hefir verið gengið frá ráðningu leikara og helztu starfs-
manna stofnunarinnar annarra. Guðlaugur Rósinkranz,
þjóðleikhússtjóri, kvaddi fréttamenn á sinn fund í fyrradag
og skýrði þeim frá þessu og fleira varðandi lúkningu bygg-
ingarinnar og fyrirhugaða starfshætti.
Ráðning leikara.
Þjóðleikhússtjóri gat þess,
að ráðning leikaranna hefði
gengið að óskum og hefði
hann notið ágætrar samvinnu
þeirra um það mál. Fastráðn-
ir hafa verið þessir leikarar:
Arndís Björnsdóttir, Haraldur
Björnsson, Herdís Þorvalds-
dóttir, Hildur Kalman, Inga
Þórðardóttir, Indriði Waage,
Jón Aðils, Lárus Pálsson,
Gestur Pálsson, Regína Þórð-
ardóttir, Róbert Arnfinnsson,
Valur Víslason, Þóra Borg
Einarsson og Ævar Kvaran.
Laun hinna fastráðnu leik-
ara eru í fjórum launaflokk-
um, og eru þau þessi: 1. fl. kr.
11100, 2. fl. kr. 9600, 3. fl. kr.
7800, og 4. fl. kr. 6600. Eru
þetta grunnlaun.
Lausráðnir leikarar.
Auk þessara föstu leikara
hefir verið rætt við og samið
við nokkra af eftirtöldum
leikurum um að leika einstök
hlutverk með greiðslu miðað
við leikkvöld: Anna Guð-
mundsdóttir, Baldvin Hall-
dórsson, Bryndís Pétursdóttir,
Emilía Borg, Emilía Jónas-
dóttir, Guðbjörg Þorbjarnar,
Inga Laxness, Ingibjörg
Steinsdó.ttir, Klemens Jóns-
son, Nína Sveinsdóttir, Stein-
unn Bjarnadóttir og Valde-
mar Helgason. Ef til vill verð-
ur bætt við fleiri af þessum
lausráðnu leikurum.
Kjör lausráðnu leikaranna
eru þau, að þeim eru greiddar
150 kr. fyrir hvert leikkvöld
og tryggð 50 leikkvöld á ári.
Auk þess fá þeir 25 kr. fyrir
hverja leikæfingu. Gert er ráð
fyrir, að föstu leikararnir leiki
allt að 150 leikkvöldum á leik-
ári, sem er 10 mánuðir.
Þá kemur einnig til greina
að ráða leikara til að leika eitt
og eitt hlutverk, og verða
þeim greiddar 175 kr. fyr;r
leikkvöld og 30 kr. fyrir
hverja æfingu.
Aðrir starfsmenn.
Aðrir starfsmenn, sem fast-
ráðnir hafa verið, eru þessir:
Leiksviðsstjóri: Ingvi Thor-
kelsson. Hann hefir verið
starfsmaður við leikhús í Am-
eríku rúm 20 ár sem leikari,
ljósameistari, leiksviðsstjóri
og leikstjóri. Aðal leiktjalda-
málari og búningameistari
verður Lárus Ingólfsson. Tón-
listarráðunautur mun verða
Jón Þórarinsson. Ljósameist-
ari Hallgrímur Bachmann.
Veitingastjóri verður frú
Kristín Jóhannsdóttir. Um-
sjónarmaður í veitingasölum
verður Sigurður Gröndal.
Opnað með þremur
leikritum.
Eins og fyrr segir, er gert
ráð fyrir, að leikhúsið geti
tekið til starfa 1. febr. Munu
þá verða sýningar í þrjú kvöld
í röð og sitt leikritið sýnt
hvert kvöldið. Hið fyrsta
verður Nýársnóttin eftir Ind-
riða Einarsson. Leikstjóri
verður Indriði Waage. Annað
verður Fjalla-Eyvindur eftir
Jóhann Sigurjónsson og verð-
ur Haraldur Björnsson leik-
stjóri. Ekki er enn fullráðið,
hvert þriðja leikritið verður.
Æfingar munu hefjast 1. nóv.
Fastir frumsýningargestir.
Nú þegar hafa þjóðleikhús-
stjóra borizt mörg bréf með
beiðnum um að verða fastir
áskrifendur að frumsýningum
leikhússins. Gert er ráð fyrir
að það fyrirkomulag verði á,
en skipta verður frumsýning-
argestum niður á tvær sýning-
arnar, því að ekki má lofa
hverju sæti á þær, þar sem
ætla verður utanbæjarfólki
og öðrum gestum eitthvert
rúm, ef svo ber undir. Verð
aðgöngumiða á frumsýningar
verður 50% hærra en venju-
lega.
Verð aðgöngumiða.
Verð aðgöngumiða hefir
ekki enn verið að fullu ákveð-
ið, en gera má ráð fyrir, að
það hækki ekki mikið frá því
sem verið hefir í Iðnó. Þar
verða að vísu sæti dýrari en
önnur mun ódýrari en hér
hefir þekkzt áður.
Rán fékkst til lúkningar
byggingunni.
Á sl. ári var byggingarsjóð-
ur hússins þrotinn, en þá tókst
þjóðleikhússtjóra að fá um 3
milljón kr. lán til lúkningar
byggingunni. Greiðsla á því
láni er tryggð með 25% af
skemmtanaskattinum, sem á
að renna til byggingarsjóðs,
unz húsið er fullbyggt.
Rekstraráætlun.
Þjóðleikhússtjóri gat þess,
að til þess væri ætlazt í lögum
og reglugerð um rekstur húss-
ins, að það stæði að öllu leyti
sjálft undir rekstri sínum og
fengi ekki annan styrk en 25%
af skemmtanaskattinum. —
Hefði því verið gerð rekstrar-
áætlun, sem miðuð er við það,
og' yrði verð aðgöngumiða
miða við það- Samkv. þeirri
bráðabirgðaáætlun, sem gerð
hefir verið, verður reksturs-
kostnaður leikhússins um 2
milljónir króna.
Daguk
Afneitun
Alþýðumannsins
| Enda þótt Alþýðumaðurinn É
\ í gær viðurkenni, að sósíalísku \
I flokkarnir hafi tapað verulega É
\ í þessum kosningum — og \
É þannig kveði nokkuð við ann- É
; an tón í þessu blaði, en les- \
É endur þess eiga að venjast — É
= reynir það samt að klóra í \
\ bakkann og telja fólki trú um, i
E að Alþýðuflokkurinn á Akur- :
= eyri hafi ekki verið í leyni- É
: legu kosningabandalagi við É
= íhaldið. Blaðið svarar þó ekki =
É þessari spurningu, sem bæjar- É
i menn hafa velt fyfir sér að i
É undanförnu: Hvað varð um É
i Alþýðuflokksatkvæðin? Svar- i
É ið er raunar augljóst og blasir É
i við hverjum manni, sem skoð- \
É ar kosningaúrslitin hér. Hitt É
i er svo skiljanlegt, að íhalds- i
i snáparnir, sem kalla sig al- É
: þýðuforingja, þori ekki að \
é gangast við eigin verkum.
Háðherrar Framsóknar-
flokksins biðjast
lausnar
Bjarni Ásgeirsson atvinnumála
ráðherra afhenti forsætisráð-
herra sl. þriðjudag lausnar-
beiðni fyrir sig og Eystein
Jónsson menntamálaráðherra.
í gærkvöldi var enn ekki vitað,
hvort forsætisráðherra myndi
biðjast lausnar fyrir alla ríkis-
stjórnina eða ráðherra Fram-
sóknarflokksins einungis og
sitja síðan áfram í ríkisstjórn
með Sjálfstæðisflokknum.
Baejarfógeti vill fjölga
lögregluþjónum
Bæjarfógetinn hér hefir
óskað heimildar bæjarstjórn-
ar til þess að fjölga lögreglu-
þjónum í bænum um tvo.
Jafnframt að heimilað sé að
sækja um leyfi til innflutn-
ings á lögreglubifreið á næsta
ári. Bæjarráð samþykkti að
sækja um innflutning á lög-
reglubifreið, enda greiði ríkis-
sjóður helming af andvirði
hennar, en frestað var að taka
ákvörðun um fjölgun lög-
vegluþjóna.
Bærinn sækir um inn-
flutningsleyfi fyrir
heimilisvélum
Bæjarráð hefir samþykkt
að fela bæjarstjóra að sækja
um innflutnings- og gjaldeyr-
isleyfi til innflutnings á elda-
vélum og þvottavélum frá
Bretlandi og Bandaríkjunum
fyrir 200 þús. kr.
DAGUR
Vegna atkvæðatalningar kcm-
ur þetta blað út á föstudegi en
ekki miðvikudegi eins og venja
er. — Næsta reglulegt tbl. kem-
ur út næstk. miðvikudag.
Kosningin í Eyjafjarðarsýslu:
Bœjarlygin um togarana dugði ekki
Enda þótt Verkamaðurinn verði meginhlutanum af rúmi
sínu til þess fyrir kosningarnar að skrökva því að bœjar-
mönnum, að kommúnistar hefðu útvegað bænum 2 togara,
fór svo, að bœjarmenn lýstu því yfir í kosningunni síðastl.
sunnudag, að þeir hefðu enga trú á þessari fullyrðingu
kommúnista. Kommúnistar stórtöpuðu fylgi, og er það
aðeins fyrirboði þess, sem koma skal. Sannleikurinn í tog-
aramálinu er sá, að Framsóknarmenn studdu drengilega
að því að togarar yrðu gerðir út héðan, og samvinnufélögin
lögðu fram verulegt hlutafé til þess að gera það mögulegt,
Bæjarmenn spyrja: Hvar eru fjárfra.mlög kommúnista?
Sjálfstæðisflokkurinn fapaði á
annað hundrað afkvæða
En fékk samt þingmann kjörinn
Um átta leytið í gærkveldi urðu
úrslit kosninganna í Eyjafjarð-
arsýslu kunn. Urðu þau þannig,
að Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn fengu einn
mann kjörinn hvor, þá Bernharð
Stefánsson og Stefán Stefánsson.
Framsóknarflokkurinn fékk
nokkrum atkvæðum fleira nú en
1946, en Sjálfstæðisflokkurinn
tapaði 112 atkv. frá kosningunum
1946. Hins vegar vann Alþýðu-
flokkurinn verulega á, fékk jafn-
mörgum atkvæðum fleira nú og
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði. —
Kommúnistar töpuðu hins vegar
35 atkv. miðað við kosningarnar
1946.
A-lista, Alþýðuflokkurinn, 325
atkv. (213 atkv. 1946).
B-Iisti, Framsóknarflokkur-
inn, 1302 atkv. (1295 atkv. 1946).
C-listi, Sósíalistaflokkurinn.
331 atkv. (366 atkv. 1946).
D-listi, Sjálfstæðisflokkurinn
698 atkv. (810 atkv. 1946).
Starfsmenn bæjarins
fá launauppbót
Eins og getið hefir verið í bæj-
arblöðunum, fóru starfsmenn
bæjarins fra má það í sumar, að
þeir fengju greiddar uppbætur á
lau nsín á sama hátt og opinberir
starfsmenn og starfsfók Reykja-
víkurbæjar hefir nú fengið.
Bæjarráð hafði fyrir sitt leyti
samþykkt þetta fyrir næstsíðasta
bæjarstjórnarfund.
Ógildir seðlar voru 22, auðir
seðlar 33.
Vera má að þessar tölui' breytist
eitthvað lítilsháttar, en þær breyt
ingar x-aska ekki þessum heildar
niðui’stöðum.
Hrogn flutt á fiskimiðin
Skýrt er frá þvi í Norðurlanda-
blöðum, að Danir hafi á þessu
sumi-i flutt 1 millj. rauðsprettu-
hrogna frá gotstöðvum rauð-
sprettunnar á fiskimiðin, þ. e. á
Doggerbanka í þessu tilfelli, en
þar hefir veiði verið mjög treg
upp á síðkastið. Ekkert verður
sagt um árangurinn af þessari
tili-aun fyrr en eftir 2 ár. Það er
foi-stöðumaður dönsku hafi-ann-
sóknarstofnunarinnar, sem að
þessari tilraun stóð.
I f i %íA
=J 7 Y U J